Dagur - 11.03.1992, Page 3

Dagur - 11.03.1992, Page 3
Miðvikudagur 11. mars 1992 - DAGUR - 3 Fréttir Söltunarfélag Dalvíkur: Við erum ekki tflbúnir að sam- þykkja launalækkun starfsfólksins - segir Björn Snæbjörnsson, varaformaður verkalýðsfélagsins Einingar Björn Snæbjörnsson, varafor- maður verkalýðsfélagsins Ein- ingar, segir að starfsfólk Sölt- unarfélags Dalvíkur hafi tekið neikvætt í hugmyndir fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins um álagsgreiðslur á vinnu utan dagvinnutíma. Eins og fram kom í Degi í gær gagnrýnir Finnbogi Baldvinsson, fram- kvæmdastjóri Söltunarfélags Dalvíkur, Einingu fyrir að hafa hafnað viðræðum um álags- greiðslur á vinnu utan hefð- bundins dagvinnutíma. Björn segir að Finnbogi Bald- vinsson hafi óskað eftir viðræð- um við Einingu um vaktavinnu hjá Söltunarfélaginu. Hugmynd Finnboga hafi gengið út á að búa til vaktir, sem yrði greitt fyrir með vaktaálagi, t.d. 45% álagi ofan á dagvinnutaxta frá kl. 4 að nóttu til 8 að morgni og 33% álagi frá kl. 17 til 21. „Svona samningar eru ckki til, hvorki fyrir bolfisk- né rækjuvinnslu í landinu. Það hefur einungis verið borgað eftir klukkunni, eins og raunar hcfur veriö gert hjá Sölt- unarfélaginu. í tvígang hefur ver- ið reynt aö gera vaktavinnusamn- ing með föstum álögum og þcir hafa báðir mistekist, nú síðast á Akranesi,“ sagði Björn. Björn sagði aö á fundi sem hann, ásamt formanni Dalvíkur- deildar Einingar og trúnaöar- manni starfsfólks Söhunarfélags Dalvíkur, hafi átt með fram- Jafnréttisnefnd Akureyrar: Eftirsótt námskeið í sjáífs- styrkingu fyrir konur - áhersla lögð á að konur þekki sögu sína, segir Valgerður Bjarnadóttir jafnréttisfulltrúi Akureyrarbæjar Um þessar mundir sækja sextán konur sem allar starfa hjá Akureyrarbæ námskeið í sjálfs- styrkingu. Jafnréttisnefnd bæjarins bauð konunum upp á námskeiðið og komust færri að en vildu. Er fyrirhugað að halda annað námskeið af þessu tagi í vor og það þriðja í haust og verða þau opin öllum konurn. Það er jafnréttisfulltrúi Akur- eyrarbæjar, Valgerður Bjarna- dóttir, sem stendur fyrir þessu námskeiði í samstarfi við fjöl- skylduráðgjafa heilsugæslustöðv- arinnar, Karólínu Stefánsdóttur, og leiðbeina þær báðar á nám- skeiðinu. Að sögn Valgerðar miðar nám- skeiðið að því að auka sjálfsstyrk kvenna, að gera þær sterkari bæði inn á við og út á við. „Til- gangurinn er að hjálpa konum við að samræma margþætt hlut- verk sitt. Lögð er áhersla á að konur læri að þekkja sögu sína, bæði sjálfra sín og kvenna yfir- leitt, og fái þannig betri yfirsýn yfir stöðu sína. Við erum dugleg að gleyma því sem er erfitt og það veikir okkur ef við vinnum ekki úr erfiðleikunum. Einnig sjáum við ekki alltaf það góða sem við höfum gert. Á námskeið- inu er konunum kennt að koma auga á bæði það jákvæða og nei- kvæða og nýta það á jákvæðan hátt í því skyni að styrkja sig í framtíðinni. Raunar veitti ekki af svona námskeiði fyrir karla líka og ég vildi gjarnan koma á slíku nám- skeiði. En þar verða karlar að vera leiðbeinendur," sagði Val- geröur. Bridds Undanúrslit í bikarkeppni Bridgesambands Norðurlands: Sveit Ásgríms gerði út um leikirm í fyrstu lotu Sveit Ásgríms Sigurbjörnsson- ar frá Siglufirði sigraði sveit Jakobs Kristinssonar frá Akur- eyri í undanúrslitum bikar- keppni Bridgesambands Norð- urlands um sl. helgi. Spiluð voru 48 spil í fjórum lotum og gerði sveit Ásgríms út um leik- inn strax í fyrstu lotu, hlaut 72 stig gegn 1 stigi Jakobs og félaga. Sveit Jakobs náði að klóra í bakkann í næstu þremur lotum en þegar upp var staðið, hafði svcit Ásgríms hlotið 132 stig en svcit Jakobs 89 stig. Munurinn var 43 stig og sigur siglfirsku spil- aranna, sem léku á heimavelli, því mjög öruggur. I hinum undanúrslitaleiknum mætast sveit íslandsbanka á Siglut'irði og sveit Reynis Helga- sonar frá Akureyri og fer leikur- inn fram síöar í mánuðinum. Aö þeim leik loknum, veröur það Ijóst hvort tvær siglfirskar sveitir mætast í úrslitum, eða hvort Reynir og félagar nái aö halda Ásgrímur Sigurbjörnsson og féiagar lians spila til úrslita í bikarkeppni Bridgesainbands Noröuriands. uppi heiöri akureyrskra bridds- spilara og spila til úrslita við Ásgrím og félaga. Alls hófu 24 sveitir víðs vegar af Noröurlandi keppni í mótinu sem lýkur með úrslitaleik í kring- um næstu mánaðamót. KK Námskeiðið er alls átján klukkustundir og er kennt í sex lotum, 2-4 tíma í senn. Þetta fyrsta námskeið er fullsetið og að sögn Valgerðar hefur næsta námskeið ekki verið auglýst en samt eru átján konur búnar að biðja um að láta skrá sig á lista, svo ekki vantar eftirspurnina. -ÞH kvæmdastjóra SFD hafi verið boðið upp á samning, sem gerður var l'yrir starfsfólk í rækjuverk- smiöjunni á Húsavík. en honum hafi verið hafnað. „Við áttum síðan fund með starfsfólki Sölt- unarfélagsins um málið, en það tók neikvætt í þessar hugmyndir. Það kom líka fram að fólk taldi ekki rétt að Eining færi á undan öðrum í því að gera slíkan samning. Eðlilegra væri að hafa þetta á hendi heildarsamtakanna. Ég skýrði Finnboga frá því að starfsfólk teldi að núgildandi fyrirkomulag væri gott og vildi halda í það. Ég skýrði honum líka frá því að ég teldi eðlilegt að aðilar vinnumarkaðarins, Fisk- vinnsludeild Verkamannasam- bandsins og Vinnuveitendasam- bandið myndu koma sér saman um einhvern rammasamning um vaktavinnu í fiskvinnslu. Þann 3. mars sl. greindi ég formanni Fisk- vinnsludeildar Verkamanna- sambandsins frá þeirri skoðun minni að æskilegast væri að gera landssamning um vaktavinnu fólks í bolfisk- og rækjuvinnslu, ekki þó endilega samning á þeim nótum sem framkvæmdastjóri SFD hefði lagt fram. Samkomu- lag varð um það á milli hans og framkvæmdastjóra Sambands fiskvinnslustöðva að þetta yrði tekið upp í yfirstandandi kjara- samningaviðræðum. Það er því Björn Snæbjörn.sson. ekkert sem segir að ekki náist samkomulag um þessa hluti. Ég vil nefna að stjórn Einingar var sammála um það á stjórnarfundi sl. fimmtudag að rétt hafi verið að vísa málinu til umfjöllunar í heildarkjarasamningaviðræð- um," sagði Björn. Hann sagði að í hnotskurn snérist þetta mál um að fram- kvæmdastjóri Söltunarfélagsins færi fram á að fá sömu vinnu ódýrari en áður. „Það hefur eng- inn bannað honum að keyra verksmiðjuna allan sólarhring- inn. Við höfum ekki staðið í vegi fyrir því. Hins vegar erum við ekki tilbúnir að samþykkja launalækkun starfsfólksins. Að sjálfsögðu viljum við að sem flestir fái vinnu. Ef það á hinn bóginn að leiða til þess að fólk fái minni tekjur, þá erum við ekki tilbúnir að ræða málin, nema að sjálfsögðu verði gerður samning- ur um þessi mál á landsvísu," sagði Björn. óþh ATAKS ER ÞORF! Við leitum að fólki með hugmyndir Ertu aö velta fyrir þér hugmynd um smáiönaö eða skyldan rekstur? Viltu bæta nýjungum viö þann rekstur sem þegar er farinn af staö? Þá er þessi auglýsing fyrir þig. Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar hefur ákveöið að standa fyrir námskeiöi í stofnun og þróun smáfyrirtækja. Því ekki aö láta drauminn um aö hefja eigin atvinnurekstur rætast núna og nota þetta tækifæri. Ekki er krafist sérstakrar þekkingar eöa reynslu, aðeins brennandi áhuga á aö koma hugmyndum í framkvæmd. Gerðu ráö fyrir aö mikið af frítíma þínum fari í verkefnið. Þú verður að leggja hart að þér Þetta er ekkert venjulegt námskeiö: Þú leggur sjálf(ur) til efniviðinn og það er frumkvæöi þitt og vinna sem ræöur úrslitum um þaö hver árangurinn verður. Við stofnum ekki fyrirtæki fyrir þig, en veitum aðstoð við aö meta möguleikana og hjálpum þér af stað. Við hittumst á fjórum vinnufundum um helgar með nokkurra vikna millibili. Þar verður unnið í hópum undir stjórn leiðbeinenda og starfið skipulagt stig af stigi. Milli vinnufundanna vinnur þú síðan að verkefnum sem tengjast þinni hugmynd um stofnun fyrirtækis eða nýbreytni í rekstri. Upplýsingar um verkefnið veitir: Ásgeir Magnússon framkv.stj. Vinnusími 26200 - Heimasími 11363. O IÐNÞRÓUNARFÉLAG EYJAFJARÐAR HF. Geislagötu 5, 600 Akureyri.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.