Dagur - 21.03.1992, Page 9
Fréttaviðtalið
Laugardagur 21. mars 1992 - DAGUR - 9
55
Framtíð Melgerðismela er óbreytt
- rætt við Hólmgeir Valdemarsson hestamann á Akureyri
44
Eyfirskir hestamenn hafa lýst
því yfir að þeir séu sárir út í
skagfirska hestamenn vegna
ákvörðunar þess efnis að
Fjórðungsmót norðlenskra
hestamanna ’93 verði haldið á
Vindheimamelum, en ekki
Melgerðismelum. Sumir vilja
jafnvel meina að með þessu
hafi Melgerðismelum, sem
mótasvæði, verið veitt náðar-
höggið. í tilefni þessa hafði
Dagur samband við Hólmgeir
Valdemarsson, hestamann á
Akureyri, sem átt hefur þátt í
uppbyggingu Melgerðismela
frá upphafi.
Árið 1974 tóku eyfirskir hesta-
menn þá ákvörðun, að byggja
upp gott svæði til mótahalds á
Melgerðismelum þar sem ákveð-
ið hafði verið að Fjórðungsmót
norðlenskra hestamanna árið
1976 skyldi haldið í Eyjafirði.
Framkvæmdir hófust ’75 og ári
síðar var fjórðungsmótið haldið á
hinu nýja svæði. Allar götur síð-
an hafa hestamannafélögin þrjú
sem að svæðinu standa: Funi,
Léttir og Þráinn, unnið að mark-
vissri uppbyggingu þess.
„Þær kröfur sem gerðar eru til
mótssvæðis hafa verið að aukast í
gegnum árin. Samfara því hefur
verið prjónað við aðstöðuna á
Melgerðismelum og óhætt er að
segja að búið sé að kasta tugum
milljóna til framkvæmda á svæð-
inu fyrir utan alla þá sjálfboða-
vinnu sem þar hefur verið unnin.
Ég vil meina að í dag sé aðstaða
þarna litlu síðri en aðstaðan á
Vindheimamelum, nema að sjálf-
sögðu líðum við fyrir að hafa
ekki fengið landsmót til okkar.“
Tíu þúsund manna
mótssvæði
Árlega eru haldin innanhéraðs-
mót og kynbótasýningar á Mel-
gerðismelum og segir Hólmgeir
að jafnvel standi til að í fram-
haldi af vetrarleikum þeim, sem
verið hafa undanfarin ár á Akur-
eyri, verði haldnir sumarleikar á
komandi sumri. Á sumarleikum
yrði slegið saman alvöru og
gamni og þeir haldnir í tengslum
við árlega kynbótasýningu sem
verið hefur í júnímánuði.
„Undanfarin fjögur ár höfum
við plantað út fleiri þúsund trjá-
plöntum á Melgerðismelum og
munum halda því áfram til að
gera staðinn skjólsælli. Sýninga-
velli á neðra svæðinu þarf að
hækka í framtíðinni, en annars er
aðstaðan nokkuð hliðstæð
aðstöðu á Vindheimamelum. Við
getum leikandi tekið á móti tíu
þúsund manns og allir möguleik-
ar eru fyrir hendi til að gera
þarna sömu góðu hlutina og
gerðir hafa verið á stórmótum í
Skagafirði. Landsmót höfum við
aftur á móti aldrei fengið, en.það
er eitt af því sem Vindheimamel-
ar hafa notið, því þar hafa verið
haldin þrjú Landsmót. Við erum
samt alltaf að reyna að sanna
okkur til að fá landsmót, því slíkt
er bæði mikil auglýsing fyrir stað-
inn sjálfan auk þess sem þau flýta
fyrir uppbyggingu. Á venjulegu
fjórðungsmóti eru raunseldir
aðgöngumiðar nefnilega ekki
nema um tvö þúsund, en á lands-
móti um átta þúsund og á því er
náttúrlega reginmunur."
Búnir að kosta
“PPbyggingu
Mikið hefur verið rætt um það
síðustu árin af hestamönnum
hvað landsmótsstaðir eigi að vera
margir á landinu. Þrátt fyrir að
málið hafi verið tekið fyrir á
þingum Landssambands hestam-
anna hefur engin niðurstaða
fengist. Sumar hallast að því að
landsmótsstaðir eigi einungis að
vera tveir, en aðrir vilja hafa þá
fleiri.
„Þetta er búið að ræða mikið
og tónninn hefur verið sá að stað-
irnir eigi að vera fleiri en tveir og
í dag er búið að byggja þrjá staði
á landinu það vel upp að þeir eru
í stakk búnir til að taka á móti
landsmóti. Þetta eru: Melgerðis-
melar, Gaddstaðaflatir og Vind-
heimamelar. Einnig hefur aðstaða
í Reykjavík verið byggð mikið
upp síðustu árin og borgin því
komið inn í umræðuna sem fjórði
landsmótsstaður. Tveir þessara
staða eru samt á Norðurlandi og
það er meginástæðan fyrir þeim
ríg sem hefur ríkt í fjórðungnum
síðustu árin.
Þrátt fyrir umræðu um að nota
alla þessa staði sýnist mér samt
að verið sé að reyna að koma þvf
í gegn að landsmótsstaðirnir
verði bara tveir. Auðvitað er hár-
rétt að uppbygging svæða kostar
„Ég vil meina að í dag sé aðstaðan á Melgerðismelum litlu síðri en aðstaðan
á Vindheimamelum,“ segir Hólmgeir Valdemarsson, sem hér stendur við
gæðinginn sinn Jörva. Mynd: Goiií
alltof mikla peninga miðað við að
stórmót séu haldin sextánda
hvert ár á hverjum stað. Það sem
við Eyfirðingar höfum verið að
reyna að koma á framfæri er hins
vegar það, að við erum búnir að
eyða peningum í uppbyggingu á
svæði sem getur leikandi tekið á
móti tíu þúsund manns. Þess
vegna þótti okkur sárt að sjá á
eftir landsmótinu árið 1990 og
þess vegna þykir okkur sárt að fá
ekki að halda fjórðungsmótið á
næsta ári.“
Reisninni skal haldið
Hólmgeir vill meina að framtíð
Melgerðismela sé óbreytt og
ákvörðun um að halda næsta
fjórðungsmót á Vindheimamel-
um þjappi Eyfirðingum bara bet-
ur saman.
„Stórmót veita mótssvæðum
peninga og ekki hvað síst góða
auglýsingu. Þess vegna þykir
okkur auðvitað illt að fá ekki
fjórðungsmótið á næsta ári, en
við erum búnir að leggja mikið í
Melgerðismela og ætlum okkur
að halda þeirri reisn sem staður-
inn hefur hlotið. Og þó svona
hafi farið með fjórðungsmótið
erum við því ekki á þeim buxun-
um að gefast upp, en hvað varðar
ákvörðun um að bjóða í næsta
landsmót á Norðurlandi sem
haldið verður 1998 er erfitt að
segja til um núna. Væntanlega
verða mannaskipti á þeim sex
árum sem þangað til eru og tím-
inn mun því leiða í ljós hvort
landsmót árið 1998 verður haldið
á Melgerðismclum." SBG
Hvar á að gista í Reykjavík ?
Auðvitað á
j Þar er stutt í verslanir og þjónustu
/ Par eru einhver stærstu herbergi sem
þekkjast í hótelum
j Par eru stór baðherbergi, bæði með
sturtu og baðkeri
j Par eru rúmin stærst og breiðust
j Þar eru herbergin hönnuð fyrir fjölskyldufólk
j Par er ekkert aukagjald fyrir börnin
j Par þarf ekki að rýma herbergin á hádegi
á sunnudögum
j Par starfar fagfólk á öllum sviðum þjónustunnar
og tekur vel á móti þér
/ Par eru gæðin og kröfurnar samkvæmt
alþjóðlegum staðli stærstu hótelkeðju heims
/ Þar er barnagæsla ef óskað er
/ Þaðan er stutt I Laugardalinn með ókeyþis
aðgangi að sundlauginni, húsdýragarðinum
og skautasvellinu
Eins manns herbergi kr. 3.400.-
Tveggja manna herbergi kr. 4.700.-
Morgunverður innifalinn í verði.
Það er engin spurning!
»/
<■
Sigtúni 38, simi 91-689000 Fax: 91-680675
íslenskt hótel með alþjóðlegan blæ
VERTU MEÐ I HAPPALEIK
HOLIDAY IIMN OG BYLGJUNNAR
Happaleikur Holiday Inn
Glæsilegur vinningur: Helgarferð til Reykjavíkur fyrir alla fjölskylduna, - flug, bíll, gisting,
veislumatur! Holiday Inn, Bílaleiga Akureyrar og íslandsflug bjóða vinningshöfum I helgarferð til
Reykjavíkur, - gistingu á Holiday Inn fyrir alla fjölskylduna, máltlð á Setrinu og bllaleigubll meðan dvalið er í
höfuðborginni. Það eina sem þarf að gera er að svara þessum spurningum (krossið við réttu svörin) og
senda til Bylgjunnar, Lynghálsi 5, 110 Reykjavík, merkt "Happaleikur Holiday Inn".
Dregið verður 31. mars í beinni útsendingu á Bylgjunni .
1. Hjón með tvö börn gista á Holiday Inn
eina helgi. Hvað kostar gistingin fyrir börnin?
□ 0 krónur
CD 1.525 krónur
□ 3.250 krónur
Sendandi:___________________________________
Heimilisfang:_______________________________
Póstnr. ------------------------------------
Sími:_______________________________________
2. Peir sem gista á Holiday Inn njóta sérstakra
kjara þegar þeir fara I Laugardalslaugina,
húsdýragarðinn eða á skautasvellið. Peir...
□ fá afslátt
□ fá ókeypis inn
□ þurfa að borga meira en aðrir