Dagur - 09.01.1992, Blaðsíða 12
Akureyri, fimmtudagur 9. janúar 1992
Hádegistilboð aUa daga
Súpa og salatbar ásamt okkar nýbökuöu brauöum fylgja öllum aðalréttum og pizzum
Frí heimsendingarþjónusta allan daginn
Alvöru veitingahús
Vinna er hafín á ný í frystihúsi ÚA eftir jólafrí, en í gær var unniö við að þrífa vélar og tæki. Mynd: Goiii
Akureyri:
Vinna hafin að nýju í frystihúsi ÚA
Vatnsveita Sauðárkróks:
Hækkun hjá
einstaklmgum
- lækkun hjá
vinnslustöðvum
Bæjarstjórn Sauðárkróks sam-
þykkti á fundi sínum sl. þriðju-
dag fundargerð veitustjórnar
þar sem álagningarprósenta
vatnsgjalds er lækkuð úr 0,2%
í 0,15% fyrir árið 1992. Ástæð-
an er ný lög um vatnsveitur
sveitarfélaga sem tóku gildi í
lok nýliðins árs.
Auk þess að lækka álagningar-
prósentuna lækkar veitustjórn
Sauðárkróks einnig aukavatns-
gjald úr 14 kr. hvern rúmmetra
niður í 12 kr.
Hilmir Jóhannesson, bæjarfull-
trúi og formaður veitustjórnar,
skýrði afgreiðslur fundarins og
sagði ástæðuna fyrir lækkuninni
vera þá að ekki væri lengur leyfi-
legt að reikna prósentuna út frá
fasteignamati íbúðarhúsnæðis.
Pess í stað er álagningarstofninn
nú afskrifað endurstofnverð húss
og mannvirkis margfaldað með
markaðsstuðli fasteigna í Reykja-
vík, samkvæmt matsreglum Fast-
eignamats ríkisins.
í umræðum um þessa fundar-
gerð kom fram að með þessari
lækkun hækka útgjöld einstakl-
inga vegna vatns, en vatnsfrek
fyrirtæki þurfa hinsvegar að
greiða minna. í máli Hilmis kom
fram að vatnsveita Sauðárkróks
mun vegna þessa koma til með að
tapa einhverjum hundruðum
þúsunda, en hann sagði þá hafa
m.a. hafa lækkað aukavatns-
skattinn til að koma til móts við
vinnslustöðvar sem farið hafa
fram á lækkun. SBG
ÓlafsQörður:
Bakarííð
opnað í
næsta mánuði
Bakarí og brauðbúð verða
opnuð í Ólafsfirði í næsta mán-
uði. Eins og fram hefur komið
hefur undirbúningur staðið í
haust og nú er unnið við lag-
færingar á húsnæði undir
starfsemina. Arnbjörn Ara-
son, bakari á Blönduósi, er
eigandi þessa fyrirtækis ásamt
fjölskyldu sinni.
í samtali við Dag í gær sagði
Arnbjörn að fyrir liggi vilyrði frá
bæjaryfirvöldum í Olafsfirði um
ábyrgð ef lánveitendur krefjist
hennar. Ekkert komi í veg fyrir
hér eftir að af stofnun fyrirtækis-
ins verði.
Um verður að ræða bakarí og
brauðbúð en jafnframt ætlar
Arnbjörn að selja brauð í versl-
unum bæjarins. Aðspurður segir
hann að tilkoma þessa bakarís
keppi meira við brauðgerðir á
Akureyri en Dalvík þar sem
meiri hluti þess brauðs sem selt
er í verslunum í Ólafsfirði komi
frá Akureyri.
„Húsnæðið verður til eftir
mánuð og þá er eftir að koma
upp vélum og búnaði. Bakaríið
gæti því farið af stað upp úr miðj-
um febrúar," sagði Arnbjörn.
JÓH
Hrímakur EA 306 sem hélt til
veiða að kvöldi 2. janúar kom
til löndunar í morgun og því er
vinna aftur hafin í Hraðfrysti-
húsi Útgerðarfélags Akureyr-
inga hf., en vinna hefur legið
Ástand og horfur í byggingar-
iðnaði á Húsavík eru með
daprara móti þessa dagana og
hefur eitt stærsta fyrirtækið í
greininni, Trésmiðjan Fjalar
hf., sagt upp svo til öllum
starfsmönnum sínum, eða 15
manns. Dagur ræddi við bygg-
ingafulltrúa og nokkra verk-
taka um ástandið.
„Þetta er frekar þungt og ég sé
lítið framundan, verkefni eru
með minnsta móti og ég held að
orsökin sé almennur samdráttur
á svæðinu," sagði Stefán Óskars-
son, eigandi Trésmiðjunnar Rein
í Reykjahverfi, aðspurður um
ástand og horfur. Samdráttur er í
landbúnaði en meginþorri þeirra
verkefna sem Stefán hefur tekið
að sér eru í sveitum Þingeyjar-
sýslu, þó hefur hann einnig ann-
ast verkefni á Húsavík. Stefán
sagðist ekki hafa sagt upp starfs-
mönnum en hann hefði ekki ráð-
ið í skörðin þegar menn hefðu
hætt, og því hefur starfsmönnum
fækkað. „Ég sé ákaflega lítið
framundan, en það þýðir samt
ekkert annað en að vera bjart-
sýnn,“ sagði Stefán.
„Það er ákaflega dauft hljóð í
mönnum. Ég reikna ineð að
starfsmönnum hérna fækki
eitthvað, ég hef ekki sagt upp
formlega en allavega verður ekki
ráðið í stað þeirra sem hætta.
Þetta er heilmikill samdráttur,“
sagði Sigtryggur Sigurjónsson,
eigandi Norðurvíkur hf. á Húsa-
vík. Sigtryggur sagði að það hefði
komið bölvanlega niður á sínu
niðri frá því skömmu fyrir jól.
Hrímbakur EA og Kaldbakur
EA fóru til veiða fyrstir togara
Útgerðarfélagsins eftir áramótin.
Afli Hrímbaks í fyrstu veiðiferð
nýs árs eru rúmlega 100 tonn af
fyrirtæki að raðhúsalóðir hefðu
ekki verið fáanlegar hjá bænum á
tveggja ára tímabili, en fyrirtæk-
ið hefur byggt og selt fjölda
íbúða í raðhúsum á undanförn-
urn árum. Sigtryggur sagðist hafa
fengið lóð fyrir raðhús í haust,
eftir mikinn barning, og hann
mundi fara af stað með byggingu
hússins. Hann sagði að fólki færi
Hugmyndir eru uppi um að
koma á laggirnar svokallaðri
bónusverslun á Kópaskeri, en
eins og við höfum greint frá
hætti Kaupfélag Þingeyinga
rekstri verslunnar sinnar á
Kópaskeri um síðustu áramót.
Nokkrir aðilar hafa sýnt áhuga
á að starfrækja verslun í
byggðarlaginu en Trausti Þor-
láksson, atvinnufulltrúi Norð-
ur-Þingeyjarsýslu, er að skoða
bónusfy rirkom ulagiö.
Með þessu fyrirkomulagi er átt
við að allur tilkostnaður verður í
lágmarki. Vörunum verður ekki
raðað upp í hillur heldur verða
þær í kössum, hægt verður spara
í starfsmannahaldi og minnka
þorski. Kaldbakur EA kemur til
löndunar að morgni mánudags og
afli hans verður ekki minni en
Hrímbaks. Nokkuð sæmileg
veiði hefur verið að undanförnu á
togslóð austur af landinu. ój
fækkandi í bænum og var því
ekki eins vongóður um sölu íbúð-
anna og undanfarin misseri.
„Ég segi bara allt gott. Ég er
með verkefni næstu sex mánuði,
en er hræddur um að lítið verði
að gera að þeim loknum,“ sagði
Gunnar Bergmann Salómonsson
hjá Trésmiðjunni Borg hf.
aðspurður um ástand og horfur
milliliðakostnað.
Að sögn Ingunnar St. Svavars-
dóttur, sveitarstjóra Öxarfjarðar-
hrepps, mun það taka nokkrar
vikur að koma á fót verslun með
nýju formi á Kópaskeri og semja
við aðila sem vilja taka rekstur-
inn að sér. Þangað til verða íbú-
arnir að láta sér lynda tiltölulega
lítið vöruúrval, eða sækja það
annað.
„Það er afgreitt brauð hér í
söluskálanum okkar og svo eru
tveir menn, Brynjólfur Sigurðs-
son og Friðrik Jónsson, svo
elskulegir að afgreiða út úr
mjólkurkælinum eftir pöntunum
meðan þetta ástand varir, þannig
að við fáum brýnustu nauðsynj-
ar,“ sagði Ingunn. SS
Dögun hf.
á Sauðárkróki:
Vinna hefst
ánýum
mánaðamótin
- ekki ákveðið hvað
gert verður við Röst SK
Enn er ekki komið á hreint
hvað gert verður við veiðiskip-
ið Röst SK, sem rækjuvinnslan
Dögun hf. á Sauðárkróki á og
er í lamasessi vegna bruna á
síðasta ári. Þessa dagana liggur
niðri vinna hjá Dögun, en ver-
ið er að lagfæra ýmsa hluti í
vinnsluhúsinu sjálfu.
„Við erum að ganga frá ýmsu í
vinnslunni hjá okkur og m.a. er
verið að setja upp skilrúm milli
vinnsluþátta í samræmi við kröf-
ur Evrópumarkaðarins. Ég
reikna með að farið verði að
vinna rækju aftur undir lok mán-
aðarins eða byrjun þess næsta,“
segir Ómar Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Dögunar hf.
Að sögn Ómars’er allt í bið-
stöðu hvað varðar Röstina og
ekkert formlegt farið að gerast í
samvinnu eða sameiningarmálum
við önnur fyrirtæki. Hann segir
að möguleikar um hagræðingu
hafi verið ræddir, en enn sem
komið er hafi einungis verið
fleygt fram hugmyndum um þau
mál. SBG
hjá fyrirtæki sínu.
„Ástandið hefur verið eirina
efnilegast og flestar byggingar í
gangi á Húsavík síðari árin, ef
tekið er mið af Norðurlandi og
Akureyri þar undanskilin. Þetta
hefur þó talsvert dregist saman
því ekkert er um að vera i opin-
bera geiranum,“ sagði Ólafur
Júlíusson, byggingafulltrúi á
Húsavík. Byggingu Heilsugæslu-
stöðvarinnar er lokið og áfanga
við Safnahúsið, vinna við skóla-
bygginguna er þó í gangi ennþá,
verkamannaíbúðir og skoðunar-
stöð fyrir Bifreiðaeftirlitið, en
þessum verkefnum lýkur öllum í
vor eða sumar. Verið er að
byggja ein fjögur einbýlishús og
Norðurvík hefur verið úthlutað
raðhúsalóð. Hugur er í Dvalar-
heimili aldraðra að byggja við
Hvamm, og einnig í Björgunar-
sveitinni Garðari að byggja nýtt
björgunarhús, ef tekst að fjár-
magna verkefnin. „Það virðist
ekki stefna í neitt í opinbera geir-
anum, en mér finnst þó óþarflega
mikill barlómur í mönnum,“
sagði byggingafulltrúi, aðspurður
um horfurnar í byggingariðnaði.
Einn þeirra byggingamanna á
Húsavík sem Dagur ræddi við,
hafði orð á því að í raun væri það
afleitt fyrir byggingamenn í bæn-
um hve hjónaskilnuðum þar hef-
ur fækkað, því undanfarin ár
hefði fjölgun íbúða í bænum
aðallega byggst á þörf fyrir fleiri
íbúðir í kjölfar hjónaskilnaða,
þar sem fólki í bænum hefði ekki
fjölgað. IM
Samdráttur og uppsagnir í byggingariðnaði á Húsavík:
Þungt Mjóð í byggingaverktökum
- fækkun hjónaskilnaða dregur úr þörf fyrir nýjar íbúðir, segir einn verktakanna
Kópasker:
Hugmyndir um að koma
bónusverslun á fót