Dagur - 11.03.1992, Side 9
Miðvikudagur 11. mars 1992 - DAGUR - 9
Dagskrá fjölmiðla
Sjónvarpið
Fimmtudagur 12. mars
18.00 Stundin okkar.
Endurtekinn þáttur frá
sunnudegi.
18.30 Kobbi og klíkan (2).
(The Cobi Troupe)
Spánskur teiknimyndaflokk-
ur um ævintýri Kobba og
félaga hans í Barselóna en
Kobbi er lukkudýr ólympíu-
leikanna sem þar verða
haldnir í sumar.
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Fjölskyldulíf (21).
19.30 Bræðrabönd (5).
(Brothers by Choice.)
20.00 Fréttir og veður.
20.35 íþróttasyrpa.
21.00 Fólkið í landinu.
Margt til lista lagt.
Einar Örn Stefánsson ræðir
við Ingunni Jensdóttur leik-
og myndlistarkonu.
21.30 Evrópulöggur.
Blóraböggull.
(Eurocops - Pushed).
Breskur sakamálaþáttur.
Ölvaður maður finnst á gólfi
snyrtivörubúðar í verslunar-
miðstöð. Hann virðist hafa
stokkið í gegnum glugga-
rúðu en segir sjáifur að sér
hafi verið hrint. Jackson lög-
reglumanni er falið að upp-
lýsa málið.
22.25 Úr frændgarði.
(Norden runt).
23.00 Ellefufréttir og skák-
skýringar.
23.20 Dagskrárlok.
Sjónvarpið
Föstudagur 13. mars
18.00 Flugbangsar (9).
18.30 Hvutti (5).
18.55 Táknmílsfréttir.
19.00 Tiðarandinn.
19.25 Guð sé oss næstur (4).
(Waiting For God.)
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Kastljós.
21.10 Gettu betur (3).
Spumingakeppni framhalds-
skólanna. Að þessu sinni
keppir lið Menntaskólans á
Akureyri við lið Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra og
fer viðureignin fram á Sauð-
árkróki.
2.15 Samherjar (14).
(Jake and the Fat Man.)
23.00 Eins og gengur.
(Business as Usual.)
Bresk bíómymd frá 1987.
Aðalhlutverk: Glenda
Jackson, John Thaw og
Cathy Tyson.
00.25 Dagskrárlok.
Sjónvarpið
Laugardagur 14. mars
14.55 Enska knattspyrnan.
Bein útsending frá leik
Sheffield United og
Manchester United á
Bramall Lane í Sheffield.
16.45 íþróttaþátturinn.
Fjallað verður um íþrótta-
menn og iþróttaviðburði hér
heima og erlendis og um
klukkan 17.55 verða úrslit
dagsins birt.
18.00 Múmínálfarnir (22).
18.30 Kasper og vinir hans
(47).
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Poppkorn.
19.30 Úr ríki náttúrunnar.
Andmælasöngur.
(The Wild South - Song of
Protest.)
Fræðslumynd um fuglinn
kakakóa eða bleðilkráku í
skógum Nýja-Sjálands.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Lottó.
20.40 '92 á Stöðinni.
21.05 Fyrirmyndarfaðir (21).
(The Cosby Show.)
21.30 Listrænn glæpur.
(Inspector Alleyn - Artists
in Crime.)
Bresk sjónvarpsmynd frá
1990.
Hér er á ferð morðgáta í
anda Agöthu Christie. Fyrir-
sæta er myrt í listasmiðju og
þegar Roderick Alleyn lög-
reglufulltrúi fer á stúfana
kemur í ljós að býsna margir
höfðu ástæðu til að vilja
hana feiga.
Aðalhlutverk: Simon
Williams, Belinda Lang,
Georgia Allen og Nick
Reding.
23.15 Sálarflækjur.
(Crimes of the Heart.)
Bandarísk bíómynd frá 1986.
Þrjár systur hittast eftir
langan aðskilnað og rifja
upp gamlar minningar með
ófyrirsjáanlegum afleiðing-
um.
Aðalhlutverk: Diane Keaton,
Jessica Lange, Sissy Spacek
og Sam Shepard.
Kvikmyndaeftirlit ríkisins
telur myndina ekki hæfa
áhorfendum yngri en tólf
ára.
00.55 Útvarpsfréttir í
dagskrárlok.
Sjónvarpið
Sunnudagur 15. mars
14.10 Pósi rófulausi.
15.35 Ef að er gáð (10).
Tíundi þáttur: Klofinn
hryggur.
15.50 Kontrapunktur (7).
Spumingakeppni Norður-
landaþjóðanna um sígilda
tónlist. Að þessu sinni eig-
ast við Norðmenn og íslend-
ingar.
16.50 Rætur rytmans (3).
Lokaþáttur.
(Routes of Rhythm With
Harry Belafonte.)
17.50 Sunnudagshugvekja.
Séra Sigurður Pálsson flytur.
18.00 Stundin okkar.
18.30 39 systkini í Úganda (3).
Sharon leysir frá skjóðunni.
(39 soskende.)
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Vistaskipti (25).
19.30 Fákar (30).
(Fest im Sattel.)
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Leiðin til Avonlea (11).
(Road to Avonlea.)
21.20 Straumhvörf.
Papós.
Nýr heimildamyndaflokkur
um athafnastaði á íslandi,
sem farnir em í eyði.
Fléttað er saman staðarlýs-
ingum og leiknum atriðum,
sem tengjast sögu Papóss í
Austur-Skaftafellssýslu, en
þar var rekin verslun um
þrjátíu ára skeið frá árinu
1863.
21.50 Skyndikynni.
(A Small Dance.)
Bresk sjónvarpsmynd frá
1991.
Myndin fjallar um sextán ára
stúlku sem verður ófrísk eft-
ir skyndikynni. Hún felur
þungun sína fyrir foreldmn-
um og lætur barnið frá sér en
sú ákvörðun á eftir að valda
henni hugarangri.
Aðalhlutverk: Kate Hardie,
James Hazeldine, Linda
Bassett, Suzanne Burden,
Selina Cadell og Mark
Aiken.
22.45 Skákskýringar.
Áskell Örn Kárason greinir
frá framvindu mála á 15.
Reykjavíkurskákmótinu sem
nú stendur yfir.
22.55 Lagið mitt.
Að þessu sinni velur sér lag
Sigurbjörg Þórðardóttir
kennari.
23.05 Útvarpsfréttir og dag-
skrárlok.
Stöð 2
Fimmtudagur 12. mars
16.45 Nágrannar.
17.30 Með Afa.
Endurtekinn þáttur.
19.19 19:19.
20.10 Eiginkona Clarks.
(The Woman Who Married
Clark Gable).
í þessum þætti verður fjallað
um konuna sem kvennagull-
ið og hjartaknúsarinn Clark
giftist, og leyndarmál
hennar.
20.45 Lífið um borð.
Þeir Eggert Skúlason frétta-
aður og Þorvarður Björg-
ísson kvikmyndatökumað-
ur fóm einn túr með Ottó N.
Þorlákssyni í janúar síðast-
liðnum og kynntu sér hvern-
ig það er að vinna á togara.
21.20 Óráðnar gátur.
(Unsolved Mysteries).
Dularfull mannshvörf, óleyst
sakamál og margt fleira rek-
ur á fjömr okkar í þessum
þætti.
22.10 Feigðarflan.#
(Curiosity Kills).
Ljósmyndari nokkur kemst
að því að nágranni hans hef-
ur að öllum líkindum þann
leiða starfa að myrða fólk
gegn vænum fjárhæðum.
Ljósmyndarinn hyggst not-
færa sér þessa vitneskju en
hann vantar gögn til að færa
sönnur á máhð. Nú em góð
ráð dýr og hann ákveður að
brjótast inn hjá nágrannan-
um...
Aðalhlutverk: C. Thomas
Howell, Rae Dawn Chong og
Courtney Cox.
Stranglega bönnuð
börnum.
23.45 Línudans.
(Jo Jo Dancer, Your Life is
Calling).
Eins konar sjálfsævisaga
gamanleikarans Richards
Pryor. Það er kannski
óvenjulegt að hann bæði
leikstýri og fari með aðal-
hlutverkið sjálfur en honum
tekst mjög vel upp, sérstak-
lega þegar hann er að lýsa
fyrstu sporunum í bransan-
um. Þess má geta að Richard
Pryor á nú við erfiðan sjúk-
dóm að glíma en hann þjáist
af mænusiggi.
Aðalhlutverk: Richard Pryor,
Debbie Allen og Wings
Hauser.
Bönnuð börnum.
01.20 Dagskrárlok.
Stöð 2
Föstudagur 13. mars
16.45 Nágrannar.
17.30 Gosi.
17.50 Ævintýri Villa og
Tedda.
18.15 Ævintýri í Eikarstræti.
18.30 Bylmingur.
19.19 19:19
20.10 Kænar konur.
(Designing Women.)
20.35 Ferðast um tímann.
(Quantum Leap III.)
21.25 Svartskeggur sjóræn-
ingi.
(Blackbeard’s Ghost.)
Það er enginn annar en
Peter Ustinov sem fer á kost-
um í hlutverki draugsa eða
Svartskeggs sjóræningja.
Þegar hér er komið við sögu
eiga afkomendur hans í
mesta basli með að halda
ættaróðalinu sem illa inn-
rættir kaupsýslumenn vilja
koma höndum yfir í þeim til-
gangi að reka þar spilavíti.
Draugsi er ekki á eitt sáttur
við aðfarir kaupahéðnanna
og tekur til óspilltra mál-
anna.
Aðalhlutverk: Peter Ustinov,
Dean Jones og Suszanne
Pleshette.
23.20 Klessan.#
(The Blob.)
Þetta er endurgerð klass-
ískrar B-myndar, fyrstu
myndar Steve McQueen.
í myndinni segir frá loft-
steini sem fellur til jarðar og
ber með sér lífveru sem nær-
ist á mannakjöti. Unglingar í
smábæ komast að hinu
sanna en þeim reynist erfitt
að sannfæra yfirvöld um það
hvað sé á seyði.
Aðalhlutverk: Shawnee
Smith, Donovan Leitch,
Ricky Paull Goldin, Kevin
Dillon, Billy Beck, Candy
Clark og Joe Seneca.
Stranglega bönnuð
börnum.
00.50 Blóðsugan.#
(Nick Knight.)
Söngvarinn, góðkunni, Rick
Springfield er í aðalhlutverki
þessarar myndar sem segir
frá tveimur vampírum sem
kljást um aldagamalt leynd-
armál.
Aðalhlutverk: Rick Spring-
field, John Kapelos, Robert
Harper og Laura Johnson.
Stranglega bönnuð
börnum.
02.20 Dagskrárlok.
Stöð 2
Laugardagur 14. mars
09.00 Me8 Afa.
10.30 Kalli kanína og félagar.
10.50 Af hverju er himinninn
blár?
11.00 Dýrasögur.
11.15 Litla iestin.
Fyrri hluti skemmtilegrar
teiknimyndar um ævintýri
lítillar lestar sem heldur út í
hinn stóra heim í leit að
sögu.
12.00 Landkönnun National
Geographic.
12.50 Ópera mánaðarins.
Cosi Fan Tutti.
15.10 Þrjúbíó.
Doppa og kengúran.
16.25 Stuttmynd.
17.00 Glasabörn.
(Glass Babies.)
Annar þáttur.
18.00 Popp og kók.
18.30 Gillette sportpakkinn.
19.19 19:19.
20.00 Fyndnar fjölskyldusög-
ur.
(Americas Funniest Home
Videos.)
20.25 Maður fólksins.
(Man of the People.)
20.55 Á norðurslóðum.
(Northern Exposure.)
21.45 Á vaktinni.#
(Stakeout.)
Hér er á ferðinni þriggja
stjörnu spennumynd með
þeim Richard Dreyfuss og
Emilio Estevez i aðalhlut-
verkum. Þeir fá það sérverk-
efni sem lögreglumenn að
vakta hús konu nokkurrar.
Verkefnið fer nánast í
handaskolum þegar annar
þeirra verður yfir sig hug-
fanginn af konunni.
Aðalhlutverk: Richard
Dreyfuss, Emilio Estevez,
Aidan Quinn og Madeleine
Stowe.
Bönnuð börnum.
23.45 Fæddur fjórða júlí.#
(Bom on the 4th of July.)
Áhrifamikil Óskarsverð-
launamynd um ungan og
heilbrigðan mann sem lætur
skrá sig i herinn á tímum
Víetnam-striðsins. Hann
kemur heim, lamaður frá
brjósti og niður, og andlega
baráttan, sem hann heyr eft-
ir á, er ekki síður skelfileg,
en baráttan á blóðugum víg-
velli Víetnam.
Aðalhlutverk: Tom Cruise,
Willem Dafoe, Raymond J.
Barry, Caroline Kava, Bryan
Larkin, Frank Whaley og
Tom Berenger.
Bönnuð börnum.
02.05 Upp á líf og dauða.
(Stone Killer.)
Hörkuspennandi Charles
Bronson mynd.
Bronsmaðurinn er hér i hlut-
verki lögregluþjóns sem ætl-
ar sér að útrýma mafiunni.
Drengirnir i mafíunni eiga
fótum sinum fjör að launa
þegar Kalli B. er búinn að
reima á sig skóna.
Stranglega bönnuð
börnum.
03.40 Dagskrárlok.
Stöð 2
Sunnudagur 15. mars
09.00 Maja býfluga.
09.20 Litla hafmeyjan.
09.45 Barnagælur.
10.10 Sögur úr Andabæ.
10.35 Soffía og Virginía.
(Sophie et Virginie.)
11.00 Flakkað um fortiðina.
(Rewind: Moments in Time.)
12.00 Popp og kók.
12.30 Biáa byltingin.
(Blue Revolution.)
13.25 Mörk vikunnar.
13.55 ítalski boltinn.
Bein útsending.
15.50 NBA-körfuboltinn.
17.00 Dansahöfundarnir.
(Dancemakers.)
18.00 60 minútur.
18.50 Kalli kanína og félagar.
19.00 Fúsi fjörkálfur.
19.19 19:19.
20.00 Klassapíur.
(Golden Girls.)
20.25 Heima er best.
(Homefront.)
21.16 Michael Aspel og félag-
ar.
21.55 Uppgjörið.#
(Home Fires Buming.)
Það eru Emmy-verðlauna-
hafamir Bamard Hughes og
Sada Thompson sem fara
með hlutverk Tibbett hjón-
anna sem ekki eiga sjö dag-
ana sæla. Sonur þeina er
einn hinna týndu banda-
risku hermanna í Evrópu og
sonarsonur þeirra býr hjá
þeim vegna þess að móðir
hans fórst i slysi skömmu
fyrir seinni heimsstyrjöldina.
Þegar ung kona, ekki ein-
sömul, birtist einn daginn á
tröppunum hjá Tibbett hjón-
unum og segist vera seinni
kona sonar þeirra er Jake
Tibbett nóg boðið.
Aðalhlutverk: Bamard
Hughes, Sada Thompson og
Robert Prosky.
23.30 Brúðkaupið.
(La Cage aux Folles !H.)
Frönsk grinmynd, eins og
þær gerast bestar, um
manngrey sem þarf að gift-
ast og eignast son innan
átján mánaða svo hann verði
arfleiddur að talsverðum
auði.
AðaUúutverk: Ugo Tognazzi
og Michel Serrault.
01.00 Dagskrárlok.
Tónlist
Hádegistónleikar í Akureyrarkirkju
Björn Steinar Sólbergsson, org-
anisti Akureyrarkirkju, er mikill
akkur tónlistarlífi Akureyrarbæj-
ar. Hann er óþreytandi við það
að kynna bæjarbúum tónverk
þeirra meistara tónbókmennt-
anna, sem lagt hafa sig eftir þeirri
eðlu list að skrifa verk fyrir orgel-
ið, drottningu hljóðfæranna.
Björn Steinar er mikill organ-
isti. Hann hefur á valdi sínu stíl
og tækni, sem gerir honum fært
að gæða lífi hin ókunnuglegustu
verk og flytja þau á hrífandi hátt.
Þar nýtur hann mikillar
menntunar sinnar og ekki síður
þeirrar reynslu, sem hann heyjar
sér ár af ári í starfi sínu. Þá spillir
ekki, nema síður sé, að í Akur-
eyrarkirkju hefur hann undir
höndum eitt besta orgel, sem til
er hér á landi. Hann kann líka
sannarlega að fara með það
hljóðfæri, eins og fjöldi dæma
sýnir.
Laugardaginn 7. mars efndi
Björn Steinar til hádegistónleika.
Þetta hefur hann gert iðulega
fyrr, en tónleikarnir að þessu
sinni voru í tengslum við kirkju-
viku þá, sem staðið hefur dagana
1. til 8. mars í Akureyrarkirkju.
Auk hans var við athöfnina, sr.
Þórhallur Höskuldsson, sóknar-
prestur Akureyrarprestakalls, og
flutti ritningarorð á milli þeirra
verka, sem Björn Steinar lék.
Fyrsta verkið, sem Björn
Steinar Sólbergsson lék á hádeg-
istónleikum sínum að þessu sinni
var Prélude et fugue sur le nom
d’Alain, sem samin var til
minningar um franska tónskáidið
Jehan Alain. Þetta verk er ljúft
og fagurt og fallega uppbyggt. f
prelúdíunni leikur tónskáldið
með tvö höfuðstef, sem hann
rekur fagurlega í verkinu, vefur
þau saman og skreytir þau með
litlum stefjahrynum. Fúgan bygg-
ir á fallegu og mögnuðu stefi.
Hún hefst ljúflega, en rís síðan
stig af stigi upp í glæsilegar hæðir
djarflegra hljóma og verulegs
styrks. Verkinu lýkur á stuttri til-
vitnun í verkið Litanies eftir
Alain, en það er frægasta verk
þess miklu of skammlífa
tónskálds.
Annað verkið, sem Björn
Steinar lék, er eftir Jehan Alain.
Það var Choral dorien. Þetta er
dulúðugt verk og hóglátt í
byrjun. Organistinn jók
skemmtilega á hin dulúðugu áhrif
með afar fínlegri notkun
„svellsins“ í upphafshluta
verksins. Þegar á líður, rís verkið
rólega og yfirvegað, þar til því
lýkur á skemmtilegri „kadensu“,
sem undirstrikar enn þá
„mystík", sem einkennir þetta
magnaða verk.
Lokaverk tónleika Björns
Steinars Sólbergssonar var verkið
Litanies eftir Jehan Alain. Þetta
verk er þróttmikið og fjörlegt.
Það byggir í höfuðdráttum á
skemmtilegu stefi, sem þróað er
fram í fjölbreyttri og hugmynda-
ríkri úrvinnslu en hún er undir-
strikuð og gerð áhrifameiri með
markvissum styrkleikabreyting-
um og vandaðri registreringu.
Björn Steinar Sólbergsson lék
alla efnisskrá sína af miklu öryggi
og næmni. Registreringar voru
vandlega úthugsaðar og notkun
getu hljóðfærisins hófleg og mið-
uð við áhrifamikinn og góðan
flutning en ekki yfirborðs glæsi-
leika mikils styrks eða hégóm-
legra stílbragða.
Tónlistarunnendur ættu ekki
að láta hádegistónleika Björns
Steinars fram hjá sér fara hafi
þeir tök á að sækja þá. Þeir eru
upplyfting frá amstri dagsins og
balsam sálinni.
Haukur Ágústsson.
Eg vil þakka öllum þeim sem glöddu mig
á áttræðisafmæli mínu með blómum,
gjöfum og hlýjum kveðjum.
Guð blessi ykkur öll.
MARÍA JÚLÍUSDÓTTIR,
Ránargötu 20, Akureyri.
Faðir minn, tengdafaðir og afi okkar,
HÖSKULDUR STEFÁNSSON,
Víðilundi 20, Akureyri,
lést á Hjúkrunarheimilinu Hlíð, sunnudaginn 8. mars.
Sigrún Höskuldsdóttir, Símon Steingrímsson,
Pálmi Símonarson,
Einar Símonarson.
Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar,
ÁSGEIR JÓNASSON,
til heimilis að Steinahlíð 5 i, Akureyri,
lést sunnudaginn 8. mars sl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd vandamanna.
Halla Árnadóttir,
Silley Ásgeirsdóttír,
Fannar Ásgeirsson.
Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur samúð og
stuðning við andlát
ÞORSTEINS PÁLMASONAR,
sem lést þann 3. mars síðastliðinn.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey, að ósk hins látna.
Guðfinna Óskarsdóttir
og fjölskylda.
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, systur, ömmu og langömmu,
KRISTÍNAR JÓNASDÓTTUR.
Guð blessi ykkur öll.
Jóna G. Steinmarsdóttir, Gunnar Benediktsson,
Jóhanna I. Steinmarsdóttir, Helgi Á. Alfreðsson,
María Steinmarsdóttir, Rögnvaldur B. Ólafsson,
Þorsteinn Jónasson,
barnabörn og barnabarnabörn.