Dagur - 01.04.1992, Page 12
m
Akureyri, miðvikudagur 1. aprfl 1992
heimsendingarþj ónust a
alla daga
Sunnudaga til fimmtudaga kl. IZ.OO-ZZ.iSO
Föstudaga og laugardaga kl. 12.00-04.30
Hádegistilboð alla daga
VEITINGÆHUSIÐ
Glerárgötu 20 • ® 26690
Svalbarðsströnd:
Hlutafélagið Fjöregg hf. kaup-
ir alifuglabúið Fjöregg í Svein-
bjarnargerði á Svalbarðsströnd
nú um mánaðamótin. íslands-
banki eignaðist búið eftir upp-
boð í kjölfar gjaldþrots fyrrum
eiganda búsins á síðasta ári og
í framhaldi af því keypti bank-
inn bústofninn.
Árni Pálsson, lögfræðingur
íslandsbanka, staðfesti í gær að
nýju eigendurnir taki við búinu
nú um mánaðamótin. Hann vildi
ekki gefa upp kaupverð þar sem
samningur hafi ekki verið undir-
ritaður en sagðist ekki sjá að
neitt komi í veg fyrir að af kaup-
unum verði. Fjöregg hf. kaupir
jörð og fasteignir í Sveinbjarn-
argerði en leigir bústofninn af
íslandsbanka.
Meðal þeirra sem standa að
nýja félaginu eru Anny Larsdótt-
ir, eiginkona Jónasar Halldórs-
sonar og Haukur Halldórsson.
JÓH
Skagaströnd:
RARIK eykur varaaflið
Rafmagnsveitur ríkisins tóku í
gær í notkun nýja 800 kfló-
watta díselvél á Skagaströnd.
Með tilkomu þessarar vélar
eykst varaafl á Skagaströnd í
70% hlutfall, en fyrir var 600
kflówatta díselvél. Kostnaður
við framkvæmdina er um tíu
milljónir króna.
Að sögn Hauks Ásgeirssonar,
svæðisrafveitustjóra, er míkíl
búbót fyrir Skagstrendinga að fá
þessa nýju díselvél, þar sem
háspennulínur við Skagaströnd
liggja á miklu áhættusvæði hvað
ísingu varðar. Síðustu tuttugu
árin hafa t.a.m. þrisvar sinnum
orðið alvarleg tjón á raflínum
milli Skagastrandar og Laxár í
Refasveit og þar af tvö á síðasta
ári.
„Með þessari aukningu á vara-
afli eiga íbúðarhús á Skagaströnd
ekki að kólna niður þó að Skag-
strendingar njóti ekki rafmagns
frá landskerfinu af einhverjum
orsökum. Þá geta frystihús og
önnur fiskvinnslufyrirtæki einnig
verið öruggari um að afurðirnar
komi ekki til með að liggja undir
skemmdum vegna raforkuskorts,“
segir Haukur Ásgeirsson. SBG
Benedikt Kristjánsson hjá Máli og menningu og Eyjólfur Sigurðsson hjá Skjaldborg, við hluta bókastaflans sem fæst
gefins í dag. Mynd: Golli
Stóri bókamarkaðurinn á Akureyri:
Allar bækur sem ekki
seldust fást gefuis í dag
- „teljum ekki svara kostnaði að flytja bækurnar
suður aftur,“ segir Björn Eiríksson
Aðalfundur Hlutabréfasjóðs Norðurlands:
Hluthafar eru orðnir 263
Ávöxtun Hlutabréfasjóös
Norðurlands hf. þá fjóra mán-
uði sem hann hefur starfað
svarar til 12,1% raunávöxtun-
ar á ári. Góð ávöxtun er ann-
ars vegar rakin til góðrar
ávöxtunar á bankavíxlum og
hins vegar að húsbréf, sem
sjóðurinn keypti í byrjun
janúar, hafa hækkað í verði.
Þetta kom fram á aðalfundi
Hlutabréfasjóðsins í gær.
Hlutabréfasjóður Norðurlands
hf. var stofnaður 14. nóvember á
síðasta ári og var tilgangurinn
með stofnun hans að skapa far-
veg fyrir samvinnu einstaklinga
og lögaðila til fjárfestinga í
hlutabréfum og skuldabréfum
atvinnufyrirtækja. Á þeim stutta
tíma sem sjóðurinn starfaði á síð-
asta ári seldi hann hlutabréf fyrir
25 milljónir króna. Þann 30. mars
sl. var hlutafé 28,5 milljónir
króna og hluthafar alls 263.
Á aðalfundinum í gær var
stjórn Hlutabréfasjóðs Norður-
lands hf. endurkjörin. Hana
skipa Róbert B. Agnarsson, for-
maður, Halldór Jónsson og Ingi
Björnsson. Til vara voru kjörin
Lilja Steinþórsdóttir, Kári Arnór
Kárason og Árni Magnússon.
Björgólfur Jóhannsson var kjör-
inn endurskoðandi. óþh
„Við teljum það ekki svara
kostnaði að flytja allar þær
bækur suður aftur sem ekki
seldust á bókamarkaðnum og
því höfum við ákveðið að hafa
opið í dag, miðvikudag, og gefa
fólki þær bækur sem eftir
eru,“ sagði Björn Eiríksson,
bókaútgefandi í Skjaldborg í
samtaii við Dag. „Það má þó
enginn taka fleiri en 10 bækur,
þannig að allir þeir sem koma
fái bækur,“ bætti Björn við.
Stóri bókamarkaðurinn hefur
staðið yfir í kjallara kjörmarkaðs
KEA í Hrísalundi á Ákureyri og
sem fyrr segir getur fólk komið
þangað í dag á milli kl. 9.00-
12.00 og valið sér allt að 10 bæk-
ur án þess að borga fyrir þær eina
einustu krónu.
„Við seldum um 60.000 bækur
á markaðnum að þessu sinni og
erum nokkuð ánægðir með þann
„Allar kvíar fullar af úrvalsfiski,“
- segir Eyjólfur Konráð Jónsson, stjórnarformaður ísnó
„Fiskeldið gengur frábærlega
vel í lónunum, þar eru ævin-
týralegir hlutir að gerast. Það
eru allar kvíar fullar af úrvals-
físki og við getum farið að
slátra 100 tonnum strax og síð-
an öðrum 100 tonnum að því
loknu. Við stöndum í samning-
um um sölu á þessum fiski og
ættum síðan að geta staðið skil
á öllum okkar viðskiptum við
Landsbankann,“ sagði Eyjólf-
ur Konráð Jónsson, alþingis-
maður og stjómarformaður
Isno, aðspurður um stöðu
fyrirtækisins.
ísno hefur átt í fjárhagserfið-
leikum að undanförnu en Eyjólf-
ur Konráð sagðist eiga von á að
úr rættist og var bjartsýnn á fram-
tíðina er Dagur ræddi við hann í
gær. Hann sagði að skuldir fyrir-
tækisins væru taldar um 600 millj-
ónir, en eignir þess væru miklu
meiri. Þetta ár yrði erfitt en hann
vonaði að hlutirnir yrðu auðveld-
ari viðfangs á næsta ári.
„Þetta er orðið gamalt félag að
stofni til. Snorri heitinn Hall-
grímsson, prófessor og Kristinn
Guðbrandsson byrjuðu fyrir um
35 árum síðan. Við höfum þessa
stofna, norska stofninn sem rækt-
aður hefur verið áratugum saman
og vex um 20% hraðar en
íslenski stofninn, og svo erum við
komnir með stofn úr Laxá í
Aðaldal, stórfiskastofn sem
slagar orðið talsvert upp í þann
norska. Við erum einnig með
hafbeitarstofn sem við höfum
verið með í lónunum allan
tímann, en bara í litlum mæli
vegna þess að þetta var allt drep-
ið í hafi. Nú er búið að stöðva
það, þannig að framtíðin er
björt,“ sagði Eyjólfur Konráð.
Hann sagði að aðstaða til fisk-
eldis í Lónum í Kelduhverfi væri
ævintýralega góð. Að Öxnalæk í
Ölfusi er ísnó með seiðaeldisstöð
sem Eyjólfur Konráð sagði að
gengi einnig sérlega vel: „Þar
dræpist hreinlega ekki eitt ein-
asta kvikindi." Allt væri þar orð-
ið fullt af stærðar seiðum sem
þyrfti að fara að flytja í kvíar
Isno við Vestmannaeyjar, til
framhaldseldis fyrir Frakklands-
markað.
„Við erum með frábært starfs-
fólk og samhent,“ sagði stjórn-
arformaður ísno. IM
árangur. Það hafa margir titlar
selst upp en þó ættu allir þeir sem
koma hingað í dag, að finna
eitthvað við sitt hæfi. Ekki síst
þar sem þeir fá bækurnar frítt."
Björn sagði að vel hafi tekist til
með að hafa markaðinn í kjallara
Hrísalundar og raunar hafi báðir
aðilar hagnast á því. Salan var
nokkuð svipuð og síðustu ár en
þó hefur heldur orðið aukning á
milli ára.
„Þessi mikla sala á Akureyri,
gefur okkur byr undir báða vængi
og ég tel allar líkur á því að við
komum með bókamarkaðinn aft-
ur norður að árj,“ sagði Björn
Eiríksson. -KK
Hluthafafundur í Laxá hf.:
Nýtt hlutafé háð
samningum um kaup
á fóðurverksmiðjunni
Á hluthafafundi hjá Laxá hf.
sl. mánudag var samþykkt að
fela framkvæmdastjóra og lög-
fræðingi fyrirtækisins að halda
áfram samningaumleitunum
um kaup á eignum þrotabús
Istess, þ.e. húseignum og tækj-
um fóðurverksmiðjunnar.
„Framkvæmdastjóri og lög-
fræðingur fengu endurnýjað
umboð til að ganga til viðræðna
við bústjóra og kröfuhafa um
kaup á verksmiðjunni. Söfnun á
nýju hlutafé í fyrirtækið hefur
staðið yfir og það hefur orðið
dálítill árangur. Við vonumst eft-
ir að safna meiru en þegar er
komið,“ sagði Magnús Gauti
Gautason, stjórnarformaður
Laxár, í samtali við Dag.
Hann bjóst við að línur færu að
skýrast í vikunni en tilboð Laxár
í eignir þrotabús ístess hefur ver-
ið í skoðun hjá bústjóra og
Landsbankanum undanfarna
þrjá mánuði. Loforð um aukið
hlutafé í Laxá ætti að geta orðið
til þess að leysa hnútinn.
Magnús Gauti kvaðst ekkert
geta sagt um það hverjir kæmu
inn með nýtt hlutafé en sagði að
hlutafjárloforðin væru háð því að
samningar næðust um kaup á
fóðurverksmiðjunni. SS
Akureyri:
Ekið á konu á
Þingvallastræti
Kona varð fyrir bfl á Þingvalla-
stræti á Akureyri, á móts við
Brauðgerð Kr. Jónssonar, í
gær. Konan var flutt á Fjórð-
ungssjúkrahúsið, en meiðsl
hennar voru ekki talin alvar-
leg.
Slysið varð á fimmta tímanum
í gær. Bifreiðin skemmdist tölu-
vert, húdd beyglaðist og fram-
rúða brotnaði.
Þá voru þrjú önnur óhöpp í
umferðinni á Akureyri í gær-
morgun. Engin slys urðu á fólki.
Lögreglan á Akureyri sagði að
aðstæður til aksturs í gær hefðu
verið allar hinar ákjósanlegustu,
en því miður færu oft saman góð-
ar aðstæður og tíð umferðar-
óhöpp. óþh