Dagur - 21.03.1992, Side 5

Dagur - 21.03.1992, Side 5
Laugardagur 21. mars 1992 - DAGUR - 5 Efst í huga Stefán Þór Sæmundsson Enginn veit hver er næstur Nístandi ótti nagar flekklausa bæjarbúa. Hvert brak, hvert fótatak framkallar skjálfta, hvert orö, hvert augnaráð fær hrollinn til aö hríslast niður bakiö. Enginn veit hver er næstur. Fólk er hætt að þora aö svara í símann og lokar sig inni. Þaö er ekki lengur óhætt aö vera úti meðal fólks því Júdasarpeningar eru komnir í umferð og Gróa hin grimma gengur laus. Um daginn hringdi síminn, óvenju hátt og hvellt. Hringingin var beinlínis ásak- andi og fól í sér hótanir um innilokun og sálfræðilegar pyntingar. Lengi vel þráaö- ist ég við að svara því það sem ég óttað- ist að heyra var einmitt þetta: „Það er uppvíst að þér þekkið Bárð á Búrfelli og Mörð hinn hraðlygna. Vitni hafa séð yður á tali við Goðmund á Glæsivöllum. Þar með eruð þér tengdir sakamáli einu ógurlegu sem vér erum að fást við að leysa. Yður er hér með gert að mæta til yfirheyrslu vegna þessa máls og eigi þýðir undan þeirri skyldu að víkja. Vér höfum fyrir því vissu að þér eruð á kafi í þessum óhugnaði. Oss hef- ur tekist að útvega heimildir til handtöku og húsleitar. Komið með góðu ellegar illu.“ Svitinn fossaði niður andlitið og með titrandi höndum tók ég uþþ tólið. „Já,“ hvíslaði ég rámur og þvoglumæltur, nær meðvitundarlaus af skelfingu. „Gott kvöld,“ sagði ópersónuleg rödd. „Ég er . . .“ Hjálpi mér hamingjan! Þetta hlutu að vera ÞEIR. Ég var strax kominn í bull- andi vörn, enda vissi ég ekki upp á mig neina sök og hafði ekki umgengist vafa- sama menn að undanförnu. Reyndar hafði mér gengið illa að hætta að reykja og það hafði spurst út en það gat ekki verið saknæmt að draga að sér tóbaks- reyk frá R.J. Reynolds og félögum. „Þið hljótið að fara mannavillt," greip ég fram í fyrir manninum. „Ég hef ekki komið nálægt þessu, ég er ekki í þess- um félagsskap, ég hef fjarvistarsönnun, þið megið nota lygamæli,“ skrækti ég óðamála. Þögn. Síðan kom röddin aftur og lýsti að þessu sinni undrun og vorkunn. „Hmm, það stendur kannski illa á. Ég ætlaði að bjóða þér að kaupa íslend- ingasögurnar og Sturlungu á afar hag- stæðu verði. Má ég kannski hringja seinna og kynna þér tilboðið?" Feginsandvarp braust fram á varir mínar og ég keypti allt sem maðurinn bauð til sölu. Hvílíkur léttir! Ég hefði get- að faðmað hann að mér, þennan annars óþolandi sölumannsrudda sem hringir í okkur hjónin til skiptis kvöld eftir kvöld. Þarna slapp ég fyrir horn en ert þú óhultur, lesandi góður? Guð hjálpi þeim sem tengjast listalífi bæjarins. Ekkert er grunsamlegra um þessar mundir en fólk sem leikur á sviði eða spilar á hljóðfæri. Og þeir sem umgangast þetta fólk eru heldur ekki óhultir. Hið alsjáandi auga ÞEIRRA lætur ekkert fram hjá sér fara. Góðar stundir. Fjölmiðlar Þröstur Haraldsson ■ r tímariti Vinir mínir fara fjöld, sagði eitthvert góðskáidiö og þannig má eiginlega segja að mér líði um þessar mundir. Ekki var óg fyrr búinn að skrifa minningargrein um minn gamla vinnustað, Þjóö- viijann, þegar annar góöur vinur, einnig kenndur viö þjóðina, fór að sýna merki um alvarlegan heilsubrest. Og nú er hann aliur. Fréttatímaritiö Þjóðlff var stofnað haustiö 1985 og.fyrsta tölublaðið kom út á Þorláks- messu. Ég var meöal stofnenda og átti sæti í fyrstu stjórn Félagsútgáfunnar hf. sem gaf blað- iö út framan af ævi þess, Þetta var á mestu glanstímum glanstímaritanna. Frjálst framtak hafði gefið út Mannlíf meö meiri árangri en þekkst haföí í íslenskri tímaritaútgáfu og í röðum féiagshyggjufólks kom upp sú hugmynd hvort ekki væri rétt að notfæra sér það lag sem greini- lega væri á þessum markaði. Það hlyti að vera hægt að selja vinstri mönnum féiagshyggjurit í glansbúningi, eins konar vinstra Mannlíf. Mér fannst þetta ágæt hugmynd, en eftir á að hyggja má segja að hún hafi aldrei komist al- mennilega í framkvæmd. Eða þá að hugmyndir aöstandendanna hafi aldrei verið nógu skýrar, jafnvel sundurleitar. Raunar kom strax á fyrsta árinu upp ágreiningur um bæöi markmiö og leiðir og fyrsti formaðurinn var genginn úr stjórn- inni áður en kom að fyrsta aðalfundi. Fyrsta blaðiö leið fyrir þennan ágreining þvl þaö var eiginlega ekki þaö læsilega og alþýö- lega tfmarit sem sum okkar sáu fyrir sér heldur fræðirit í glansbúningi. Ekki bætti úr skák að þaö kom út daginn fyrir jól og dreifingin þess vegna í skötulfki. Það var mikið tap á þessu fyrsta biaði. Viðbrögð okkar voru þau að létta biaðiö og færa þaö nær Mannlífi, of nálægt sögöu margir. Tap- ið hélt áfram þótt þaö væri heldur minna en af fyrsta blaðinu. Þannig gekk það allt fyrsta árið, blaðið var eiginlega á tilraunastigi ailt það ár og fann ekki taktinn sinn fyrr en eftir ein tvö ár eða svo. Á þessum upphafsárum kom útgáfan sér upp skuidahala sem mér skilst að aldrei hafi tekist að sneiöa aftan af fyrirtækinu. Þjóðlíf komst í það form sem fólk kannast við með tilkomu Óskars Guömundssonar ritstjóra. Hann var og er mikill aðdáandi þýska vikuritsins og fór það ekki milli maia hver var fyrirmynd blaösins, amk. útlitslega. En þótt útiitiö skipti miklu máli er þaö þó innihaldið sem skliur á milii feigs og ófeigs á blaðamarkaði. Óskar kom blaöinu á góöan rek- spöl. Þjóölíf stóö, amk. framan af ferli hans, undir þeim væntingum sem ég held aö flestir hafi gert sér í upphafi um biaðiö. Þar fór fram lífleg umræða um stjórnmálin og menninguna, að ógleymdum efnahagsmálunum. Blaöiö hélt þessum dampi fram yfír kosningarnar vorið 1990 en eftir þaö fór því hnignandi. Ég held aö fyrir hnígnun blaösins hafi verið tvær meginástæður, í fyrsta lagi var þaö fjár- hagurinn sem alla tíð var erfiður. Þótt blaöiö rok- seldist um nokkuö langt skeið náöu útgefendur ekki að skapa blaöinu þann stööugieika sem hefði oröið því til Itfs. Þegar ritstjóri þarf að horfa í hverja krónu viö efnisöflun er ekki von á góðu og þau voru því miður örlög allra þeirra sem ritstýrðu blaðinu. Hin ástæðan var pólitísk. Þjóðlíf átti sór rætur á vinstrikantinum og f upphafi kom þar nálægt fólk úr öllum skúmaskotum þess kants. Smám saman þrengdist þessi hópur. Blaðið fann sór ákveðinn stað til að standa á og hann var nánar tiltekiö mitt á milli Ólafs Ragnars Grímssonar og Jóns Baldvins Hannibalssonar. Meðan vinskap- ur þeirra var góöur lék allt f lyndi. Þjóðlff valdi ar A-flokkanna, iýsti beinlínis eftir henni á eftir- minnilegum forsíðum. Þessi tími var mesta blómaskeið Þjóðlífs. Samelningardraumurinn dó f kosningunum 1990 og þar með hófust þeir timburmenn sem drógu blaðið loks til dauöa. Óskar og féiagar megnuðu ekki að finna sér nýjan takt og ekki urðu vandræðin í innheimtumálunum sem nú eru efst á baugi til aö bæta úr skák. Auðvitaö á þaö iíka sinn þátt í þessari þróun að á íslenskum tímaritamarkaði hefur ríkt heldur klént ástand upp á síðkastiö. Það versta er hins vegar að nú munu áreið- anlega líöa mörg ár þangað til við fáum nýtt tímarit á vinstrikantinum. A meðan verðum við að láta okkur nægja Mannlífshasarinn. Enskunám í Englandi Við bjóðum enskunám við einn virtasta málaskóla Englands. Skólinn sér þér fyrir fæði og húsnæði hjá enskri fjöl- skyldu. Um er að ræða: Alhliða ensku -18 ára og eldri, 4ra til 10 vikna annir. Unglingaskóla, júlí og ágúst - 13-17 ára, 4ra vikna annir. Viðskiptaenska - 2ja til 8 vikna annir. Allar nánari upplýsingar gefa: Júlíus Snorrason og Linda Ragnarsdóttir í síma 96- 23509 og 21173, Bæjarsíðu 3, 603 Akureyri. Styrkir til náms í Hollandi og á Ítalíu. 1. Hollensk stjórnvöld munu væntanlega bjóða fram styrk handa íslendingi til háskólanáms í Hollandi skólaárið 1992-93. Styrkurinn mun einkum ætlaður stúdent sem kominn er nokk- uð áleiðis í háskólanámi eða kandídat til framhaldsnáms. Nám við listaháskóla eða tónlistarháskóla er styrkhæft til jafns við almennt háskólanám. Styrkfjárhæð um 1.130 ayllini á mánuði í 10 mánuði. 2. ftölsk stjórnvöld bjóða fram styrki handa (slendingum til náms á Ítalíu á háskólaárinu 1992-93. Styrkirnir eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eða rannsókna við háskóla að loknu háskólaprófi eða til náms við lista- háskóla. Styrkfjárhæðin nemur 900.000 lírum á mánuði. Umsóknum um ofangreinda styrki, ásamt stað- festum afritum prófskírteina og meðmælum, skal skilað til menntamálaráðuneytisins, Sölvhóls- götu 4, 150 Reykjavík, fyrir 21. apríl nk. á sér- stökum eyðublöðum sem þar fást. Menntamálaráðuneytið, 19. mars 1992. HEILSUGÆSLUSTÖÐIN A AKUREYRI Sjálfsstyrkingar- námskeið fyrir konur haldið í samvinnu jafnréttisfulltrúa Akureyr- arbæjar og fjölskylduráðgjafa Heilsugæslu- stöðvarinnar á Akureyri. Á námskeiðinu fá þátttakendur annars vegar fræðslu um ýmsa þætti sem varða samskipti, þarfir, heilsu, sögu, hlutverk og stöðu kvenna; hins vegar verður unnið í hópum og að einstaklingsverkefnum, sem miða að því að bæta líðan og samskipti og auka öryggi og hæfni í einkalífi og starfi. Leiðbeinendur eru Karólína Stefánsdóttir og Val- gerður H. Bjarnadóttir. Námskeiðið hefst laugardaginn 2. maí og stendur í 4 vikur, 2-4 klst. í senn, alls 18 tímar. Námskeiðsgjald er kr. 4.500.- Umsóknarfrestur er til 2. apríl. Umsóknum skal skilað til Jafnréttisfulltrúa, Geisla- götu 9, á sérstökum eyðublöðum sem fást á Bæjar- skrifstofunum og Heilsugæslustöðinni. Upplýsingar veita fjölskylduráðgjafi í síma 25831, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 10.00-11.00 og jafn- réttisfulltrúi í síma 21000 mánudaga og fimmtudaga kl. 12.30-13.30. Því miður verður að takmarka þátttakendafjölda við 16, og bent er á að konur búsettar á Akureyri og nágrenni hafa forgang. Gert er ráð fyrir að annað sams konar námskeið verði haldið á hausti kom- anda. Jafnréttisfulltrúi Akureyrar. Fjölskylduráðgjafi Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.