Dagur - 11.03.1992, Síða 2

Dagur - 11.03.1992, Síða 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 11. mars 1992 Fréttir Átaksverkefnið í Mývatnssveit: Skólabúðir í Hótel Reynihlíð Ljósmyndararnir sem fengu viðurkenningu talið frá vinstri. Gunnar Gunnarsson fyrir bestu portrettljósmyndina, Gunnar V. Andrésson fyrir skopmynd, Brynjar Gauti Sveinsson fyrir mynd úr daglega lífinu, Ragnar Axelsson fyrir myndröð, mynd ársins og sérstök viðurkenning fyrir mynd frá strandstað við Krísuvíkurberg, Sigurþór Halldórsson viðurkenning í opnum flokki og Þorkell Þorkelsson fyrir fréttamynd ársins. Við ræðupúltið er Lúðvík Geirsson, for- maður Blaðamannafélags Islands. Mynd: Golli Blaðaljósmyndir 1991: Mjög góð aðsókn að sýmnguimi - sem lýkur um næstu helgi Ákveðið hefur verið að reka skólabúðir í Hótel Reynihlíð í fjórar vikur í vor og kemur fyrsti barnahópurinn 16. mars nk. Börnin koma til vikudvalar og verða um 50 í hverjum hóp, og væntanlega 12 ára að aldri. Skólabúðastjóri verður Stein- þór Þráinsson. Hér er um tilraun að ræða sem vonast er til að framhald verði á. Alls fá 5-6 manns vinnu við skólabúðirnar meðan þær eru starfræktar og er það mikill áfangi, að sögn Frímanns Guð- mundssonar hjá Átaksverkefninu í Mývatnssveit. „Við biðum lengi eftir framlagi frá Menntamála- Þrotabú Árvers: Eignir til sölu Bústjóri þrotabús rækjuverk- smiðjunnar Árvers hf. á Árskógsströnd, sem úrskurðuð var gjaldþrota undir lok síð- asta árs, hefur auglýst ýmsar eignir þrotabúsins til sölu. Einnig kemur fram í auglýs- ingu bústjóra að leiga á verk- smiðjunni komi einnig til greina. Arnar Sigfússon var skipaður bústjóri þrotabús Árvers og hann hefur nú auglýst eignir þess til sölu. Um er að ræða verksmiðju- hús Árvers að Fossbrún 6 á Árskógsströnd, sem stendur við þjóðveginn sunnan Þorvaldsdals- ár, ásamt vélbúnaði til rækju- vinnslu. Þá er til sölu vörubíll, frystigámur, fiskikassar og kör, skrifstofubúnaður o.fl. óþh ráðuneytinu, svo brást það fyrir rest. En við kríuðum framlög úr ýmsum sjóðum til að gera þessa tilraun; Byggðastofnun, smá- verkefnasjóði, Fræðsluskrifstofu Norðurlands eystra og Skútu- staðahreppi. Börnin þurfa síðan að greiða fjögur þúsund krónur fyrir vikudvölina. „Við ætlum að gera þessa til- raun núna til að öðlast reynslu, sjá hvað þetta kostar og hvernig best verður að þessu staðið. Hótel Reynihlíð vantar verkefni til að hægt sé að nýta hótelið á þessum árstíma,“ sagði Frímann. Hann sagði að fundur hefði verið haldinn með skólastjórum sl. föstudag og hugmyndirnar kynnt- ar og mun þeim hafa verið mjög vel tekið. „Það er í raun Stefáni Þórhallssyni, formanni skóla- nefndar, að þakka hve vel hefur gengið við undirbúning þessa verkefnis,“ sagði Frímann. Það var nemendafélagið sem átti hug- myndina að verkefninu en hún kom fram fyrir um það bil tveim- ur árum. Mjög mikil aðsókn hefur verið að skólabúðunum að Reykjum í Hrútafirði og mun Menntamála- ráðuneytið hafa verið að leita eft- ir hentugum stað fyrir aðrar skólabúðir. Frímann sagði aðila hjá ráðuneytinu hafa verið mjög hvetjandi þó þeir hefðu ekki get- að styrkt verkefnið að þessu sinni, nema með því að greiða laun búðastjóra. „Hér í Mývatnssveit er jarð- fræðin næstum eins og opin skólabók. Hér er hægt að skoða hverfi og við gætum sýnt börnun- um orkuver. Það mætti leyfa þeim að taka sýni úr vatninu og skoða þau. Þetta svæði er eitt það best rannsakaða á jörðinni, svo mikið er til af upplýsingum en það þarf að koma þeim í aðgengi- legt form fyrir nemendurna," sagði Frímann. IM Mjög góð aðsókn hefur verið að sýningu Blaðamannafélags- ins og Blaðaljósmyndarafé- lagsins í Listasafni ASÍ á bestu blaðaljósmyndunum frá ný- liðnu ári. Alls eru um 100 myndir á sýningunni eftir 20 Ijósmyndara. Sýningin sem var opnuð um sl. helgi, stendur yfir út þessa viku og fram á sunnudagskvöld. Sýn- ingin er opin daglega frá kl. 14- 19. Við opnun sýningarinnar voru veittar viðurkenningar fyrir bestu rriyndirnar í hverjum efnis- flokki og að auki útnefnd „Blaða- ljósmynd ársins 1991.“ Fyrir val- inu varð mynd frá Eistlandi, eftir Ragnar Axelsson, ljósmyndara á Morgunblaðinu. í umsögn dómnefndar segir m.a. að hér sé um sláandi ljós- mynd að ræða, hún sé dimm og drungaleg og hlaðinn andrúms- lofti spennu og uppnáms. Hún flýsi betur en þúsund orð stemmn- 1 ingunni í Eystrasaltsríkjunum á sl. ári. Efnisflokkar sýningarinnar eru: Fréttamyndir - íþróttir - Skop - Daglegt líf - Portrett - Opinn flokkur. Þriggja manna dómnefnd valdi myndirnar sem eru á sýningunni en alls bárust Kauplagsnefnd hefur reiknað vísitölu framfærslukostnaðar miðað við verðlag í marsbyrj- un 1992. Vísitalan í mars reyndist vera 160,6 stig eða 0,1% hærri en í febrúar 1992. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala framfærslukostnaðar hækkað um 6,9%. Undanfarna ’þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 0,5% og jafngildir sú hækkun 2,0% verðbólgu á heilu um fjögur hundruð myndir í forkeppnina, frá hátt í 30 blaða- ljósmyndurum. Sem fyrr sagði eiga 20 ljós- myndarar þær nálega 100 myndir sem prýða sýninguna og þar af á ljósmyndari Dags, Kjartan Þor- björnsson (Golli) sex myndir. ári. Verðhækkun á matvöru olli ríflega 0,05% hækkun vísitölunn- ar. Rekstur eigin bíls jókst um 0,5% sem hækkaði vísitöluna um 0,07% og hækkun á fötum hafði í för með sér 0,02% hækkun. Breyting ýmissa annarra vöru- og þjónustuliða olli um 0,06% hækkun vísitölunnar. Á móti vó 1,3% lækkun fjármagnskostnað- ar sem olli um 0,07% lækkun vísitölunnar. Smásagnasamkeppni Dags og MENOR: Endaspretturimi hafínn - Shakespeare og Snorri bíða við markið -KK Vísitala framfærslukostnaðar: Verðbólga 2,0% á heilu ári Skák Skákþing Norðlendinga haldið á Akureyri - keppni í opnum flokki hefst 19. mars Um tuttugu smásögur hafa borist í smásagnasamkeppni Dags og Menningarsamtaka Nýverið komu foreldrar barna í Oddeyrarskóla saman til fundar í skólanum og ræddu þær hugmyndir sem reifaðar hafa verið um að loka íþrótta- skemmunni. Miklar umræður urðu um málið og eindregin mótmæli komu fram gegn því að senda börnin í annað skóla- hverfi til íþróítaiðkana. Fundurinn samþykkti ályktun sem var send bæjarstjóra og skólanefnd. Ályktunin er svo- hljóðandi: „Fundur foreldra barna í Oddeyrarskóla mótmælir harð- lega hugmyndum um að flytja íþróttaaðstöðu barna í Oddeyr- Norðlendinga en skilafrestur rennur út mánudaginn 16. mars næstkomandi, sem er síð- arskóla úr hverfinu og krefst þess að staðið verði við framkvæmda- áætlun skólanefndar um bygg- ingu íþróttahúss við Oddeyrar- skóla á árunum 1992-1994.“ Málið verður tekið fyrir á aðal- fundi Foreldra- og kennarafélags Oddeyrarskóla 17. mars næst- komandi. Auk þessara mótmæla má nefna að áhugamenn um Skemm- una hafa látið undirskriftarlista liggja frammi í íþróttahúsum, bensínstöðvum og víðar á Akur- eyri þar sem skorað er á bæjar- yfirvöld að hætta við áform um að leggja Skemmuna niður sem íþróttahús. SS asti póstlagningardagur. Búist er við að sögurnar fari að streyma inn kringum helgina og eru þeir sem luma á sögum hvattir til að taka þátt í sam- keppninni. Dagur og MENOR hafa áður efnt til smásagnasamkeppni og ljóðasamkeppni og hefur þátt- taka verið fádæma góð. Miðað við fyrri reynslu mun dómnefnd hafa í mörg horn að líta á næstu vikum en niðurstöður hennar munu liggja fyrir sunnudaginn 12. apríl. Sú saga sem dómnefnd metur besta færir höfundi sínum tvö bókmenntaverk; annars vegar Heimskringlu Snorra Sturlusonar og hins vegar heildarútgáfu leik- rita Shakespeares. Höfundur sögunnar sem dómnefnd metur næstbesta hlýtur að launum heild- arútgáfu verka Shakespeares. Sögurnar mega að hámarki vera 6-7 síður að lengd og er þá miðað við A-4 síður, vélritaðar í aðra hverja línu. Sögurnar skal senda undir dulnefni, en með skal fylgja rétt nafn, heimilisfang og símanúmer í lokuðu umslagi, auðkenndu dulnefninu. Það skal ítrekað að skilafrestur smásagna í keppnina rennur út 16. mars næstkomandi. SS Skákþing Norðlendinga 1992 verður haldið á Akureyri 19.- 22. mars næstkomandi. Teflt verður í opnum flokki, kvenna- flokki, unglingaflokki og barnaflokki, ef næg þátttaka fæst í þessa flokka. Þingið verður sett í Skákheimilinu Þingvallastræti 18 flmmtudag- inn 19. mars kl. 13.45 og keppni í opnum flokki hefst kl. 14 sama dag en í öðrum flokk- um laugardaginn 21. mars kl. 13. Tefldar verða sjö umferðir eft- ir Monrad kerfi í öllum flokkum en þó áskilja mótshaldarar sér rétt til breytinga á fjölda umferða í kvennaflokki og yngri flokkum. Umhugsunartími í opnum flokki er 2 klst. á 40 leiki og 30 mín. til að ljúka skákinni. f kvenna- og unglingaflokki er umhugsunar- tíminn 40 mín. á skákina en 30 mín. í barnaflokki. Mótinu lýkur sunnudaginn 22. mars en þá tekur við Hraðskák- mót Norðlendinga og hefst það kl. 14. Veitt verða þrenn verð- laun í hverjum flokki og í opnum flokki verða að auki veitt pen- ingaverðlaun fyrir fimm efstu sætin. Aðalfundur Skáksambands Norðlendinga verður haldinn á þessum tíma og lokahóf og verð- launaafhending hefst strax að loknu hraðskákmótinu á sunnu- daginn. Þór Valtýsson og Albert Sigurðsson taka á móti tilkynn- ingum um þátttöku og þurfa þær að berast í síðasta lagi mánudag- inn 16. mars. SS Foreldrar barna í Oddeyrarskóla: Staðið verði við áætlun um byggingu íþróttahúss - hugmyndum um að flytja íþrótta- aðstöðu úr hverfinu mótmælt

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.