Dagur - 23.01.1992, Page 1

Dagur - 23.01.1992, Page 1
Venjulegir og demantsskornir trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI 75. árgangur Akureyri, fimmtudagur 23. janúar 1992 15. tölublað Aflatölur togara Samherja hf.: Aflaverðmætí Akureyrariimar rúmar 627 milljómr króna - aflaverðmæti togara fyrirtækisins tæpir 2 milljarðar á síðasta ári Samherji hf. á Akureyri gerði út fimm togara á Iiðnu ári. Togararnir báru að Iandi 15.752 tonn að aflaverðmæti 1.937.326.769,00 krónur. Hlutur Akureyrarinnar EA var lang stærstur þ.e. 4.952 tonn að aflaverðmæti 627,7 milljón- ir króna. Samherji hf. á Akureyri gerði út á liðnu ári fjóra frystitogara og einn ísfisktogara. Frystitogararn- ir eru Akureyrin EA, Margrét EA, Hjalteyrin EA og Oddeyrin EA. Víðir EA var gerður út sem ísfisktogari hluta úr árinu, en fór síðan í lengingu til Póllands. Togarinn fór til veiða að nýju í byrjun janúar, sem Dagur hefur greint frá. Víðir EA bar að landi 2.821 tonn og úthaldsdag- arnir voru 227. Aflaverðmæti lið- ins árs er 252.3 milljónir króna að skiptaverðmæti 152.2 milljónir. Úthaldsdagar Oddeyrarinnar EA voru 328 og aflinn 2.295 tonn. Aflaverðmæti 284,4 milljónir að skiptaverðmæti 187,726 milljónir króna. Afli Hjalteyrarinnar EA var 2.822 tonn, aflaverðmæti 358 milljónir, skiptaverð 245,5 millj- ónir og úthaldsdagar 303. Afli Margrétarinnar EA var 2.863 tonn, aflaverðmæti tæplega 415 milljónir, skiptaverð liðlega 284 milljónir og úthaldsdagar 308. „Okkur vegnaði allvel á Akur- eyrinni sem afla- og verðmætatöl- ur sýna. Aflinn var 4.952 tonn, sem er mun minna en í fyrra, en þá bárum við að landi um 6.100 tonn. Aflaverðmæti ársins er 627,7 milljónir króna á móti um 700 milljónir árið áður. Úthalds- dagar togarans voru 293 og skiptaverðmætið tæplega 423 milljónir. Heilt yfir hafa togar- arnir aflað færri tonna í ár nema þá þeir togarar sem voru í úthafs- karfa í haust í Fjarðardýpi. Þar var mokveiði í allt haust og við á Akureyrinni höfðum ekki útbún- að til þeirra veiða,“ sagði Þor- steinn Vilhelmsson, skipstjóri á Akureyrinni EA. ój Undirbúningur er hafinn vegna lagningar Krossanesbrautar. í góða veðrinu í gær unnu starfsmenn Akureyrarbæjar að könnun á jarðvegsdýpt á svæðinu. Mynd: Golli Priðja umræða um „bandorminn“ í gærkvöld: 34 milljóna „löggu“skattur á Akureyri Ekki var lokið þriðju umræðu og lokaatkvæðagreiðslu um „bandorminn“ svokallaða, frumvarp til laga um ráðstafan- ir í ríkisfjármálum, þegar Dag- ur fór í prentun í gærkvöld. Greidd voru atkvæði um frum- varpið eftir aðra umræðu í gærmorgun eftir mikinn tauga- titring í þingsölum í fyrrakvöld þar sem Sighvatur Björgvins- son, heilbrigðisráðherra, og stjórnarandstöðuþingmenn deildu hart. Samkvæmt texta frumvarpsins í gær, að aflok- inni annari umræðu, er gert ráð fyrir sömu skattlagningu og rætt hefur verið um á sveit- arfélögin í landinu. Fullvíst var talið í gær að þessi ákvæði myndu ekki breytast við þriðju umræðu um frumvarpið. Hæst ber lögregluskatturinn svokallaði, en sveitarfélögum er gert að greiða hluta löggæslu- kostnaðar á þessu ári. Sveitarfé- lög með 300 íbúa eða fleiri greiði 2.370 kr. á hvern íbúa, en sveit- arfélög með færri en 300 íbúa greiði 1.420 kr. á hvern íbúa. Miða skal við íbúafjölda 1. des- ember sl. Samkvæmt þessu er hlutur Akureyrar í kostnaði við lög- gæslu rúmar 34 milljónir króna, íþróttahöllin á Akureyri: Framkvæmt fyrir 20 miDjómr í ár - 44 milljónir þarf til að ljúka framkvæmdum „Vilji ráðamanna Akureyrar og fulltrúa í íþrótta- og tóm- stundaráði Akureyrarbæjar er sá að einbeita kröftum og fjár- magni að fullgera íþróttahöll- ina og Sundlaugina í Glerár- hverfl. Slíkt er hið eina rétta hvernig sem á málin er Iitið,“ sagði Agúst Berg, húsameist- ari Akureyrarbæjar. Embætti húsameistara Akur- eyrarbæjar hefur reiknað út að 44 milljónir þurfi til að ljúka fram- kvæmdum við íþróttahöllina, sem hefur verið í byggingu í langt um lengri tíma en efni stóðu til í upphafi. Ágúst Berg segir að fyrirhugað sé að verja um 20 millj- Veðurspáin: Gauragangur framundan Miklar sviptingar verða í veðr- inu næstu daga og mega Norð- lendingar búast við að fá eitthvaö af hinum langþráða snjó. Djúp Iægð nálgaðist landið í nótt og var búist við austan hvassviðri með rigningu eða slyddu um land allt. Veðurstofan gerði ráð fyrir að í morgun yrði lægðin komin inn á landið með norðaustan stormi eða roki og slyddu norðvestan- lands en sunnan hvassviðri og rigningu austanlands. Síðan átti að kólna á landinu öllu í bili. Spáin fyrir föstudag hljóðar upp á austlægar áttir með rign- ingu eða slyddu en á laugardag er búist við norðvestan átt með snjókomu eða éljum á Norður- landi og þá fellur hitastigið aftur eftir að hafa farið upp daginn áður. SS ónum króna til framkvæmda við íþróttahöllina á þessu ári, sem hann telur mjög rausnarlegt. Embætti húsameistara er að leita tilboða í ýmsa verkþætti og iðn- aðarmenn eru að hefja störf í Höllinni á næstu dögum svo sem við flísalagnir. Bekkir verða settir á áhorfendasvalir sem og útdraganlegir sætispallar neðan við svalirnar. „Sætispallarnir eru mikið öryggisatriði því fólk verð- ur að komast af svölum á auð- veldan hátt ef hætta steðjar að svo sem af völdum elds. I raun má ekki halda stórmót í Höllinni nema þessi útbúnaður sé til staðar. Alt of oft hefur vanda- málunum verið ýtt á undan sér hvað íþróttahöllina varðar og gripið til bráðabirgðalausna. Við skulum vona að slíkt heyri fortíð- inni til og við náum að ljúka framþvæmdum við Höllina innan fárra ára þannig að við Akureyr- ingar getum verið stolt af þessu húsi og nýtt það sem best,“ sagði Ágúst Berg. ój svo dæmi sé tekið. Húsavík er gert að greiða 5,8 milljónir, hlut- ur Dalvíkur er 3,5 milljónir og Siglufjarðar 4,2 milljónir. En þar með er ekki öll sagan sögð. Sveitarfélögunum er gert að tvöfalda framlög sín til fast- eignamats og framlag ríkisins til skipulagsgerðar skerðist veru- lega. Þá kemur breyting á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins illa við sveitarfélögin. í texta 11. greinar frumvarpsins segir orðrétt: „Lán til félagslegra íbúða veitir húsnæðismálastjórn úr Byggingarsjóði verkamanna. Lánshlutfall má nema allt að 90% af byggingarkostnaði eða kaupverði, þó aldrei meira en 90% af þeim kostnaðargrundvelli að lánveitingu sem húsnæðis- málastjórn hefur samþykkt, að frádregnu 3,5% sérstöku fram- lagi sveitarfélaga til hverrar íbúð- ar.“ Þessi 3,5% þýða einfaldlega að viðkomandi sveitarfélagi er gert að greiða 350 þúsund krónur, sem „sérstakt framlag“ til byggingar íbúðar sem kostar 10 milljónir króna. Það munar um minna fyrir t.d. sveitarfélag eins og Akureyri, þar sem mikið er byggt í félagslega kerfinu. í það heila er talað um að þessi skattlagning þýði að Akureyrar- bær sjái á eftir 40-45 milljónum króna úr bæjarkassanum yfir í ríkiskassann. Halldór Jónsson, bæjarstjóri á Akureyri, var allt annað en ánægður með vinnubrögð ríkis- valdsins í þessu máli á bæjar- stjórnarfundi sl. þriðjudag þar sem hann mælti fyrir fjárhags- áætlun bæjarins fyrir árið 1992. í lok ræðu sinnar sagði bæjarstjóri: „Ef til slíkrar skattheimtu kemur, þarf að taka afstöðu til þess hvernig bæjarfélagið mætir slíku og leiðrétta áætlunina fyrir síðari umræðu í bæjarstjórn. Ég leyfi mér enn að vona, að þessari skattheimtu verði fundin annar farvegur, en nú hefur verið boð- aður.“ Seinnipartinn í gær var ekkert sem benti til að Halldóri Jónssyni yrði að ósk sinni. óþh Kaupfélag Langnesinga á Þórshöfn: Nauðasamningar samþykktír A fundi hjá sýslumanni Þing- eyinga í lok síðustu viku sam- þykkti meirihluti kröfuhafa nauðasamninga við Kaupfélag Langnesinga á Þórshöfn. Kaupfélagið leitaði síðastliðið haust eftir heimild til opin- berra nauðasamninga við lána- drottna vegna mikilla skulda félagsins, en þær voru taidar nema alls um 240 milljónum króna. Þar af myndu um 150 milljónir koma til nauðasamn- inga. Halldór Kristinsson, sýslumað- ur Þingeyinga, sagði að nú yrði tekið til athugunar hvort nauða- samninga mætti samþykkja og hefur hann sett auglýsingu í Lög- birtingablaðið þar sem þeim sem ekki mættu á fundinn er gefinn kostur á að gera athugasemdir. „Þetta virðist vera að ganga upp,“ sagði Halldór, en á fund- inn mættu 94,4% af kröfuhöfum eftir atkvæðum talið eða ríflega 89% eftir fjárhæðum. Aðeins 7 af 125 kröfuhöfum mættu ekki en til að staðfesta frumvarp til nauða- samninga þurfa 75% að sam- þykkja það, og er þá bæði miðað við fjölda og kröfufjárhæð, þann- ig að frumvarpið ætti að vera í höfn. I nauðasamningunum taka þátt almennir kröfuhafar sem hafa lýst kröfum sfnum, sem nema 86 milljónum að sögn Halldórs, auk þess sem samningarnir binda aðra almenna kröfuhafa. SS

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.