Dagur - 26.03.1992, Side 2

Dagur - 26.03.1992, Side 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 26. mars 1992 Félagsvist verður í Freyjulundi á morgun, föstudaginn 27. mars, kl. 21.00 Kaffi og bingó á eftir. Nefndin. Tilboð óskast í rif mannvirkja Óskum eftir tilboði í að fjarlægja bárujárns- klædda skemmu ásamt tengibyggingu sem staðsett er á lóð við Glerá, neðan brúar við Möl og sand hf. (Fyrrverandi Malar og steypustöðin.) Nánari upplýsingar á skrifstofu okkar. Fréttir Áhrif af GATT-samningi á nótum Dunkels: Hagfrædistofimn H.Í. segir land- búnaðarafiirðir lækka í verði um 8-25% Hagfræðistofnun Háskóla íslands telur að verð á land- búnaðarvörum sem falla undir drög að fyrirliggjandi GATT- samkomulagi muni lækka um 8-25 af hundraði, mismunandi eftir því hvers konar túlkun verði ofaná þegar komi að því að framkvæma samninginn. Þetta er megin niðurstaða stofnunarinnar í úttekt hennar á áhrifum GATT-samnings, sem gerð var fyrir Neytenda- félag höfuðborgarsvæðisins og birt í gær. Þær vörur sem miðað er við í úttekt Hagfræðistofnunar H.í. eru ostur, smjör, mjólkurduft, neyslumjólk, nautakjöt, svína- kjöt, kindakjöt, kjúklingar, kart- öflur, egg og tómatar. „Miðað við túlkun landbúnað- arráðuneytis og forsendu um hóf- söm óbein áhrif innflutnings mun samanvegin verðlækkun þeirra vara sem hér eru tilgreindar nema tæplega 8%. Sé stuðst við bjartsýnni túlkun á óbeinum áhrifum innflutnings verður veg- in verðlækkun um 10%. Sé gert ráð fyrir að kjöt verði flutt inn með sama hætti og aðrar land- búnaðarvörur gæti vegin verð- lækkun numið um 15%. Sé auk þess gert ráð fyrir að einkasölu- réttur mjólkurbúa verði aflagður og frjáls samkeppni ríki milli búanna má gera ráð fyrir að veg- in verðlækkun þessara vöruteg- unda verði á bilinu 20-25%,“ seg- ir í niðurstöðum skýrslu Hag- fræðistofnunar. Aðeins eru teknar fyrir þær vörutegundir sem samningurinn snertir beint en bent er á í skýrsl- unni að ólíklegt verði að teljast að verðlagsáhrif samningsins ein- skoröist við þessar vörur. Verð- lækkun eins vöruflokks geti haft áhrif á verðlag annarra vöru- flokka, geti neytendur notað vör- ur úr hvorum flokki fyrir sig til að ná sömu neyslumarkmiðum. „Því er líklegt að raunveruleg áhrif samnningsins á matvælaverð verði umfangsmeiri en rakið er í skýrslu þessari. Þá er heldur ekki tekið tillit til þess velferðarávinn- ings er fellur neytendum í skaut vegna aukningar á vöruúrvali sem aukinn innflutningur landbúnað- arafurða mun hafa í för með sér,“ segir í skýrslunni. JÓH Bing Dao á Akureyri: „Stefiit er að opnun veitinga- staðaríns fyrir páska“ - segir Snorri Jóhannsson, matreiðslumaður Stefnt er að opnun nýs veitinga- staöar í húsnæði því er Veit- ingahúsið Hlóðir og síðar Landið Vertshús var rekið í við Geislagötuna á Akureyri. Við Geislagötu 7 á Akureyri stendur Hótel Norðurland. Veit- ingarekstur í hótelinu hefur verið í höndum tveggja aðila frá því að hótelið var opnað, en báðir hafa beygt af. Nú ætlar Snorri Jóhannsson, matreiðslumeistari, að taka við veitingarekstrinum og unnið er að breytingum á hús- næði. Stefnt er að opnun staðarins fyrir páska. „Bing Dao skal staðurinn heita, þ.e. ísland á kínversku. Innréttingar verða að austur- lenskum hætti og mikil áhersla verður lögð á góðan austurlensk- an mat á sanngjörnu verði. Aust- urlenskir veitingastaðir hafa farið sigurför um allar áifur og því er löngu kominn tími til að Akur- eyringar jafnt sem nærsveita- menn fái að reyna austurlenska matagerðarlist á heimaslóð," sagði Snorri Jóhannsson, sem áður hefur unnið sem matreiðslu- meistari á veitingahúsum í Reykjavík og á Akureyri. ój Föstudagur: (Indir tunglinu Miðaverð kr. 1.000 Laugardagur: (Indir tunglinu Milli kl. 23.30 og 00.00 happy half an hour úr krana Miðaverð kr. 1.000 LOKSINS á Akureyri - (á viðráðanlegu verði) „Ekta“ austurlenskur matur (Kína, Tæland, Indland) Einnig á (Ippanum: Fimmtudagskvöld: Happy hour úr krana kl. 21.30-22.30 og Ingvar Grétarsson Föstudags- og laugardagskoöld: fcestvi Enginn annar en Eyjólfur Kristjánsson Snyrtilegur klæðnaður Borðapantanir í síma 24199 Náttúrulækningafélag Akureyrar: Þrjár breytingar á stjórninni -Áslaug Kristj ánsdóttir áfram formaður Nýkjörin stjórn Náttúrulækn- ingafélags Akureyrar, hélt sinn fyrsta stjórnarfund í vikunni og skipti m.a. með sér verkum. Eins og komið hefur fram í Degi, var aðalfundur NLFA haldinn þann 17. mars sl. og fór hann fram í Kjarnalundi. Áslaug Kristjánsdóttir, sem verið hefur formaður sl. 5 ár, sit- ur áfram sem formaður en aðrir í stjórn eru: varaformaður Vil- hjálmur Ingi Árnason,' ritari Fanney Kristbjarnardóttir, gjald- keri Jón Kristinsson og með- stjórnandi Elín Antonsdóttir. í varastjórn eru Ragnheiður Kjærnested og Kristín Aðal- steinsdóttir. Þrjár konur gengu úr stjórn- inni að þessu sinni, þær Ema Indr- iðadóttir og Rannveig Guðna- dóttir úr aðalstjórn og Málfríður Baldursdóttir úr varastjórn. í þeirra stað komu Elín, Ragn- heiður og Kristín inn í stjórn. -KK Björgunarsveitin Ægir á Grenivík: Tekur í notkun nýja félagsaðstöðu Á laugardaginn verður tekin í notkun ný félagsaðstaða fyrir björgunarsveitina Ægi á Greni- vík. Sveitin hefur fengið hluta gamla Kaupfélagshússins við Ægissíðu á Ieigu og í vetur hafa félagar sveitarinnar unnið að endurbótum á því. Vegna þessara tímamóta verður sveitin með opið hús frá kl. 14.00 á laugardag í nýju 'aðstöðunni og eru ailir velkomn- ir. Þar verður búnaður sveitar- innar til sýnis og einnig verður í gangi samkeppni um nafn á nýju aðstöðuna og verður veitt viður- kenning fyrir það nafn sem notað verður. Þá verður boðið upp á kaffiveitingar. Starfsemi sveitarinnar er alltaf að eflast og í dag eru rúmlega 50 félagar í Ægi. Núverandi formað- ur er Ari Laxdal. -KK

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.