Dagur - 22.01.1992, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 22. janúar 1992
Fréttir
Unnið að tillögum um niðurskurð á rekstrarkostnaði á sjúkrahúsum:
„Þetta verður auðvitað mjög erfitt“
Þessa dagana sitja forsvars-
menn sjúkrahúsa á Norður-
iandi sveittir yfir erfiðu reikn-
ingsdæmi; nefnilega hvernig
hægt sé að ná fram boðuðum
sparnaði á rekstri sjúkrahús-
anna á þessu ári. Framkvæmda-
stjórum sjúkrahúsanna sex ber
saman um að niðurskurðartil-
lögur liggi fyrir í næstu viku,
enda kallar heilbrigðisráðu-
neytið á þær um næstu mán-
aðamót.
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
Ingi Björnsson, framkvæmda-
stjóri Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri, segir að fyrir næstu
mánaðamót verði ákveðið með
hvaða hætti brugðist verði við
boðuðum niðurskurði í rekstri
spítalans.
í endanlegri mynd fjárlaganna
fær FSA 713,3 milljónir króna til
launagreiðslna og 422,2 milljónir
til annarra gjalda. í frumvarpi til
fjárlaga var hins vegar gert ráð
fyrir 768,4 milljónum í launa-
greiðslur og 427 milljónir í önnur
gjöld. Samtals nemur lækkunin
59,9 miljónum króna.
Ingi orðaði það svo að á teikni-
borðinu væru hugmyndir um
hvernig þessum sparnaði mætti
ná, en stjórn spítalans hefði síð-
asta orðið. Gert væri ráð fyrir
stjórnarfundi innan fárra daga,
að minnsta kosti yrði Ijóst fyrir
mánaðamót með hvaða hætti
skorið yrði niður.
Sjúkrahúsið á Húsavík
Engar ákvarðanir hafa verið
teknar um til hvaða aðgerða
verður gripið til að ná fram 13,2
milljóna króna sparnaði hjá
Sjúkrahúsinu á Húsavík. í fjár-
lögum er launaliðurinn 169,9
milljónir, var 182,2 í fjárlaga-
frumvarpinu og til annara gjalda
er varið 72,6 milljónum króna,
var 73,5 milljónir króna í fjár-
lagafrumvarpinu.
Ólafur Erlendsson, fram-
kvæmdastjóri Sjúkrahússins, seg-
ir ekki ljóst hvernig brugðist
verði við þessu, en málin skýrist
væntanlega í næstu viku. Hann
segir ekki ljóst hvort yfirvinna
verði skorin niður eða hvort
verði að grípa til lokunar deilda.
Héraðshæli
Austur-Húnvetninga
Niðurskurður á launalið og öðr-
um gjöldum hjá Héraðshæli
Austur-Húnvetninga nemur 6,7
milljónum króna. Niðurskurður-
inn á heilsugæslunni er 1,1
milljón. Að þessu viðbættu var
launaliðurinn skorinn niður um
2,7 milljónir í fjárlagafrumvarp-
inu miðað við fyrra ár og önnur
gjöld skorin niður um 1,3 millj-
ónir. Pví er óhætt að segja að í
það heila komi þessi niðurskurð-
ur harkalega við Héraðshælið.
Bolli Ólafsson, framkvæmda-
stjóri, segir að unnið sé að því að
móta tillögur um hvernig brugð-
ist verði við þessu og er gert ráð
fyrir að þær verði lagðar fyrir
stjórn Héraðshælis um næstu
helgi.
Sjúkrahúsið á Siglufirði
„Við þurfum að spara sjálfsagt
einar sjö milljónir króna og erum
farin að leita að þeim,“ segir Jón
Sigurbjörnsson, framkvæmda-
stjóri Sjúkrahússins á Siglufirði,
um niðurskurð til þess á fjárlög-
um.
Jón segir að þeir ætli að reyna
að láta niðurskurðinn ekki koma
niður á þjónustunni, en býst þó
við að það takist ekki að fullu.
Hann segir að stefnan sé að segja
engum starfsmanni upp, en leita
peninga á öðrum sviðum, þrátt
fyrir að þessar sjö milljónir séu
álíka upphæð og fer mánaðarlega
í launakostnað við sjúkrahúsið.
„Það verða allir að taka á þess-
um niðurskurði, en menn eru
misjafnlega undir það búnir. Peir
sem hafa verið að gera hvað best
undanfarin ár lenda e.t.v. verst í
þessu, því að hjá þeim er kannski
enginn hagræðingarmöguleiki
Kennarar Dalvíkurskóla komu
á dögunum saman til fundar
þar sem samþykkt var ályktun
vegna hugmynda um fjölgun í
bekkjardeildum grunnskóla.
Ályktunin er eftirfarandi.
„Kennarafundur kennara Dal-
víkurskóla haldinn 9. jan 1992
mótmælir harðlega þeim hug-
myndum sem uppi eru hjá ráðu-
neyti menntamála, að fjölga í
bekkjardeildum grunnskólans og
fá felld úr gildi með lagabreyt-
ingu eða frestun, ákvæði ný-
endurskoðaðra og samþykktra
Vegna ummæla í fréttaúttekt í
helgarblaði Dags um málefni
Tónlistarskólans á Akureyri
sem mátti skilja á þá leið að
óvissa ríkti um framtíð
Kammerhljómsveitar Akur-
eyrar er okkur Ijúft og skylt að
taka fram að þar á sér stað
blómlegt starf og þrennir tón-
leikar fyrirhugaðir fram til
vors.
Að sögn Jóns Hlöðvers
Áskelssonar framkvæmdastjóra
hljómsveitarinnar verða fyrstu
eftir. Ég veit að við náum þessu
aldrei öllu saman, en munum
samt reyna að vera góðir þegnar
og sprikla eitthvað í þessu,“ segir
Jón.
Sjúkrahús Skagfírðinga
á Sauðárkróki
„Viö ætlum að reyna að halda
okkur við þessar almennu
aðferðir, að draga úr yfirvinnu,
afleysingum og nýráðningum.
Engar ákvarðanir er samt búið að
taka, en við eigum að skila tillög-
um til ráðuneytisins fyrir mán-
aðamót," segir Birgir Gunnars-
son, framkvæmdastjóri Sjúkra-
húss Skagfirðinga.
Flatur niðurskurður þýðir 6,7%
niðurskurð .á launalið og 1,3%
niðurskurð á framlögum til annars
reksturs. Hjá Sjúkrahúsi Skag-
firðinga þýða þessar prósentu-
tölur samtals um 15 milljónir
króna. Birgir segir starfsfólk
sjúkrahússins vera jákvætt gagn-
vart því að reyna að spara.
„Það verða allir að axla þessar
byrðar og leggja sitt af mörkum í
sparnaðinum. Prátt fyrir að þetta
þýði aukið álag á þá sem hér eru
fyrir er starfsfólkið til að gera allt
sem það getur,“ segir Birgir.
Sjúkrahús Hvammstanga
Niðurskurðurinn hjá Sjúkrahúsi
Hvammstanga nemur samtals 4,8
milljónum króna frá fjárlaga-
frumvarpinu. Par af er niður-
skurðurinn á launalið 4,5 milljón-
ir króna og niðurskurður á öðr-
um gjöldum alls 400 þúsund.
„Þetta verður auðvitað mjög
erfitt, því verður ekki neitað,“
segir Guðmundur Haukur Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri.
Hann sagði að fyrir um tveim
árum hefði komið til 4% flatur
niðurskurður og þeim niður-
skurði hefði verið hægt að mæta,
en mun erfiðara yrði að fást við
grunnskólalaga þar um.
Fundurinn bendir á að fækkun
nemenda í bekkjardeildum hefur
verið eitt af aðal baráttumálum
kennara.
Til að hægt sé að nálgast mark-
mið grunnskólalaga er ein megin
forsenda að fækka nemendum í
bekk frá því sem nú er.
Sífellt hringl fram og aftur með
viðmiðunartölur um fjölda í bekk
sem leiða af sér skiptingu og að
bekkjum er slengt saman á ný,
kemur illa niður á öllu skólastarfi
og skemmir starfsanda og
öryggi."
tónleikarnir haldnir 15. febrúar
nk. Pá verða hinir árlegu Vínar-
tónleikar undir stjórn Páls
Pampichlers Pálssonar. í byrjun
apríl verða tónleikar undir stjórn
Arnar Óskarssonar þar sem Sig-
rún Eðvaldsdóttir leikur einleik á
fiðlu.
Síðast en ekki síst verða svo
tónleikar þann 23. maí undir
stjórn Páls Pampichlers en þeir
verða liður í tónlistarhátíð sem
halda á hér á Akureyri í vor þar
sem íslensk píanótónlist verður í
öndvegi. -ÞH
þetta verkefni.
Á Sjúkrahúsi Hvammstanga
eru 37 rúm og segir Guðmundur
Haukur að nýting þeirra sé
allgóð. Þar af eru um 30 rúm
langlegurúm fyrir aldraða. „Við
höfum ekki möguleika á að mæta
þessu með því að loka deildum
eins og á stóru spítölunum og
verðum því að leita annara
leiða,“ segir Guðmundur Haukur.
I þessari viku verður fundur
yfirmanna sjúkrahússins með
starfsfólki þar sem reynt verður
að finna niðurskurðarleiðir. í
næstu viku er gert ráð fyrir að
niðurskurðartillögur verði lagðar
fyrir stjórn sjúkrahússins og í
kjölfarið verða þær sendar heil-
brigðisráðuneytinu. óþh/SBG
ÓlafsQörður:
Bæjarmála-
punktar
■ Á fundi bæjarráðs fyrir ára-
mót voru kynntar fyrirhugaðar
breytingar í Gagnfræðaskól-
anum. Tilboð kom í verkið frá
Trésmiðju Hauks Sigurðsson-
ar upp á 500.000 kr. og var
samþykkt að taka tilboðinu.
■ Bæjarstjóri gerði bæjarráði
grein fyrir að aðalskipulag fyr-
ir Ólafsfjörð 1990-2010 hafi
verið samþykkt hjá umhverfis-
ráðuneytinu.
■ Bæjaryfirvöld aflientu
Matthíasi Sæmundssyni, fyrir
hönd Ólafsfjarðarkirkju,
afmælisstyrk að upphæð kr.
200.000 vegna 75 ára afmælis
kirkjunnar. Þá var Þuríði Sig-
mundsdóttur, fyrir hönd Leik-
félags Ólafsfjarðar, afhentur
afmælisstyrkur að upphæð kr.
100.000 vegna 30 ára afmælis
Leikfélagsins.
■ Hesthúsaeigendur vestan
flugbrautar í Ólafsfirði hafa
óskað eftir að bæjarsjóður
Ólafsfjarðar taki við rekstri
hesthúsahverfisins og taki
byggingargjöld af þeim húsum
sem byggð verða þar í fram-
tíðinni. Bæjarstjóra hefur ver-
ið falið að ræða málið nánar
við hesthúsaeigendur.
■ Erindi hefur borist bæjar-
yfirvöldum í Ólafsfirði þar
sem yfirvöld í Lovisa í Finn-
landi bjóða allt að 40 ungling-
um frá Ólafsfirði til þátttöku í
íþróttamötum í tengslum við
vinabæjamótið í Lovisa 26,-
28. júní í sumar. Bæjarráð vís-
aði þessu erindi til félagsmála-
stjóra og tómstundanefndar.
■ Bæjarráð samþykkti að
greiða kr. 800.000 af hluta-
fjárframlagi í Laxós en
afgangurinn verði ekki greidd-
ur fyrr en framlag Ingimars-
sjóðs liggi fyrir. Þá liggi fyrir
að Byggöastofnun verði ekki
hluthafi í Laxósi en veiti fyrir-
tækinu styrk að fjárhæð kr.
800.000 sem er sama tala og
umrætt hlutafé stofnunarinnar
hefði orðið. Bæjarráð fól
bæjarstjóra að athuga á hvaða
hátt verði minnkuð eignar-
hlutdeild bæjarsjóðs í félaginu
en hún var áætluð um 40% en
er orðin 50% eftir að Byggða-
stofnun datt út.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
að heimila félagsmálastjóra að
auglýsa 50% stöðu við heirnil-
ishjálp í bænum en hann gerði
bæjarráði nýlega grein fyrir
þeirri aukningu sem orðið hef-
ur á þessari þjónustti í bænum.
Niðurskurður á launalið og öðrum gjöidum hjá Héraöshæli Austur-Hún-
vetninga nemur 6,7 milljónum króna.
Fluguhnýtinga-
námskeið t:
verður haldið í Versluninni Eyfjörð, ef næg þátt-
taka fæst 27., 29. og 31. janúar.
Námskeiðin hefjast kl. 20.00 öll kvöldin.
Þátttökugjald kr. 2.500, og allt efni innifalið.
Nánari upplýsingar í Versluninni Eyfjörð í síma
22275.
WEYFJÖRÐ
Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275
,ATÁM SEM NÝTIST“
Skrifstofiitækni
Síðasta iimritunarvika á vorörrn 1992.
Námskeiðin hefjast 27. janúar n.k.
Aukin menntun betri atvinnumöguleikar.
Innritun og upplýsingar
í síma 27899.
VISA
Tölvufræðslan Akureyrl hf
Glerórgötu 34, III hæð, Akureyri, sími 27899.
Dalvíkurskóli:
Hugmyndum um fjölgun í
bekkjardeildum mótmælt
Kammerhljómsveit Akureyrar:
Þrennir tónleikar fyrirhugaðir