Dagur - 21.03.1992, Blaðsíða 6

Dagur - 21.03.1992, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Laugardagur 21. mars 1992 Börnin okkar Kristín Linda Jónsdóftir Sjáðu hvað ég get! - um gildi hreyfiþroska Mannshugurinn er stórkostlegur. Við hönnum, búum til og tökum í notkun ný og ný tæki og nýja og nýja tækni. Tækin og tæknin auðvelda okkur sífellt fleiri störf og verkefni, Iétta á líkamlegu og í sumum tilfellum andlegu álagi. Um leið og hjálpartækjunum okkar fjölgar gleymum við gildi eigin hæfni. Það er ekki lengur nauðsynlegt að kunna margföldun- artöfluna, aðeins að eiga reiknivél, að geta gengið eða hlaup- ið lengri vegalengdir, aðeins að eiga bfl. Börnin okkar þurfa ekki lengur að kunna að leika sér aðeins að eiga tölvuspil og myndbandstæki. Anton Bjarnason, lektor við Kennaraháskóla íslands, hef- ur hvatt sér hljóðs og vakið athygli á því hvaða áhrif lífs- mynstur okkar í dag hefur á líkamlegt atgervi barnanna okkar. Með fyrirlestrum og viðtölum hefur hann vakið fólk til umhugsunar um hve mikilvægt það sé að börn fái tækifæri til að þjálfa eigin hreyfigetu og líkamsstyrk. Fyrir nokkru hélt Anton fyrirlestur hér á Akureyri, greinin er byggð á fyrirlestrinum og ýmsum bæklingum Antons um þessi málefni. Strax nýfædd byrja börnin okkar að njóta þeirra hjálpartækja sem til eru eða ættum við heldur að segja gjalda tilvistar þeirra? Börn á fyrsta ári þurfa á öllum sínum vökutíma að halda til að feta skrefin fram á við á þroska- brautinni. Pau þurfa að fá að liggja á maganum, læra að halda höfði, spyrna sér áfram, velta sér á bakið og byrja að skríða. Fá tækifæri til að skríða um gólfin, læra að reisa sig upp við borð og stóla, ganga með, sleppa sér og æfa fyrstu skrefin. En hver er raunin? Fær ungbarnið okkar að hreyfa sig? Eða, dvelur ungbarnið okkar í heftandi tækjum stóran hluta af vökutíma sínum? Við klæðum litla krílið okkar, bindum það niður í ungbarnabílstól, förum í búðina og skellum stólnum í inn- kaupakörfuna. Á heimleiðinni komum við við hjá kunningjum, höldum á stólnum inn og út aftur og enn situr barnið í stólnum. Þegar heim kemur hefur barnið hugsanlega setið í stólnum í 2-3 klukkustundir. Auk þessarar setu í ungbarnabílstólnum situr barn- ið í stól við máltíðir og er hugsan- lega líka tímunum saman í göngugrind, leikgrind eða hopp- rólu. Líkami litla barnsins var ekki skapaður með þessi hjálpar- tæki í huga. Sjúkraþjálfarar telja að börn innan sex mánaða aldurs eigi ekki að sitja lengur en hámark tvær klukkustundir á dag og ekki lengur en hálfa klukkustund í einu í sömu stellingu. Því ættum við að hugsa okkar gang. Gleym- um samt ekki að sum þessara hjálpartækja eru mikilvæg örygg- istæki. Gætum þess aðeins að ofnota þau ekki því að ef ung- börn fá ekki tækifæri til að þjálfa eigin líkama verða þau óvirk og ná ekki eðlilegum hreyfiþroska. Dæmigerður dagur Þegar börn eru um það bil sex mánaða lýkur fæðingarorlofi og flest börn fara þá í gæslu hluta úr degi eða allan daginn. Það er flókið og margbrotið að lifa í þjóðfélaginu í dag og eitt megin einkenni okkar tíma er að allir eru alltaf að flýta sér. Að morgni klæðum við börnin okkar í flýti, höldum á þeim und- ir hendinni út í bíl og setjum þau beint í bílstólinn. Við gefum okk- ur ekki tíma til að gefa barninu tækifæri til að ganga sjálft út í bíl og klifra í stólinn sinn. Við stöðv- um bílinn eins nálægt dyrum dag- mömmunnar eða leikskólans og hægt er og hlaupum með barnið í fanginu á áfangastað. Allan daginn glímir barnið við ýmis verkefni á meðan við stund- um okkar vinnu. Börnin okkar eru mis heppin. Sum eru í gæslu hjá dugmiklu fólki, sem drífur þau út í leiki, gönguferðir og á leikvöllinn, en því miður alls ekki öll. Mörg börn dvelja langtímum saman við ýmis verkefni sitjandi í stól og setjast beint á rassinn í sandkassann þegar út kemur. Að vinnu lokinni náum við í börnin okkar og förum í mat- vöruverslun. Þar er börnunum boðið upp á sæti og sjónvarp. Ef barnið dvelur ekki við sjónvarpið krefjumst við þess að það sitji hreyfingarlaust í járnsæti inn- kaupakörfunnar á meðan við fyll- um hana. Ekki sérlega spennandi hlutskipti það. Þegar heim kemur höldum við á barninu inn og sjáum til, er ekki barnaefni í sjónvarpinu, kjörið að leyfa barninu að horfa á það meðan við eldum matinn. Þá færir barnið okkar sig úr sófan- um, í eldhússtólinn og þaðan liggur leiðin inn í rúm. Spurning- in er hvenær fær barnið tækifæri til að þjálfa eigin líkama og læra alla þá hluti sem sérhvert barn þarf að læra? „Út um mela og móa“ Flestum börnum á leikskólaaldri finnst gaman að fara í göngutúr. Fá að kynnast umhverfinu, Lífsgleði Það veitir börnunum okkar ómælda gleði, ánægju og vellíðan að búa yfir styrk, þoli og fimi. Að þora, geta og vilja, geta meira og meira, meira í dag en í gær. slæmt? Því er erfitt að svara og auðvitað eru börnin eins misjöfn og þau eru mörg. Sem betur fer eru mörg börn líkamlega vel á sig komin og að sögn Antons eru það einmitt þau sem fara í gegn- um grunnskólann „á grænu ljósi“. Þau eru vinsæl í bekknum, og standa ofarlega í virðingar- stiganum, meðal annars vegna þess að það er gott að hafa þau með sér í liði. Hvort sem verið er að velja í lið í leikfimitímum eða í leikjum í frímínútum. Þau búa yfir eftirsóknarverðri getu og hæfni. Börn sem eru illa á vegi stödd í hreyfiþroska eru oft klaufsk. Þau missa niður hluti, eru lengi að klæða sig í og úr og eru sein til því að þau skortir viðbragðsflýti, fimi, kraft, og færni. Af þessum orsökum verða þau oft undir í samfélagi bekkjarins og eru varn- arlaus gagnvart einelti. Þau finna að þau standa höll- um fæti gagnvart öðrum börnum. Þau skortir því ekki aðeins hæfni heldur einnig sjálfsöryggi. Þau skynja að þau geta ekki staðist samkeppnina í frímínútunum, leikfimi og sundtímunum. Þau ná ekki að njóta sín í fótbolta og leikjanámskeiðum eða í öðrum tómstundanámskeiðum sem byggjast á hreyfifærni. Þeim finnst því eðlilega þessi viðfangs- efni leiðinleg og eiga því erfitt með að ná sér á strik og bæta hreyfiþroskann. Þess vegna eru fyrstu æviár barnanna okkar svo mikilvæg, þau skipta sköpum um hvernig barninu okkar líður í grunnskólanum. Ef barn stendur höllum fæti á þessu sviði við upp- haf skólagöngu þarf það á mark- vissum stuðningi og þjálfun að halda til að geta bætt stöðu sína, sagði Anton. Númer eitt, tvö og þrjú Börnin okkar eru það dýrmæt- asta sem til er. Það er ekki hægt að eignast nýjan Pétur eða Önnu ef við vanrækjum hlutverk okkar sem foreldrar árum saman og Pétur og Anna eignast ekki þann grunn sem þau þurfa til að byggja líf sitt á. Einn þátturinn í þessum grunni er eðlilegur hreyfiþroski og gott líkamlegt atgervi. Ef við aðeins gætum fundið eina stund á dag til að leika við börnin okkar. Hvernig væri að borða kvöldmat- inn snemma og drífa sig í sund milli klukkan nítján og tuttugu með krakkana? Það yrði örugg- lega ekki erfitt að sofna í barna- herbergjunum það kvöldið. Kaupum snjóþotur, sleða, bolta, húllahúllahringi, tennis- spaða, sippubönd, og krít til að kríta parís á planið í stað tölvu- leikja, Barbie dúkkna og Turtles kalla. En það er ekki nóg að rétta barni nýtt sippuband. Við verð- um að kenna því listina. Fá það til að kjósa ánægjuna af leikjum sem krefjast áreynslu og þjálfun- ar og skila framförum og hæfni. Þá erum við að leggja grunninn að heilbrigðum lífsstíl sem bygg- ist á því að njóta þess að bæta eigin líkama, skynja eigin styrk, liðleika, þol, hæfni og getu. „Æfingin skapar meistarann.“ Það er gaman að púsla en við þurf- um líka að læra að hoppa, hlaupa og stökkva. hoppa í pollunum, detta í snjó- inn, velta sér í grasbrekkunni, finna sóleyjar og fífla, klifra upp á stóran stein og hoppa niður. Hve oft gefum við okkur tíma til að fara með börnin okkar í göngutúr og leyfa þeim að ganga sjálfum án þess að reka á eftir þeim? Eru ekki börnin okkar miklu oftar bundin niður í kerru, hreyfingar- og þjálfunarlaus á meðan við göngum? Kunna börn- in okkar virkilega bara að ganga á steyptum götum og parketi? Hve oft hlaupa þau, hvenær tök- um við á sprett með þeim? Hve- nær æfa þau sig í að hoppa, klifra, sparka bolta, grípa bolta, elta bolta, og fara kollhnís? Hver kennir börnunum okkar þrauta- kóng, eltingarleik, kött og mús eða að sippa og fara í snú snú? Svo byrja þau í skóla Hvernig eru börnin okkar á vegi stödd þegar leikskólatímabilinu lýkur og þau byrja í grunnskóla? Að sögn Antons Bjarnasonar eru allt of mörg börn ótrúlega illa stödd hvað varðar líkamlega hæfni. Almennt telur hann börn í dag hafa mun verri hreyfiþroska en jafnaldrar þeirra höfðu fyrir um það bil tuttugu árum síðan. Anton segir að mörg sex og sjö ára börn í dag hafi ekki vald á hreyfingunni að hlaupa, þau skortir takt, samhæfingu og stíl. Þau hafa ekki krafta til að halda sér á kaðli eða fara í eltingarleiki. Þau eru nánast hrædd við bolta og eiga erfitt með að læra að grípa. Þau hafa hvorki kraft né jafnvægi til að hoppa, standa á öðrum fæti, standa á tám eða stökkva yfir slár. Börnum sem hefur ekki tekist að þroska og ná valdi á almenn- um grófhreyfingum reynist oft ákaflega erfitt aö ná valdi á fín- hreyfingum eins og að beita skrif- færum. Alvarlegast er þó að sögn Antons að börn sem eru illa á sig komin líkamlega lenda oft í félagslegum erfiðleikum í skóla. í gegnum grunnskólann á grænu Ijósi En er ástandið virkilega svona Næsti þáttur: Leikföng

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.