Dagur - 11.06.1992, Síða 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 11. júní 1992
Spurning vikunnar
Hefurþú farið á ættarmót?
Örn Birgisson:
Ég fór til ættarmóts á Grenivík
fyrir tveimur árum og hafði
gaman af. Ættboginn frá Hlöð-
um er stór og ættarmótið
heppnaðist sem best var á
kosið.
Haraldur Ringsted:
Ég fór með eiginkonunni á ætt-
armót að Ketilási í Fljótum.
Þátttakendur voru hart nær
fjögur hundruð. Samkoman
stóð í þrjá daga og heppnaðist
vel. Ættingjar konunnar komu
víða að m.a. frá Ameríku og
Noregi. í sumar verður mitt fólk
með ættarmót í Höfðahverfi.
Árni Ingimundarson:
Ég er ættrækinn, en engu að
síður fór ég ekki til ættarmóts er
haldið var í Skagafirði. Veiði-
bakterían hafi vinninginn.
Halldór Haligrímsson:
Nei, til ættarmóts hef ég ekki
farið. Breiðfirðingar eru ætt-
ræknir, en togaramennskan
hefur komið í veg fyrir að ég
hafi mætt til slíks mannfagnað-
ar.
Hildur Sigbjörnsdóttir:
Við héldum ættarmót í vetur.
Ættarmótið var ekki síður
skemmtilegt fyrir unga fólkið.
Þarna kynntist ég mörgum er
ég þekkti ekki áður.
Verslun í sunnanverðu Hafnarstræti:
Furðumikil þrátt fyrir
takmarkanir á umferð
Nú á vordögum hefur Hafnar-
strætið sunnan Kaupvangs-
strætis verið grafíð upp og hefur
eiginlega engum nema fuglin-
um fljúgandi verið fært að
komast í þær verslanir, skóla ,
hótel og önnur fyrirtæki sem
þar starfa en umferð verður
væntanlega hleypt á aftur á
allra næstu dögum. Hinn 18.
aprfl í vor opnaði Skóverk-
stæði Gísla Ferdinandssonar
að Hafnarstræti 88 og er þar
rekin bæði verslun og skó-
smíðaverkstæði. Yerslunar-
stjórinn, Elín Þorvaidsdóttir
skósmiður, var spurð að því
hvort það kæmi niður á við-
skiptunum að höndla við „um-
ferðarlausa“ götu.
„Mér finnast viðskiptin hafa
verið furðu mikil miðað við
að það hefur varla verið hægt
að komast hingað á meðan á
þessum framkvæmdum stendur.
Kolbeinn Gíslason bæklunar-
skósmiður kemur hingað þriðju
hverja helgi og er þá með mót-
töku en þær eru reyndar auglýst-
ar sérstaklega. Öll innlegg eru
smíðuð á staðnum og afgreidd
sömu helgi og þau eru pöntuð og
það er mikil breyting frá því sem
áður var. Fólk virðist vera að átta
sig á því að þessi þjónusta er
komin hingað en hún var áður
veitt úti á Bjargi. Þá verslar fólk
ef til vill í leiðinni en auk skóvið-
gerða erum við líka með sölu á
nýjum skóm sem við flytjum inn
m.a. frá Hollandi og Englandi."
Elín lærði skósmíðaiðnina í
Reykjavík en hafði starfað hálft
ár á Húsavík áður en hún kom til
Akureyrar. Elín segir að mark-
aðurinn á Húsavík hefði verið of
lítill til þess að verkstæði gæti
gengið þar til langframa. GG
Stúdentaefni M.A.:
Hvfld frá námsbókum
- hjá einhverjum hluta nemenda á komandi vetri
Það var mjög hljótt á efsta
gangi Heimavistar MA þegar
blm. bar þar að garði í síðustu
viku en þá voru flest stúdenta-
efnin þetta vorið að lesa undir
síðasta próf og ekki laust við
að nokkurs feginleika og til-
hlökkunar gætti. Enda ætlaði
stór hluti hópsins að fagna
próflokun og halda austur í
Vaglaskóg um komandi helgi í
þeim tilgangi.
Á einu herberginu sátu þrír
nemar og ræddu aðallega lands-
ins gagn og nauðsynjar með
skólabækurnar í höndunum. Þau
voru Ásgrímur Angantýsson frá
Raufarhöfn sem er að ljúka
þriðja vetri sínum hér en hann
var fyrsta veturinn á Laugum og
segir veruna á heimavistinni
alveg stórfína; Einar Hafberg frá
Flateyri sem hefur búið úti í bæ
síðustu tvö árin en var tvö fyrstu
árin í skólanum á heimavistinni
og Herdís Kjartansdóttir frá
Hólmavík sem hefur verið á
heimavistinni öll fjögur skólaárin
og líkar það stórvel.
Þeim fannst það ekkert erfitt
að vera að lesa þótt komið væri
fram á sumar og vildu viðhalda
þeirri „tradition" hjá MA að
hefja skóla í október og útskrifa
ekki stúdenta fyrr en um miðjan
júnímánuð. Það væri líka ágætt
að Menntaskólinn á Akureyri
skæri sig úr hvað skólatíma varð-
aði.
Þetta fyrirkomulag væri einnig
ágætt gagnvart sumarvinnunni,
en Einar sagðist vinna í fiski vest-
ur á Flateyri og það væri oft
miklu meira að gera í septem-
bermánuði og því væru meiri
möguleikar fyrir hann að hafa
hærri sumartekjur en ella. Einar
fer vestur í fiskvinnu í sumar,
Herdís fer að vinnu í sjoppu á
Hólmavík og Ásgrímur vinnur í
frystihúsinu á Raufarhöfn.
En hvað ætla þau að taka sér
fyrir hendur næsta vetur?
„Ég ætla að reyna að fá vinnu
við kennslu þótt það sé ekki allt
of vel borgað og hef nokkra von-
um að það muni takast“ sagði
Ásgrímur Angantýsson.
„Ég ætla ekki í háskóla fyrr en
þar næsta vetur og vinna annað
hvort heima á Hólmavík eða í
Reykjavík. Ég ætla í Inter-rail
lestarferð um Evrópu í septem-
ber með vinkonu minni sem
stendur í mánaðartíma. Ég ætla
einnig að safna mér fyrir bíl svo
ég verð að hafa sem hæstar
tekjur.“
„Ég ætla að fara að búa með
kærustunni minni og fá vinnu hér
á Akureyri en önnur framtíðar-
plön eru nokkuð óljós" sagði
Önfirðingurinn Einar Hafberg.
Og þar með yfirgaf blm. heima-
vistina enda lá fyrir próf í ensku
og frönsku að morgni hjá þeim
þremenningunum og ekki vert að
trufla þann undirbúning frekar.
GG
Væntanlegir stúdentar: Einar Hafberg, Ásgrímur Angantýsson og Herdís
Kjartansdóttir. Mynd: GG