Dagur


Dagur - 01.04.1992, Qupperneq 2

Dagur - 01.04.1992, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 1. apríl 1992 Fréttir Fullnýting sjávarfangs í vinnsluskipum: Myndi skila arði til út- gerðar og vinnslu í landi Rannsóknastofnun fískiðnað- arins lagði fram í gær skýrslu Jóns Heiðars Ríkharðssonar, hagverkfræðings, um mat á arðsemi þess að fullnýta sjávar- afla um borð í vinnsluskipum. Helsta niðurstaða skýrslunnar er sú að hagkvæmt geti verið að hirða 96% af því sjávarfangi sem um borð kemur í vinnslu- skipin. Rannsóknastofnun fiskiðnað- arins lét Jón Heiðar gera skýrsl- una er frumvarp sjávarútvegsráð- herra um fullvinnslu botnfiskafla um borð í veiðiskipum kom fram. Þar er meðal annars mörk- uð sú stefna að skip sem leyfi hafa til fullvinnslu afla er óheim- ilt að fleygja fiski, fiskhlutum eða fiskúrgangi fyrir borð. Grímur Valdimarsson, forstöðumaður Rannsóknastofnunar fiskiðnað- arins, sagði á blaðamannafundi í gær að vinnsluskipin hefðu bein- an hag af meiri nýtingu. „Mestu skiptir að auka nýtingu á aðal- afurðum annað er hreinn bónus. Með því að auka nýtingu á sjáv- arfangi þá nýtast afköst vinnslu- skipanna mun betur og hag- kvæmnin verður meiri,“ sagði Grímur meðal annars. Skýrslan útilokar fiskmjöls- vinnslu um borð í fiskiskipum, en ýmsir möguleikar eru á að nýta fiskúrgang t.d. hryggi, hausa og klumbru til marningsvinnslu. Öðrum úrgangi er hægt að breyta í meltu sem síðan er unnin í fisk- mjöl í landi með öðru hráefni. Ef allur sá úrgangur sem nú er hent í sjóinn frá vinnsluskipunum yrði unnin í meltu eingöngu án ann- arra aðgerða yrði heildartap á þeirri vinnslu tæpar 300 milljónir króna á ári. Jón Heiðar segir í skýrslunni að best sé fyrir skipin að auka aflaverðmætið með afurðaaukn- ingu sem felst í aukinni vinnslu- nýtingu, bættum gæðum og aukn- um afköstum. „Stækkun minni skipanna er hinsvegar forsenda þess að koma megi fullkomnari vinnslulínu fyrir. Ef togbátarnir eru undanskyldir er heildarfjár- festing við þær breytingar 2,7 milljarðar króna sem skilar 315 milljónum í hagnað á ári með 20.2% innri vöxtum,“ segir með- al annars í skýrslunni. Meginniðurstaða Jóns Heiðars er að fullnýting sjávarfangs um borð í vinnsluskipum er fyrirsjá- anlega þjóðhagslega hagkvæm og myndi skila arði til útgerðar og vinnslu í landi jafnvel þótt gera þurfi miklar breytingar á meiri- hluta flotans. bjb Fermmgargjafimar handa vélsleða- og utilifsfólkinu: Hjálmar m/gerðir ★ Hanskar ★ Lúffur ★ Moon Boots ★ Vatnsþétt kuldastígvél ★ Vélsleðagallar ★ Töskur ★ Brúsar ★ Olíur o.fl. o.fl. nestín 4 <Ætá aííL FONDUE 3. og 4. apríl í veisíusal Greifans „STÁSSINU" Saffranbætt humarsúpa m/rjómatoppi Fondue sinfónía naut, lamb og grís ásamt fjölbreyttu úrvali meðlætis. Desert Heimalagaður ís m/ferskum ávöxtum. kr. 2.150,- Munið að panta borð tímanlega, sími 26690. Forseta bæjarstjórnar Akureyrar voru í gær afhentar á níunda hundrað undirskrifta þar sem mótmælt var fyrirhug- uðum breytingum á rekstri Iþróttaskemmunnar, en sú hugmynd hefur verið rædd að hætta að nota hana sem íþrótta mannvirki. Textinn sem fólkið undirritaði var svohljóðandi: „Við undirritaðir skattborgarar á Akureyri viljum hér með mótmæla áformum um að leggja niður núverandi starfsemi íþróttaskemmunnar. Við viljum að hlutverk Iþróttaskemmunnar verði það sama og verið hcfur síðastliðinn aldarfjórðung í félagslífi bæjarbúa.“ íþróttamenn og tónlistarfólk var áberandi meðal þeirra sem rituðu nöfn sín undir áskorunina en þessir tveir hópar hafa notað skemmuna mest. Mynd: Goiii Strákaskoðunarferðir fyrir saumaklúbba: Nýjung í ferðaþjónustu á Húsavík - „hliðstætt fuglaskoðunarferðum,“ sagði Auður Gunnarsdóttir „Nei, strákarnir fá ekkert greitt fyrir að láta skoða sig og það verður ekki selt neitt ósiðsamlegt á okkar borði. Þessar ferðir verða skipulagð- ar á svipaðan hátt og fugla- skoðunarferðir. Þá koma ferðaþjónustuaðilar viðskipta- vinum sínum á staði þar sem líklegt er að fuglar sýni sig, en þeir fanga ekki fuglana eða reita þá fyrir skoðunina,“ sagði Auður Gunnarsdóttir, sölustjóri hjá Ferðaskrifstofu Húsavíkur, aðspurð um nýj- ung sem skrifstofan er með á döfínni. - Um er að ræða strákaskoðunarferðir fyrir saumaklúbba til Húsavíkur. Það var Páll Þór Jónsson, ferðamálafrömuður sem átti hug- myndina að þessu nýja mark- aðsátaki húsvískra ferðaþjónustu- aðila. Páll fékk hugmyndina er hann hlustaði á spurningakeppni saumaklúbba á Rás 2, en þar er einmitt helgarferð í verðlaun. Páll reiknaði út að líklega tækju alls um 1200 konur þátt í keppn- inni, og hann taldi það aðeins brot af þeim konum sem sætu og létu sig dreyma um að komast að heiman eina helgi, eða þó ekki væri nema eitt kvöld. Markhópur var þar með fundinn, og Páll var sannfærður um hvað konurnar langaði mest til að gera í fríinu - skoða stráka. „Ég tel að Húsavík sé ákaflega vel fallin til strákaskoðunar. Hér búa nokkrir þeirra allra myndar- legustu ungu herra sem fyrirfinn- ast á landinu. Persónulega finnst mér elstu herrarnir stórbrotnast- ir, og við höfum upp á að bjóða nokkra einstaklega vel veðraða sjómenn og bændur á níræðis- aldri, sem oft prýða göturnar og gefa laglegum konum auga. Þær sem hafa smekk fyrir miðaldra menn geta svo sannarlega fundið eitthvað við sitt hæfi á Húsavík. Við höfum nokkur sérlega skrautleg eintök,“ sagði Auður, aðspurð um ágæti Húsavíkurbæj- ar til strákaskoðunar. Hún sagð- ist binda mjög góðar vonir við þessa nýbreytni og vera viss um að vel ætti eftir að seljast í ferð- irnar. Fyrsta ferðin verður síðdegis í dag frá Akureyri til Húsavíkur. Það verður lagt upp frá Umferða- miðstöðinni Hafnarstræti 82 kl. 16. Páll sagði að enn væri ekki uppselt í ferðina, sem hefði lík- lega verið of lítið auglýst. Ferðast verður með rútu frá Birni Sigurðs- syni sérleyfishafa og hún fer síð- an til Akureyrar aftur kl. 10 á fimmtudagsmorgun. Sauma- klúbbarnir munu hafa frjálst val um hvar þeir snæða og gista; á Hótel Húsavík, eða Veitinga- staðnum Bakkanum og Gisti- heimilinu Árbóli. Einnig er þeim frjálst að stunda strákaskoðunina fram á morgun, að vísu á eigin ábyrgð. „Menn eru að skjótast hér á milli húsa alveg framundir morgun,“ sagði Páll, aðspurður um hvort eitthvað þýddi að stunda strákaskoðunina á Húsa- vík um miðjar nætur í miðri viku. IM Skattlagning eignatekna: Hefur áhrif á spariskírteini rflássjóðs Nefnd sú er fjármálaráðherra skipaði til að gera tillögur um skattlagningu eigantekna legg- ur meðal annars til að allar eignatekjur verði skattskyldar. Þar með eru taldar vaxtatekjur af sparnaði ofan við tiltekið frítekjumark. í grein í tímarit- inu Vísbendingu er fjallað nokkuð um spariskírteini ríkis- sjóðs og bent á að skattlagning eignatekna geti haft veruleg áhrif á tekjuöflun ríkisins með þeim hætti. Ríkið verði hugs- anlega að hækka vexti af spari- skírteinum auk þess sem hætta verði á að innlausnir þeirra aukist verulega. Nú eru um 15 þúsund fastir áskrifendur að spariskírteinum ríkissjóðs. Talið er að þeir skili sjóðnum allt að 100 til 150 millj- ónum króna á hverjum mánuði. Spariskírteini ríkissjóðs voru fyrst gefin út árið 1964 og hafa landsmenn því átt kost á að nýta sér þetta sparnaðarform í sam- fleitt 28 ár auk þess sem sparnað- urinn hefur staðið undir margvís- legum framkvæmdum hins opin- bera. Nú eru liðlega 46 milljarðar króna af sparifé landsmanna bundnir í spariskírteinum ríkis- sjóðs og gera má ráð fyrir að það svari til um 40% af öllum íslenska skuldabréfamarkaðnum. í greininni er bent á að sá gíf- urlegi fjöldi fólks, sem kaupir spariskírteini í áskrift sýni best hvað þetta sparnaðarform nýtur mikilla vinsælda á meðal almenn- ings. Einnig er bent á að að ýmsir hafi notfært sér spariskírteinin vegna þess að bréfin hafa verið undanþegin eignaskatti. Fyrir aðila sem greiði eignaskatt þýði sparnaður í ríkisskuldabréfum það að hann geti gert allt að 1,2% til 2,2% lægri ávöxtunar- kröfu til þessa sparnaðarforms. Með upptöku skatta á eignatekj- ur hverfi þessi möguleiki og muni það leiða til þess að ríkið verði að greiða hærri vexti af spariskír- teinum í framtíðinni. Greinar- höfundur gerir A-bréf spari- skírteina sérstaklega að umtals- efni af í þessu tilefni og bendir á að ef til skattlagningar þeirra komi verði þau ekki innleyst á gjalddaga. Bréf í flokknum 1A6 frá 1986 beri nú 9% vexti og sé því ekki hagkvæmt að innleysa þau. í þessum flokki séu bundnir um 7,5 milljarðar króna og búast megi við að til innlausnar þeirra komi í stórum stíl verði skatt- lagningaráformin að veruleika. ÞI Hlynur hf. á Sauðárkróki: Framlenging greiðslustöðvunar Þriggja mánaða greiðslustöðv- un Byggingarfélagsins Hlyns hf. á Sauðárkróki rennur út í dag. í gær lögðu forsvarsmenn fyrirtækisins inn beiðni fyrir framlengingu á greiðslustöðv- uninni hjá bæjarfógetanum á Sauðárkróki, en afstaða til beiðninnar hafði ekki verið tekin þegar blaðið fór í prentun. Að sögn Árna Björns Birgis- sonar, tilsjónarmanns Hlyns hf., er ein ástæðan fyrir beiðni um framlengingu sú, að enn hefur ekki borist svar frá veigamiklum aðila í málinu. Árni sagðist í gær ekki geta sagt annað en það að vissir óvissuþættir væru ennþá varðandi ýmislegt og sagðist ekki geta sagt til um hvert stefndi. SBG

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.