Dagur - 21.03.1992, Blaðsíða 19
Laugardagur 21. mars 1992 - DAGUR - 19
Sigling tif frægðar og frama
Poppskrifari Dags var lengi vel
einn af þeim fjölmörgu íslending-
um sem lítt eða ekki hafa kunnað
að meta verk Sykurmolanna.
Reyndar varð hann hrifinn af
fyrsta laginu sem hann heyrði
með hljómsveitinni og er það
enn, laginu Köttur og líka af öðru
laginu Afmæli, en síðan vart
söguna meir. Ekki er þó átt við að
tónlistin hafi verið léleg að mati
poppskrifara á þessum tveimur
fyrstu plötum Sykurmolanna,
Life’s too good og Here today,
tomorrow next week, síður en
svo. I hreinskilni sagt gekk hon-
um bara svo illa að meðtaka tón-
listina og vantaði þolinmæði við
hlustunina, sem er bráðnauðsyn-
leg ef menn ætla að tileinka sér
víðsýni í skoðunum og smekk á
tónlist. Það þarf nefnilega þó
nokkuð mikla þolinmæði til að
kryfja tónlist Sykurmolanna í
heild til mergjar.
Eins og lesendum ætti að vera
kunnugt tóku útlendingar, þá sér-
staklega Bretar, vel á móti Syk-
urmolunum til að byrja með.
Life's too good náði inn á toþp 40
og Birthday (afmæli) inn á topp
30. Því virtist framhaldið lofa
góðu og var beðið með eftirvænt-
ingu eftir arftaka Life’s too good.
En eins og lofi var hlaðið á frum-
burðinn, þá var Here today,
tomorrow next week fundið flest
til foráttu og seldist hún illa.
Stóðu Sykurmolarnir nú á kross-
götum og bjuggust margir við að
hljómsveitin myndi hætta. En
eins og allir vita nú hafa Molarnir
snúið aftur og endurheimt fyrri
viðurkenningu og gott betur.
Með nýju plötunni Stick around
for joy, virðist hljómsveitin vera
komin á góða siglingu í átt til
frægðar og frama á heimsvísu
og keppast gagnrýnendur við að
Ijúka lofsyrðum á plötuna. Hún á
Sykurmolarnir á framabraut.
Ííka allt lof skilið, því ekki aðeins
virka lagasmíðarnar á henni
ferskar, heldur er hljómsveitin
sjálf einfaldlega betri en nokkru
sinni fyrr á henni. Erfitt er að taka
út einstök lög af plötunni, en auk
Hit getur poppskrifari ekki stillt
sig um að nefna sérstaklega
Vitamin, sem honum hefur verið
ofarlega í huga lengi. Er það líkt
og Hit undantekning áfyrrnefndri
„þolinmæðisþörf” varðandi tón-
list Sykurmolanna. Það hittir
beint í mark. Ef gefa ætti Stick
around for joy einkunn að göml-
um og góðum sið fengi hún 9 af
10 mögulegum. Sem sagt
klassaplata.
Skrautfjaðraskammtanir
Líkt og í kvikmynda- og sjón-
varpsiðnaöinum, þar sem verð-
launaveitingar á borð við Óskar-
inn, Felixinn, Gullhnöttinn (Gold-
en Globe), Gullþálmann í Cann-
es og fleiri, tíðkast, hefur tónlist-
ariðnaðurinn líka sínar „seri-
móníur" til að skreyta sína full-
trúa fyrir vel unnin afrek. Nú á
dögunum fóru einmitt fram tvær
af merkari uppákomunum af því
taginu, Grammyverðlaunin og
bresku tónlistarverðlaunin. Var
þar að vonum mikið um dýrðir og
margar af skærustu stjörnum
poppsins saman komnar á báð-
um stöðum.
Bresku tónlistarverðlaunin, sem
afhent voru í Hammersmith
Odeon tónleikahöllinni og ná
einnig til annarra þjóða tónlist-
armanna en breskra, skiþtust
m.a. þannig að REM var útnefnd
besta alþjóðlega hljómsveitin,
Prince besti alþjóðlegi tónlist-
armaðurinn og PM Dawn sá efni-
legasti af alþjóðlegum toga. Seal
hinn þeldökki hlaut þrenn bresk
verðlaun, sem besti einstakl-
ingurinn, fyrir bestu plötuna og
besta myndbandið (þetta gildir
að sjálfsögðu fyrir árið 1991).
Simply Red og KLF fengu saman
verðlaun sem besta hljómsveit,
Lisa Stansfield fékk verðlaunin
sem besti kventónlistarmaðurinn
og Beverley Craven sú efnileg-
asta. Loks má svo nefna að
Queen fékk verðlaun fyrir besta
breska smáskífulagið Thease
are the days. Við móttöku á þeim
verðlaunum notaöi Brian May
gítarleikari Queen tækifærið og
tilkynnti um sérstaka minningar-
tónleika um Freddy Mercury,
sem halda á 20. apríl á Wembley
leikvanginum. Mun ágóðinn af
tónleikunum renna til baráttunnar
gegn eyðni víða um heim.
Grammy verðlaunin voru afhent í
New York og voru það þær
Natalie Cole og Bonnie Raitt sem
þar stálu senunni. Fékk Cole
samtals fimm verðlaun, m.a. fyrir
bestu plötuna og Raitt þrenn.
Annars hefur Grammyverölauna-
veitingin í ár vakið mikla undrun
og hneykslun í tónlistarpressunni
og þykir mönnum þar sem geng-
ið hafi verið framhjá sjálfsögðum
sigurvegurum í nær öllum tilfell-
um. T.a.m. vekur það mikla
athygli að REM fékk einungis ein
minniháttar verðlaun, en fyrir-
fram var búist við að hljómsveitin
myndi sópa að sér verðlaunum,
enda tilnefnd til sjö. Þá þótti það
einnig furðu sæta að Van Halen
skyldi fá verðlaunin fyrir bestu
þlötu þungarokksins, en þar þótti
Metallica eiga sigurinn skilinn.
En burtséð frá þessu, þá hlutu
Seal heiðraður á heimaslóðum.
verðlaun m.a. Michael Bolton
sem besti poppsöngvarinn, LL
Cool J sem besti einstaki rappar-
inn og DJ Jazzy Jeff and the
Fresh Prince sem besta rapp-
hljómsveitin.
I FRAMSÓKNARMENN
AKUREYRI
Bæjarmálafundur
Bæjarmálafundur veröur haldinn að Hafnarstræti 90,
mánudaginn 23. mars kl. 20.30.
Rætt um dagskrá næsta bæjarstjórnarfundar.
Þeir sem sitja í nefndum hjá Akureyrarbæ á vegum Fram-
sóknarflokksins eru eindregið hvattir til að mæta og einnig
varamenn.
Stjórn Framsóknarfélags Akureyrar.
Atvinna
Sveitarstjóri
Sveitarstjóri óskast til starfa á Kópaskeri til eins
árs, þarf að geta hafið störf 1. júlí nk.
Umsóknir sendist Öxarfjarðarhreppi, Bakkagötu 10,
Kópaskeri.
Sveitarstjóri.
Heiisugæslustöðin
Húsavík
Hjúkrunarfræðingur óskast
til sumarafleysinga við heilsugæslustöðina í
Mývatnssveit í júní, júlí og ágúst, eða eftir sam-
komulagi.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 96-
41333.
Óskum eftir að ráða starfskraft
til framtíðarstarfa
við lagerstörf
Nauðsynleg skilyrði eru lyftarapróf og einhver
tungumálakunnátta.
Upplýsingar um menntun og störf ber að skila til
Dags í lokuðu umslagi, merkt „STARF“ fyrir 24.
mars.
Ferðafélag
Akureyrar
Starfsmann vantar á skrifstofu
félagsins í sumar.
Um er að ræða 75% starf. Starfsmaður þarf að hafa
þekkingu á landinu, tungumálakunnáttu og geta
unnið sjálfstætt.
Umsóknir sendist Ferðafélagi Akureyrar, pósthólf
48, 602 Akureyri, fyrir 10. apríl nk.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er auðsýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför mannsins míns og föð-
ur okkar, tengdaföður, afa og langafa,
SIGURÐAR SIGURÐSSONAR,
fyrrverandi kennara á Núpum.
Guð blessi ykkur öll.
Kristín Ásmundsdóttir,
Sigríður Sigurðardóttir, Sigurður Karlsson,
Guðfinna Sigurðardóttir, Magnús Stefánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.