Dagur - 01.02.1992, Síða 20
Akureyri, laugardagur 1. febrúar 1992
Stund milli stríða.
Mynd: Golli
Loðnumiðin:
Sveifarhússsprenging í Súlunni
- varðskipið Ægir dró skipið til Neskaupstaðar
Alvarleg vélarbilun varð í
loðnuskipinu Súlunni EA-300 í
fyrrinótt. Sprenging varð í
sveifarhúsi og sprungu loftblás-
arar í vélarrúminu. Einn mað-
ur var í vélarrúminu þegar
þetta gerðist. Hann fékk
brunasár og var gert að sárum
hans um borð í varðskipinu
Ægi í gærmorgun.
Bjarni Bjarnason, skipstjóri á
Súlunni, sagði að bilunin hafi
orðið þegar nýlega var búið að
kasta. Vegna einhverrar bilunar
hafi vélin farið á yfirsnúning og
hún stöðvast fljótlega eftir það.
Nokkra klukkutíma tók að ná
nótinni inn en að því loknu tók
varðskipið Ægir Súluna í tog
til hafnar þar sem skemmdir á
vélinni verða kannaðar. Bjarni
sagði á þessari stundu ómögulegt
að segja hve langan tíma taki að
gera við en væntanlega skýrist
það fljótlega eftir að komið verð-
ur til hafnar.
Mokveiði var á loðnumiðunum
í fyrrinótt. Skipin fengu fullfermi
og voru því á leið til hafna til
löndunar í gær. Veður var með
albesta móti í fyrrinótt, nánast
logn en sem kunnugt er hefur
verið suðvestan strekkingur síð-
ustu 10 sólarhringana. JÓH
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri:
Shree Datye ráðinn yfír-
læknir handlækningadeildar
A fundi stjórnar Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri sl.
fimmtudag var samþykkt að
ráða Shree Datye í stöðu yfir-
læknis handlækningadeildar
F.S.A. Fimm umsækjendur
voru um stöðuna.
Shree Datye er fæddur árið
1950 á Indlandi. Hann lauk prófi
t' almennum skurðlækningum frá
Háskóalanum í Bombay árið
1976 og fékk lækningaleyfi á ís-
landi árið 1982.
Shree hefur starfað við Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri frá
árinu 1978 og undanfarin tvö ár
hefur hann gegnt starfi yfirlæknis
Handlækningadeildar. óþh
Skóverksmiðjan Strikið:
Fjárhagslegri endurskipu-
lagningu að ljúka
- vinna hefst aftur nk. mánudag
eftir nokkurra vikna hlé
Haukur Armannsson, fram-
kvæmdastjóri skóverksmiðj-
unnar Striksins á Akureyri,
segist gera sér vonir um að
fjárhagslegri endurskipulagn-
ingu verksmiðjunnar Ijúki síð-
ar í þessum mánuði. Vinna
hefst að nýju nk. mánudag eft-
ir nokkurra vikna hlé.
Á undanförnum misserum hef-
Raufarhöfn:
Stakfellið fiskar fyrir Fiskiðjuna
- tímabundnir erfiðleikar í atvinnulífmu senn að baki
Stopul vinna hefur verið hjá
Fiskiðju Raufarhafnar undan-
farnar vikur, eða frá því togari
Jökuls, Rauðinúpur, heltist úr
lestinni vegna vélabilana. Von-
ast er til að togarinn komist
aftur til veiða um miðjan
febrúar.
Að sögn Gunnars F. Jónasson-
ar, verkstjóra hjá Fiskiðju Rauf-
arhafnar, hafa bátar lagt upp hjá
fyrirtækinu og vinnsla verið í
gangi þrjá til fjóra daga í viku.
Þórshafnartogarinn Stakfell mun
væntanlega landa á Raufarhöfn í
næstu viku en samið hefur verið
um að 70-80% af afla Stakfells
fari til Fiskiðjunnar meðan
Forkaupsréttur Reyðarljarðarhrepps
á Vöku SU og Hörpu RE:
Hreppsnefiid tekur
ákvörðun 10. febrúar
Hreppsnefnd Reyðarfjarðar-
hrepps mun væntanlega taka
afstöðu til þess á fundi 10.
febrúar nk. hvort sveitarfélag-
ið nýtir forkaupsrétt á skipum
Eskfirðings hf., Vöku SU og
Hörpu RF, en eins og kunnugt
er Iiggur fyrir samningur um
kaup Þormóðs ramma á Siglu-
firði og Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar hf. á skipunum og
meðfylgjandi loðnu-, rækju- og
botnfiskkvóta.
Reyðarfjarðarhreppur hefur
forkaupsrétt á bæði skipunum og
kvótanum, sem er 16 þúsund
tonn af loðnu, 240 tonn af bolfiski
(m.v. þorskígildi) og 297 tonn af
rækju. Samkvæmt lögum um
stjórn fiskveiða hefur sveitarfé-
lagið einn mánuð til að taka
afstöðu til þess hvort forkaups-
réttur verði nýttur.
Þetta mál var rætt á fundi
hreppsráðs Reyðarfjarðarhrepps
í fyrradag, en hreppsnefnd hefur
síðasta orðið og mun væntanlega
taka afstöðu til málsins á fundi
10. febrúar nk. óþh
Rauðinúpur er úr leik.
Gunnar sagði að vélarbilunin
væri áfall sem bættist við langvar-
andi aflaleysi fyrir áramót en
menn væru bjartsýnir á að úr færi
að rætast. Engum var sagt upp
hjá Fiskiðjunni fyrir jólin, eins og
tíðkast hefur hjá ýmsum fisk-
vinnslufyrirtækjum og starfs-
menn fengu 40 þúsund króna
launauppbót um áramótin, mið-
að við fullt starf.
Engin loðna hefur verið brædd
á Raufarhöfn á þessu ári og hjá
Síldarverksmiðjunum bíða menn
eftir því að veiðar glæðist og allar
þrær fyllist á Austfjörðum. Fyrr
er ekki von á loðnu til Raufar-
hafnar. SS
ur verið unnið að því að auka
hlutafé Striksins um 15 milljónir
króna og segir Haukur að það
hafi nú tekist. „Við höfum verið
að vinna að fleiri þáttum í fjár-
hagslegri endurskipulagningu
fyrirtækisins til þess að skapa því
eðlilegan rekstrargrundvöll. Það
er engin spurning að ef það geng-
ur eftir, sem við erum að vinna að
núna, þá er mun bjartara fram-
undan í rekstrinum. Það sem hef-
ur gert okkur erfitt fyrir að
undanförnu er birgðasöfnun og
bullandi vaxtakostnaður Vegna
hennar,“ sagði Haukur.
Hann sagðist vænta þess að í
þessum mánuði yrði endanlega
lokið fjárhagslegri endurskipu-
lagningu Striksins og í kjölfarið á
því yrði fyrirtækinu kjörin ný
stjórn.
Að undanförnu hefur Strikið
verið með útsölu á Akureyri og
hefur hún gengið vel að sögn
Hauks. Þá hefur Strikið bás á
útsölumarkaði á Bíldshöfða í
Reykjavík, sem hófst í fyrradag.
óþh
Bæjarráð Akureyrar hafnar kröfu íbúanna við Grenilund:
Lögð fram stefiia einhvem næstu daga
- segir Benedikt Ólafsson, lögfræðingur íbúanna
greiðslu bóta. Málið fari fyrir
héraðsdóm og ætla megi að máls-
meðferð þar taki 8-12 mánuði.
óþh
Norðurland:
Rigning í dag
- frost á morgun
Veðurfræðingar Veðurslofu ís-
lands gera ráð fyrir rigningu
um allt Norðurland í dag og
hitastig verður á bilinu 4-7
gráður. Er líður á helgina fer
veður kólnandi.
Suðaustlæg átt verður allsráð-
andi Iengst af í dag, en er líður á
kvöldið léttir til og vindur verður
af suðvestri. Aðfaranótt sunnu-
dags dregur til norðlægra átta.
Frost verður á bilinu 1-4 gráður,
éljagangur með ströndinni, en
þurrt til landsins. Á mánudag
verður orðið hlýtt sem fyrr. ój
Bæjarráð Akureyrar samþykkti
á fundi sínum sl. fimmtudag að
standa fast við samþykkt frá
árinu 1990 þess efnis að bærinn
telji sig ekki bótaskyldan
vegna vatnstjónsins í húsum
við Grenilund að kvöldi 2. maí
1990.
Þessu máli var aftur vísað til
bæjarráðs í ljósi niðurstöðu
skýrslu dómkvaddra matsmanna
þar sem m.a. kemur fram að
þarna sé um ræða ágalla varðandi
frárennslislögn.
Benedikt Ólafsson, lögfræð-
ingur, sem rekið hefur þetta mál
fyrir hönd íbúanna við Greni-
Iund, segir liggja alveg ljóst fyrir
að einhvern næstu daga muni
Akureyrarbæ verða stefnt til
Tónlistarskólinn á Akureyri:
Roari Kvam sagt upp störftun
Á fundi bæjarráðs Akureyrar
sl. fimmtudag var samþykkt að
segja Roari Kvam, skólastjóra
Tónlistarskólans á Akureyri og
núverandi framkvæmdastjóra
Tónmenntaskólans á Akur-
eyri, upp störfum.
Roar hefur verið í tímabundnu
Ieyfi frá starfi skólastjóra Tónlist-
arskólans á meðan kærumál á
hendur honum, vegna gruns um
brot á almennum hegningarlög-
um er varða skírlífi, hefur verið
til meðferðar hjá embætti ríkis-
saksóknara. Eins og Dagur
greindi frá sl. þriðjudag felldi
ríkissaksóknari málið niður þar
sem litið er svo á að ætlaðar sakir
á hendur Roari séu fyrndar. óþh