Dagur - 24.06.1992, Blaðsíða 3

Dagur - 24.06.1992, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 24. júní 1992 - DAGUR - 3 Fréttir Ólafsijörðiir: Ferðafólki boðið upp á skipulagðar ferðir - m.a. gönguferðir um nágrennið Rekstur Hótels Ólafsfjarðar hefur gengið þokkalega í vor en færri ferðamenn hafa komið til Ólafsfjarðar það sem af er sumri en áætlanir gerðu ráð fyrir. í fyrrasumar keypti Skelj- ungur hf. um 97% af hlutafé hótelsins og í sumar verður haf- ist handa við byggingu nýrrar bensínstöðvar á lóð hótelsins og verður hún tekin í notkun vorið 1993. Ósk Ársælsdóttir var ráðin hótelstjóri frá 1. maí sl. en hún var áður starfsmaður Ferðaskrif- stofu ríkisins. Engir auglýsinga- bæklingar voru gefnir út fyrir þetta sumar en Skeljungur mun auglýsa hótel með einhverjum hætti á bensínstöðvum sínum. Nokkuð verður um hópa frá Ferðaskrifstofu íslands í hádeg- isverð í sumar, en það eru hópar sem ferðast fyrst og fremst um há- lendið og bera nafnið „Fjöll og firðir". 11 herbergi eru á hótelinu en einnig verður boðið upp á svefnpokapláss í Gagnfræða- skólanum. í sumar verða skipulagðar gönguferðir í nágrenni Ólafs- fjarðarbæjar og boðið verður upp á miðnætursiglingar og jafnvel sjóstangveiði. Verið er að setja upp á upplýsingamiðstöðvum fyr- ir ferðamenn 15 tölvuskjái eða „Ferðavaka" en með snertitökk- Alþýðuflokkurinn: Sigurður í gjaldkerastólinn Á flokksþingi Alþýðuflokksins nú nýverið var Sigurður Arnórsson, varaþingmaður flokksins í Norðurlandskjör- dæmi eystra, kosinn í stjórn flokksins. Hann verður gjald- keri næstu tvö árin. Sem kunnugt er var Jón Bald- vin Hannibalsson endurkjörinn formaður flokksins og Jóhanna Sigurðardóttir varaformaður. Rannveig Sigurðardóttir verður ritari og Sigurður Arnórsson gjaldkeri. Langt er síðan fulltrúi af landbyggðinni hefur átt sæti í aðalstjórn flokksins. Á flokksþinginu var einnig kosið í flokksstjórn og fékk Kristján Möller á Siglufirði flest atkvæði í því kjöri. JÓH um framkallast ntynd þar sem ferðamenn geta fengið upplýsing- ar um einstaka ferðamannastaði, hótel o.fl. Einnig er þar hægt að fá upplýsingar um hvar styst er í næstu hótelgistingu ef öll hótel á viðkomandi stað eru fullbókuð. Mögulegt er að komast í síma- samband við hótel eða veitinga- staði gegnum „Ferðavaka" en liann verður m.a. settur upp á Akureyrarflugvelli og í Upplýs- ingamiðstöð ferðamála á Akur- eyri. Ósk telur að þessi nýja þjón- usta við ferðamenn verði ferða- mannaþjónustunni á landsbyggð- inni mikill stuðningur. ÓG Húsið að Kaupvangsstræti 23, sunnanmegin í Listagilinu, er nú að taka á sig mynd og í vikunni verður lokið við að pússa það að utan. Þá á aðeins eftir að steypa stéttar fyrir utan, ganga frá sökkíinum og mála. Notuð hefur verið alíslcnsk múrklæðning utan á húsið og er þetta í fyrsta sinn sem það er gert á Akureyri. „Notuö er ný tækni sem byggist á að húsið er einangraö utanfrá og hefur það í för með sér að varmatap og sprungumyndun minnka. Húsið verður því í jöfnu hita- og rakaástandi sem þýðir minni spennur og minni sprungur," sagði Bjarni Bjarnason hjá B. Bjarnason og Co. sem séð hefur um múrverkið utanhúss. JHB/Mynd: gt Nefnd menntamálaráðherra um mögulega stofnun kennaradeildar við Háskóiann á Akureyri: Engin fræðfleg né skipulagsleg rök mæla gegn starfsemi af Mum krafti haustíð 1993 Nefnd menntamálaráðherra sem skipuö var sl. haust til að fjalla um mögulega kennara- deild við Háskólann á Akur- eyri hefur nú skilað skýrslu sinni. Þar áréttar nefndin að það sé umfram allt stjórnar- farsleg ákvörðun mennamála- ráðherra hvenær rétt sé að kennaradeild verði komið á fót við skólann en nefndin telur engin augljós fræðileg eða skipulagsleg rök mæla gegn því að deildin hefji starfsemi sína af fullum krafti á árinu 1993. Þorsteinn Gunnarsson, upp- eldisfræðingur, veitti nefndinni forstöðu en aðrir nefndarmenn voru Kristján Kristjánsson, heimspekingur, sem tilnefndur var af Háskólanum á Akureyri, Ólafur Arngrímsson, skólastjóri, sem tilnefndur var af Bandalagi kennara á Norðurlandi eystra og Trausti Þorsteinsson, fræðslu- stjóri, sem tilnefndur var af Húnavatnssýslur: Úrval húnvetnsks heim- ilisiðnaðar í Bardúsu Verslun með húnvetnskan heimilisiðnað var opnuð á Hvammstanga í fyrrasumar og hlaut hún nafnið Bardúsa. Hinn 5. júní sl. var verslunin opnuð aftur eftir vetrarhlé og er meiri fjölbreytni nú í vöru- vali en í vetur hafa verið haldin nokkur námskeið í sýslunni og afrakstur þess má nú berja aug- um. Helsta breyting er sú að meira er nú af alls konar munum úr tré en var í fyrra en með fleiri þátt- takendum eykst vöruúrvalið að sjálfsögðu. Aðeins hefur lifnað yfir ferðamannastraumnum í Húnavatnssýslu en aðallega eru það ferðamenn á eigin vegum sem um héraðið fara og þá helst íslenskir. Stærri hópar hafa lítið verið á ferðinni enn sem komið er- GG Hótel Vin á Hrafnagili: Vísindaráðsteftia hefst í dag - um köfnun jurta við lágt hitastig I dag hefst á Hótel Vin á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit alþjóðleg vísindaráðstefna þar sem færustu menn á sviði jurtalífeðlisfræði munu fjalla um köfnun jurta við lágt hita- stig. Ráðstefnan er haldin fyrir fjárframlag frá alþjóða menn- ingarmálastofnuninni, UNESCO, og með stuðningi landbúnaðarráðuneytisins. Ráðstefnunni lýkur á hádegi á föstudag. Að skipulagningu ráðstefnunn- ar standa Tilraunastöðin á Möðruvöllum, Háskólinn á Akureyri, Náttúrufræðistofnun Norðurlands og Ræktunarfélag Norðurlands. Alls taka á þriðja tug aðila þátt í ráðstefnunni, þar af 13 íslendingar. Að sögn Bjarna Guðleifsson- ar, sem unnið hefur að undirbún- ingi ráðstefnunnar, þá telst til tíðinda af ráðstefna af þessu tagi skuli haldin á íslandi og til henn- ar fáist fremstu vísindamenn á þessu afmarkaða sviði. í>á segir Bjarni einnig markvert að á ráð- stefnunni hittist og beri saman bækur sínar tveir hópar vísinda- manna sem báðir stundi rann- sóknir á köfnun plantna við lágt hitastig. Annars vegar sé um að ræða vísindamenn sem beini sjónum sínum að köfnun jurta yfir frostmarki, þ.e. við svellkal, og hins vegar vísindamenn sem rannsaki köfnun jurta við hitastig yfir frostmarki, t.d. við flóð. Auk íslendinganna verða fyrir- lesarar á ráðstefnunni frá Bret- landi, Rússlandi og Kanada. JÓH Fræðsluskrifstofu Norðurlands- umdæmis eystra. í erindisbréfi sínu fékk nefndin það hlutverk að kanna nauðsyn á og forsendur fyrir menntun grunnskóla- kennara við Háskólann á Akur- eyri og hins vegar að gera tillögur um kennsluskipan og námsskrá deildarinnar sem og að yfirfara fyrirliggjandi áætlanir um kostn- að og starfsmannaþörf. í skýrslu sinni gera nefndar- menn að umræðuefni rök sem mæla með og á móti stofnun kennaradeildar við skólann. Nefndarmenn telja að fleira þurfi að koma til en þau rök að kenn- aradeild verði veruleg lyftistöng fyrir þá ungu stofnun sem skólinn er. Langsterkustu rökin fyrir stofnun kennaradeildar við Háskólann á Akureyri og þau einu sem teljist fullnægjandi að dómi nefndarinnar, væru að ætla mætti að slík deild gæti dregið úr hinum alvarlega kennaraskorti sem er á landsbyggðinni. Höfuð- spurningin snúist um fagleg sjón- armið varðandi eflingu kennara- náms í landinu og hins vegar um byggðasjónarmið, þ.e. hvort raunhæft sé að ætla að hærra hlutfall útskrifaðra kennara frá HA færi til starfa á landsbyggð- inni. Nægjanleg byggðarök liggi fyrir til að mæla með stofnun kennaradeildar við skólann. JÓH Takið eftir Við höfum iokað í Hafnarstrœti 98. Filmumóttaka og ósóttar myndir er í Hofsbót 4 til miðvikudagskvölds. Opnum í Skipagötu 16 fimmtudaginn 25. júní kl. 13.00. 1 L -7= _ ■" : - ásáa - :: ^PeóHomyndii^ Skipagötu 16.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.