Dagur - 05.02.1992, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 5. febrúar 1992
Fréttir
Samvinna íslendinga og Svía í getraunum:
íslenskir tipparar hafa
fengið 30 milljónir
Samkvæmt upplýsingum frá
Islenskum getraunum hafa
Velferð á varan-
legum grunni:
Kynningarftindir heil-
brigðis- og trygg-
ingamálaráðherra
Sighvatur Björgvinsson, heil-
brigðis- og tryggingamálaráð-
herra, boðar til kynningarfunda
á Norðurlandi í þessari og
næstu viku undir yfirskriftinni;
Velferð á varanlegum grunni.
Auk þess er ráðherrann með
viðtalstíma fyrir almenning á
þeim stöðum þar sem fundirnir
verða haldnir.
Fyrsti fundur ráðherra verður í
Borgarkaffi á Siglufirði í kvöld
kl. 20.30. Þá verður hann með
viðtalstíma á bæjarskrifstofunni
frá kl. 9-12 í dag. Á morgun,
fimmtudaginn 6. febrúar boðar
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra til fundar í Safnahúsinu á
Sauðárkróki kl. 20.30 og verður
með viðtalstíma fyrir almenning
á bæjarskrifstofunni frá kl. 9-12.
í næstu viku boðar ráðherra til
fundar á Akureyri og Húsavík.
Fyrri fundurinn fer fram í
Alþýðuhúsinu á Akureyri mið-
vikudaginn 12. febrúar og hefst
kl. 20.30. Fyrr um daginn verður
ráðherra með viðtalstíma á
bæjarskrifstofunni frá kl. 9-12.
Fjórði og síðasti fundur ráð-
herra á Norðurlandi, fer fram á
Hótel Húsavík, fimmtudaginn
13. febrúar og hefst kl. 20.30. Þá
verður ráðherra með viðtalstíma
fyrir almenning á bæjarskrifstof-
unni sama dag frá kl. 9-12. Tíma-
pantanir í viðtalstíma ráðherra
eru hjá bæjarstjórum kaupstað-
anna fjögurra. -KK
íslenskir tipparar fengið rúmar
30 milljónir frá sænskum tipp-
urum þegar 12 vikur eru liðnar
af samstarfi íslenskra getrauna
og AB Tiptjanst í Svíþjóð.
Strax í annarri leikviku þessa
samstarfs voru íslensku tippar-
arnir getspakir og fengu 20 millj-
ónir frá Svíþjóð en síðan þá hafa
ekki komið stórir vinningar hing-
að til lands fyrr en nú um helgina
þegar tveir voru með 13 rétta.
Eins og fram kom í blaðinu í
gær unnu getspekingar í Golf-
klúbbi Akureyrar 10,7 milljónir
króna um helgina. Þeir fengu
rúmar 9,7 milljónir fyrir röð með
13 réttum en auk þess um milljón
fyrir tíur, ellefur og tólfur. JÖH
Arnar Páll Hauksson tók á mánudag við starfi deildarstjóra Ríkisútvarpsins á Akureyri. Arnar Páll tók við starfínu
af Kristjáni Sigurjónssyni sem gegnt hefur því frá í haust. Á myndinn hér að ofan er Arnar Páll ásamt starfsfólki
sínu í Ríkisútvarpinu á Akureyri en standandi eru (fv.): Nína Þórðardóttir, Helga Haraldsdóttir, Þröstur Emilsson,
Þórir Jökuli Þorsteinsson, Björg Þórðardóttir, Björn Sigmundsson og Kristján Sigurjónsson. Mynd:Golli
Löng og ströng barátta Björns Guðmundar
Björnssonar vegna bílaviðskipta árið 1988:
„Samantekin ráð að drepa málið“
„Ég fæ ekki betur séð en það
séu samantekin ráð að drepa
þetta mál. Þeir tveir lögfræð-
ingar á Akureyri, sem ég hef
rætt við, segja borðleggjandi
að ég eigi að vinna þetta mál.
Þess vegna skil ég ekki af
hverju þeir taka það ekki að
sér. Ég hlýt að álíta að þeir
þori ekki að ganga að þessu
fyrirtæki.“
Þetta segir Björn Guðmundur
Björnsson í Öxarfirði um sam-
skipti sín við lögfræðinga á Akur-
eyri vegna máls sem hann hefur
verið að berjast í undanfarin ár.
Forsaga málsins er sú að á vor-
dögum 1988 brá Björn sér til
Akureyrar og seldi bifreið sína.
Kaupandi greiddi með skulda-
bréfi. Síðar þennan sama dag
festi Björn kaup á öðrum bíl,
skrifaði upp á skuldabréfið og
framseldi það.
Nokkrum mánuðum síðar
barst honum síðan stefna til
greiðslu skuldabréfsins vegna
þess að nöfn ábyrgðarmanna á
því væru fölsuð. „Þetta kom mér
algjörlega í opna skjöldu vegna
þess að tveir starfsmenn þessarar
bílasölu höfðu vottað á skulda-
bréfið. Það er skýrt kveðið á um
að þeir sem skrifi upp á slík bréf
séu vottar að réttri dagsetningu
skuldabréfsins, fjárræði útgef-
anda og réttum nöfnum ábyrgðar-
manna. Þarna hafði greinilega
ekki verið farið að settum
reglum,“ sagði Björn.
Honum var gert að greiða
skuldabréfið, um 600 þúsund
krónur á verðlagi árið 1988. „Ég
A-sveit Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, sem hafnaði í öðru sæti, ásamt Snorra Birni Sigurðssyni, bæjarstjóra
á Sauðárkróki. Mynd: sbg
Framhaldsskólamótið í bridds:
ísfirðingar náðu bikamum
Framhaldsskólamótið í bridds
fór fram í Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á Sauðár-
króki um síðustu helgi. Sigur
úr býtum bar sveit Mennta-
skólans á ísafirði, en í öðru
sæti varð A-sveit heimamanna
sem varð þar með að sjá á eftir
titlinum vestur á firði að þessu
sinni. Þriðja sætið hreppti síð-
an sveit Fjölbrautaskóla
Suðurlands.
Alls tóku tíu sveitir þátt í mót-
inu og komu þær frá átta skólum,
en Menntaskólinn á Laugarvatni
og Fjölbrautaskóli Norðurlands
vestra tefldu báðir fram tveimur
sveitum. Sigursveitina skipuðu
þeir Hlynur Tr. Magnússson,
Ragnar Torfi Jónasson, Tryggvi
Ingason og Halldór Sigurðarson.
Sauðárkróksbær gaf verðlaun-
in og Snorri Björn Sigurðsson,
bæjarstjóri, afhenti þau í
mótslok. SBG
hafði þá nýlega lokið prófi í
fiskeldisfræðum frá Hólum og
átti því ekki krónu. Eftir töluvert
stapp tókst að semja um greiðslu
á þessari upphæð og því lauk ég
ekki fyrr en árið 1990,“ sagði
Björn.
Eftir að Birni barst stefnan í
hendur hafði hann samband við
bílasöluna og fékk þau svör, að
sögn Björns, að hann þyrfti engar
áhyggjur að hafa vegna þess að
ábyrgðarmennirnir væru stór-
eignamenn og því myndu þeir
greiða skuldabréfið áður en langt
um liði. „Auðvitað varð aldrei af
því. Síðar kom í ljós að sá sem
keypti bílinn hafði falsað bæði
nöfn ábyrgðarmannanna á skulda-
bréfinu og fyrir það hefur hann
fengið dóm,“ sagði Björn.
Þegar hér var komið sögu seg-
ist Björn hafa haft samband við
lögfræðing á Akureyri sem hafi
gefið sér um eitt ár til þess að
kanna málið, áður en hann til-
kynnti að hann hefði ekki tíma til
þess að sinna því. Annar lög-
fræðingur var fenginn í málið, en
eftir nokkurra mánaða skoðun
segir Björn að hann hafi með
bréfi dagsettu undir lok síðasta
árs vísað málinu frá sér.
„Það kom fram hjá þessum
lögfræðingum að þeir telja þetta
vera prófmál og rétturinn sé mín
megin. Þess vegna er mér hulin
ráðgáta af hverju þeir tóku það
ekki að sér. Það bendir margt til
þess að þeir þori ekki að hjóla í
þetta viðkomandi stórfyrirtæki á
Akureyri, sem auðvitað á að bera
ábyrgð á því að skuldabréf sem
þetta sé í lagi. Menn eiga ekki að
skrifa upp á það sem vottar nema
farið sé eftir settum reglum.
Þarna var það augljóslega ekki
gert,“ sagði Björn.
En hvað hyggst Björn aðhafast
frekar í þessu máli? „Satt best að
segja er ég alveg að gefast upp á
þessu og svo mikið er víst að ég
hef ekki áhuga á að leggja út
stórar fjárfúlgur vegna málsins í
viðbót við það sem ég hef nú þeg-
ar skaðast af því. En sé þetta
prófmál, þá skilst mér að opin-
berum aðilum beri að koma að
því og sé'.það tilfellið er ég meira
en tilbúinn að halda málinu
áfram og fá það á hreint í eitt
skipti fyrir öll hver er ábyrgur í
slíku máli,“ sagði Björn Guð-
mundur Björnsson. óþh
Akureyri:
Bæiannála-
punktar
■ Á fundi íþrótta- og tóm-
stundaráðs 20. janúar sl. kom
fram að fimm umsóknir hefðu
borist um starf sundlaugar-
stjóra við Sundlaug Akureyrar
og þrettán umsóknir um stöðu
kvenbaðvarðar við sundlaug-
ina.
■ Bygginganefnd hefur hafn-
að erindi Jóns Bjarnasonar,
Kaupvangsstræti 14-16, f.h.
Jónco hf„ um leyfi til að setja
upp ljósaskilti úr plasti og
járni á húsið Kaupvangsstræti
14-16.
■ Með erindi dags. 21. janúar
1992 sótti Gísli Gestsson,
Skipholti 31, Reykjavík, f.h.
Ljósmyndavara hf. um lóðina
nr. 1 við Kaupvangsstræti til
að byggja á verslunar- og skrif-
stofuhús í tveim áföngum, 1.
hæð ásamt 2ja hæða turnbygg-
ingu í 1. áfanga og 2. hæð í 2.
áfanga. Bygginganefnd sam-
þykkti að veita honum lóðina,
en gat ekki fallist á fyrirhugað-
ar byggingaáætlanir.
■ Orn Ingi, Klettagerði 6
Akureyri, hefur sótt um styrk
frá atvinnumálanefnd vegna
fyrirhugaðs sumarskóla á
Akureyri. Atvinnumálanefnd
óskaði eftir nánari áætlun um
kostnað og uppbyggingu
sumarskólans.
■ Á fundi sínum 22. janúar
sl. samþykkti bygginganefnd
að syðri gata vestur úr Kiðagili
heiti Sandgil. Nyrðri gata vest-
ur úr Kiðagili heiti Selgil.
Gata suður úr Merkigili að
norðan heiti Skessugil. Nyrðri
gata austur úr Merkigili heiti
Skuggagil. Syðri gata austur úr
Merkigili heiti Skútagil. Gata
norður úr Merkigili að sunnan
heiti Snægil. Gata úr Austur-
síðu til suðvesturs sunnan
Bugðusíðu heiti Lindasíða.
Gata norður úr Merkigili að
norðan heiti Urðargil.
■ Atvinnumálanefnd hefur
synjað erindi Leikfélags Akur-
eyrar og Hótels Norðurlands
f.h. hagsmunaaðila um 500
þúsund króna styrk til að
hrinda af stað auglýsingaátaki,
þar sem Akureyrarbær verði
auglýstur sem ákjósanlegur
helgardvalarstaður.