Dagur - 09.01.1992, Blaðsíða 5

Dagur - 09.01.1992, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 9. janúar 1992 - DAGUR - 5 Snorri Björn Sigurðsson, bæjarstjóri á Sauðárkróki: „Held að við förum ekki verr út úr þrengmgunum en aðrir“ Um áramót er vaninn að spá í framtíðina. Slíkt gera jafnt ein- staklingar sem fyrirtæki og e.t.v. ekki hvað síst sveitarfé- lög. Við litum inn á bæjarskrif- stofuna á Sauðárkróki í Iok nýliðins árs og hittum þar að máli Snorra Björn Sigurðsson, bæjarstjóra. Hann pússaði rykið af kristalskúlunni og leit til ársins 1992 fyrir Sauðár- krók. „Þú finnur að þyngra er undir fæti hjá flestum, bæði fyrirtækj- um og einstaklingum. Við hér á Sauðárkróki höfum hinsvegar sloppið vel við gjaldþrot, en þau hafa verið fá og ekki komið veru- lega illa við okkur. Að því leyt- inu höfum við verið heppin, en engu að síður finnur maður að minni peningar eru í umferð en verið hefur. Ég er náttúrlega áhyggjufullur út af því hvernig árið verður, en oft hefur þó verið sagt að íslend- ingar standi sig í rauninni betur þegar á móti blási, en þegar vel gangi. Vonandi verður raunin sú á næsta ári og vonandi tekst okk- ur að vinna okkur fljótt og örugg- lega út úr örðugleikunum, þó maður sjái í dag ekki hvernig það gerist.“ „Munum ekki bera okkur illa“ - Hver er staða Sauðárkróks miðað við aðra álfka staði? „Staðreyndin er sú að á undan- förnum árum hefur orðið fólks- fjölgun hér svo til hvert einasta ár. Fjölgunin hefur alltaf náð landsmeðaltalinu og yfirleitt ver- ið heldur meiri. Eins var það í ár, þrátt fyrir að mjög víða sé stöðn- un eða fækkun og sérstaklega hér á Norðurlandi vestra. Það er ánægjulegt og mér finnst satt að segja að hljóðið í mönnum hér á Króknum sé ekki eins slæmt og víða annars staðar. Við höfum hingað til ekki gert út á það að bera okkur illa og munum áreið- anlega ekki gera það jafnvel þó á móti blási." Byggingariðnaðurinn stór spurning - Hvert er útlitið í atvinnumál- unum? „Það sem allt fellur og stendur með, er náttúrlega hvernig atvinnuástandið verður, en það er hlutur sem erfitt er að segja til um í byrjun árs og ýmsar blikur á lofti enda efnahagsástandið hjá þjóðinni almennt bágt. Við hér vorum svo heppin að þeir hjá Fiskiðjunni-Skagfirðingi voru duglegir að kaupa kvóta og fyrir vikið komum við betur út varð- andi kvótaskerðinguna, en marg- ir aðrir. Ein stærsta spurningin er e.t.v. hvernig byggingariðnaður- inn kemur til með að standa sig, því hann gefur mörgum atvinnu í dag. Síðan er maður óskaplega hræddur vegna samdráttar í land- búnaði, því það segir sig sjálft að slíkt er alvarlegt mál fyrir okkur. Með fækkun bænda verður rekst- ur vinnslustöðva erfiðari og þjón- usta við sveitirnar minnkar. Vegna þessa ber ég vissan ótta í brjósti og eins vegna rækjuiðn- Snorri Björn Sigurðsson. Mynd: SBG Sértilboð: Eitt símtal og við gerum þér tilboð AKUREYRI 96-24838 Bílaleigan Orn Flugvöllur og Tryggvabraut 1. ÞÓRSHÖFN: Tel. 96-81175 VIÐ ÞJÓNUM ÞÉR RVS-AVIS Licency aðarins sem allt er óljóst með. Mín tilfinningin er samt sú að ástandið á Sauðárkróki verði heldur skárra en víða annars staðar. Spurningin er svo sú hvort það verði nóg, en þetta fer svo mikið eftir því hvað gerist í kjarasamningunum. Hvort farið verði í verkföll og verðbólgan æði aftur af stað. En allavegana held ég að við förum ekki verr út úr þrengingunum en aðrir og kannski heldur skár. Hvað mik- ið af þessu er óskhyggja ætla ég samt ekki að segja til um.“ Skrifstofiitækni Lögð er áhersla á tölvur og notkun þeirra Aukin menntun betri atvinnumöguleikar ,JNTÁM SEM XÝTISP es3 m Tölvufræðslan Akureyri hf. Glerárgötu 34, III. hæð, Akurevri, síml 27899 SKÓHÚSIÐ Alvöru skóútsala byrjar á morgun föstudag kl. 10.00 50-70% afsláttur Skór á alla fjölskylduna Ath. Nýtt Visatímabil BÓNUSSKÓR / A meðan á útsölu Skóhússins stendur er 15% afsláttur á öllum skóm í Bónusskóm BÓNUSSKÓR Verslunarmiðstöðinni Kaupangi, simi 27019

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.