Dagur - 11.03.1992, Side 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 11. mars 1992
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31.
PÓSTHÓLF 58. AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIRiHúsavík vs. 96-41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON. JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir),
ÓLIG. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130),
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON
LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Gjöld og tekjur
af áfengisneyslu
Skýrsla um tekjur og kostnað þjóðfélagsins vegna
áfengisneyslu var kynnt almenningi í byrjun þess-
arar viku. Hér er um mjög athyglisverða skýrslu að
ræða, enda sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi.
Skýrslan var unnin af Hagfræðistofnun Háskóla
íslands fyrir Landssambandið gegn áfengisbölinu
og nær til áranna 1985-1989.
Meginniðurstaða skýrsluhöfunda er afar athygl-
isverð. Hún er í stuttu máli sú að tekjur Áfengis-
og tóbaksverslunar ríkisins af áfengissölu standi
varla undir kostnaðinum sem af neyslu áfengisins
hlýst. Skýrsluhöfundar komast að þeirri niðurstöðu
að áfengisneyslan hafi kostað íslenskt þjóðfélag
5,7-6,1 milljarð króna á árunum 1985-1989 á nú-
gildandi verðlagi en tekjur ÁTVR af áfengissölu
námu á sama tíma 5,3-6,9 milljörðum króna. í
skýrslunni kemur fram að kostnaður þjóðfélagsins
vegna áfengisneyslu skiptist þannig að 65% eru
framleiðslutap þjóðfélagsins, læknishjálp er um
20% kostnaðarins og félagslegur kostnaður er um
15%.
Á blaðamannafundinum, þar sem skýrslan var
kynnt, kom fram að erfiðara reyndist að komast
yfir kostnaðartölur en tekjutölur. Skýrsluhöfundar
urðu því í mörgum tilfellum að meta kostnaðinn og
reyndu þá ávallt að forðast ofmat. Því má gera ráð
fyrir að kostnaðarmatið sé eins lágt og hugsast
getur. Benda má á að margar þjóðir hafa komist að
þeirri niðurstöðu að kostnaður vegna áfengis-
neyslu sé meiri en tekjur af sölu áfengisins. Niður-
staðan er mjög mismunandi eftir löndum. Hag-
stæðasta útkoman er ein króna gjaldamegin fyrir
hverja eina tekjumegin. Óhagstæðasta útkoman er
hins vegar sex krónur gjaldamegin fyrir hverja
eina tekjumegin. Segja má að útkoman sé þeim
mun óhagstæðari sem heilbrigðis- og trygginga-
kerfið í viðkomandi landi er fullkomnara. Miðað við
það að íslendingar búa við fremur fullkomið heil-
brigðis- og tryggingakerfi má því gera ráð fyrir að
kostnaður íslensks þjóðfélags vegna áfengis-
neyslu sé hærri en fram kemur í skýrslunni.
Þegar rætt er um tekjur og kostnað af áfengis-
neyslu er vert að hafa í huga að fjölmargir þættir er
tengjast neyslu áfengis verða ekki metnir til fjár.
Þar er fyrst og fremst um hina huglægu þætti að
ræða, svo sem sársauka, þjáningu og önnur óþæg-
indi, sem áfengisneysla getur haft í för með sér,
bæði fyrir neytendurna sjálfa og aðstandendur
þeirra. Þeir vega þungt þegar heildarmyndin er
skoðuð, án þess þeir hafi áhrif á hina peningalegu
hlið.
Hvernig sem á málið er litið er ljóst að skýrslan
um tekjur og kostnað íslensks þjóðfélags af áfeng-
isneyslu er í senn þörf og tímabær. Vonandi vekur
hún sem flesta til umhugsunar. BB.
Norsku menntaskólanemarnir sem eru hér í heimsókn, frá vinstri: Ingeborg, Kristin, Gunhild, Lars, Heidi og kenn-
ari þeirra, Nancy Coleman. Mynd: Goiií
Norskir menntaskólanemar heimsækja VMA:
Dvölin nýtist í íslenskunáminu
- nemendaskipti blómstra fyrir tilstilli Norðurlandaráðs
Fimm norskir menntaskóla-
nemar hafa að undanförnu
dvalið hér á Akureyri og Dal-
vik ásamt kennara sínum.
Heimsókn þessi er skipulögð í
samráði við Verkmenntaskói-
ann á Akureyri en kostnaður-
inn er greiddur af ráðherra-
nefnd Norðurlandaráðs. Sex-
menningarnir fara til Reykja-
víkur á föstudag og til Noregs
eftir helgi.
Dagur hitti Norðmennina að
máli í VMA og létu þau vel af
sér. Kvöldið áður hafði verið árs-
hátíð VMA og þau skemmt sér
vel. Raunar gátu þau ekki borið
saman námið í VMA og það sem
þau eiga að venjast því þau komu
í þann mund sem Opnir dagar
voru að hefjast í VMA svo námið
varð að bíða fram yfir helgi. Þau
sögðust vera búin að hafa það
gott og lent í ýmsum ævintýrum,
þ. á m. bjargsig í Glerárgili.
Kennari fimmmenninganna er
Nancy Coleman en hún er lektor
og deildarstjóri í norsku við
framhaldsskólann í Hamar sem
er skammt sunnan við Osló. Hún
talar þó nokkra íslensku sem
stafar af því að hún kennir forn-
norsku og íslensku ásamt nútíma-
norsku. Hún sagðist lengi hafa
haft áhuga á að koma til íslands
og nú hafi hún séð möguleika á
að láta það rætast fyrir tilstilli
sérstaks verkefnis fyrir ungt fólk
sem Norðurlandaráð er með í
gangi. Þar er búið að stofna sjóð
sem greiðir styrki til nemenda-
skipta milli skóla á Norðurlönd-
um. Auk fararstyrks fá nemend-
urnir vasapeninga og þau gista á
heimilum nemenda við VMA svo
kostnaður er mjög viðráðanleg-
ur.
Nancy sagði að skólinn í Ham-
ar væri þriggja ára framhaldsskóli
sem skiptist í tvær brautir, við-
skiptabraut og hefðbundinn
menntaskóla. Tengslin við VMA
eru þannig til komin að Dalvík er
vinabær Hamars og þar er starf-
rækt deild úr VMA. Enda stóð til
að fara til Dalvíkur nú á þriðju-
dag og vera þar yfir nótt.
„Kannski fáum við að fara um
borð í togara," bætti hún við og
það þótti nemendum hennar tíð-
indum sæta. „f*að er spennandi
fyrir okkur sem búum langt inni í
landi,“ sagði Nancy.
Fjórir nemendanna eru af
bóknámsbrautinni en einn af við-
skiptabraut. í Noregi er nemend-
um í framhaldsskóla gert að velja
á milli nútímaíslensku og forn-
norsku og tveir fimmmenning-
anna hafa lært íslensku. Þau
sögðu að þeim fyndist athygl-
isvert að kynnast lífsháttum
íslendinga og ekki síst hversu
margt væri líkt með íslenskri og
norskri menningu. Þau höfðu les-
ið Gísla sögu Súrssonar og Njálu
og ætla að reyna að komast á
söguslóðir á Suðurlandi og á
handritasýninguna í Árnastofnun
í Reykjavík áður en þau fara
heim.
Nancy sagði að nemendurnir
ynnu úr heimsókninni á mismun-
andi hátt. Þau sem væru í
íslensku myndu hagnýta sér hana
við ritgerðarsmíð. „Á viðskipta-
brautinni er núna í gangi verkefni
um Noreg, ísland og Evrópu-
bandalagið og þar nýtist heim-
sóknin okkur. Það er margt líkt
með afstöðu Norðmanna og
íslendinga til EB, þjóðirnar hafa
sömu fyrirvara um aðild. Það
þýðir ekki að ætla sér að sækja
um aðild án þess að ræða málin
eins og raunin virðist vera í
Finnlandi og Svíþjóð,“ sagði
hún.
Það ríkti mikill áhugi meðal
nemendanna í Hamar á því að
komast til íslands og sóttu margir
um. „Sumum samkennurum mín-
um fannst það hins vegar skrýtin
hugdetta hiá okkur að vera að
þvælast til Islands,“ sagði Nancy.
Hún bætti því við að svona ferðir
væru góð tilbreyting í skólastarf-
inu. „Við erum í sambandi við
skóla í Bremen í Þýskalandi um
nemendaskipti en getum ekki
sinnt þeim sem skyldi af því það
er svo dýrt. Þetta er miklu betra
fyrirkomulag," sagði hún.
Nú eru þrír nemendur frá
VMA í Randers á Jótlandi sem
er vinabær Akureyrar og að sögn
Nancy vonast þau í Hamar til
þess að geta boðið nokkrum
nemendum skólans í heimsókn í
haust. „Við erum búin að sækja
um styrk til þess,“ sagði hún.
-ÞH
Menntamálaráðherra skipar nefnd:
Á að endurskoða lög um
grunnskóla og framhaldsskóla
Menntamálaráðherra hefur
ákveðið að skipa nefnd til að
endurskoða lög um grunnskóla
og framhaldsskóla. Nefndinni er
ætlað að skila drögum að frum-
vörpum til ráðherra 1. september
nk.
í nefndinni eiga eftirtaldir sæti:
Sigríður Anna Þórðardóttir
alþingismaður, formaður nefnd-
arinnar; Arnar Þórisson fram-
kvæmdastjóri Félagsstofnunar
stúdenta; Árni Sigfússon formað-
ur skólamálaráðs Reykjavíkur;
Björn Búi Jónsson kennari við
Menntaskólann í Reykjavík;
Björn L. Halldórsson lögfræðing-
ur; Halldóra Rafnar BA; Haukur
Helgason skólastjóri Öldutúns-
skóla í Hafnarfirði; Helgi Jónas-
son fræðslustjóri í Reykjanesi;
Ingibjörg Guðmundsdóttir
fræðslufulltrúi MFA; Ingimund-
ur Sigurpálsson bæjarstjóri í
Garðabæ; Linda Rós Mikaels-
dóttir kennari við Álftamýrar-
skóla í Reykjavík; María Gunn-
laugsdóttir aðst. skólameistari,
Flensborg í Hafnarfirði; Ólafur
Jóhannesson endurmenntunar-
stjóri Kennaraháskóla íslands;
Sigurveig Sæmundsdóttir kennari
við Hofstaðaskóla í Garðabæ;
Sólrún Jensdóttir skrifstofustjóri
í menntamálaráðuneytinu; Stefán
Baldursson framkvæmdasti. rann-
sóknasviðs Háskóla Islands;
Trausti Þorsteinsson fræðslu-
stjóri í Norðurlandi eystra; Þór-
leifur Jónsson framkvæmdastjóri
Landssambands iðnaðarmanna.
Starfsmaður nefndarinnar verð-
ur Guðríður Sigurðardóttir
skólaráðgjafi og uppeldisfræðing-
ur.