Dagur - 26.03.1992, Blaðsíða 9

Dagur - 26.03.1992, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 26. mars 1992 - DAGUR - 9 Umræður á Alþingi um að gera Eyjaijörð að miðstöð fræðslu og rannsókna í sjávarútvegi: Að skapa deiglu fyrir framfarir - góðar undirtektir við þingsályktunartillögu átta þingmanna úr ijórum flokkum Björn Jónsson Hrukkur og kvef En nóg um óbeinar reykingar. Rannsóknir hafa sýnt að vana- bundið reykingafólk sem reykt hefur talsvert lengi er um það bil jafnhrukkótt og þeir sem eru 15- 20 árum eldri. Það stafar meðal annars af því að samdráttur verð- ur í fínæðakerfi húðarinnar og jafnframt lækkar hitinn í húð- inni. Reykingar draga úr hæfni hvítra blóðkorna til að berjast gegn sjúkdómum og því fær reyk- ingamaðurinn að jafnaði mun oftar kvef og aðrar umgangspest- ir en þeir sem ekki reykja. Tapaðir vinnudagar Samkvæmt bandarískri rannsókn er munurinn á tíðni sjúkdóma meðal þeirra sem reykja og þeirra sem ekki reykja, mestur á aldursbilinu 45-65 hjá körlum og 17-44 ára hjá konum. Það er á þessum árum sem afkastageta manna er í hámarki og flest okk- ar eiga skyldum að gegna sem foreldrar og fyrirvinnur. Árið 1979 var það reiknað út í Bandaríkjunum að 81 milljón vinnudagar tapist á ári þar í landi vegna þess hve sígarettureyk- ingamenn veikjast oftar en aðrir. Þetta hefur í för með sér gífurlegt tjón fyrir þjóðfélagið og það gild- ir hvarvetna þar sem reykingar eru almennar, einnig hér á landi. Félagsleg áhrif reykinga Þá er ógetið áhrifa reykinga sem frekar má telja félagslegs eðlis. Flestir kannast við reykstybbuna, sem er af reykingafólki. Einn góður maður sem hætti að reykja, hitti félaga sinn sem er reykingamaður, í verslun um þremur vikum seinna. „Það var eins og að ganga á vegg, hann var illa þefjandi eins og öskubakki svo mér varð flökurt. Mér fannst ótrúlegt til þess að hugsa að svona hafi ég lyktað þegar ég reykti.“ Þannig sagðist honum frá, og margir hafa svipaða sögu að segja. „Kysstu þann sem ekki reykir og finndu muninn,“ stend- ur einhvers staðar. Svo mikið er víst að reykstybba af fólki er eng- inn rósailmur. Reykingar eru sóðaskapur hinn mesti, fátt er ógeðslegra en hálffullir ösku- bakkar og reykmengaðar vistar- verur. Þetta finna menn best þeg- ar þeir hætta að reykja. Peningahliðin Þá skal nefnd peningahlið reyk- inganna. Reyki maður pakka á dag, þarf reykingamaðurinn að punga út tæplega 80 þúsund krónum á ári fyrir eitrið. En hvað gerist svo þegar við hættum að reykja? Fljótlega minnka skað- legu áhrifin á líkamann. Morgun- hóstinn hættir á nokkrum dögum, bragðskynið eykst, lykt- arskynið verður næmara og þolið vex. Maður fer að lykta betur, blóðrásin verður eðlilegri og betri. Fljótlega eftir að við hætt- um minnkar þreyta, sem stafar meðal annars af því að kolsýrl- ingseitrun, sem allir reykinga- menn verða fyrir, líður hjá og svefninn verður dýpri og betri. Þegar við hættum Þegar við hættum að reykja för- um við oft að bera meiri virðingu fyrir líkama okkar, og síðan í kjölfarið að huga að fleiri þáttum f lífsvenjum okkar sem betur mættu fara. Það segir sig nú sjálft að fólk, sem stöðugt misbýður líkama sínum með eitruðum tóbaksreyk og sinnir lítt öðrum þáttum heilsunnar, ber varla mikla virðingu fyrir sjálfum sér. Og þá er nú kannski varla hægt að ætlast til þess að það beri virð- ingu fyrir öðrum og sjálfsögðum rétti annarra til að kjósa sér reyk- lausa tilveru. Verst er þó það virðingarleysi sem reykingaforeldrar sýna börn- um sínum í þessu sambandi. Það er því ekki einungis reykinga- maðurinn sem hagnast á því að hætta að reykja, heldur einnig fjölskylda hans, vinir og vinnu- félagar. Þau njóta betra and- rúmslofts. Því skyldum við setja þá sem við umgöngumst mest og eru okkur kærastir í aukna hættu á að fá sjúkdóma? Er ekki verð- ugt verkefni að reyna að breyta því? Góð heilsa er gulli betri Góð heilsa er dýrmætasta eign hvers manns. Um það held ég að flestir geti verið sammála. Grundvöllur heilbrigðs lífs er samspil allra þátta í lífsvenjum okkar. Sá sem borðar hollan mat, stundar reglulega hreyfingu, leggur rækt við slökun og hvíld, reykir ekki, neytir áfengis í sæmi- legu hófi og hefur jákvæða afstöðu til lífsins og tilverunnar, auk þess að sinna sálartetrinu, eykur líkurnar á því að verða langlífur, og það sem meira er um vert: Að búa við góða heilsu. Hver er sinnar gæfu smiður í þessum efnum sem öðrum. Aðferðir til að hætta Hvernig skal svo haga sér við það að hætta? Aðferðir fólks við að hætta eru sjálfsagt jafnmargar og mennirnir eru margir. Það sem hentar einum, hentar ekki endi- lega öðrum. Að mínum dómi er það góður vilji og jákvæð afstaða sem eru undirstöðuatriði í barátt- unni og þó við föllum þá er bara að standa upp aftur. Fyrir alla muni, ekki telja sér trú um að við getum ekki hætt, frekar ættum við að stappa í okkur stálinu því með góðum vilja, jákvæðni og bjartsýni að vopni ætti baráttan að geta gengið vel. Að lokum Það er notaleg tilfinning að finna að maður er sjálfur við stjórnvöl- inn en ekki sígarettan. Geta heimsótt vini og kunningja án þess að þurfa að vera með alla vasa fulla af sígarettum og eld- spýtum, og geta verið innan um fólk án þess að þurfa að eitra fyr- ir því andrúmsloftið. Ég hvet fólk eindregið til að leita til krabba- meinsfélaganna. Þar er indælis- fólk boðið og búið að aðstoða í baráttunni, auk þess geta menn þar orðið sér út um bæklinga til leiðbeiningar um reykleysið. Ég vona svo að þessi grein verði einhverjum hvatning til þess að segja skilið við reykinn og stuðla með því að bættri heilsu, hreinna andrúmslofti og lífvænlegra þjóðfélagi. Baráttukveðjur, Björn Jónsson. Höfundur er áhugamaður um reyklaust umhverfi og holla lífshætti almennt. Heimildir: Bæklingar Krabbameinsfélagsins: „Reykingar og heilsa“, „Óbeinar reykingar“ og „Foreldrar og reykingar“. Bókin „Heilbrigðisfræði", eftir Gísla Ragnars- son. Bókin „Bætt heilsa, bctra líf“, eftir dr. Jón Ótt- ar Ragnarsson. Tímaritið „Heilbrigðismál“. Myndbandið „Konur og reykingar“. Fyrir nokkrum dögum urðu á Alþingi töluverðar umræður um þingsályktunartillögu átta þingmanna úr fjórum flokkum um að byggja upp miðstöð fræðslu og rannsókna á sviði sjávarútvegs á Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu. Tillaga þessi var flutt fyrir tveimur árum en hlaut ekki afgreiðslu. Nú byrjar betur, í það minnsta lýstu allir þeir þingmenn sem til máls tóku um tillöguna sig sammála henni. Tillagan hljóðar svo í heild sinni: „Alþingi ályktar að á Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu skuli byggja upp miðstöð fræðslu og rannsókna á sviði sjávarútvegs. Alþingi felur því ríkisstjórn- inni að láta gera tímasetta áætlun sem miði að uppbyggingu sjávar- útvegsbrautar Háskólans á Akur- eyri og sjávarútvegsbrautarinnar á Dalvík og eflingu hvers kyns rannsókna- og þróunarstarfsemi á svæðinu.“ Það var Steingrímur J. Sigfús- son, Alþýðubandalagi, sem mælti fyrir tillögunni en auk hans flytja hana Guðmundur Bjarnason og Jón Kristjánsson úr Framsóknar- flokki, Jóna Valgerður Kristjáns- dóttir og Kristín Ástgeirsdóttir frá Kvennalista, Össur Skarphéð- insson og Sigbjörn Gunnarsson úr Alþýðuflokki og Jóhann Ársælsson, Alþýðubandalagi. í máli Steingríms kom fram að þegar leitað var eftir meðflutn- ingsmönnum úr Sjálfstæðisflokki hafi þeir haft í undirbúningi svip- aða tillögu. Varð niðurstaðan sú að rétt væri að flytja þær báðar. Kjöraðstæður í Eyjafirði Níu manns tóku þátt í umræðun- um og lýstu þeir allir stuðningi við tillöguna. í máli flutnings- manns kom fram að í raun þyrfti ekki að rökstyðja tillögu sem þessa, sjávarútvegur stæði sterk- um fótum við Eyjafjörð og væri í sókn. Þar væru nokkur af öflug- ustu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins og útgerð og vinnsla mjög fjölbreytt. Einnig væru þar sterk þjónustufyrirtæki við sjáv- arútveg, svo sem Slippstöðin, Sæplast, DNG o.fl. Sömu sögu væri að segja um skólaþáttinn, á Akureyri væri starfrækt sjávarútvegsbraut við Háskólann á Akureyri og á Dal- vík væri skipstjórnarnám og fisk- vinnsluskóli, sá eini utan höfuð- borgarsvæðisins. Auk þess væru útibú frá Hafrannsóknastofnun og Rannsóknastofnun fiskiðnað- arins á Akureyri og hefði tekist náið samstarf með þeim og Háskólanum. Að öllu þessu samanlögðu sagði Steingrímur allar forsendur fyrir því að koma upp miðstöð fræðslu og rannsókna á sviði sjáv- arútvegs á Akureyri og við Eyjafjörð, þar væru kjöraðstæð- ur fyrir slíka starfsemi. Þróunarsetur í landshlutum Tómas Ingi Olrich lýsti yfir stuðningi við tillöguna og sagðist vera sammála þeim orðum Steingríms J. Sigfússonar að því færi víðsfjarri að íslendingar hefðu fullnýtt sjávarauðlindir sínar. Hann ræddi um aðgerðir ríkisvaldsins til þess að styðja við bakið á útflutningsgreinum og sagði að það besta sem ríkisvald- ið gæti gert fyrir atvinnulífið væri að skapa skilyrði fyrir samstarf atvinnufyrirtækja og rannsókna- stofnana. Skapa deiglu fyrir framfarir. Jóna Valgerður Kristjánsdótt- ir, ein af flutningsmönnum til- lögunnar, gerði að umtalsefni stofnun þróunarseturs í sjávar- útvegsfræðum sem nú væri verið að stofna á Vestfjörðum. Til- gangur þess væri að tryggja að reynsla og þekking Vestfirðinga á sviði sjávarútvegs nýttist til þró- unar og nýsköpunar, að skapa vettvang fyrir hugmyndir og frumkvæði heimamanna, að tryggja að verkefnaval rann- sóknastofnana væri í samræmi við óskir fyrirtækja í vestfirskum sjávarútvegi, að styrkja stöðu rannsóknaraðila á Vestfjörðum og stuðla þannig að því að verk- efni og fjármagn flytjist til lands- byggðarinnar í meira mæli en nú er. Jóna Valgerður tók það fram að hugmyndir um þróunarsetur í öllum landshlutum kæmi alls ekki í veg fyrir uppbyggingu sjávar- útvegsbrautar Háskólans á Akur- eyri heldur myndi miðstöð á Akureyri styrkja þróunarsetrin. Stórum spurningum ósvarað Jóhann Ársælsson ræddi um menntunarmál sjávarútvegsins og bar þau saman við menntun- armál landbúnaðarins þar sem gengið hefði verið mun skipuleg- ar og ákveðnar til verks. Til dæmis væri Fiskvinnsluskólinn til hliðar í skólakerfinu og í raun hefði ekki verið staðið myndar- lega að neinu nema menntun sjómanna. Jóhann benti á hversu margt væri órannsakað sem snerti íslenskan sjávarútveg og því væri mjög erfitt að taka ákvarðanir um framtíðarstefnu fyrir grein- ina. Til dæmis vantaði rannsóknir á þjóðhagslegri hagkvæmni fiski- skipaflotans, mismunandi útgerðarforma og nýtingar á fiskimiðunum. Um þessi mið væru dregin stórvirkustu veiði- tæki sem til eru í heiminum en engar rannsóknir hefðu verið gerðar á áhrifum þeirra á lífríkið í sjónum. Við slíkum spurning- um fengjust engin svör nema með því að efla menntun og rannsóknir og þær þyrfti að breiða sem víðast út um landið. Hann kvaðst sammála því að gera Eyjafjarðarsvæðið að mið- stöð á þessu svið því þar væri ver- ið að fást við nánast alla þá hluti sem fengist er við í íslenskum sjávarútvegi, auk þess sem stærð Ákureyrar auðveldaði starfsemi menntastofnana. Össur Skarphéðinsson sagði að það sem gerði Eyjafjarðarsvæðið ákjósanlegt í þessu skyni væri sú staðreynd að þar væri komið upp mjög gott rannsóknarumhverfi. Það væri vísir að réttu andrúms- lofti sem þyrfti til að búa til góða rannsóknar- og fræðslumiðstöð. Hann minnti á frumkvæði Eyfirð- inga á sviði úthafsrækjuveiða sem væru nú orðnar ábatasöm iðja og að enn brydduðu þeir á nýjung- um, svo sem í DNG og í uppsetn- ingu smápakkalínu í frystihúsinu á Dalvík. Hann lauk máli sínu á því að leggja til að stjórnvöld íhuguðu í alvöru að flytja Haf- rannsóknastofnun til Akureyrar. Fiskistofa á Akureyri? Jóhannes Geir Sigurgeirsson gerði að umtalsefni svonefnda Fiskistofu sem rætt er um að koma á laggirnar. Þar á að sam- eina ýmsa þætti þjónustu og eftir- lits með sjávarútvegi sem er á vegum nokkurra stofnana nú. Gert er ráð fyrir allt að 60 manna starfsliði, þám. stærsti hluti veiði- eftirlitsmanna sjávarútvegsráðu- neytisins. Sagði Jóhannes Geir að gert væri ráð fyrir því í frum- varpi sem verið er að semja að Fiskistofan yrði á Akureyri og starfaði með þeim stofnunum sem þar eru á sviði sjávarútvegs. Hann tók undir hugmyndir um að flytja Hafrannsóknastofnun til Akureyrar en taldi ekki raunhæft að það gerðist í einum rykk, slíkt yrði að gerast í áföngum. Eðlilegt væri að fyrsta skrefið yrði að flytja útgerð og rekstur rann- sóknaskipanna norður. Auk þeirra sem hér hafa verið nefndir tóku þau Guðmundur Stefánsson, María E. Ingvadóttir og Pétur Sigurðsson þátt í umræðunum. Þeim lauk með því að Steingrímur J. Sigfússon tók saman það helsta sem fram hafði komið og lagði áherslu á að ef þessi tillaga yrði að veruleika myndi ekki standa á því að heimamenn tækju til hendinni. Hann kvaðst bjartsýnn á að til- lagan fengi brautargengi á þing- inu í vetur, undirtektir þing- manna væri slíkar. Loks lagði hann til að tillögunni yrði vísað til sjávarútvegsnefndar Alþingis til umfjöllunar. -ÞH Töluverður þjónustuiðnaður við sjávarútveg er starfræktur við Eyjafjörö og er Sæplast eflaust með þciin frægari af slíkum fyrirtækjum. i

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.