Dagur - 01.04.1992, Side 5

Dagur - 01.04.1992, Side 5
Miðvikudagur 1. apríl 1992 - DAGUR - 5 Með söngvél í farteskinu um land allt: „Get tekið að mér alla skemmtanastjóm“ - segir karaoke-drottningin Inga Sæland Fyrir ári vissu fáir hvaða fyrir- bæri karaoke var en nú kveikir þetta orð ákafa löngun hjá mörgum til að hefja upp raust sína og syngja af hjartans lyst. Inga Sæland frá Ólafsfirði varð fyrsti Islandsmeistarinn í karaoke-söng í keppni sem haldin var á síðasta ári og mál- in hafa þróast þannig hjá henni að nú hefur hún fjárfest í karaoke-tækjum og ferðast um landið sem hljómsveit eða skemmtikraftur. Mekka karaoke-söngs hefur verið í Ölveri í Glæsibæ í Reykja- vík en í vetur hélt tækið innreið sína til Akureyrar og trónir nú í Kjallaranum í Sjallanum. Þangað leggja margir leið sína til að syngja uppáhalds dægurlögin sín við fullkominn undirleik karaoke- vélarinnar sem leggur að auki til bakraddir. Á vegum Sjallans hafa verið haldnar karaoke- keppnir og þar hafa sprottið upp stórgóðir söngvarar. Karaoke-drottningin Inga Sæland sigraði í fyrstu söng- keppninni í Ölveri 1. mars 1991 og skákaði hún þar hátt í 60 keppendum. Syngur og skemmtir við öll tækifæri „Margir halda að karaoke sé bara diskótek og á einni skemmtun sem ég var á góndi fólk forviða á mig þegar ég fór að syngja. Einnig kemur það mörgum á óvart hvað ég er með fjölbreytt lagaval og get spilað og sungið lög fyrir alla aldurshópa," sagði Inga Sæland í samtali við Dag. Hún ferðast nú um með karaoke-tækin og kemur fram sem skemmtikraftur við öll hugs- anleg tækifæri í heimahúsum, fé- lagsheimilum eða á skemmtistöð- um. Þetta er nánast að verða fullt starf hjá henni. „Ég get tekið að mér alla skemmtanastjórn og veislustjórn frá A-Ö. Ég er með dinnertónlist til að spila undir borðhaldi og hvers lags dans- og gleðitónlist. Það hefur verið mikið að gera í vetur og vinsældir karaoke eru að aukast. Mig langar mjög til að komast inn í framhaldsskólana og gefa nemendunum kost á að syngja og kynnast karaoke. Síðan væri upplagt að halda karaoke- keppni framhaldsskólanna,“ sagði Inga. Oft hápunktur kvöldsins þegar einhverjum mistekst Inga Sæland hefur lagt út í mikla fjárfestingu en karaoke-tækin samanstanda af fullkominni hljómtækjasamstæðu með ýms- um græjum, öflugum hátölurum, sjónvarpi, þar sem texti hvers lags birtist á myndbandi, og fjöl- mörgum geisladiskum. Lögin skipta hundruðum og hefur Inga þegar um 100 lög á valdi sínu. „Það er vissulega spennandi fyrir fólk að koma upp og prófa að syngja lag sem það þekkir með undirleik og bakröddum. Sumir halda að þeir syngi allt í einu miklu betur en áður bara með því að nota karaoke en auð- vitað syngur hver með sínu nefi. Undirleikurinn og bakraddirnar hjálpa samt mikið til og einnig textinn sem litast á sama hraða og hann er sunginn þannig að all- ir eiga að geta fylgt laginu eftir,“ sagði Inga. Hún hefur skemmt í einka- samkvæmum í heimahúsum, á árshátíðum og við ýmis tækifæri á skemmtistöðum. Best þykir henni að vera til staðar allt kvöldið, þ.e. vera bæði skemmtikraftur og leika og syngja fyrir dansi á eftir. „í góðum hópi hefur þetta heppnast frábærlega vel. Það næst góð samheldni og þegar komið er stuð í mannskapinn vilja margir koma upp og prófa að syngja. Þetta vekur alltaf mikla lukku hjá hinum og er oft hápunktur kvöldsins, ekki síst ef einhverjum mistekst skelfilega," sagði Inga. Héldu aö hún hreyfði bara varirnar Hún nefndi dæmi um skemmti- kvöld hjá kvennahópi þar sem hún átti að koma og syngja nokk- ur lög milli klukkan 10 og 11. Stemmningin varð svo mikil að söngskemmtuninni lauk ekki fyrr en að ganga fimm um nóttina. Inga hefur vakið athygli sem góð söngkona. Þegar hún tróð eitt sinn upp og söng lög sem þekktar söngkonur höfðu gert víðfræg þá vildu margir meina að söngurinn væri líka spilaður af plötu og að Inga hreyfði bara var- irnar. Upphafið að ferli sínum sem söngkona rekur Inga til Ólafs- fjarðar. Þar var hún að gaufa með hljómsveitum og glamra á kassagítar. Það var hins vegar karaoke sem skaut henni upp á stjörnuhimininn svokallaða. „Ég er kominn með það góð tæki, stór box og kraftmikla magnara, að ég get spilað í íþróttahöllum og mjög stórum sölum. Ég held samt að karaoke komi alltaf til með að verða vin- sælast á árshátíðum og í einka- samkvæmum þar sem gestirnir geta troðið upp sjálfir. Það skap- ast alltaf ólýsanlega góð stemmning," sagði Inga. Að lokum var hin sígilda spurning borin upp, hvort hana langaði ekki til að syngja inn á plötu. „Ég hef gert svolítið af því að semja lög og texta og draumurinn er náttúrlega að gefa út plötu með eigin lögum. Það er hins vegar hulið þoku framtíðar hvort eða hvenær af því verður,“ sagði Inga Sæland. SS „Ég held að karaoke komi alltaf til með að verða vinsælast á árshátíðum og í einkasamkvæmum þar sem gestirnir geta troðið upp sjálfir,“ segir Inga Sæland. Mynd: Golli. Ferðamálanefnd Vestur-Norðurlanda: Opnar skrifstofu í Reykjavík - ferðakaupstefna á Akureyri í haust, Ferðamálanefnd Vestur-Norður- landa hefur opnað skrifstofu í Reykjavík að Lækjargötu 3. Skrifstofan verður rekin innan vébanda Ferðamálaráðs til árs- loka 1993 en þá flyst starfsemin til Grænlands og síðan til Fær- eyja. Verður skrifstofan starf- rækt í tvö ár hjá hverju landanna. Er hér um að ræða nýtt fyrir- komulag frá því sem verið hefur og er ætlunin að ferðamálanefnd- in starfi í náinni samvinnu við ferðamálaráð aðildarlandanna. í nefndinni eiga sæti 3 fulltrúar frá hverju landi. Birgir Þorgils- son, ferðamálastjóri er formaður nefndarinnar, en auk hans eiga Kristín Halldórsdóttir og Pétur J. Eiríksson sæti í nefndinni fyrir íslands hönd. Inga Sólnes, sem var áður upplýsingafulltrúi Ferða- málaráðs, hefur verið ráðin sem verkefnisstjóri hjá nefndinni. Helstu verkefni ferðamála- nefndar Vestur-Norðurlanda eru: - Að vinna að sameiginlegri markaðssetningu og kynningu á ferðamöguleikum og ferða- málum landanna þriggja og að taka þátt í sameiginlegum landkynningum á erlendum vettvangi. - Að stuðla að auknum ferðalög- um innbyrðis milli landanna. - Að skipuleggja fræðslufundi og námskeið fyrir starfsfólk í ferðaþjónustu. - Að vinna að árlegri Vestur- Norrænni ferðakaupstefnu sem haldin verður annað hvert ár á íslandi og hitt árið til skiptis í Grænlandi og í Færeyjum. Næsta ferðakaupstefna verður haldin á Akureyri dagana 24.-26. september næstkomandi og er undirbúningur þegar hafinn. Önnur verkefni eru að vinna sameiginlega að rannsóknum á ferðamálum í löndunum og eru þær rannsóknir þegar hafnar á vegum Félagsvísindastofnunar Háskóla íslands. Nýjar speglaperur Settum nýjar spegla- perur í um helgina Verð: 1 tími kr. 380. - Morguntímar kr. 300. 10 tíma kort kr. 3.100.-5 tíma kort kr. 1.700. Hver tími er 27 mínútur. Skólafólk munið afsláttinn! Opið virka daga frá kl. 9-23 Laugard. frá kl. 9-21 og sunnud. frá kl. 13-20. Skondinavía Rúmenía Spónn, Júgóslovío, Tyrklond, Skotlond o.fl. Póstsendum Hljómdeild 4 „Þor sem úrvolið er" ’ DANSI S S( AM>I • " • st 'AXinN \ViAN |*A* Tónlist fró öllum heimshornum Portúgol Holland

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.