Dagur - 01.04.1992, Side 7

Dagur - 01.04.1992, Side 7
Miðvikudagur 1. apríl 1992 - DAGUR - 7 Nefnd um skattlagningu eignatekna: Eignatekjur verði skattlagðar - eignaskattar lækkaðir á móti svo ekki verði um auknar skatttekjur ríkissjóðs að ræða - efasemdir látnar í ljósi um framkvæmdaatriði Nefnd sem fjármálaráðherra skipaði til að fjalla um skatt- lagningu eigna og eignatekna hefur nú skilað áliti I áfanga- skýrslu. I skýrslunni er meðal annars lagt til að tekjur af eignum verði skattlagðar á sama hátt og um launatekjur væri að ræða þegar ákveðnu frítekjumarki hefur verið náð. Gert er ráð fyrir að skattlagn- ing eignatekna geti skilað ríkis- sjóði allt að 1,5 milljarði króna á ársgrundvelli en það dugar samt ekki til þess að bæta upp það tekjutap er hljótast mun af niðurfellingu eignaskatts og ákveðins sérskatts af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, sem gert er ráð fyrir að falli niður í núverandi formi. í erindisbréfi sem nefnd fjár- málaráðherra starfar eftir er tek- ið fram að þótt samræming á skattlagningu eigna og eigna- tekna verði að veruleika sé ekki sérstaklega verið að stefna að tekjuaukningu ríkissjóðs. Heldur sé einungis verið að tryggja sam- ræmda og sanngjarna skatt- heimtu. Niðurstöður nefndarinn- ar, eins og þær birtast í áfanga- skýrslunni eru í fullu samræmi við þetta markmið þar sem lagt er til að raunvirði tekna af eign- um, þar á meðal vaxtatekjur verði skattlagðar á sama hátt og um launatekjur væri að ræða. Nefndin leggur til að eigna- tekjur verði lagðar við þann tekjuskattsstofn sem fyrir er og beri sama hlutfall til tekjuskatts. Þá gerir nefndin ráð fyrir því að frítekjumark eignatekna verði á bilinu 100 til 150 þúsund krónur fyrir hvern einstakling sem sam- svarar því að hann megi hafa á bilinu frá einni og hálfri milljón til tveggja milljóna króna í tekjur af eignum áður en skattlagning kemur til framkvæmda. Tilfærsla á skattstofnum - frá verðmæti eignar til tekna sem hún aflar Bent hefur verið á að mörg tæknileg vandamál séu á vegi skattlagningar fjármagnstekna og ekki verði fundin lausn á svo flóknum vanda á skömmum tíma. í áfangaskýrslu nefndar fjármálaráðherra kemur meðal annars fram að lagasetning um skattlagningu eignatekna miðist við að einfalda reglur um skatt- lagningu eins og frekast sé kostur og stefnt að því að þær mismuni ekki einstaklingum eða hafi áhrif á hvernig einstaklingar og fyrir- tæki hagi sparnaði sínum eða taki ákvarðanir varðandi fjármál. Nefndin leggur mikla áherslu á að eignatekjur lúti í öllum megin- atriðum sömu reglum við skatt- lagningu og launatekjur og eign- ir, sem hingað til hafa verið uppi- staðan í skattstofnum einstakl- inga og fyrirtækja. Megin breyt- ingin, sem nefndin leggur til í áfangaskýrslunni felst því eink- um í tilfærslu á tekjustofnum - skattur verði lagður á þær tekjur sem eignir viðkomandi aðila gefa af sér en ekki að verðmæti eign- arinnar sjálfrar myndi tekjustofn eins og grundvöllur eignaskatta byggist á. Allar peningalegar eignir skattskyldar - upplýsingasskylda peningastofnana lögfest En til hvaða eigna er gert ráð fyr- ir að hinar nýju hugmyndir um skatta á eignatekjur nái til? í áfangaáliti sínu gerir nefndin ráð fyrir að allar peningalegar eignir verði skattlagðar. Þar með eru taldar innstæður í bönkum, hverskonar verðbréf og stofnfé félaga. í samræmi við skattlagn- ing er taki mið af hækkunum á verðbreytingarstuðli á árinu. Leiðréttingin verði síðan miðuð við meðalstöðu viðkomandi inn- lánsreiknings á sama ári. Þá legg- ur nefndin til að vextir af gjald- eyrisreikningum teljist til skatt- stofns eftir að þeir hafa verið verð þess að meðtöldum vöxtum og verðbótum, ef um verðtryggt skuldabréf er að ræða, að frá- dregnu kaupverði béfsins eftir að það hefur verið uppreiknað sam- kvæmt verðbreytingarstuðli til skattstofns. Á sama hátt telst sölu- eða innlausnarverð hluta- Verslunar- og skrifstofuhúsnæði í byggingu. Sérstakur skattur á slíkt húsnæði fellur niður samkvæmt hugmyndum nefndar fjármálaráðherra um breytingar á skattstofnum. ingu innistæðna og annarra pen- ingalegra verðmæta, sem geymd eru í bönkum verði lögfest ákveðin upplýsingaskylda pen- ingastofnana og annarra aðila á fjármagnsmarkaði gagnvart skattyfirvöldum á sama hátt og nú gildir um launatekjur, arð- greiðslur og ákvæði um skyldu til nafnskráningar verðbréfa. Nefndin telur að lögfesting slíkr- ar upplýsingaskyldu sé forsenda þess að skattlagning eignatekna sé framkvæmanleg. Eignaskattsstofni verði breytt til lækkunar með hliðsjón af hækkuðum tekjuskattsstofni Nefndin leggur til að útreikning- um eignaskatts verði breytt með hliðsjón af hinum hækkaða tekju- skatti, sem fæst með samræmdri skattlagningu eignatekna. í fyrsta lagi verði skatthlutfall sérstaks eignaskatts lækkað að því marki að tekjur af honum haldist óbreyttar. í öðru lagi verði hærra þrep hins almenna eignaskatts afnumið og hann lagður á í sama hlutfalli og allar eignir yfir frí- tekjumarkinu. í þriðja lagi verði frítekjumarkið hækkað þannig að tekjur af almennum eigna- skatti lækki sem nemur auknum skatttekjum af eignatekjum að frádregnum skatti á verslunar- og skrifstofuhúsnæði, sem felldur verður niður. Tekjur af verð- og hluta- bréfum myndi skattstofn - leigutekjur skattskyldar Með skattlagningu eignatekna verður að meta raunvirði þeirra. Nefndin legggur meðal annars til að til skattstofns teljist vextir og verðbætur, sem greiddar eru eða lagðar við höfuðstól. Til frádrátt- ar komi svonefnd vaxtaleiðrétt- umreiknaðir í íslenskar krónur samkvæmt gengi viðkomandi gjaldmiðils. Miða skal við áramót eða útborgunardag vaxta í því sambandi. Þá teljist gjaldfallnir vextir og verðbætur af skulda- bréfum til skattstofns og einnig afborganir og söluverð að frá- dregnu kaupverði sem til greiðslu hefur komið - uppreiknað frá kaupári viðkomandi kröfu. Tekj- ur af skuldabréfum teljist skatt- skyldar hvort sem um verðtryggð eða óverðtryggð skuldabréf verði að ræða. Ef skuldabréf er aðeins með einum gjalddaga telst innlausnar- í kvöld, miðvikudagskvöld, er kvennakvöld í Glerárkirkju kl. 9- 10. Þema kvöldsins er innri upp- bygging. Kynnt verður ýmislegt sem stuðlar að andlegri uppbygg- ingu og því sem er til hjálpar á hinni andlegu vegferð. Kynnt verður Taizé bænatónlistin og ýmsar andlegar æfingar og bænir sem færa okkur nær Guði. Boðið bréfa til skattsstofns að frádregnu uppreiknuðu kaupverði þeirra bréfa sem eru seld eða innleyst. Þá gerir nefndin ráð fyrir að arð- ur af hlutabréfum og tekjur af hlutdeildarskírteinum verði skattskyldur og að ieigutekjur myndi einnig skattstofn. Efasemdir um möguleika til þess að reikna raunvexti af ýmsum eignum Samkvæmt núgildandi skattalög- um bera vaxtatekjur atvinnu- rekstrar, bæði félaga og einstakl- verður upp á söng, tónlist, bæn og fyrirbæn. Kynning verður á kyrrðardögum kvenna sem haldnir verða 28.-31. maí nk. að Hólum í Hjaltadal. Skráning á þá hefst um kvöldið. Aðgangur er ókeypis og allar konur hjartan- lega velkomnar. Fréttatilkynning frá Glerárkirkju. Kvennakvöld í Glerárkirkju inga skatta. Vaxtatekjur ein- staklinga hafa hins vegar verið skattfrjálsar og því er verið að stefna að skattlagningu þeirra með þeim tillögum sem nefnd fjármálaráðherra um skattlagn- ingu eigna hefur nú kynnt í áfangaskýrslu sinni. Ólafur Nilsson, endurskoðandi, benti nýlega á í tímaritsgrein að engin skráning sé til á eigendum spari- skírteina, bankabréfa, hlutdeild- arbréfum og öðrum markaðs- bréfum. í seinni tíð hafi kaup- endur þeirra verið nafnskráðir hjá þeim peningastofnunum og verðbréfafyrirtækjum, sem selt hafa bréfin en þau síðan getað gengið kaupum og sölum á milli aðila án þess að eigendaskiptin séu skráð hjá útgefendum. Ólaf- ur bendir einnig á í grein sinni að sú nefnd er vann að þessum mál- um á vegum fyrri ríkisstjórnar hafi gert ráð fyrir að skattlagning fjármagnstekna miðist við raun- vexti. Nefnd núverandi ríkis- stjórnar stefni að sama mark- | miði. Síðan segir hann að þótt ! æskilegt sé að miða útreikning skattstofnsins við raunvexti, sé um mjög erfitt mál að ræða þegar til framkvæmda komi. Ólafur tel- ur síðan raunar nær útilokað að koma slíkri skattlagningu á svo vit verði í þar sem rauvaxta- útreikningur á ýmsum öðrum eignum en bankainnistæðum verði bæði eigendum þeirra og skattayfirvöldum ofviða. ÞI RÁRGÖTU 36 A söluskrá: SÍMI 11500 Þingvallastræti: 5 herb. einbýlishús á einni hæð ca. 150 fm. Húsið er mikið endur- nýjað. Áhvílandi húsn.lán ca. 5,8 millj. Laust eftir samkomulagi. Lyngholt: 4ra-5 herb. neðri hæð í tvíbýli ásamt bilskúr, samtals ca. 170 fm. Eignin er i mjög góðu lagi. Laus fljótlega. Steinahlíð: 5 herb. raöhús á tveimur hæðum, samtals ca. 136 fm. Eignin er mikið endurnýjuð og er í fyrsta flokks ástandi. Laus snemma í maí. Kringlumýri: Einbýlishús á þremur pöllum með nýlegum rúml. 40 fm bíl- skúr, samtals ca. 235 fm. Eignin hefur verið endurnýjuð að hluta t.d. nýtt eldhús og saunabað. Eignin er laus 1. júlí. Áhvilandi langtimalán ca. 2,0 millj. FASTÐGNA& VJ skipasalaSSI N0RÐURLANDS Cí Glerárgötu 36, 3. hæð Simi 11500 Opið virka daga kl. 14.00-18.30 á öðrum tímum eftir samkomulagi Sölustjóri: Pétur Jósefsson Lögmaður: æ* Benedikt Ólafsson hdl.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.