Dagur - 27.06.1992, Page 3

Dagur - 27.06.1992, Page 3
Laugardagur 27. júní 1992 - DAGUR - 3 Fréttir Hitaveita Akureyrar: Borun stöðvuð að Laugalandi í Glæsibæjarhreppi - lítill árangur það sem af er Þann 8. júní hófst borun eftir heitu vatni fyrir Hitaveitu Akureyrar að Laugalandi í Fundi með bændum frestað Fundi Sveins Runólfssonar, landgræðslustjóra og bænda í Búnaðarfélagi Mývetninga sem halda átti í fyrrakvöld var frestað, og verður fundurinn haldinn þriðjudagskvöldið 30. júní. „Ég ætla að nýta ferðina norð- ur og skoða ástand gróðursins, en svo leist mér ekki á að skoða gróðurinn undir snjónum,“ sagði Sveinn, aðspurður um orsakirnar fyrir frestun fundarins. IM Glæsibæjarhreppi. í gærkvöldi voru framkvæmdir stöðvaðar í bili svo menn gætu metið árangur þess verks sem búið er að vinna. Mjög lítið vatn hefur komið upp það sem af er. Aödragandi framkvæmda að Laugalandi er nokkur. í upphafi var ráðgert að bora á árinu 1991 a. m. k. eina 1000 metra djúpa tilrauna- eða vinnsluholu. Ast- æða þess að ekki var borað á árinu 1991 var sú, að óhjákvæmi- legt var talið að gera nýjan samn- ing um jarðhitaréttindi vegna ákvæða í eldri samningi Akureyr- arbæjar og eiganda Laugalands, sem er „Legat Jóns Sigurðssonar til styrktar fátækum í Eyjafjarð- arsýslu". Samningur var gerður við sjóðsstjórn á vordögum 1991 Listagil á Akureyri: Hugmyndir um menningar- miðstöð fyrir ungt fólk í vetur var skipaður undirbún- ingshópur til að vinna að stofn- un menningarmiðstöðvar fyrir ungt fólk á Akureyri. Hópur- inn lagði nýlega greinargerð fyrir íþrótta- og tómstundaráð Akureyrar þar sem m.a. kemur fram að sótt hafí verið um húsnæði fyrir starfsemina í Listagilinu. Miðstöðin er fyrst og fremst hugsuð fyrir þrjá hópa, nemend- ur í starfsdeild VMA í Löngu- mýri, fatlaða unglinga á aldrinum 13-20 ára og unglinga sem sækja námskeið og taka þátt í tóm- stundastarfi á vegum íþrótta- og tómstundaráðs. Auk þess myndu gestir og gangandi eiga greiðan aðgang að miðstöðinni. Hug- myndin er sú að í húsinu yrðu kaffihús, verslun og verkstæði þar sem m.a. færi fram tóm- stundastarf í formi námskeiða, t.d. í leirmunagerð, leðurvinnu o. fl. Þá yrði væntanlega í húsinu aðstaða fyrir ýmis konar félags- starfsemi og uppákomur eins og brúðuleikhús og sýningar af ýmsu tagi svo eitthvað sé nefnt. í greinargerð undirbúnings- hópsins segir að stefnt sé að þremur markmiðum: Að gera starfsdeildarnemendur hamingjusamari með því að gefa þeim færi á að hafa meiri stjórn yfir eigin lífi og menningu; að vinna forvarnarstarf með ung- lingum almennt, þ.m.t. fötluð- um, með því að bjóða upp á skapandi tómstundastörf og að hvetja til samstöðu, samvinnu og blöndun mismunandi þjóðfélags- og aldurshópa með formlegri samvinnu í húsnæðismálum. Málið er nú til umfjöllunar hjá nefndum og ráðum Akureyrar- bæjar. JHB Kærunefnd Jafnréttisráðs: Efiiisleg umfjöllun um kæru Öfinu E. Hansen á næsta firndi nefiidarinnar Kærunefnd Jafnréttisráðs fjall- aði lítillega á fundi sínum á miðvikudaginn um kæru Ölmu E. Hansen en hún var ein af fímm umsækjendum um stöðu skólastjóra Tónlistarskólans á Akureyri. Gögn frá Akureyr- arbæ bárust skömmu fyrir fundinn en nefndarmenn munu kynna sér þau fyrir næsta fund sem verður 8. júlí. Að sögn Birnu Hreiðarsdóttur, framkvæmdastjóra Jafnréttis- ráðs, bárust ýtarleg málsgögn frá Tónlistarskólanum á Akureyri til kærunefndarinnar en sem kunn- ugt er kærði Alma E. Hansen yfirvöld skólans fyrir að ráða Guðmund Óla Gunnarsson í stöðu skólastjóra. Birna segir að nú hafi kærunefndarmenn öll gögn beggja málsaðila í höndum og á næsta fundi verði málið tek- ið fyrir. Hún sagði þó vafamál að það verði afgreitt á fundinum. Samkvæmt lögum hefur kæru- nefnd rétt til málshöfðunar fyrir dómsstólum og því svarar nefnd- in í málum af þessu tagi rneð skýrum rökum. Birna segir því eðlilegt að kærumál séu nokkurn tíma í umfjöllun hjá nefndinni. „Það er ekki sjálfvirkt að kæru- nefnd höfði mál fyrir dómsstólum heldur er þetta heimild. Nefndin skilar álitsgerð í hverju máli þar sem kemur fram hvort hún telur að brotin hafi verið lög með við- komandi stöðuveitingu og komist hún að þeirri niðurstöðu þá er í lögum heimild til skaðabóta- eða miskabótagreiðslu en vilji liinn aðilinn ekki sætta sig viö það þá er hægt að liöfða mál,“ sagði Birna. JOH með fyrirvara um samþykki hreppsnefndar Glæsibæjarhrepps og jarðanefndar. Eftir nokkurt þóf var gerður samningur við Glæsibæjarhrepp og jarðanefnd féllst á samninginn. Starfsmenn Jarðborana hf. komu til Lauga- lands 6. júní sl. Borun hófst 8. júní og þann 12. júní var borinn kominn niður úr lausum jarðlög- um og borun í fast berg hófst. I gærkvöldi var borinn kominn niður á 750 metra og enginn árangur sýnilegur. „Enn er lítið vatn og því var ákveðið að stöðva borun svo hægt sé að gera mæling- ar. Af mælingum verður ráðið hvort haldið verður áfram,“ sagði Frans Árnason, framkvæmda- stjóri Vatns- og Hitaveitu Akur- eyrar. ój Dasaðir og kaldir fuglar: Andarunga er hægt að fóstra - en mófuglarnir þola ekki að hnoðast sé með þá - segir Guðbjörg Þorvarðardóttir, dýralæknir Kuldahretiö nú í vikunni lagöi margan ungann að velli. Tals- vert var um að fólk væri að fínna fugla sem voru illa á sig komnir og unga fólkið í fjöl- skyldunum á það til að koma heim með fíðraða vini og vilja veita þeim hjúkrun og að- hlynningu. En hvað er þá til ráða og er eitthvað hægt að gera fyrir fugla sem eru að krókna úr kulda? Blaðamaður Dags sló á þráðinn til Guð- bjargar Þorvarðardóttur, dýra- læknis á Húsavík. Guðbjörg sagði að hægt væri að fóstra andarunga, en sjaldan hægt að koma þeim til foreldr- anna aftur. I'að væri auðvelt að fóðra þá upp, gefa þeim korn- blöndu, gras, kartöfluskræl og fleira. Þeir þyrftu bala eða ílát með vatni og girðingu eða net til að halda þeim á vísum stað. Hægt væri að koma þeim út í náttúruna aftur þegar þeir færu að stálpast. „Það er mikið erfiðara fyrir krakka að vera með mófugla. Þeir þola illa að börn hnoðist með þá og best að láta þá sem mest vera. Oftast drepast þeir í höndunum á krökkunum. Das- aða fugla er hægt að hlýja upp, en lítið annað hægt að gera fyrir þá,“ sagði Guðbjörg. Hún sagðj að best væri að sleppa fuglunum aftur eins fljótt og hægt væri, stundum væri gert að vængbrot- um hjá mófuglum fyrir krakka, en fuglarnir dræpust yfirleitt hjá krökkunum þó brotin greru. „Það er best að láta mófuglana alveg vera, ef þeir eru ekki væng- brotnir eða eitthvað mikið að,“ sagði Guðbjörg. Þessa dagana sér Guðbjörg um dýralæknisembættin, alveg frá Ljósavatni að Vopnafirði. Hún sagði heilsufar búpenings hafa verið mjög gott að undanfömu, og að sauðburður hefði gengið vel í vor. Guðbjörgu var ekki kunnugt um að búfé í Þingeyjarsýslu hefði orðið fyrir áföllum af völdum veðursins í vikunni. 1M Persónuafsláttur hækkar 1. júlí Mánaðarlegur persónuafsláttur hækkar í 24.013 kr. Sjómannaafsláttur 6 dag hækkar í 663 kr. Þann 1. júlí hækkar persónu- afsláttur og sjómannaafslátt- ur. Hækkunin nær ekki til launagreiðslna fyrir júní og hefur ekki í för með sér að ný skattkort verði gefin út. Vakin er athygli launagreið- enda á því að þeir eiga ekki að breyta fjárhæð persónuafslátt- ar þegar um er að ræða: • Persónuafslátt samkvæmt námsmannaskattkorti 1992. • Persónuafslátt samkvæmt skattkorti með uppsöfnuð- um persónuafslætti 1992. Ónýttur uppsafnaður persónu- afsláttur sem myndast hefur á tímabilinu 1. janúar - 30. júní 1992 og verður millifærður síðar hækkar ekki. Á sama hátt gildir hækkun sjó- mannaafsláttar ekki um milli- færslu á ónýttum uppsöfnuð- um sjómannaafslætti sem myndast hefur á tímabilinu 1. janúar - 30. júní 1992. RSK RÍKISSKATTSTJ ÓRI

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.