Dagur - 22.01.1992, Síða 12
Akureyri, miðvikudagur 22. janúar 1992
Akureyrarbær:
200 þúsund
til OmAk hf.
heimsendingarþj ónust a
alla daga
SixnnixcLaga. til fimmtudaga kl. 12.00-22.30
Föstudaga og laugardaga kl. 12.00-04.30
Hádegistilboð alla daga
vei tin^alz zza
VEITINGAHUSIÐ
Glerárgötu 20 • ® 26690
Á fundi bæjarstjórnar Akur-
eyrar í gær var samþykkt með
fimm atkvæðum að Fram-
kvæmdasjóður Akureyrarbæj-
ar legði fram 200 þúsund krón-
ur sem hlutafé í OmAk hf.,
sem formlega verður stofnað í
dag.
Þetta félag mun vinna að öflun
verkefna og viðskipta á sviði sjáv-
arútvegs og skyldrar starfsemi í
Oman við Persaflóa.
Tveir fulltrúar meirihlutans í
bæjarstjórn, Birna Sigurbjörns-
dóttir (D) og Björn Jósef Arnvið-
arson (D) og fjórir fulitrúar
Framsóknarflokks sátu hjá við
afgreiðslu málsins. óþh
Veðurhorfur:
Hitastig við
frostmark
Sextíu og átta hnútar mældust
víða á veðurathugunarstöðum
á Norðurlandi aðfaranótt
þriðjudags. Veðurspá Veður-
stofunnar gerir ráð fyrir kóln-
andi veðri í dag.
Vestanáttin á Akureyri var
nokkuð hvöss aðfaranótt þriðju-
dags og á miðnætti mældist vind-
urinn 30 hnútar. Á sama tíma
mældist vindhraðinn,45 hnútar í
Skagafirði og 35 hnútar á Gríms-
stöðum á Fjöllum.
í dag léttir til eftir rigningu og
slyddu næturinnar og hitastig
verður um frostmark. Á morgun
dregur til suðaustlægra átta
um allt Norðurland og veður fer
hlýnandi í bili en kólnar er líður á
kvöldið. ój
Sumarleikir í þorrabyijun.
Mynd: Golli
Loðnuverðið:
Emm að láta erlendu
kaupenduma græða á okkur
- segir Maron Björnsson, skipstjóri á Guðmundi Ólafi ÓF
Maron Björnsson, skipstjóri á
loðnuskipinu Guðmundi Ólafi
ÓF, segir að áhrifin sem útgáfa
á 300.000 tonna viðbótarkvóta
á ioðnu síðastliðinn föstudag
hefur haft styðji þá skoðun
loðnusjómanna að farsælla sé
að gefa út góðan byrjunar-
kvóta í upphafi vertíðar á
haustin. Eins og fram kom í
Gefla keypti fiskverk-
unarhús Fiskveiðasjóðs
Síðastliðinn mánudag var
undirritaður samningur um
kaup rækjuvinnslunnar Geflu
hf. á Kópaskeri á fiskverkun-
arhúsi Fiskveiðasjóðs á staðn-
um. Kaupverð var 13 milljónir
króna og undirritaði Hólm-
steinn Björnsson samninginn
fyrir hönd stjórnar Geflu.
„Það er meiningin að flytja
rækjuvinnsluna í húsið, enda
nauðsynlegt að komast undir
betra þak. Þetta er góður kostur
og stefnt er að því að Gefla flytji
starfsemi sína þangað í maí,“
sagði Hólmsteinn í samtali við
Dag í gær.
Aðspurður sagði hann að rekst-
urinn gengi nokkuð vel og útlitið
væri býsna gott. Það væri að
minnsta kosti nóg af góðri rækju í
Öxarfirði en verðið mætti vissu-
lega vera hærra.
Fiskverkunarhúsið er því aftur
komið heim, ef þannig má að orði
komast, því það var áður í eigu
Útness hf./Áuðuns Benedikts-
sonar á Kópaskeri en Fiskveiða-
sjóður íslands eignaðist húsið á
nauðungaruppboði. SS
blaðinu í gær hafa verksmiðjur
lækkað það verð sem þær
greiða fyrir hráefnið effir að
viðbótarkvóti var gefinn út á
föstudag. Segja forsvarmenn
verksmiðja og seljenda að
fregnir af þessari kvótaúthlut-
un hafi valdið því að kaupend-
ur mjöls og lýsis erlendis hafi
kippt að sér höndum.
„Við erum ekki óvanir því
sjómenn að fá kauplækkun einu
sinni eða tvisvar í viku. Maður
rekur sig alltaf á það að þegar
gefinn er út mikill kvóti þá er
lægsta verðið. Kaupið okkar
ræðst af því hvernig skapi kaup-
endur erlendis eru. Þó ég hafi
verið mjög hrifinn af því að
fá meiri loðnukvóta þá tel ég að
það hafi verið algert slys að gera
úthlutunina opinbera með þess-
um hætti. Þetta skaðar okkur öll,
bæði til lands og sjávar. Það lá
fyrir að skipin höfðu flest nóg að
fiska og því lá ekkert á þessu.
Erlendu kaupendurnir setja
verksmiðjurnar núna upp við
vegg og það endar með því að
þær verða að taka þær sölur sem
þeim býðst. Gallinn er sá að þess-
ir kaupendur erlendis eru helm-
ingi meiri bisnessmenn en við
sem erum að selja,“ sagði Maron
Jón B. Hannesson skólastjóri Síðu-
skóla við ruslapokana.
Eldur laus í Síðuskóla
Laust fyrir klukkan 10 á mánu-
dagskvöldið barst slökkviliði
Akureyrar brunaútkall vegna
elds er var laus í Síðuskóla í
Glerárhverfi.
Að sögn Gísla K. Lórenzsonar,
slökkviliðsstjóra, var tilkynnt um
lausan eld í skólanum kl. 21,53.
Tvær bifreiðar voru sendar á
vettvang. Er að var komið logaði
eldur í geymslu undir útitröpp-
um. „Húsvörður skólans opnaði
kompuna þannig að slökkviliðs-
menn þurftu ekki að setja exi á
hurðina og eldurinn var kæfður í
snarheitum. Um íkveikju var að
ræða. Engar skemmdir urðu og
upplýst er hverjir báru eld að
ruslinu. Kennarar skólans þekktu
pottorminn er tilkynnti um eld-
inn þar sem öll brunaútköll eru
tekin upp á segulband. Sá er
hringdi reyndist vera einn hinna
seku,“ sagði slökkviliðsstjórinn.
ój
Björnsson.
Hann segir að ástandið sé
þannig að sjómenn verði að taka
á sig tuga prósenta sveiflu í verði
á meðan á vertíðinni stendur og á
það megi einnig benda að nánast
sama upphæð hafi verið greidd
fyrir loðnutonnið í nokkur ár.
„Við getum því aldrei hækkað
okkar láun nema með fleiri
tonnum. Ég er hræddur um að
ríkisstarfsmenn segðu eitthvað ef
úr launaumslaginu hyrfu 30%
einn daginn. Að mínu mati er
ekki til neins að vera að moka
loðnunni upp núna ef þarf að
veiða mun meira til að fá jafn
mikið í krónum. Þá erum við
bara að veiða til að láta þessa
kaupendur úti í heimi græða á
okkur. Þeir hafa greinilega
valdið,“ sagði Maron. JÓH
Austurleiðin fær
eins og á sumardegi:
„Alltaf nokkuð
jöfti umferð“
- segir Bragi í Grímstungu
„Færðin er mjög góð, það ligg-
ur við að það megi segja að
það sé sumarfærð,“ sagði
Bragi Benediktsson, póstur í
Grímstungu á Fjöllum, að-
spurður um færð á þjóðvegi 1
milli Norður- og Austurlands.
Bragi sagði að aðeins væru
hálkublettir á stöku stað.
Aurbleyta var aðeins farin að
gera vart við sig en í gær var að
frysta á ný.
„Það er alltaf nokkuð jöfn
umferð, ekki mikil en þetta er
svolítið óvanalegt miðað við
árstíma," sagði Bragi og sagðist
taéplega muna eftir svona góðu,
þó undanfarin 3-4 ár liafi verið
mjög góð tíð fyrri hluta vetrar.
Bragi sagði að fyrir jólin hefðu
Austfirðingar notað tækifærið og
farið í verslunarferðir til Akur-
eyrar. Um jólin hefði góða færð-
in verið nýtt til að skreppa í
kunningjaheimsóknir milli
landshluta. Það væri einnig
óvenjulegt miðað við árstíma að
vöruflutningar á bíl hefðu farið
frani milli Akureyrar og Egils-
staða nú í janúar. IM
Þingeyjarsýsla:
Klippurnar
á lofti
Lögreglan á Húsavík var í gær
á ferð um sveitir Suður-Þing-
eyjarsýslu og klippti númer af
bifreiðum, sein eigendur
höfðu vanrækt að færa til
skoðunar og bílum sem van-
greiddur þungaskattur hvíldi á.
Lögreglan mun halda áfram
þessari herferð sinni næstu daga.
Áður höfðu númer verið klippt af
um 20 bílum á Húsavík og lög-
regla í Norður-Þingeyjarsýslu
mun einnig vera búin að munda
klippurnar. IM
Landssamband kúabænda:
Vill átak í markaðs-
setningu á alikálfakjöti
Hugmyndin er að Landssam-
band kúabænda í samvinnu við
sláturleyfishafa geri átak í
markaðssetningu á ungkálfa-
kjöti. Þessu kjöti hefur lítill
gaumur verið gefinn hér á
landi, en það er í hæsta verð-
flokki víða erlendis.
Eins og Dagur hefur greint frá
er greidd sérstök verðuppbót á
slátraða alikálfa til loka þessa
mánaðar, sjö þúsund krónur pr.
kálf. Með því er vænst að hægt sé
að koma í veg fyrir að hlaðist upp
nautakjötsfjall í haust, eins og
menn óttast. Það sem af er hafa
viðbrögð verið allgóð við þessu
tilboði.
Stefán Tryggvason, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
kúabænda, segir að víða erlendis
sé alikálfakjöt, af 8-10 mánaða
gömlum gripum, dýrasta naut-
gripakjótið. „Það er augljóst að
við þurfum að hækka verðið til
bænda, til þess að þetta verði
þeim hagkvæmt. Að sama skapi
verður þetta dýrasta kjötið til
neytenda," sagði Stefán. „Þarna
er verið að höfða til tiltölulega
þröngs markhóps, sem hefur
sýnt þessu áhuga. Við viljum
ekki fara af stað með neinum lát-
um við þessa markaðssetningu,
vegna þess að framboðið af þessu
kjöti er mjög takmarkað," sagði
hann ennfremur. óþh