Dagur - 21.03.1992, Qupperneq 20
Skíðamót íslands:
Dalvlk
dottin út
- alpagreinar líklega
í HlíðarQalli
Allt útlit er fyrir að Skíðamót
íslands 1992 verði haldið á
Akureyri og í Ólafsfirði en
ekki er nægilegur snjór á Dal-
vík til að standa við fyrri áætl-
anir um Dalvík og Ölafsfjörð
sem mótsstaði. Þá hefur Ungl-
ingameistarmótið verið fært
frá Siglufirði til ísafjarðar eins
og fram hefur komið.
Björn Pór Ólafsson hjá Skíða-
deild Leifturs í Ólafsfirði sagði í
samtali við Dag í gær að á fundi,
sem boðað var til í gærkvöld, yrði
lagt til að alpagreinarnar færu
fram í Hlíðarfjalli ofan Akureyr-
ar en keppni í göngu og stökki
yrði haldin í Ólafsfirði. Björn
Þór bjóst við að þetta fyrirkomu-
lag yrði samþykkt.
„Við treystum því að þetta
verði niðurstaðan. Ef alpagrein-
arnar fara lengra í burtu þá mun-
um við ekki sækjast eftir því að
halda norrænugreinunum. Það er
stutt á milli Akureyrar og Ólafs-
fjarðar og við teljum þetta ekki
óframkvæmanlegt," sagði Björn
Þór.
Hann sagði að aðstæður fyrir
norrænugreinarnar væru þokka-
legar í Ölafsfirði en ekki mætti
hlýna mikið. „En það er saga til
næsta bæjar að við höfum aldrei
opnað lyftu í vetur hér í Ólafs-
firði og ástandið er búið að vera
svo ömurlegt að það nær ekki
nokkurri átt. Fólk áttar sig núna
á því að hvað skíðaiðkun hefur
verið stór þáttur í uppeldi
barna,“ sagði Björn Þór. SS
Norðlenskir hestadagar eru nú haldnir í Reiðhöllinni í Reykjavík. Fjöldi sýningaratriða eru á dagskrá. Hestamenn
úr Húnavatnssýslum, Þingeyjarsýslum, Skagafirði og Eyjafirði sýna norðlenska gæðinga, en ræktunarstarf norð-
lenskra hestamanna er með mikium blóma sem dæmin sanna í Reiðhöllinni í Víðidal. Á myndinni eru unglingar frá
Hestamannafélaginu Létti á Akureyri sem taka þátt í sýningunni undir stjórn Kolbrúnar Kristjánsdóttur frá Rauðu-
VÍk. Mynd: Árni Bjarna
Fiskiðjusamlag Húsavíkur:
Olíufélagið kaupir hlutabréf
fvrir 15 miiljónir króna
Stjórn Olíufélagsins hf. hefur
veitt forstjóra félagsins heimild
til aö kaupa hlutabréf í fisk-
vinnslu og útgerð á Húsavík
fyrir 15 milljónir króna.
„Bæjarstjóranum á Húsavík
finnst þetta eftir atvikum góð tíð-
indi. Á sínum tíma var Olíufélag-
inu boðið að kaupa hlutabréf fyr-
ir 30 milljónir, og ég held að eftir
atvikum séu menn ánægðir með
að ná þó þessum árangri," sagði
Einar Njálsson, aðspurður um
álit bæjarstjóra á fyrirhuguðum
hlutabréfakaupum Ólíufélagsins.
Tvöföld afmælissýning LA
íslandsklukkan eftir Halldór
Laxness veröur frumsýnd hjá
Leikfélagi Akureyrar föstu-
daginn 27. mars næstkomandi.
Signý Pálsdóttir, leikhússtjóri,
segir tvær forsendur liggja að
baki því að Leikfélag Akureyr-
ar ákvað að taka íslandsklukk-
una til sýninga nú. Annars veg-
ar er hún afmælisverkefni
félagsins, sem verður 75 ára í
apríl, og hins vegar er verið að
heiðra höfundinn, en Halldór
Laxness verður níræður í sama
mánuði.
Sunna Borg leikstýrir íslands-
klukkunni og gerir leikgerð sem
hún byggir á Hyrri leikgerðum
íslandsklukkunnar og skáldsög-
unni. Leikmynda- og búninga-
teiknari er Sigurjón Jóhannsson,
- Leikfélagið 75 ára og Laxness níræður
stein Bergdal, Marinó Þorsteins-
son, Árna Val Viggósson, Þór-
dísi Arnljótsdóttur, Eggert
Kaaber, Ingrid Jónsdóttur og
Agnesi Þorleifsdóttur. SS
búningameistari er Freygerður
Magnúsdóttir, Jón Hlöðver
Áskelsson semur tónlist við verk-
ið og ljósahönnuður er Ingvar
Björnsson.
í þessari tvöföldu afmælissýn-
ingu eru 26 hlutverk og ytri
umgjörð verður tilkomumikil.
Með aðalhlutverk fara Elva Ósk
Ólafsdóttir sem leikur Snæfríði
íslandssól, Hallmar Sigurðsson
sem leikur Arnas Arnæus og
Þráinn Karlsson sem leikur Jón
Hreggviðsson.
Af öðrum leikurum má nefna
Sigurð Hallmarsson, Herdísi
Birgisdóttur, Felix Bergsson,
Valgeir Skagfjörð, Jón Stefán
Kristjánsson, Gest Einar Jónas-
son, Sigurveigu Jónsdóttur, Guð-
laugu Hermannsdóttur, Aðal-
Einar sagði að einnig væri ver-
ið að ræða við eitt tryggingafélag
sem hefði tekið jákvætt í að auka
verulega sitt hlutafjárloforð, en
það var upp á fjórar milljónir.
Endanleg svör tryggingafélagsins
liggja ekki fyrir enn.
Ef öll hlutafjárloforð ganga
eftir og Verkalýðsfélag Húsavík-
ur ákveður að leggja fram fimm
milljónir, þá telur bæjarstjóri að
alls hafi safnast 110 milljónir í
auknu fjármagni inn í Fiskiðju-
samlagið.
Fyrirhugað er að hefja sam-
rekstur Fiskiðjusamlags Húsa-
víkur og útgerðarfyrirtækjanna
íshafs og Höfða að loknum aðal-
fundum fyrirtækjanna um næstu
mánaðamót. IM
íþrótta- og tómstundaráð Akureyrar:
Nýr suncQaugarstjóri
íþrótta- og tómstundaráð
Akureyrarbæjar hefur sam-
þykkt samhljóða að leggja til
við bæjarstjórn að Sigurður
Guðmundsson verði ráðinn
næsti sundlaugarstjóri við
Sundlaug Akureyrar. Auk
hans sóttu fjórir um stööuna.
Bókun íþrótta- og tómstunda-
Ferðamálafélag Austur-Húnvetninga:
Ræður ferðamálaMtrúa fmr sumarið
L. „ A1.. I'/. IA Oam < f o fA o >1111 ivi ♦> 1 >1A ri'irmoono "''ntlimin n A rfnrfcotvitn ■ rnmn
Ferðamálafélag Austur-Hún
vetninga hefur ráðið ferða-
málafulltrúa til að starfa að
ferðamálum í sýslunni á kom-
andi sumri. Ætlunin er að við-
komandi verði staðsettur í
upplýsingamiðstöð á Blöndu-
ósi og sinni einnig upplýsinga-
miðlun.
„Við höfum leitað til sveitar-
félaga og annarra hagsmunaaðila
ferðamálum til að fjármagna
dæmið, en héraðsnefnd neitaði
að styrkja ferðamálin nokkuð svo
þetta eru meira Pétur og Páll sem
styðja að þessari starfsemi þetta
árið,“ segir Erlendur Eysteins-
son, formaður Ferðamálafélags-
ins.
Síðasta sumar var fyrsta
sumarið sem upplýsingamiðstöð
fyrir ferðamenn var starfrækt á
IBlönduósi. Að sögn Erlends er
að starfsemin i sumar
á svipuðum nótum nema
ætlunin
verði
hvað vonir standa til að miðstöð-
inni verði komið fyrir í sjálfstæðu
húsi hjá tjaldstæðum á Sýslu-
mannstúni.
Sá sem Ferðamálafélagið hefur
ráðið til starfans heitir Heiðar
Ingi Svansson og er í vetur nem-
andi við Samvinnuháskólann á
Bifröst. SBG
ráðs verður til afgreiðslu
bæjarstjórnarfundi nk. þriðju-
dag.
Sigurður Guðmundsson er
húsasmíðameistari frá Skaga-
strönd. Hann hefur unnið mikið
að þjálfun og starfað mcð ungu
fólki, m.a. viö sumarbúðir
U.M.F.Í. Sigurður er nú að Ijúka
námi í „fritidspedagog" í
Svíþjóð, sem er einskonar
æskulýðs- og félagsfræði. Loka-
verkefni hans fjallar um rekstur
sundlauga- og íþróttamann-
virkja.
Eins og áður segir sóttu fimm
unt stööu sundlaugarstjóra. Einn
óskaði nafnleyndar en hinir
umsækjendurnir eru Baldvin Sig-
urðsson, Markús H. Hávarðar-
son og Þorsteinn Þorsteinsson.
Markús og Þorsteinn eru starfs-
menn Sundlaugar Akureyrar og
Þorsteinn hefur veriö settur
sundlaugarstjóri undanfarin
misseri, eða allt frá því að Hauk-
ur Bcrg fékk leyfi frá starfi sund-
laugarstjóra. óþh
Akureyri:
Með fisk í fangi
á innbrotsstað
Hann hefur trúlcga verið
svangur innbrotsþjófurinn
sein vaktmenn Sccuritas á
Akyreyri gripu á innbrotsst-
að í fyrrakvöld. Ránsfengur-
inn var væn lúöa.
Vaktmenn Securitas komu
að manninum þar sem hann
hafði brotist inn í frystigeymslu
Sláturhúss KEA. Innbrots-
þjófurinn, sem var ölvaður,
var gripinn með 7 kílóa lúðu í
fanginu. Lögregla var kölluð
til og maöurinn var færöur til
fangageymslu. Málið fær hefð-
bundna meðferö fyrir saka-
dómi. ój
Veðrið:
Norðaustan
áhlaup
um helgina
Veðurstofa íslands gerir ráð
fyrir kólnandi veðri um allt
Norðurland með slyddu í
byggð og snjófjúki til fjalla.
„Góða veðrið er frá í bili á
Norðurlandi. í dag verður
austan strekkingur, hitastig um
frostmark, slydda eða snjó-
koma. Á sunnudag dregur til
norðaustanáttar og hann kóln-
ar cnn. Snjókoma veröur víð-
ast og ófærð á fjallvegum.
Þetta áhlaup tekur fljótt af og
mánudagurinn veröur strax
skárri," sagði talsmaður
Veöurstofu íslands. ój
Hreppsnefnd
EyjaQarðarsveitar:
Stoftmð verði
ný lands-
hlutasamtök
Hreppsnefnd Eyjaijaröar-
sveitar samþykkti á fundi
sínuin á fímmtudag að
ganga til stofnunar nýrra
landshlutasaintaka sveitar-
félaga í Norðurlands-
kjördæmi eystra scm komi í
stað Fjóröungssainbands
Norðlendinga.
Eins og frant hefur komið
verður cfnt til aukafjórðungs-
þings í lok næsta mánaðar til
að ræða stofnun tveggja lands-
hlutasamtaka á Norðurlandi í
stað Fjóröungssambands Norö-
lendinga. Verði þetta niður-
staðan mun haldið síðasta
reglulegt fjórðungsþing í haust
cn sambandiö mun starfa út
árið.
í máli hreppsnefndarmanna
í Eyjafjarðarsvcit kom fram
skýr vilji til að ganga til stofn-
unar nýju samtakanna en jafn-
framt lögöu þeir áherslu á að
kostnaöi við hin nýju samtök
verði stillt í hóf og starfi þeirra
verði beint að verkefnum sem
komi sveitarfclögunum í kjör-
dæminu að gagni. JÓH