Dagur - 01.04.1992, Qupperneq 11
Miðvikudagur 1. apríl 1992 - DAGUR - 11
Iþróttir
Jón Haukur Brynjólfsson
Pro Kennex badmintonmótið:
Algerir yfirburðir Sögaards
Um síðustu helgi fór fram a
Akureyri hið alþjóðlega
badmintonmót Pro Kennex.
Gríðarlega mikil þátttaka var í
mótinu og má nefna að um 50
keppendur komu frá Reykja-
vík til að taka þátt í þessum
árlega viðburði. Keppendur
voru á annað hundrað í heild-
ina og var keppt í meistara-
flokki, A- og B-flokki og
öðlingaflokki sem er heiðurs-
flokkurinn, skipaður 40 ára og
eldri. Keppt var í tveimur
íþróttahúsum, íþróttahöllinni
og íþróttahúsi Glerárskóla.
Fjórir erlendir keppendur voru
á mótinu og bar þar hæst hinn 23
ára gamla Dana Michael Sögaard
sem er í 3.-4. sæti yfir sterkustu
einliðaleiksspilara Dana. Hann
hefur unnið sér margt til frægðar
og má helst nefna að hann varð
Norðulandameistari í einliðaleik
og tvíliðaleik árið 1987 í flokki
undir 18 ára og Evrópumeistari í
tvíliðaleik 1987 í flokki undir 18
ára. Hann er númer 34 á heims-
listanum í einliðaleik. Michael
datt úr keppni á All England
mótinu á móti Shao Janhoua í
undanúrslitum í tvísýnum leik
þar sem Kínverjinn hafði betur
15:11 og 15:11. Janhoua sigraði
síðan á mótinu en hann er núver-
andi heimsmeistari í einliðaleik
karla.
Tveir ungir Norðmenn, þeir
Fridjof Berents og Anders-Tand-
berg Johansen voru líka á mótinu
en þeir eru núverandi Noregs-
meistarar í tvíliðaleik karla undir
21 árs. Mike Brown, landsliðs-
þjálfari íslendinga, var einnig
mættur til leiks en hann sigraði
m.a. Brodda Kristjánsson á
Reykjavíkurmótinu fyrir
skömmu.
Mótið tókst í alla staði vel og
var keppnin í meistaraflokki
gríðarlega spennandi og óvænt
úrslit urðu í mörgum leikjum.
Má þar helst nefna að Árni Þór
Hallgrímsson tapaði fyrir Þor-
steini Páli Hængssyni í fyrsta sinn
á þessu ári. Þorsteinn tapaði hins
vegar fyrir Sögaard í næstu
umferð. Ármann Þorvaldsson
spilaði við Brodda Kristjánsson í
fyrstu umferð og fór sá leikur í
oddalotu þar sem Broddi hafði
betur. Broddi spilaði síðan við
Mike Brown og hafði betur í
þetta sinn í spennandi leik. í
úrslitum mættust Broddi og
Sögaard en þeir mættust einmitt
fyrr á þessu ári á Scottish Open
og hafði Daninn þá betur í odda-
lotu. Annað var uppi á teningn-
um í þetta sinn því Daninn hreint
og beint valtaði yfir Bródda og
sigraði hann auðveldlega í tveim-
ur lotum og tók leikurinn ekki
nema um 12 mínútur.
í tvíliðaleik í meistaraflokki
kepptu þeir Broddi og Árni Þór
við Óla Björn Zimsen og Jón
Pétur Zimsen og sigruðu Broddi
og Árni Þór í mjög spennandi
leik.
í A-flokki karla sigraði Anders
Tandberg-Johansen Tryggva
Nielsen í tveimur lotum en hinn
Norðmaðurinn tapaði fyrir Val-
geiri Magnússyni í undanúrslitum.
I tvíliðaleik karla í A-flokki var
úrslitaleikurinn mjög tvísýnn en
þar kepptu Norðmennirnir á móti
Gunnari Petersen og Kristjáni
Daníelssyni og sigruðu íslending-
arnir í oddalotu.
Óhætt er að segja að þarna sé á
ferðinni eitt sterkasta mót sem
haldið er á landinu á ári hverju
og verður að teljast gott að það
fari fram á Akureyri en þar er
umboðsmaður Pro Kennex bú-
settur. Mótið er þegar farið að
vekja talsverða athygli á Norður-
löndunum og er þetta í fyrsta
sinn sem erlendir leikmenn skrá
sig til keppni án þess að vera
boðnir formlega.
Urslit úr mótinu fara hér á
eftir. Við birtum nöfn þeirra sem
léku til úrslita, sigurvegarana á
undan, og tölurnar tákna úrslit úr
leikjunum. Einar Jón Einarsson
Meistarafl. karla: Einliðaleikur
Michael Sögaard, D-
Broddi Kristjánss., TBR 15:4/15:7
Meistarafl. karlar: Tvfliðaleikur
Broddi Kristjánsson/
Árni Þór Hallgrímsson, TBR-
Óli Björn Zimsen/
Jón Pétur Zimsen, TBR 15:12/15:9
Meistarafl. kvenna: Einliðaleikur
Þórdís Edwald, TBR-
Elsa Nielsen, TBR 12:9/11:1
Meistaraflokkur kvenna: Tvfliðaleikur
Þórdís Edwald/
Birna Petersen, TBR-
Michael Sögaard sýndi snilldartilþrif á Akureyri um hclgina. Mynd: Golli
Elsa Nielsen/
Áslaug Jónsdóttir, TBR 15:11/15:3
Meistaraflokkur: Tvenndarleikur
Mike Brown/
Birna Petersen, TBR-
Þorsteinn Páll Hængsson/
Kristín Magnúsdóttir, TBR 17:14/15:9
A-flokkur karla: Einliðaleikur
Anders-Tandberg Johansen, Nor.-
Tryggvi Nielsen, TBR 15:13/15:12
A-flokkur karla: Tvfliðaleikur
Gunnar Petersen/
Kristján Daníelsson, TBR-
Anders-Tandberg Johansen/
Fridjof Berents, Nor. 12:15/15:12/15:8
A-flokkur kvenna: Einliðaleikur
Sigríður M. Jónsdóttir, TBR-
Sigríður Bjarnadóttir, UMSB 11:6/11/0
A-flokkur kvenna: Tvfliðaleikur
Stella Matthíasdóttir/
Hanna Lára Köhler, BH/TBR-
Akureyri:
Mikið fjölmenni á
tveimur glímiunótum
Tvö mjög fjölmenn glímumót
voru haldin á Akureyri um síð-
ustu helgi, Landsflokkaglíman
og Grunnskólamót GLI. Aldrei
hafa jafn margir keppendur
mætt á glímumót, keppendur í
Landsflokkaglímunni voru 85
frá 5 félögum og samböndum
og á Grunnskólamótinu voru
127 keppendur frá 30 skólum.
Landsflokkaglíman er lang-
fjölmennasta meistaramót glím-
unnar frá upphafi. Keppt var í 4
aldursflokkum kvenna og 9
aldurs- og þyngdarflokkum
karla. Flesta íslandsmeistaratitla
hlaut HSK, eða 8 talsins. Skarp-
héðinsmenn voru einnig langfjöl-
mennastir á mótinu eða 50
talsins. Það var KEA sem gaf öll
verðlaun í Landsflokkaglímuna.
Mikil keppnisgleði var ríkjandi
á Grunnskólamótinu og voru
helstu kappar óspart hvattir af
félögum sínum. Allir sigurvegar-
ar fengu bikar til eignar og skóli
þeirra annan stærri til varðveislu
næsta árið. Það var Amaro á
Akureyri sem gaf öll verðlaun.
Það var Barnaskólinn á Laug-
arvatni sem átti langflesta verð-
launahafana eða 10 talsins.
Einnig voru Skútustaðaskóli í
Mývatnssveit og Sólvallaskóli á
Selfossi með öflug lið.
Úrslit í mótunum urðu þessi:
LANDSFLOKKAGLÍMAN
Hnátur 10-11 ára
1. írena L. Kristjánsdóttir KR
2. Valgý Arna Eiríksdóttir HSK
3. Ema Ólafsdóttir UMSE
Tclpur 12-13 ára
1. Katrín Ástráðsdóttir HSK
2. Ólöf Þórarinsdóttir HSK
3. Sjöfn Gunnarsdóttir HSK
Meyjar 14-15 ára
1. Auður Gunnarsdóttir HSK
2. Heiða Tómasdóttir HSK
3. Ingveldur Geirsdóttir HSK
Konur 16 ára og eldri
1. Karólína Ólafsdóttir HSK
2. Guðrún Guðmundsdóttir HSK
3. Sóley Sigmarsdóttir HSK
Hnokkar 10-11 ára
1. Hartmann Pétursson HSK
2. Sölvi Arnarsson HSK
3. Ottó Eyfjörð Jónsson HSK
Piltar 12-13 ára
1. Óðinn Þór Kjartansson HSK
2. Jóhannes Héðinsson HSÞ
3. -4. Rúnar Gunnarsson HSK
3.-4. Sveinn Júlíusson HSK
Sveinar 14-15 ára
1. Ólafur Sigurðsson HSK
2. Torfi Pálsson HSK
3. Magnús Másson HSK
Drengir 16-17 ára
1. Jóhann R. Sveinbjörnsson HSK
2. Ingvar Snæbjörnsson KR
3. Gestur Gunnarsson HSK
Unglingar 18-19 ára
1. Ingibergur J. Sigurðsson UV
2. Tryggvi Héðinsson HSÞ
3. Stefán Bárðarson UV
Karlar -60 kg
1. Garðar Þorvaldsson KR
2. Reynir Jóhannsson KR
Karlar -81 kg
1. Amgeir Friðriksson HSÞ
2. Helgi Kjartansson HSK
3. Yngvi R. Kristjánsson HSÞ
Karlar -90 kg
1. Eyþór Pétursson HSÞ
2. Helgi Bjarnason KR
3. Arngrímur Jónsson HSÞ
Karlar +90 kg
1. Jóhannes Sveinbjörnsson HSK
2. Lárus Björnsson HSÞ
3. Orri Björnsson KR
Ungdómurinn lætur ekki sitt eftir liggja þegar þjóðaríþróttin á í hlut.
GRUNNSKÓLAMÓT GLÍ1992
STÚLKUR
4. bekkur
1. Rakel Theodórsdóttir, B.sk. Laugarv.
2. írena L. Kristjánsdóttir, Grandask.
3. Anna L. Sigurðardóttir, Gr.sk. Hverag.
5. bekkur
1.-2. Erna Ólafsdóttir, Gr.sk. Hrafnag.
1.-2. Valgý A. Sigurðard., Gr.sk. Hverag.
3. Dagný Tómasdóttir, B.sk. Laugarv.
6. bekkur
1. Ólöf Þórarinsdóttir, B.sk. Eyrarb.
2. Unnur Sveinbjörnsdóttir, B.sk. Laugarv.
3. Berglind Ó. Óðinsdóttir, Árskógarsk.
7. bekkur
1. Eyja Hjaltested, Seljalandssk.
2. Katrín Ástráðsdóttir, B.sk. Gaulverja
3. Sjöfn Gunnarsdóttir, B.sk. Gaulverja
8. bekkur
1. Karólína Ólafsdóttir, B.sk. Laugarv.
2. Arnfríður Amgrímsdóttir, Skútustaðask.
3. Sabína Halldórsdóttir, B.sk. Laugarv.
9. bekkur
1. Heiða Tómasdóttir, Hér.sk. Laugarv.
2. Ingveldur Geirsdóttir, Sólv.skóla Self.
3. Emelía Bragadóttir, Skútustaðask.
10 bekkur
1. Guðrún Guðmundsdóttir, Sólv.skóla Self.
■ 2. Emelía Bragad., Skútustaðask. (gestur)
Mynd: JHB
DRENGIR
4. bekkur
1. Benedikt Jakobsson, Áiftanessk.
2. Jón S. Eyþórsson, Skútustaðask.
3. Kjartan Þórarinsson, Lundarsk. Ak.
5. bekkur
1.-2. Daníel Pálsson, B.sk. Laugarv.
1.-2. Hartmann Péturss., Sandvíkursk. Self.
3. Sölvi Arnarsson, B.sk. Laugarv.
6. bekkur
1. Atli Þórarinsson, Lundarsk. Ak.
2. Ólafur Kristjánsson, Skútustaðask.
3. Elvar Þóroddssson, Sólvallask.
7. bekkur
1. Óðinn Þór Kjartansson, B.sk. Laugarv.
2. Daði Friðriksson, Skútustaðask.
3. Jóhannes Héðinsson, Skútustaðask.
8. bekkur
1. Láras Kjartansson, B.sk. Laugarv.
2. Kjartan Kárason, B.sk. Laugarv.
3. Pétur Eyþórsson, Skútustaðask.
9. bekkur
1. Ólafur Sigurðsson, Hér.sk. Laugarv.
2. Magnús Másson, Sólvallask. Self.
3. Guðmundur Sigurðsson, Árskógarsk.
10. bekkur
1. Gestur Gunnarsson, Hér.sk. Laugarv.
2. Rúnar Larsen, Sólvallask. Self.
3. Guðjón Magnússon, Sólvallask. Self.
Sigríður M. Jónsdóttir/
Elín Agnarsdóttir, TBR 15:12/17:14
A-flokkur: Tvenndarleikur
Sigfús Ægir Ámason/
Hanna Lára Köhler, TBR-
Sigríður M. Jónsdóttir/
Haraldur Kornelíus, TBR 15:8/15:10
B-flokkur karla: Einliðaleikur
Jóhann G. Amarsson, TBA-
Sigurður B. Hafþórss., TBA 15:6/15:7
B-flokkur karla: Tvfliðaleikur
Andri Már Þórarinsson/
Jóhann G. Arnarsson, TBA-
Sigurður B. Hafþórsson/
Páll Tómas Finnsson, TBA 15:1/15:3
B-flokkur kvenna: Einliðaleikur
Hrund Guðmundsdóttir, TBR-
Ólöf G. Ólafsdóttir, TBA 11:1/11:0
B-flokkur kvenna: Tvfliðaleikur
Ingibjörg S. Sverrisdóttir/
Vildís K. Guðmundsson, TBR/KR-
Hrund Guðmundsdóttir/
Stefanía Haraldsdóttir, TBR 15:7/15:11
Öðlingaflokkur karla: Einliðaleikur
Haraldur Kornelíus. TBR-
Kristinn Jónsson, TBA 15:3/15:3
Öðlingaflokkur karla: Tvfliðaleikur
Haraldur Kornelíus/
Steinar Petersen, TBR-
Finnur Birgisson/
Sveinn B. Sveinsson, TBA 15:6/15:10
Skíði 13-16 ára:
Bikarkeppni
lokið
Unglingameistaramót íslands
á skíðum, sem fram fór á ísa-
flrði og í Reykjavík um síðustu
helgi, var jafnframt síðasta
bikarmót í aldursflokkum 13-
16 ára og er því orðið Ijóst
hverjir eru bikarmeistarar í
alpagreinum og skíöagöngu.
Ef byrjað er á alpagreinunum.
þá varð Kristján Kristjánsson frá
Reykjavík sigurvegari í flokki
pilta 15-16 ára með 86 stig,
Sveinn Brynjólfsson frá Dalvík í
2. sæti með 67 stig og Róbert
Hafsteinsson, ísafirði, í 3. sæti
með 65 stig. í stúlknaflokki 15-16
ára sigraði Hildur Þorsteinsdótt-
ir, Akureyri, með 100 stig, Theo-
dóra Mathiesen, Reykjavík, varð
í 2. sæti með 90 stig og Sandra
Axelsdóttir, Akureyri, í 3. sæti
með 64 stig.
í flokki drengja 13-14 ára sigr-
aði Egill A. Birgisson, Reykja-
vík, með 73 stig, Torfi Jóhanns-
son, ísafirði, varð í 2. sæti með
59 stig og Jón H. Pétursson, ísa-
firði, í 3. sæti með 57 stig. í
stúlknaflokknum sigraði Sigríður
B. Þorláksdóttir, Isafirði, með
100 stig, Brynja Þorsteinsdóttir,
Akureyri varð í 2. sæti með 80
stig og Hrefna Óladóttir, Akur-
eyri, í 3. sæti með 75 stig.
í göngunni varð Albert Arason
frá Ólafsfirði bikarmeistari í
flokki drengja 13-14 ára. Heið-
björt Gunnólfsdóttir frá Ólafs-
firði sigraði í flokki stúlkna 13-15
ára og Arnar Pálsson, ísafirði, í
flokki drengja 15-16 ára.