Dagur - 21.03.1992, Blaðsíða 2

Dagur - 21.03.1992, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 21. mars 1992 Fréttir Mj ólkurframleið slan: Niðurgreiðslur færist beint til bænda - öll sjóðagjöld verði gerð að einu gjaldi Á meðal hugmynda Sjömanna- nefndar um málefni mjólkur- framleiðslunnar er að niður- greiðslur færist beint til bænda eftir 1. janúar 1993. Greiðsl- urnar verði í samræmi við framleiðslurétt en taki ekki mið af endanlegri framleiðslu hvers býlis og gerir nefndin ráð fyrir að hlutfall niðurgreiðslna verði það sama og nú er. Þá gerir hún ráð fyrir að ríkið kaupi upp þann framleiðslu- rétt, sem nú er virkur umfram innanlandsneyslu og að hand- höfum framleiðsluréttar verði heimilt að selja rétt sinn og verði engar hömlur lagðar á þá sölu. Sjömannanefnd gerir ráð fyrir að hlutfall niðurgreiðslna verði það sama og nú er nema að veru- leg breyting verði á stuðningi við landbúnaðarframleiðslu á alþjóða- vettvangi og niðurgreiðslur hér á landi verði að breytast í samræmi við alþjóðasamninga. Gert er ráð fyrir að kaup ríkissjóðs á rétti til mjólkurframleiðslu verði bundin því að viðkomandi bændur selji allan fullvirðisrétt sinn. Nefndin gerir ráð fyrir að kaupverð verði 100 krónur fyrir lítrann á yfir- standandi ári en lækki síðan um 20% árlega. Sjömannanefnd leggur einnig til að stofnlánasjóðsgjald verði lagt niður í áföngum fram til árs- ins 1997 en vextir af útlánum Stofnlánadeildar landbúnaðarins hækkaðir og miðaðir við ákvæði lánasamninga og þarfir stofnun- arinnar án þess að styrkir eða innheimta sérstakra gjalda komi til. Einnig er lagt til að öll sjóða- gjöld verði gerð að einu gjaldi, sem síðan verði skipt á milli þeirra stofnana og verkefna er gjaldanna er aflað til og að tekið verði tillit til þess gjalds í fram- leiðslugrundvellinum. í hugmyndum Sjömannanefnd- ar er einnig gert ráð fyrir að sam- tök afurðastöðvanna leggi sjálf á þau gjöld, sem þurfi til þess að standa undir rekstri þeirra og innheimti þau eftir reglum sem þær setja hverju sinni. Þá leggur | Sjömannanefnd til að Bjargráða- sjóður verði lagður niður og tryggingafélög taki við því hlut- verki sem hann gegnir nú. ÞI Húsavík: Landið er framtíðin - ráðstefna Húsgulls í dag Húsgull á Húsavík, samtök um gróðurvernd og uppgræðslu, gengst fyrir ráðstefnu um vernd- un og endurheimt landkosta á Hótel Húsavík í dag. Ráð- stefnan er haldin undir yfir- skriftinni - Landið er framtíðin - Hún er öllum opin og vona forsvarsmenn Húsgulls að bændur, landeigendur, sveit- arstjórnarmenn og áhugamenn um landkosti og landgræðslu fjölmenni. Einnig er vonast til að fólk af Eyjafjarðarsvæðinu og víðar að sæki ráðstefnuna. Dagskrá ráðstefnunnar er allr- ar athygli verð en hún hefst kl. 9.30 er Einar Njálsson bæjar- stjóri setur hana. Fjöldi ráða- manna og sérfræðinga mun flytja ávörp eða fyrirlestra, eða alls 19 manns. Forseti íslands, frú Vig- dís Finnbogadóttir, mun ávarpa ráðstefnuna. Ráðherrarnir Eiður Guðnason og Halldór Blöndal eru meðal fyrirlesara, einnig Björn Sigurbjörnsson, FAO/ IAEA, Sveinn Runólfsson, land- græðslustjóri, Haukur Halldórs- son, Stéttarsambandi bænda, Ómar Ragnarsson, fréttamaður, Andrés Arnalds, Landgræðslu Staða hafnarvarðar á Húsavík: 11 umsóknir bárust Á fimmtudag rann út umsókn- arfrestur um stöðu hafnarvarð- ar á Húsavík. Bæjarstjóra bár- ust 11 umsóknir um stöðuna. Umsóknirnar verða afgreiddar á fundi Hafnarstjórnar í næstu viku. „Það er gott að eiga heima á Húsavík,“ sagði bæjarstjóri, aðspurður hvort fjöldi umsæk- enda kæmi honum á óvart. Hafnarverðir á Húsavík eru tveir og var önnur staðan auglýst. IM ríkisins, Gunnar Einarsson, bóndi á Daðastöðum, Egill Jónsson, form. landbúnaðar- nefndar Alþingis, Ágúst Guð- mundsson, Landmælingum ísl.. Ólafur Arnalds, RALA, Ingvi Þorsteinsson, RALA, Ása Ara- dóttir, Skógrækt ríkisins, Níels Árni Lund, landbúnaðarráðu- neyti, Auður Sveinsdóttir, Land- vernd og að lokum mun Bjarni Guðmundsson, Bændaskólanum á Hvanneyri líta yfir það sem fram hefur komið og Sveinbjörn Dagfinnsson frá landbúnaðar- ráðuneytinu slíta ráðstefnunni. Sigurgeir Þorgeirsson, aðstoðar- maður landbúnaðarráðherra og Einar Njálsson, bæjarstjóri verða ráðstefnustjórar. Húsgull mun afhenda Landgræðslunni and- virði raðsáningarvéla, sem safnað hefur verið. Mjólkursamlag KÞ býður ráð- stefnugestum til hádegisverðar en að ráðstefnu lokinni verða bornar fram veitingar í boði land- búnaðarráðherra. Markmið ráðstefnunnar er að kynna nýjar hugmyndir um verndun og endurheimt land- kosta. IM 4f Breytingum á Árbaki, nýjasta togara Útgerðarfélags Akureyringa, sem staðið hafa hjá Slippstöðinni á Akureyri er nú lokið. Togarinn fer í veiðarfæraprófanir um helgina og í næstu viku fer hann í sína fyrstu veiðiferð fyrir ÚA. Mynd: Golli Hluthafafundur í Laxá nk. þriðjudag: Vona að lausn sé í sjónmáli - segir Halldór Jónsson, bæjarstjóri Næstkomandi þriöjudag verð- ur haldinn hluthafafundur í fóðurverksmiöjunni Laxá, sem reist var á rústum Istess hf., en Laxá hefur gert tilboð í eignir þrotabús ístess. Landsbankinn hefur ekki viijað samþykkja tilboðið nema að uppfylltum ákveðnum skilyrðum og mun staðan væntanlega skýrast á hluthafafundinum. Stærstu hlutahafar í fyrirtæk- inu eru Akureyrarbær, Kaupfélag Eyfirðinga og Hraðfrystistöð Þórshafnar og er búist við að breytingar verði á eignaraðild og jafnvel að nýir hluthafar komi inn. Landsbankinn mun hafa gert kröfu um að hlutafé í Laxá hf. verði aukið, fyrr geti hann ekki fallist á tilboð fyrirtækisins í eign- ir þrotabús ístess. Halldór Jónsson, bæjarstjóri Akureyrar, sagði í samtali við Dag í gær að boðað væri til hlut- hafafundarins til að ræða áform um kaup Laxár á eignum þrota- búsins og jafnframt yrðu sam- þykktir félagsins endurskoðaðar. Hann sagði að Landsbankinn hefði ekki talið sig fá nægar trygg- ingar og viðræður hefðu staðið lengi yfir um aukið hlutafé. íslensk Getspá: Potturiim er þrefaldur Lottópotturinn verður þrefald- ur nk. laugardagskvöld og því er til mikils að vinna ef heppn- in er með. Þetta er í annað sinn sem svo er á þessu ári. „Er potturinn var þrefaldur í janúar fékk hinn heppni um 16 milljónir í sinn hlut. Lukkan lék við stúlku frá Siglufirði í janúar og nú er að sjá hvort heilladísirn- ar verða með einhverjum á laug- ardaginn. Að okkar áliti hjá íslenskri Getspá verður pottur- inn nú ekki minni. Góð hreyfing er á öllum sölustöðum, en þeir eru 184,“ sagði Hallveig Andrés- dóttir, fulltrúi. ój Utgerðarfélag Húsavíkur: Bæjarábyrgð á 20 milljónum til kvótakaupa Bæjarráð Húsavíkur samþykkti að veita Útgerðarfélagi Húsa- víkur ábyrgð á 20 milljón króna láni, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, á fundi sínum sl. fimmtudag. Útgerðarfélagið hyggst nota lánið til kaupa á varanlegum veiðiheimildum. Það á nú þegar 65 þorskígildistonn og reiknað er með að á annað hundrað tonn til viðbótar fáist fyrir lánsféð. Fyrir- tækið hefur ekki farið út í útgerð, en hugsanlegt er að það hefji útgerð eða sameinist útgerðar- félagi, að sögn Einars Njálsson- ar, bæjarstjóra. IM Endurinnrétting 1. hæðar Hafnarstrætis 107: Gengið til samninga við Ösp hf. 1 gær var skrifaö undir samn- ing ríkisins við Ösp hf. á Akur- eyri um endurinnréttingu á fyrstu hæð Hafnarstrætis 107 á Akureyri. Fimm tilboð bárust í verkið og var tilboðið frá Ösp hf. lægst. Ösp hf. bauð 11,2 milljónir króna í þetta verk, 83,62% af kostnaðaráætlun, en endanleg til- boðsupphæð er um 11,5 milljónir króna. Um er að ræða húsnæði útibús Útvegsbanka íslands, en þar er ætlunin að liafa í framtíðinni afgreiðslu bæjarfógetaembættis- ins á Akureyri. óþh Halldór vonaðist til að lausn málsins væri í sjónmáli en sagðist ekki geta tjáð sig frekar fyrr en eftir fundinn. SS Akureyri: Tllboð í Hótel Stefaníu Frestur til að skila inn kaup- tilboðum í Hótel Stefaníu á Akureyri rann út í gær. Eitt formlegt tilboð og fleiri óformleg höfðu borist í hótelið þegar Dagur spurð- ist fyrir um það í gær. Snorri Tómasson hjá Ferða- málasjóði vildi í gær ekki tjá sig um þau tilboð sem þegar hefðu borist. Hann sagði að strax og tilboðsfrestur rynni út yrði farið í það að ræða við til- boðsgjafa. Stefnt væri að því að ganga frá sölu hótelsins sém allra fyrst, enda væri það bæði hagur eigendanna. Ferða- málasjóðs og Byggðasjóðs, og væntanlegs nýs eiganda að koma hótelinu í rekstur sem allra fyrst. óþh Siglufjörður: Hmrik Hringsson ráðinn skipstjóri á Vöku SI-67 Hinrik Hringsson hefur ver- ið ráðinn skipstjóri á Sunnu SI-67, hið nýja skip Þormóðs ramma á Siglufírði. Hinrik hefur sl. tíu ár verið fyrsti stýrimaður og afíeysinga- skipstjóri á Hákoni ÞH. Fyrsti stýrimaöur á Sunnu verður Vaidimar Aðalsteins- son frá Eskifirði, en hann var skipstjóri á þessu sama skipi í þann skamma tíma sem þaö var í eigu Eskfirðings hf. Yfir- vclstjóri vcrður sá sami og á Vöku SU. Gert er ráö fyrir að Sunna fari í sína fyrstu vciðifcrð frá Siglufirði um næstu mánaða- mót og fer hún til að byrja meðá úthafsrækjuveiðar. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.