Dagur - 31.01.1992, Blaðsíða 1

Dagur - 31.01.1992, Blaðsíða 1
Uppstokkun í farvatninu á skipan skólamála í Eyjaijarðarsveit: Líklegast að ein yfirstjóm taki við skólimum flórum Fyrir dyrum stendur veigamik- il breyting á skipan skólamála í Eyjafjarðarsveit. Að líkindum mun sveitarstjórn ákveða í næstu viku að leggja til við fræðsluyfirvöld að í sveitar- félaginu verði einn skóli í stað fjögurra eins og nú er. Þannig verði fyrsta skrefið til hag- ræðingar í skólamálum í sveit- arfélaginu stigið með því að koma á einni yfírstjórn. í dag eru starfræktir þrír grunnskólar sem kenna í 1.-7. bekk, þ.e. grunnskólarnir á Hrafnagili, Laugalandi og í Sól- garði. Nemendur fara síðan úr þessum skólum og ljúka grunn- skólanum í Hrafnagilsskóla þar sem kennt er í 8.-10. bekk. Á síðasta sveitarstjórnarfundi var skipuð þriggja manna nefnd til að gera tillögur um framtíðar- skipan skólamála og er hún starf- andi. Á þessu stigi er ljóst að fyrsta skrefið verður einföldun í yfirstjórn með stofnun eins skóla í stað fjögurra sjálfstæðra en ekk- ert er ákveðið hvort kennt verður í öllum fjórum skólahúsunum sem nú eru notuð eða hvort um einhvern tilflutning verður að ræða milli húsa frá því sem nú er. Að sögn Péturs Þórs Jónasson- ar, sveitarstjóra, þarf breyting sem þessi að fara til menntamála- ráðuneytis til samþykktar en það er ráðuneytisins að segja upp starfsfólki skólanna, sem allt útlit er fyrir að verði gert. Pá yrðu störf auglýst við hinn nýja skóla. Pétur segist vænta þess að þessi mál þurfi að liggja fyrir tíman- lega svo eðlilegur tími gefist til undirbúnings fyrir næsta skólaár. JÓH Nýtt hlutverk bíður íþróttaskemmunnar ef hugmyndir bæjarráðsmanna ná fram að ganga. Mynd: KK Akureyri: Hugmyndir uppi um að leggja Iþrótta- skemmuna niður sem íþróttamannvirki „Bæjarstjórnarmenn eru að skoða í fullri alvöru að leggja íþróttaskemmuna af sem rekstrareiningu fyrir íþróttir og íþróttakennslan er þar talin með. Bæjarráð Akureyrar hef- ur ályktað um málið og vísað því til bæjarstjónar sem heldur fund nk. þriðjudag,“ sagði Sigurður J. Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar Akureyrar. Ályktun bæjarráðs send bæjar- stjón Akureyrar er eftirfarandi: „Bæjarráð óskar tillagna frá Kröfluvirkjun: Smnarlokim lengd um 1-2 mánuði og hætt við borun tveggja hola bæjarverkfræðingi og skólafull- trúa sem miði að því að íþrótta- skemman verði tekin úr notkun sem íþróttamannvirki á næsta hausti." Sigurður J. Sigurðsson segir, að stökkbreyting hafi orðið á öllu er lýtur að húsnæðismálum fyrir íþróttir á Akureyri. Ný íþrótta- hús hafa verið tekin í notkun og nú blasi við að nýting húsanna sé ekki sem skyldi. „Rekstrarkostnaður íþrótta- skemmunar er um fimm milljónir króna á ári. Við erum hreinlega að gæla við að losna við þennan kostnaðarlið og flytja rekstrar- tekjur íþróttaskemmunnar yfir á önnur íþróttamannvirki. Pessi ráðstöfun hefur staðið til lengi og henni verður hrundið í fram- kvæmd að hausti finnist viðun- andi lausn á íþróttakennslu við Oddeyrarskólann. Peirri lausn er hægt að ná með að flytja börnin með skólabíl og skóladagurinn verður að vera heilsteyptur. Strax og bæjarstjórn hefur fjallað um málið verður hægt að hefjast handa. Skóla- og menningarfull- trúi Akureyrarbæjar ásamt skóla- mönnum munu leggja línuna hvað börnin varðar," sagði Sigurður J. Sigurðsson. ój - rekstur Kröfluvirkjunar hefur gengið vel, segir Birkir Fanndal Stjórn Landsvirkjunar ákvaö í gærmorgun að loka Kröflu- virkjun í 5-6 mánuði á ári, í stað lokunar í 3-4 mánuði á ári, eins og gert hefur verið. „Þetta er gert í hagræðingarskyni, við teljum okkur spara peninga með þessu, hins vegar á þetta ekki að koma niður á starfs- mönnum en þeir koma til með að nýtast fyrirtækinu öðru- vísi,“ sagði Þorsteinn Hilmars- son, upplýsingafulltrúi Lands- virkjunar. Við Kröfluvirkjun eru 17 stöðugildi. Þorsteinn sagði að málið væri á frum- stigi, þeir þrír mánuðir sem virkjunin væri lokuð hefðu verið nýttir í sumarleyfí starfsmanna og nauðsynlegt viðhald, þessir þættir yrðu til staðar áfram. Hann sagði að aðkeypta vinnu við virkjunina mætti líklega minnka og kanna ætti hvort Kröfíumcnn gætu nýst sem afleysingamenn við Blönduvirkjun og til viðgerða- verkefnis við Búrfellsvirkjun, slíkt yrði þó að gerast í samráði við starfsmennina. „Samkvæmt rekstraráætlunum okkar á þessu ári hefðum við þurft að bora nýjar holur og hreinsa gamlar, ef við hefðum ætlað að halda virkjuninni í sama rekstri og hún hefur verið. Þetta er kostnaður upp á rúmlega 180 milljónir. Með því að gefa há- hitasvæðinu svona mikla hvíld, þá sleppum við við þetta viðhald og þurfum ekki að bora nýjar holur,“ sagði Þorsteinn. Vélar Kröfluvirkjunar geta framleitt 30 megavött, en stað- setning virkjunarinnar skiptir einnig miklu máli hvað varðar örugga dreifingu rafmagns. Héðinn Stefánsson, stöðvar- stjóri við Laxárvirkun sagði að það breytti ekki öllu þó Kröflu- virkjun væri stöðvuð V/2 mánuði lengur á ári. Pað sparaði gufu- veitukerfið og lengdi líftíma á borholum. Petta væri því eðlileg- ur hlutur nú, þegar menn væru með yfirfljótandi orku í kerfinu. „Við berum okkur bara vel,“ sagði Hörður Sigurbjarnarson, vélfræðingur við Kröfluvirkjun. „Fyrir mína parta get ég þó sagt að ég skil ekki þessi rök sem færð eru fyrir þessu, ef þeir ætla að spara þarna 200 milljónir. Það var ekki nauðsynlegt vegna núverandi rekstrarfyrirkomulags virkjunarinnar að bora tvær holur, eins og fram hefur komið. Ég skil ekki þann málflutning því mér finnst það algjört yfirskin,“ sagði Hörður. „Oll skerðing á rekstri Kröfluvirkjunar veikir mjög mikið raforkuflutningskerf- ið og rekstraröryggið á Austur- landi og Norðausturlandi. Pað má einnig benda á að Landsvirkj- un hefur ekki sýnt neina tilburði á að spara annarsstaðar í kerfinu, þar sem hægt væri að spara án þess að það kæmi niður á afhend- ingaröryggi.“ Birkir Fanndal Haraldsson, yfirvélstjóri í Kröfluvirkjun, sagði að töluvert erfitt gæti reynst að lengja lokunartíma virkjunar- innar upp í sex mánuði vegna vetrarfrosta og aðstæðna, því sumarið væri stutt við Kröflu. Birkir sagði að fyrr hefði andað köldu til Kröflu og að vonandi fengjust kaupendur að umfram- rafmagni Landsvirkjunar sem fyrst. Hann sagðist vilja taka fram að rekstur Kröfluvirkjunar hefði gengið mjög vel. IM Sjúkrahús Sigluijarðar: Breyting á vinnutilhögun og almennur spamaður Þrátt fyrir 7,3 milljóna lækk- un á framlögum ríkisins til rekstrar sjúkrahússins og heilsugæslustöðvarinnar á Siglufírði, vonast Jón Sigur- björnsson, framkvæindastjóri, til þess að ekki komi til skertrar þjónustu. Nú Iiggja fyrir hugmyndir forsvars- manna sjúkrahússins um hvernig lækkuðum l'ramlög- um verði mætt. Ákveðið er að breyta vinnu- tilhögun þannig að vinna hefjist kl. 8 á morgnana í stað kl. 7 áður. Pessi ráðstöfun þýðir að töluverðir fjármunir sparast. Þá verður dregið saman í manna- haldi sem svarar u.þ.b. 0,7 stöðugildi á sjúkradeild og öldr- unardeild. Petta þýðir þó ekki að til uppsagna starfsfólks komi. Þá er ekki gert ráð fyrir að ráða hjúkrunarfræðinga til afleysinga. „Við gerum ráð fyrir að draga saman seglin í viðhaldi og reyna að spara í matarinn- kaupum. Við leitumst við að spara í öðrum þáttum en laun- um,“ sagði Jón. Hann sagði að með þessum hugmyndum væri ekki unnt að ná 7,3 milljóna niðurskurði og því gæli menn við að fá eitthvað til baka úr 40% sameiginlegum potti, sem heilbrigðisráðuneytið ráðstafi aftur til heilbrigðisstofnana. Fáist það ekki sé ljóst að til umtalsverðrar skerðingar á þjónustu komi. Jón sagði að vissulega hefði verið mjög erfitt að finna niður- skurðarleiðir og ætti starfsfólk heiður skilið fyrir skilning á þessum erfiðu aðgerðum. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.