Dagur - 21.03.1992, Page 3

Dagur - 21.03.1992, Page 3
Laugardagur 21. mars 1992 - DAGUR - 3 Fréttir Alþingi: íbúðamarkaðurinn á landsbyggðinni verði efldur - markaðsverð íbúðarhúsnæðis á landsbyggðinni langt undir stofnkostnaði Fjórir landsbyggðarþingmenn úr jafnmörgum flokkum hafa lagt fram tillögu til þingsálykt- unar um að skipuð verði nefnd „er leiti leiða til þess að efla almcnnan íbúðamarkað á landsbyggðinni. Nefndinni verði sérstaklega gert að skoða hver áhrif lög og reglur um félagslegt íbúðarhúsnæði hafi á stöðu íbúðamarkaðarins.“ í greinargerð er minnt á þá staðreynd að markaðsverð íbúð- arhúsnæðis á landsbyggðinni sé langt undir stofnkostnaði. Nú blasi því við landsbyggðarfólki að afrakstur lífsstarfs þeirra verði að engu. Sums staðar sé líka mjög erfitt að selja húsnæði. Þetta hafi valdið því að íbúðabyggingar á almennumn fasteignamarkaði á landsbyggðinni hafi að heita má lagst af. Á sama tíma hefur hlutur félagslegs húsnæðis aukist og þar sem fólk hefur kost á að velja kýs það frekar félagslegar íbúðir af þeirri einföldu ástæðu að á sveitar- félögunum hvílir sú kvöð að leysa til sín slíkar íbúðir á verðbættu stofnverði. „Fólk, sem á þann kost að eignast þannig húsnæði, býr því við öryggi sem eigendur almenns íbúðarhúsnæðis geta ekki einu sinni látið sig dreyma um,“ segir í greinargerðinni. Tekið er dæmi frá Vestfjörðum þar sem verulegur munur er á fermetraverði í félagslega íbúða- kerfinu og á almennum markaði. 130 fermetra íbúð í félagslega kerfinu kostaði árið 1990 8,2 milljónir króna en söluverð jafn- stórrar íbúðar á almennum mark- aði var 4,8 milljónir króna. Þarna munar 3,4 milljónum króna. „Pessar upplýsingar sýna okkur að skekkja á íbúðamarkaðnum er, sums staðar að minnsta kosti, orðin mjög alvarleg. Hún endur- speglar það almenna verðhrun sem er staðreynd á landsbyggð- inni og sýnir svart á hvítu hið alvarlega ástand sem nú ríkir og er fullkomlega óviðunandi," seg- ir í greinargerð með tillögunni sem flutt er af Einar K. Guðfinns- syni, Halldóri Ásgrímssyni, Jónu Valgerði Kristjánsdóttur og Mar- gréti Frímannsdóttur. -ÞH Fyrirtæki á Skagaströnd: Fyrirlestur um starfsþreytu Starfsfólk Hólaness hf. og Skagstrendings hf. á Skaga- strönd vann ekkert eftir klukk- an 14.00 á fímmtudag. Tilefnið var það að fyrirtækin tóku sig saman og fengu Ingólf Sveins- son, geðlækni, til að halda fyrirlestur í fyrirtækjunum um starfsþreytu og streitu. Að sögn Steinunnar Gríms- dóttur, hjá Skagstrendingi, var engin sérstök ástæða fyrir því að fyrirlesari í þessum efnum var ' fenginn. Stjórnunarfélag íslands hefur að undanförnu boðið upp á fyrirlestra í þessum efnum og fleirum og segir Steinunn að þeim hafi litist það vel á kynn- ingu frá þeim að ákveðið hafi verið að slá til og fá Ingólf norður. „Við sjáum svo bara til hvort starfsfólkið verður ekki hressara en vanalega í næstu viku eftir að hafa setið þennan fyrirlestur," sagði Steinunn áður en hún fór á fyrirlesturinn í gær. SBG Skandia ísland á Norðurlandi! Markaðsfulltrúi Skandia íslands hefur nú tekið til starfa á Akureyri og annast hann þjónustu við viðskiptavini á Norðurlandi. Með tilkomu Skandia íslands hafa opn- ast nýir möguleikar á íslenskum trygg- ingamarkaði. Félagið setur lægri iðgjöld á oddinn og býður allar helstu trygg- ingar á hagstæðu verði. Hafðu samband og ráðfærðu þig við markaðsfulltrúa okkar. Opið frá kl. 9 - 17 alla virka daga. Athugið! Opið er til kl. 22 fram að mán- aðamótum. Síminn hjá Skandia íslandi, Ráðhústorgi 7, er 96 - 12222. Skandia r Island '■ Lifandi samkeppni ÆtBSÆSfk _ lægri lögjöldl W Aldrei áður betra verð - Aldrei áður meiri sala Ath. í fyrsta sinn GRAMS-MARKAÐUR á gömlum bókum Bækur frá kr. 10,- Stóri Bókamarkaðurinn w í húsi stórmakaðs KEA Hrísalundi Hú Opið daglega frá kl. 9-18, föstudag frá kl. 9-19, laugardag frá kl. 10-18, sunnudaga frá kl. 13-18. Frá Kjörmarkaði KEA Hrísalundi Kynning: laugardag frá kl. 14-1 8 á ostabökum Tilboð: Hvítlaukslegin lambalæri: kr. 823,- kg HVÍTA HÚSIÐ / SÍA

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.