Dagur - 15.11.1991, Page 12
Akureyri, föstudagur 15. nóvember 1991
Frestun álversframkvæmda á Keilisnesi:
Munum hægja á leitinni
að frekari gufu í Kröflu
- segir Jóhann Már Maríusson
aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar
Leikhúsgestir
Munið
ieikhústilboðið
á kr. 1900,-
Heimilismatur *
alla virka daga í
hádeginu
á kr. 700,-
Næg vinna er nú hjá Foldu hf. við að framleiða upp í pantanir og auk þess er undirbúningur fyrir næsta ár hailnn.
Mynd: Golli
Folda hf. á Akureyri:
VerkeM tryggð fram í mars
- sýnishornasending á Japansmarkað
Jóhann Már Maríusson,
aðstoðarforstjóri Lands-
virkjunar, segir að frestun
álversframkvæmda á Keilis-
nesi muni ekki hafa afgerandi
áhrif á framkvæmdir við
Kröfluvirkjun og þrátt fyrir
Öxarfjarðarheiði:
Unnið að línu-
viðgerðumígær
Síðdegis í gær sá dísNvél á
Þórshöfn enn um að framleiða
rafmagn fyrir Þórshöfn og
Þistilfjörð. Ekkert hefur þurft
að skammta rafmagn, en
reiknað var með að viðgerð
raflínunnar á Öxarfjarðarheiði
lyki í gærkvöld.
í fyrradag voru tæki flutt upp á
heiðina og björgunarsveitarmenn
börðu ísingu af línum. í gær-
morgun fóru síðan viðgerðar-
menn til að reisa staura sem látið
höfðu undan í veðrinu aðfara-
nótt þriðjudags. Þokkalegt veður
var í gær og gekk verkið ágæt-
lega. IM
Skiptaráðandi á Húsavík gaf
Anny Larsdóttur, hæstbjóð-
anda í jörðina Sveinbjarnar-
gerði II og fasteignir á henni,
frest til 30. þessa mánaðar til
að standa við tilboðið. Anny
hafði frest til föstudags í síð-
ustu viku til að standa við til-
boðið en þá var fresturinn
framlengdur til gærdagsins en
var þá á ný framlengdur.
Samkvæmt lögum er hver sá
sem gerir tilboð á uppboði bund-
inn af tilboði sínu í þrjár vikur.
Samkvæmt því hefðu tilboð átt
að renna út í dag. íslandsbanki,
Seinnipartinn í gær var lokið
við að koma rafmagni á alla
staði sem rafmagnslausir urðu í
ísingarveðrinu sl. þriðjudag.
Seinustu bæirnir til að fá raf-
magn voru á vestanverðum
Skaga og komust þeir í sam-
band um fjögurleytið.
„Þetta er búin að vera þriggja
sólarhringa törn hjá okkur og við
urðum að fá vinnuflokka frá
Borgarnesi, Ólafsvík og Stykkis-
hólmi til að aðstoða við viðgerð-
irnar. Björgunarsveitarmenn
unnu einnig mjög gott starf og
björguðu miklu með að draga
ísingu af línum sem annars hefðu
þessa stöðu mála haldi menn
sínu striki við að Ijúka fram-
kvæmdum við Blönduvirkjun
næsta vor.
„Við erum að endurmeta
stöðuna. Þetta breytir engu með
rekstur Kröfluvirkjunar, en við
munum hægja eitthvað á leitinni
að frekari gufu á virkjunarsvæð-
inu. Unnið er að borun á einni
holu og við verðum að sjá hvern-
ig hún kemur út. En almennt má
segja að við reynum að halda
okkar striki í takt við þörfina,"
segir Jóhann Már.
Hann segir að frestun fram-
kvæmda á Keilisnesi hafi engin
áhrif á lokafrágang Blöndu-
virkjunar. „Það er unnið að því
að setja upp aðra og þriðju aflvél
virkjunarinnar og því verður lok-
ið á tilsettum tíma í vor. Gert er
ráð fyrir að síðasta vélin verði
komin í gagnið í vor. Það er ekk-
ert vit í að stöðva framkvæmdir
við Blönduvirkjun á þessu stigi.
Hún er best geymd fullfrágengin.
En menn mega ekki gleyma því
að Blönduvirkjun nýtist nú þegar
og hún gerir raforkukerfið í land-
inu öruggara en ella,“ sagði Jó-
hann Már. óþh
sem átti næst hæsta tilboð í eign-
irnar, Iýsti yfir í gær að hann
standi við tilboð sitt í hálfan mán-
uð til viðbótar og í framhaldi af
því ákvað fulltrúi skiptaráðanda
á Húsavík að taka ekki afstöðu til
tilboðs Annyar fyrr en 30.
nóvember í síðasta lagi. Sam-
kvæmt uppboðsskilmálum hefði
Anny átt að greiða fjórðung til-
boðs síns í gær, þ.e. um 17 millj-
ónir króna, og afganginn eftir tvo
mánuði en jafnframt framleng-
ingu frestsins í gær var ákveðið
að tilboðsupphæðin skuli að fullu
greidd fyrir 30. nóvember, þ.e.
65,1 milljón króna. JÓH
sligast og slitnað," sagði Haukur
Ásgeirsson, svæðisrafveitustjóri,
í gær.
Veður var skaplegt í gær þar
sem vinnuflokkar rafmagnsveitn-
anna unnu við viðgerðir, skaf-
renningur en engin snjókoma.
Mikið af viðgerðunum er til
bráðabirgða að sögn Hauks og
sagðist hann sjá fram á vinnu allt
til jóla við að koma línum og
lögnum í samt lag aftur.
í gær var verið að plægja niður
jarðstreng þar sem línan slitnaði
milli Blönduóss og Skagastrandar
og sagði Haukur að trúlega yrði
lagður jarðstrengur á fleiri stöð-
Verkefni eru nú tryggð fyrir
fataframleiðslu Foldu hf. á
Akureyri fram í mars á næsta
ári. Næg vinna er nú í fyrirtæk-
inu en framleitt er upp í endur-
pantanir frá Vestur-Evrópu-
löndum auk pantana frá Rúss-
landi. Þá er undirbúningur fyr-
ir næsta ár kominn á verulegan
skrið með framleiðslu sýnis-
horna sem meðal annars fara
til Japans og Evrópulanda.
Baldvin Valdemarsson, fram-
kvæmdastjóri Foldu, segir að
vörulínan sé minni hjá fyrirtæk-
inu en var hjá Álafossi áður. „En
hún er vonandi markvissari því
þetta er fyrir þrengra skilgreind-
an markað en var áður,“ sagði
Baldvin.
Hann segir að það að fyrirtæk-
ið hafi fengið sýnishornapantanir
frá Japan þýði að í kjölfarið fylgi
pantanir á næsta ári. Eins og áður
segir eru verkefni fyrirsjáanleg
fram í mars á næsta ári en að
sögn Baldvins má reikna með að
um þar sem margir staurar brotn-
uðu í röð. SBG
í fyrrinótt var brotist inn í
verslunina Garðshorn á Akur-
eyri og stolið þaðan Zippo-
kveikjurum. Annað var látið í
friði.
Að sögn Gunnars Jóhannsson-
ar, rannsóknarlögreglumanns,
var hér varla um eiginlegt innbrot
með vorinu byrji að koma pant-
anir fyrir næsta vetur.
Stofnhlutafé í Foldu hf. er nú
orðið 64 milljónir króna en stjórn
hefur heimild til að auka hlutafé í
70 milljónir. Aukaaðalfundur var
haldinn þegar Byggðastofnun
gerðist hluthafi í Foldu fyrir
'Vegurinn um Öxnadalsheiði
var orðinn fær öllum bílum um
miðjan dag í gær. Mikinn snjó
hafði sett á veginn og snjóflóð
hafði fallið niður yfir gamla
veginn, Skagafjarðarmegin
við Grjótá, niður á þann nýja.
Vegagerð ríkisins sendi flokk
manna snemma í gærmorgun til
að ryðja Öxnadalsheiði. Að sögn
Gísla Felixsonar frá Sauðárkróki
hafa aldrei verið fleiri tæki við
snjómokstur á heiðinni enda
snjórinn óvanalega mikill og erf-
iður þ.e. blautur og saman
barinn.
„Við fórum af stað fyrir birt-
ingu og opnuðum með hraði. Nú
er unnið að breikkun slóðarinnar
og gerð útskota. Til verksins höf-
um við hefil og bíl með tönn frá
Sauðárkróki, frá Akureyri stóran
að ræða því þjófurinn fór aldrei
inn í verslunina. Hann braut
rúðu á vesturhlið hússins, teygði
sig í hillu þar sem kveikjararnir
voru og tók þá með sér. Hann
getur því tendrað eld í gríð og
erg næstu mánuði, nema lögregl-
an hafi hendur í hári hans. SS
skömmu og á honum varð sú
breyting að Ólafur Vagnsson tók
sæti Hauks Halldórssonar í stjórn
jafnframt því sem Guðmundur
Guðmundsson kom inn sem full-
trúi Byggðastofnunar. Formaður
stjórnar er sem áður Ásgeir
Magnússon. JÓH
hefil, af Super 700 gerð, og frá
Ólafsfirði snjóblásara og minni
hefil með væng. Snjórinn var
mestur frá Kotum, fram og upp á
heiðarranann. Ljóst er að vegar-
stæðið nýja er hið besta þrátt fyr-
ir að snjóflóð hafi fallið á veginn.
Mikill léttir er að þurfa ekki að
fara um klifið á degi sem
þessum,“ sagði Gísli Felixson.
ój
Skíðastaðir:
Hugsanlega opnað
um aðra helgi
„Skídasvæöiö í Hlíðarfjalli
verður ekki opnað um helgina
sem margir ætla. Hins vegar er
gott færi í Kjarnaskógi fyrir þá
sem vilja taka fram gönguskíð-
in,“ sagði Ivar Sigmundsson,
forstöðumaður Skíðastaða
ofan Akureyrar.
Þrátt fyrir mikla snókomu og
fannfergi víða á Norðurlandi er
ekki mikill snjór í Hlíðarfjalli.
Mun meiri snjór er á Akureyri og
því hefur fólk gert sér vonir um
að komast til fjalls á skíði um
helgina.
„Okkur vantar meiri snjó.
Svæðið er hættulegt vegna gilja
og grjóts. Við stefnum að opnun
um aðra helgi ef bætir á snjóinn,“
sagði ívar Sigmundsson. ój
Tilboðið í eignirnar í Sveinbjarnargerði:
Enn lengist fresturinn
Rafmagnsleysið á Norðurlandi vestra:
Þeir síðustu fengu rafmagn í gær
Kveikj arakrækir
kominn á stjá
Öxnadalsheiði:
Vegurinn fær að nvju