Dagur - 24.06.1992, Blaðsíða 5

Dagur - 24.06.1992, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 24. júní 1992 - DAGUR - 5 Golfkúlur slegnar í kulda og trekki á Jaðri Kappklæddur golfliópurinn að Jaðri í gærinorgun ásanit leiðbeinendum og fararstjórum. Ove T. Ness er lengst til hægri í aftari röð, en Anders Pedersen lengst til vinstri í fremri röð. Myndir: óþh. Það var ekki laust við að væri hrollur í golfköppunum sem mættu upp í golfskálann að Jaðri í gærmorgun, enda lofthiti vart meira en 4 stig. Þeir höfðu þó sem betur fer klætt sig í sam- ræmi við aðstæður og létu norð- ankaldann ekkert á sig fá. Hinar eiginlegu golfæfingar hófust ekki fyrr en í gær, en í fyrra- dag kynnti golfhópurinn sér að- stæður á Jaðri. Þátttakendur eru komnir misjafnlega langt í golfí- þróttinni, sumir hafa náð 3-4 í for- gjöf sem er í raun meistara- flokksárangur, aðrir eru allt að því byrjendur. Aðstæður eru enda misjafnlega góðar til iðkunar golf- íþróttarinnar í vinabæjunum. I Alasundi er enginn golfvöllur. en kylfingar þar eru ekki af baki dottnir og hyggjast koma sér upp golfvelli að ári, að sögn Ove T. Ness eins af norsku þátttakendum í golfhópnum. Ove sagðist hafa óskaplega gaman af golfinu, en þvf kynntist hann vestur í Bandaríkj- unum þegar hann bjó þar. Ove undraðist hversu góður golfvöllur- inn að Jaðri væri, ekki síst þegar haft væri í huga hve norðarlega hann væri. En hvemig leggst í hann að spila golf í þessum skelfi- lega kulda? „Það er allt í góðu lagi, maður klæðir sig bara vel,“ sagði hann og brosti. Anders Pedersen er einn kylf- inganna frá Randers. Honum leist vel á aðstæður að Jaðri, þrátt fyrir kuldann. Hann sagðist vissulega hafa spilað í rigningu og leiðinda veðri í Danmörku, en aldrei hafi verið eins kalt í veðri að sumarlagi og hér á Jaðri. „Það er ekki um annað að ræða en að klæða sig vel,“ sagði Anders ákveðinn á svip, en hann hefur stundað golf í átta ár, þrátt fyrir ungan aldur. Anders var ánægður með vina- bæjainótið og sagði það nauðsyn- legt til að efla tengsl ungmenna frá Norðurlöndunum. Eins og alþjóð veit eru Danir komnir í úrslit Evrópumótsins í knattspyrnu í Svíþjóð eftir fræki- legan sigur á Hollendingum sl. mánudag. Fylgdist Anders með leiknum? „Þú getur nú rétt ímynd- að þér,“ svaraði hann og ekki var laust við undrunartón í röddinni. „Ég var alveg yfir mig ánægður með sigurinn,“ bætti hann við. Golfkennslunni verður fram haldið að Jaðri fyrir hádegi í dag og ef veður leyfir verður efnt til golfmóts eftir hádegið. Á morgun er ætlunin að fara með hópinn í heimsókn til Húsavíkur og stefnt er að lokamóti að Jaðri frá kl. 9 til 13 nk. föstudag. Aðalleiðbeinandi golfhópsins er Jón Baldvin Hannesson. á Akureyri í dag - kvöld * I kvöld verður að vanda opið hús á skemmtistaðnum 1929. Fyrst og fremst verð- ur diskótek, en aldrei er að vita nema verði einhverjar uppákomur. Rétt er að minna á að annað kvöld verður mikið um að vera í 1929. Þá spilar ekki ómerk- ari hljómsveit en Snigla- bandið fyrir dansi og hópur úr Leiklistarskóla íslands sýnir leikatriði. Það skal ít- rekað að öllum er heimill ókeypis aðgangur að opnu húsi í 1929 í kvöld og annað kvöld. * Myndlistarhópurinn fór strax sl. mánudag austur í Öxar- fjörð til að afla sér „hráefn- is“ til að vinna úr. Hópurinn kom seinnipartinn í gær úr leiðangrinum og mun í dag byrja að vinna úr öllu því sem fyrir augu bar fyrir austan. * í kvöld verður kvöldverður fyrir fulltrúa Norræna fé- lagsins, embættismenn frá vinabæjum, bæjarfulltrúa og aðalfararstjóra í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit, alls um 95 manns. Sænski lciklistarhópurinn fyrir franian Samkomuhúsið. Efri röð frá vinstri: Ulrika Person, Therese Söderquist, Kim Lindedahl, Susanne Olby og Kjell Wremert, leikstjóri. Fyrir framan þau sitja frá vinstri Johanna Höök og Kajsa Aman. Leiklistarkrakkarnir frá Vásterás: Sýna í dag leikrit byggt á sögu eftir Selmu Lagerlöf í dag kl. 18 verða krakkarnir frá Vásterás með sýningu í Sam- komuhúsinu, sem byggð er á þekktri sögu eftir nóbelsskáldið Selmu Lagerlöf. Sýningin tekur um 45 mínútur og er öllum heimill ókeypis aðgangur. Að þeirra sögn er hér um ræða dæmigerða ljúfa norræna sögu sem að loknum töluverðum átökum endar vel eins og aðrar góðar sögur. I samtali við blaðamann sögðu krakkamir að þetta væri fyrsta heimsókn þeirra til íslands og þeim Leiðrétting í samanburðartöflunni sem Dagur birti í gær um norrænu vinabæina fimm urðu þau mis- tök í vinnslu að atvinnuleysis- talan fyrir Lahti í Finnlandi féll niður en þar í borg er atvinnu- leysi um 17% og því hæst af vinabæjunum. þætti náttúrufegurð hér mikil og andstæður miklar. Þannig hefði komið þeim töluvert á óvart að sjá hraunbreiðumar á Reykjanesskaga og síðan hve allt væri vel gróið hér fyrir norðan. Þátttakendumir frá Vasterás komu með áætlunarflugi til Kefla- víkur sl. sunnudag og þaðan komu þeir með beinu flugi til Akureyrar á sunnudagskvöld. Því gafst nokk- ur stund til þess að skoða sig um í nágrenni Keflavíkurflugvallar og auðvitað var farið í Bláa lónið, sem þeim fannst mjög eftirminnilegur staður. Þrjú af sex í leikhópnum tóku þátt í síðasta vinabæjamóti í Lahti í Finnlandi og fannst þeim svo gam- an þar að ekki kom annað til greina en að fara til Akureyrar. Þau eru öll á einu máli um að slíkt norrænt vinabæjasamstarf sé nauðsynlegt til að efla tengsl Norðurlandanna, fyrir svo utan það hve gaman sé að hitta jafnaldra sína frá hinum Norðurlöndunum. Bókmenntahópurinn hlýddi á Einar Má Þegar blaðamaður leit inn á Amtsbókasafnið í gærmorgun voru þátttakendur í bókmennta- hópnum að hlýða á erindi Einars Más Guðmundssonar, rithöf- undar, um bókmenntir. Einar Már hefur sem kunnugt er búið lengi í Danmörku og þekkir því vel til bókmennta þar ytra j'afnt sem íslenskra bókmennta. Þá hafa nokkur af verkum Einars Más verið þýtt á norðurlanda- mál. Að aflokinni setningu vinabæj- amótsins sl. mánudag fór bók- menntahópurinn í heimsókn í Nonnahús og að því búnu voru verkefni vikunnar kynnt. í dag byrja krakkamir að vinna að eigin hugverkum og eftir hádegið verður hópvinna. Þeirri vinnu verður síð- an fram haldið í fyrramálið, en á Einar Már Guðmundsson, rithöf- undur, „messaði" yfir bókmennta- hópnum í Amtsbókasafninu í gær. Ekki var annað að sjá en þátttakendur kynnu vel að meta boðskap Einars. föstudag er ætlunin að setjast við vinna að útgáfu á sameiginlegu tölvur uppi í Verkmenntaskóla og bókmenntakveri. Umsjón: Óskar Þór Halldórsson Veðrið síður en svo vinalegt Það verður ekki sagt með sanni að veðurguöirnir hafi gengið í liö með mótshöldurum og tekið hlýlega á móti gestunum frá Randers, Vásterás, Lahti, Álasundi og Narssak. Veður var allgott sl. mánudag, en í gær var komin norðanátt eins og hún gerist verst á Norðurlandi með úrkomu og kulda og snjóað hafði í fjöll. Samkvæmt upplýsingum Veðurstofu íslands í gær eru ekki horf- ur á breytingum í dag eða morgun. Áfram er gert ráð fyrir stífri norðanátt um norðanvert landið í dag og bendir allt til að hitastigið verði áfram innan við 5 stig. Sama verður uppi á teningnum á

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.