Dagur - 15.11.1991, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Föstudagur 15. nóvember 1991
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 1100 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVE RÐ 100 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 725 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
BLAÐAMENN:
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir),
ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960),
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON
LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRIMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Enn minna náttúru-
öflin á sig
Óblítt veðurfar hefur reynst dýrt spaug fyrir
íbúa þessa lands það sem af er árinu og reyndar
heyrir það til undantekninga ef ekki verða tölu-
verð skakkaföll af völdum veðurs ár hvert. Þegar
hvellurinn kemur eru elstu menn gjarnan kall-
aðir til og þeir beðnir að rifja upp hliðstæðar
hörmungar á árum áður og stundum bregður
svo við að þeir muna vart annað eins. Ekki þarf
að leita til elstu manna til að rifja upp fyrir Norð-
lendingum afleiðingar óveðurskaflanna sem
dunið hafa yfir í ár, þeir eru enn í fersku minni.
Snemma á árinu skall sunnan ofsi á Norðlend-
ingum og síðan fengu þeir óþyrmilega að kenna
á ísingarveðrinu mikla sem lagði hundruð raf-
magnsstaura að velli. Miklar skemmdir urðu á
mannvirkjum af völdum hvassviðris og ísingar í
þessum áhlaupum. í haust dundi enn eitt óveðr-
ið yfir og þá urðu margir fyrir verulegu tjóni á
Siglufirði. Og náttúruöflin halda áfram að ergja
Norðlendinga því mannskaðaveður brast á í
byrjun vikunnar og enn brotnuðu tugir raf-
magnsstaura á Norðurlandi.
Fyrir utan eignatjón af völdum óveðurs má
nefna samgönguerfiðleika, rafmagnsleysi, rösk-
un á skóla- og samkomuhaldi, útköll lögreglu og
björgunarsveita og jafnvel slys eða manntjón.
Náttúran fer ómjúkum höndum um landið og
íbúa þess og ef öll skakkaföll sem rekja má til ill-
viðris væru metin til fjár mætti eflaust sjá svim-
andi upphæðir í bókhaldinu ár hvert. Og þá er
ógetið um tilfinningalegt tjón sem ekki verður
metið til fjár.
Hvað er til ráða? Er hægt að koma í veg fyrir
áföll af þessu tagi? Ekki getum við beint lægð-
unum fram hjá landinu og hugmyndin um að
færa ísland sunnar er ófær í framkvæmd. íslend-
ingar verða því sem fyrr að læra að lifa með nátt-
úruöflunum og duttlungum þeirra og vera ávallt
viðbúnir því versta.
Reynslan hlýtur að hafa kennt okkur að
bregðast rétt við þegar óveður er í nánd, taka
mark á aðvörunum veðurfræðinga, ganga vel frá
eignum okkar, vera ekki á ferli að óþörfu og
umfram allt að ana ekki út í óvissuna á vanbún-
um farartækjum og fara hvorki á fjöll né sjó ef
búist er við kolbrjáluðu veðri.
Veturinn hefur sýnt klærnar. Menn geta alltaf
átt von á því að lenda í hremmingum á næstu
mánuðum en íslendingar eru vanir vetrarríkinu
og þeir gefast ekki upp. Fátítt mun vera að þeir
flytji milli landshluta eða af landi brott vegna
óhagstæðrar veðráttu. Þar liggja aðrar ástæður
að baki en brotnir staurar og fljúgandi þakplöt-
ur. SS
Hvao ER AÐ GERAST?______________________
Kvikmyndaklúbbur Akureyrar:
Tvær stórmyndir um helgina
Kvikmyndaklúbbur Akureyrar
stendur fyrir sýningum á tveim
stórgóðum kvikmyndum á Akur-
eyri um helgina. Annars vegar
Vegi vonar (Reise der Hoffnung)
frá þessu ári og Cyrano de Berg-
erac frá árinu 1990. Fyrrnefnda
myndin verður sýnd í Borgarbíói
á morgun, laugardag, kl. 17 og
aftur nk. mánudag, 18. nóvem-
ber, kl. 18.30 og sú síðari á
sunnudag, 17. nóvember, kl. 17.
Vegur vonar er svissnesk og
hreppti Óskarsverðlaunin sem
besta erlenda kvikmyndin þetta
árið. Leikstjóri er Xavier Koller.
Myndin byggirá blaðafregn. Hún
segir frá bláfátækri tyrkneskri
fjölskyldu, sem heldur til fyrir-
heitna landsins, Sviss. Á leiðinni
eru þau svikin og lenda í hörm-
ungum í Ölpunum, sem enda
með ósköpum. Þetta er einkar
minnistæð mynd, sem hefur hvar-
vetna fengið mikla aðsókn og
góða gagnrýni.
Cyrano de Bergerac er frönsk
og er byggð á leikriti Edmont
Rostand. Leikstjóri er Jean Paul
Rappeneau, en aðalhlutverk er í
höndum Gérard Depardieu og
Anne Brochet. Efni myndarinnar
er eitthvað á þá leið að Cyrano
lávarður af Bergerac er góðum
mannkostum búinn. Hann glímir
þó við eitt vandamál; fram úr
andliti hans trónir eitt stærsta nef
sem sést hefur á mannskepnunni.
Myndin fékk Óskarsverðlaun fyr-
ir bestu búninga auk þess sem
hún sópaði til sín 10-12 Cesar-
verðlaunum Frakka. Myndin er
talin mikilfengleg tragikómedía.
Helgi og hljóðfæraleikar-
arnir frumflytja rokktónverk
Annað kvöld ætla Helgi og hljóð-
færaleikararnir að frumflytja
rokktónverk sitt „Landnám".
Efnið er sótt í smiðju forneskj-
unnar. Efnisþráðurinn er í gróf-
um dráttum sá að Þórir feiti
(óðalsbóndi í Noregi) þolir ekki
lengur við heima vegna yfirgangs
Haralds hárfagra. Pví siglir hann
til íslands og nemur land. Á leið-
inni og eftir landnámið lendir
hann í ýmiskonar hremmingum,
t.d. ofsaveðrum og villutrúarpöp-
um.
Helgi og hljóðfæraleikararnir
munu leitast við að varpa skírara
ljósi á landnámið í félagsheimil-
inu Laugarborg við Hrafnagil
annað kvöld kl. 21. Miðaverð er
kr. 600 og er kaffi innifalið.
Akureyrarkirkja:
Boðað til stoftifundar
Iistvinafélags á sunnudag
Nk. sunnudag kl. 16 er boðaður
stofnfundur Listvinafélags Akur-
eyrarkirkju í fundarsal Safnaðar-
heimilis Ákureyrarkirkju.
I drögum að lögum félagsins
kemur fram að því er ætlað að
Leikfélag Dalvíkur:
Dreifar af dagsláttu
styðja og efla hverskyns lista-
starfsemi í Akureyrarkirkju.
Meðal annars er hugmyndin að
félagið sé prestum og sóknar-
nefnd til ráðuneytis um listflutn-
ing í kirkjunni, sé þess óskað,
efla tengsl kirkju og leikstarf-
semi, standa fyrir myndlistasýn-
ingum og stuðla að fyrirlestrum.
Allt áhugafólk er hvatt til að
mæta á stofnfund félagsins og
leggja þessu málefni lið.
- opið hús og dagskrá úr verkum
Kristjáns frá Djúpalæk
Að undanförnu hefur staðið yfir
leiklistarnámskeið á vegum Leik-
félags Dalvíkur undir stjórn Þrá-
ins Karlssonar leikara frá Akur-
eyri. Þar hefur verið æfð upp
dagskrá úr verkum Kristjáns frá
Djúpalæk og verður hún flutt á
morgun, laugardag.
Dreifar af dagsláttu nefnist
dagskráin og var hún tekin saman
fyrir LA á sínum tíma af þeim
Um helgina lýkur afmælishá-
tíðinni á Uppanum og 1929. í
tilefni af því verður öllum konum
boðið frítt inn á 1929 annað
kvöld, laugardagskvöld. Karl-
peningsins er að sjálfsögðu einnig
vænst á staðinn.
Kristjáni Kristjánssyni, syni
skáldsins, og Sunnu Borg. Þátt-
takendur í námskeiðinu hjá Þráni
voru 12 talsins og koma þeir allir
fram í dagskránni. Hún verður
flutt í húsi Leikfélags Dalvíkur,
Lambhaga við Skíðabraut, og
hefst kl. 15. Þar verður opið hús
fyrir alla Dalvíkinga og nær-
sveitamenn og boðið upp á kaffi
og pönnukökur. -ÞH
arsvæðinu og þykir hafa fjöl-
breytt og vandað lagaval.
í kvöld, föstudagskvöld, verð-
ur tískusýning í 1929 frá Lewi’s.
Akureyri:
Dömukvöld Þórs í
Hamri á morgun
Dömukvöld Þórs verður haldið í
Hamri á morgun laugardaginn
16. nóvember. Tekið verður á
móti gestum með hænustéli kl.
19.00 en samkoman hefst kl.
20.00.
Auk þess sem boðið verður upp
á gómsætan mat, verða skemmti-
atriði, tískusýning og happdrætti
á meðal dagskrárliða. Miðaverð
er kr. 2000 og eru allar dömur á
aldrinum 18 til 100 ára eru vel-
komnar.
Eftir miðnætti verður húsið
opnað fyrir alla, jafnt konur sem
karla.
Sjallinn:
Uppinn/1929:
Afinælishátíð lýkur um helgina
Hljómsveitin Undir tunglinu
spilar um helgina, en þarna er á
ferðinni hljómsveit sem enn sem
komið er er lítt þekkt norðan
heiða. Hún hefur hins vegar ver-
ið að gera það gott á höfuðborg-
Tískusýning og Stjöraukvöld
í kvöld, föstudagskvöld, verður
tískusýning í Sjallanum frá versl-
ununum Perfect og Amor. Tísku-
x Kristnesspítali:
Arlegur jólabasar í
Vín a sunnudagmn
Hinn árlegi jólabasar Kristnes-
spítala verður haldinn nk. sunnu-
dag, 17. nóvember, í Blóma-
skálanum Vín í Eyjafjarðarsveit
og hefst hann kl. 13.30.
Á Kristnesspítala er starfandi
endurhæfingar- og hjúkrunar-
deild og eru basarmunir, eins og
undanfarin ár, unnir af vistfólki,
sem hefur dvalist þar um lengri
eða skemmri tíma. Fólki er bent
á að kaffihlaðborð verður í Vín á
basardaginn.
Ágóða af basarnum verður
varið til áframhaldandi upp-
byggingar handavinnuaðstöðu á
Kristnesspítala.
sýningarfólk mun sýna vetrarlínu
á fatnaði sem verslunin Perfect
hefur upp á að bjóða og undirföt
frá versluninni Amor. Þá mun
Nanette Nelmes koma fram og
sýna nýjan dans og Eyjólfur
Kristjánsson syngur nokkur lög.
Húsið verður opnað kl. 22.00 og
miðaverð er 800 kr.
Annað kvöld verður Stjörnu-
kvöld í Sjallanum og eru það
Eyjólfur Kristjánsson og Guðrún
Gunnarsdóttir og Valgeir Skag-
fjörð sem verða gestir Sjallans.
Þá munu eldhressir Galgopar
skemmta matargestum, happ-
drættið verður á sínum stað svo
og grínið á breiðtjaldinu. Kynnir
er Bjarni Hafþór Helgason.