Dagur - 01.02.1992, Qupperneq 12
12 - DAGUR - Laugardagur 1. febrúar 1992
Matarkrókur
Hátíðarmáltíð að hætti PaJla
Matreiðslumeistari Matar-
króks að þessu sinni er Páll
Jónsson, kokkur á Greifanum
á Akureyri. Matseðill hans er
ekki af verri endanum og til-
valinn á tyllidögum. Páll býð-
ur okkur upp þríréttaða máltíð
fyrirfjóra. I forétteru Pönnu-
steikt svartfuglsbringa á blá-
berjagrunni. Aðalrétturinn er
Fiskitvenna á safrankrydduðu
hrísgrjónabeði og til að Ijúka
máltíðinni er Hunangshnetuís
með ferskum ávöxtum og
rjómatoppi í eftirrétt.
Pönnusteikt svartfugls-
bringa á bláberjagrunni
400 g svartfuglsbringur
salt, pipar og villikrydd
í sósu:
100 g bláber
2 dl vatn
20 g sykur
1 msk. sítrónusafi
2 msk. bláberjasulta
maisenamjöl til þykkingar
Svartfuglsbringumar er skorn-
ar af beini og kryddaðar með
villikryddi, salti og pipar. Þær
síðan léttsteiktar á vel heitri
pönnu upp úr smjöri eða ólífu-
olíu. Að því loknu eru þær
kældar. Á meðan er hægt að
huga að sósunni sem er löguð á
þann hátt að fyrst eru bláberin
maukuð og svo vatninu, sykrin-
um sítrónusafanum og bláberja-
sultunni bætt út í. Þetta er síðan
látið sjóða aðeins áður en sósan
er þykkt með maisenamjölinu.
Þegar búið er að kæla sósuna og
skera kaldar bringurnar í þunn-
ar sneiðar er sósunni hellt á disk
og sneiðunum raðað fallega í
bláberjagrunninn. Að endingu
er svo hægt að skreyta með
ferskum kryddjurtum áður en
forrétturinn er borinn fram
kaldur.
Fiskitvenna á safran-
krydduðu hrísgrjónabeði
800 gfiskur (karfi og hlýri)
hveiti og rúgmjöl blandað
til helminga, grœnmetissalt
og hvítlauksolía
í sósu:
Vi rauð paprika
V2 sellerístilkur
'A af lauk (saxaður smátt)
4 dl fiskisoð
lh dl hvítvín (þurrt)
1-2 tsk. tómatmauk
4 stk. humarhalar
tandoori, Worchestersósa og
grœnmetissalt
í hrísgrjónabeð:
200 g hrísgrjón
smjörklípa, salt og safran
Fyrst skal beinhreinsa og roð-
draga fiskinn og því næst velta
stykkjunum upp úr hveitiblönd-
unni. Áður en honum er komið
fyrir í smjörinu á pönnunni er
gott að láta smjörið aðeins
brúnast, en svo er fiskurinn
steiktur við vægan hita. Græn-
metissaltinu er stráð yfir og
stykkin pensluð lítillega með
hvítlauksolíunni. Hæfilega
steiktur er fiskurinn settur til
hliðar og honum haldið heitum
meðan sósan er löguð og hrís-
grjónin soðin.
Sósan er löguð með því móti
að fyrst er grænmetið saxað
smátt og látið finna aðeins fyrir
heitri pönnunni. Síðan er soð-
inu, hvítvíninu og tómatmauk-
inu bætt út í og látið sjóða vel.
Eftir að búið er að smakka sós-
una til og krydda með örlitlu
tandoori, Worchester og græn-
metissalti er humarhölunum
skellt út í og þeim leyft aðeins
að taka sig.
Hrísgrjónin eru soðin í vatni
og smjörklípan látin út í áður
en sýður. Saltinu og safraninu
er síðan stráð yfir hrísgrjónin til
bragðbætis.
Þegar hrísgrjónin og sósan
eru tilbúin er búið til hrísgrjóna-
beð á diskunum sem fiskstykkin
eru síðan sett á og að endingu
sósunni hellt yfir. Með þessu
eru bornar fram hvítar kartöfl-
ur, broccoli og gulrætur. Hum-
arhalarnir eru svo notaðir til að
setja punktinn yfir i-ið á diskun-
um og ef menn vilja þá frekar
steikta en soðna má léttsteikja
þá á pönnu.
Hunangshnetuís
með ferskum ávöxtum og
rjómatoppi
'A l rjómi
3 egg
50-60 g hunang
100 g hunangsristaðar hnetur
(smátt saxaðar)
1 tsk. vanilludropar
1 dl Amarettolíkjör
jarðarber, kívi, stjörnuávöxtur,
appelsínur og þeyttur rjómi
Rjómapelinn er þeyttur og
settur í kæli á meðan eggin eru
þeytt saman við hunangið þann-
ig að í þau komi góð lyfting.
Sfðan er þeyttum eggjunum
blandað gætilega saman við
rjómann með sleif. Hunangs-
ristuðu hnetunum er svo bætt út
í og vanilludroparnir og líkjör-
inn fylgja á eftir, en allt verður
þetta að gerast rólega til að egg-
in missi ekki lyftinguna og er
stranglega bannað að þeytta
þetta saman. ísinn er því næst
settur í frysti í nokkra klukku-
tíma áður en hægt er að setja
hann í skálar og skreyta með
ferskum ávöxtum og þeyttum
rjóma.
Varla þarf að draga í efa að
einhverjir hafa fengið vatn í
munninn við lestur þessa Mat-
arkróks og greinilegt að Páll
lumar á ýmsu gómsætu. Hvað
verður að hálfum mánuði liðnum
er ekki gott að segja, en hann
hefur ákveðið að skora á Albert
Hannesson, kokk á KEA, í
næsta Matarkrók. Við verðum
því bara að bíða og sjá hvað sá
meistari galdrar fram handa les-
endum. SBG
VíSNAÞÁTTUR
Jón Bjarnason frá Garðsvík
Næstu vísurnar fann ég í litlu
kveri eftir Ólöfu Sigurðar-
dóttur. Það var gefið út 1913.
Æskan þreytir landa leit,
lífið veitir sárin.
Ó, ég veit þið eruð heit
ungra þreytu-tárin.
Fáist svör af vonar-vör,
vex hinn öri kraftur.
Ljós ef gjörast lífsins kjör
logar fjörið aftur.
Ytra hart þó sé og svart,
svo menn kvarta og trega
er þó bjart hið innra margt,
ó, svo hjartanlega.
Ásta-skær er -morgun mær,
meðan lærum sporið.
Ekkert grær og ekkert hlær
eins og kærleiks-vorið.
Svæfðu mig ekki.
Öll velferð mín er í voða stödd
ef villir mig ljósið bjarta.
Æ, svæfðu mig ekki, sæta rödd
er syngur í mínu hjarta.
Nú, vilji minn komdu að
vernda mig
því vitsmuni töfrar svæfa.
Ég þekki, ég ann og óttast þig,
þú alheimsins böl og gæfa.
Þó mæni ég.
Þó að mig langi upp í
Ijósari heim,
ég lyftist ei þangað að heldur,
þó berst til mín angan af
ilminum þeim
sem ánægja í fanginu heldur.
Þó afsíðis þilji oss örbirgð
sér hjá,
samt yfir þann skilvegginn
brutust
þeir geislar, sem ylríku
gleðinni frá
með gjafirnar til okkar skutust.
Næstu vísu kvað K.N. Hún
mun ekki hafa þótt birtingar-
hæf er vísnakver hans var gef-
ið út:
Merkin ber til grafar glögg
greyið séra Jóhann.
Það hefur verið þrælslegt högg
þegar merin sló hann.
Þá birtast nokkrar vísur eftir
umsjónarmann Vísnaþáttar-
ins.
Fyrr og nú:
Flýgi staka fyndin hjá,
fyrrum greip ég hana.
Nú má eftir ýmsum sjá
út í loftið flana.
Hendir þó ég heyri og sé
hreimfallinu Ijúfu
kurra á mínu kræklutré
káta skógardúfu.
Skrýtnir fuglar flögra títt
framhjá mínum glugga.
Vekja ýmsir eitthvað nýtt,
öðru burtu stugga.
Enn ég stökum býð á blað,
býst að grípa penna.
Efþær neita, þá er það
þvermóðsku að kenna.
Svo er til að sækir að
sveimur slíkra kvenna,
oft hef ég þá ekkert blað
eða Ijós né penna.
Trygginganna náðar nýt,
nú vill gengið lækka.
Undan straumi fram ég flýt
fossins drunur hækka.
Ógn er hart er aldnir fá
engu skartað lengur.
Þó ei kvarta maður má
meðan hjartað gengur.
Magnús Markússon hefur lík-
lega kveðið þessa á jólum:
Fylla geiminn friðarjól
frelsisómi hlýjum.
Allan heiminn signir sól
sigurómi nýjum
Páll Guðmundsson kvað:
Lof þitt hátt, um lög og ból
Ijóða sáttir munnar,
dýrðarmáttur, mikla sól,
móðir náttúrunnar.
Þyngra er yfir vísu Björns G.
Björnssonar:
Skuggar hækka hér og þar,
hrjáðra fækka skjólin,
öldur stækka ófriðar,
alltaf lækkar sólin.
Konráð á Brekkum kvað á
efri árum:
Áður mér í æðum svall
æskufjör og kraftur.
Nú mig allir kalla kall,
en kannski ég fæðist aftur.
Lárus Salómonsson kunni að
meta ferskeytluna:
Ferskeytlan er fögur list,
feður vorir sungu
hennar list í heiminn fyrst
hér á dýra tungu.
Guðmundur Geirdal tók í
sama streng:
Hvar sem útsýn opnast ný
anda heiðríkjunnar,
fegurst leiftrar listin í
lundum ferskeytlunnar.
Þá kemur ósvikin vorvísa eft-
ir Benidikt Guðmundsson frá
Húsavík.
Strengi Ijóða lóan slær,
lengi spói vellur.
Engi gróa, hugur hlær,
hengjan snjóa fellur.
Jóhannes Ásgeirsson mun
hafa kveðið þessa til vinar:
Oft þín voru örðug spor
yfir grýtta reiti,
en alltaf sástu von og vor
vera á næsta leiti.
Næsta vísa er eftir Látra-
Björgu. Hún var þaulvön sjó-
sókn:
Þá kemur mjög gömul vísa
sem gestur kvað um viðtökur
á einhverjum bæ:
Að mér rétti auðarslóð
eins og ég væri hundur
punga bæði og pokablóð
pestarkæfu og glundur.
Egill Jónasson kastaði þessari
glettu að Baldri á Ófeigsstöð-
um er hann gekk frá ræðu-
stól:
Ljómi skein af Baldurs brá,
búkurinn var í góðu standi.
En hægt var bæði að heyra
og sjá
að höfuðið var fjarverandi.
Fyrir allmörgum árum fóru
fjórir þingeyskir hagyrðingar
víða um og skemmtu fólki.
Þegar einn þeirra dó kvað
Egill Jónasson:
Þátturinn ekki barr sitt ber,
besta fauk í skjólið.
Vagninn ætíð valtur er
vanti fjórða hjólið.
Þóra Sigurgeirsdóttir kvað
þessa vísu á sjúkrabeði:
Öll er kæti flúin frá,
fátt sem hugann bindi.
Ég er eins og ýlustrá
úti í haustsins vindi.
Róðu betur karl minn karl,
kenndu ekki í um sjóinn.
Harðara taktu herðafall,
hann er á morgun gróinn.