Dagur - 27.06.1992, Síða 7

Dagur - 27.06.1992, Síða 7
Laugardagur 27. júní 1992 - DAGUR - 7 ÍÞRÓTTIR Samskipadeildin: Þór-Valur á Akureyri KA-UBK í Kópavogi - Hvað gera Akureyrarliðin um helgina? Akureyrarliðin í knattspyrn- unni, Þór og KA, fá ekki Iangt hlé því strax á sunnudags- kvöldið fá Þórsarar Val í heim- sókn og KA mætir Breiðabliki í Kópavogi á mánudagskvöld. Þórsarar verða að vinna til þess að halda toppsætinu því Víkingar eru ekki iíklegir til þess að standa í ÍA, miðað við hvernig þeir hafa spilað að undanförnu. KA-menn verða á sama hátt að vinna UBK ef þeir ætla ekki að Ienda í vond- um málum á botni deildarinn- ar. Topplið 1. deildar, Pór, hefur enn ekki tapað leik í sumar og engin ástæða til þess að fara að taka upp á því á sunnudagskvöld, þegar þeir mæta Völsurum á Akureyrarvelli. „Mér líst mjög vel á leikinn," sagði Bjarni Svein- björnsson um viðureignina gegn Val. „Það er engin pressa á okk- ur og við reynum bara að halda okkar striki og um leiö þessu ágæta sæti í deildinni," sagði Bjarni. Eins og menn eflaust muna átt- ust liðin við í bikarkeppninni í fyrrasumar og þá þurfti framleng- ingu og vítaspyrnukeppni til þess að fá fram úrslit. Óhætt er því að Bjarni Sveinbjörnsson er hér í baráttu um aö skora gegn Val? reikna með spennandi og skemmti- legum leik þar sem ekkert verður gefið eftir. KA-ntenn mæta neðsta liði deildarinnar, UBK, á mánudags- kvöld. Að sögn Gunnars Gísla- sonar verða þeir að vinna þann leik. „Það er ekkert sem hcitir, við FH-inga á fínimtudag. Tekst hon- við verðum að fara að vinna leiki, út á það gengur þetta," sagði Gunnar. Blikarnir liafa etm ekki hlotið stig í deildinni og aðeins skorað eitt mark. Það er því að duga eða drepast fyrir KA-ntenn í þessum leik. SV Hér skorar Gunnar Már Másson í leiknuni gegn Fram. Hvað gerir hann á móti UBK? Kvennaknattspyrna, 2. deild B: KA á beimii braut - sigur gegn Tindastóli á fimmtudag Einn leikur fór frani í 2. deild kvenna á fimmtudagskvöldið en þá mættust lið Tindastóls og KA á Sauðárkróki. KA-stúlk- urnar unnu leikinn 0:4 og voru mun betri aðilinn í leiknum. Leik KS og Leifturs var frestað til þriðjudags. „Það var svolítill taugatitring- ur í þessu hjá okkur til að byrja með, en eftir að við komumst niður á jörðina var þetta aldrei spurning," sagði Gunnlaugur Björnsson, þjálfari KA. Leikurinn var aðeins 17 mín- útna gamall þegar Arndís Ólafs- dóttir skoraði fyrsta markið í leiknum og fyrir leikhlc bættust tvö önnur við. Helga Hannes- dóttir gerði annað og Arndís var aftur á ferðinni í því seinna. Staðan var 0:3 í leikhléi. í síðari hálfleik höfðu KA- stelpurnar frumkvæðið allan tfm- ann og skoruðu sitt fjórða mark á 53. mínútu. Þar var á ferðinni Margrét Jónsdóttir. Ingibjörg Ólafsdóttir átti tvö sláarskot í leiknum og kornu bæði eftir auka- spyrnur. Stólarnir fengu sín færi í lcikn- um en náðu ekki að nýta þau og því fór sem fór. Þetta var þriðji sigurleikur KA í röð og bendir flest til þess að þær vinni þennan riðil án teljandi vandræða. SV Réttarfar Gísli Tryggvason Leiðbeiningarskylda dómara minnkar - íslenska ríkið dæmt fyrir mannréttindabrot tjáningarfrelsi sem í hæstaréttar- í þáttum þessum hefur verið gerð grein fyrir aðskilnaði dómsvalds og umboðsvalds í liéraði sem gengur í garð nk. miðvikudag. Breyting sú sem verður á dómstólaskipan og réttarfari er hin mesta í tvær aldir. Einnig hefur verið fjall- að um stjórnsýslu og sýslu- menn sem hafa hana með höndum m.a. í tengslum við meðferð svokallaðra opinberra mála. Þau mál sem ekki eru opinber mál (samkvæmt skil- greiningu sem sett var fram í síðasta þætti) eru einkamál. í dag verður fjallað stuttlega um meðferð einkamála. Að gefnu tilefni mun ég þó fyrst minnast á nýuppkveðinn dóm Mannréttindadómstóls Evr- ópu sem er sá fyrsti sem kveðinn hefur verið upp yfir íslenska rík- inu. Þar var talið að ísland hefði brotið 10. gr. Evrópuráðssamn- ings um verndun mannréttinda og mannfrelsis með dómi Hæsta- réttar frá 1987 yfir Þorgeiri Þor- geirssyni rithöfundi er hann var dæmdur fyrir meiðyrði gegn lög- reglunni í kjölfar sk. Skaptamáls. Brot Þorgeirs taldi Hæstiréttur varða við 108. gr. almennra hegningarlaga sem fjallar um meiðyrði gegn opinberum starfs- mönnum. Þar segir í niðurlagi: „Aðdróttun, þótt sönnuð sé, varðar sektum, ef hún er borin fram á ótilhlýðilegan hátt." Með strangri túlkun Hæstaréttar á landslögum var talið að ísland hefði gerst brotlegt við þjóðarétt. Nánar tiltekið sögðu átta af níu dómurum að þær takmarkanir á dómnum felast væru brot á mannréttindasáttmálanum þar sem þær væru ekki “nauðsynleg- ar í lýðfrjálsu þjóðfélagi," eins og segir í 10. gr. hans. Þorgeiri voru dæmdar bætur fyrir málskostnað við Evrópu- dómstólinn. ísland varekki dæmt fyrir brot á 6. gr. sem varð kveikjan að aðskilnaði dóms- valds og umboðsvalds í héraði en mannréttindane/nd/n taldi hana brotna í máli Jóns Kristins- sonar á sínum tíma. Dóntur Evr- ópudómstólsins snerist heldur ekki beinlínis um 108. gr. heldur túlkun Hæstaréttar á henni. íslenska ríkið er skuldbundið til að tryggja rétt manna í samrænti við sáttmálann en dóntnum yfir Þorgeiri verður ekki haggað. Að sögn fróðra lögmanna er líklegt að 108. gr. verði numin úr almennum hegningarlögum frá 1940 enda hefur staðið ntikill styrr um greinina. Þorsteinn Pálsson dómsntála- ráðherra hefur látið hafa eftir sér að til greina korni að sáttmálinn verði gerður að landslögum en hann tilheyrir nú öðru réttarkerfi - þjóðarétti. Jafnræði aðila Um meðferð einkamála gildir nú lagabálkur frá 1936. Með honum voru lögfestar venjureglur sem höfðu smám saman tekið við af réttarfari Jónsbókar sem lögfest var að fullu á Alþingi 1283. Tölu- verðar breytingar höfðu verið gerðar á lögunuin frá 1936 og voru þau því orðin nokkuð ósam- stæð. Nýr lagabálkur frá 1991 um meðferð einkamála tekur gildi þann 1. júlí nk. Reglurnar munu gilda um dómsmál í héraði og fyrir Hæstarétti. Ýrnis nýmæli verða tekin upp í nýju lögunum sem gera dómara enn óháðari málsaðilum. Þar á meðal má nefna að lögin munu „draga úr skyldu dómara til að liðsinna og leiðbeina ólöglærðum málsaðila sem flytur mál sitt sjálfur," eins og segir í greinargerð með lögun- um. Stefnan er sú að málsaðilar standi jafnir livor gegn öðrum og sjái sjálfir um formhlið og efn- ishlið málsins en dóntari leggi síðan hlutlaust mat á það. Hætt er við að meira verði um „ranga" dóma yfir mönnunt vegna ntis- taka þeirra eða annarra. Dæmi um þetta þekkja menn úr sk. Þjóðlífsmáli cn þar bar dómara engin skylda til að gæta réttar þess sem dæmdur var - án þess að viðkomandi væri viðstaddur. Nú verður enn dregiö úr lið- veislu dómara í samræmi við nú- tímaréttarfar í nágrannalöndum enda hefur innblöndun dómara „þá augljósu hættu í l'ör rneð sér að dómari móti málatilbúnað annars eða jafnvel beggja aðil- anna og felli síðan dóm á málið," eins bent er á í greinargerð. Nýmæli Tekin verður upp sk. flýtimeð- ferð einkamála sem varða „ákvörðun eða athöfn stjórn- valds eða atriði í tengslum við vinnudeilur, ef dómari fellst á að aðili hafi brýna þörf á skjótri úrlausn og að ntálið hafi almenna þýðingu eða varði stórfellda hagsmuni." Framvegis þarf aðeins einn stefnuvottur að birta stefnda stefnu í dómsmáli en einnig verð- ur leyfilegt að senda stefnuna í ábyrgðarbréfi. Mörg önnur atriöi sem varða meðferð máls fyrir dómi eru ný en einnig verða eldri reglur skýrari og uppsetning þeirra aðgengilegri í nýju lögun- urn. Aðfarargerðir Þegar dómur í einkamáli er fall- inn á eftir að fullnægja honum. Borgurununt er ekki heimilt að beita öllum brögðum til að ná frarn rétti sínum, t.a.m. með hjálp kraftakarla eða með hótun- um. Til þess þarf svokallað fulln- ustuvald. Fyrst er að nefna aðfarargerðir sém konta í stað sk. fógetagerða. „Það úrræði felst í aðför að með henni er unnt, með atlreina ríkis- valdsins, að fá fullnægt skyldum einstakra manna, félaga, sam- taka eða stofnana, sem viðkont- andi geta ekki eða vilja ekki efna sjálfviljugir. Aðför verður almennt beitt til að knýja á um fullnustu skyldu, hvort sem hún er til greiðslu peningaskuldar, til ákveðinnar athafnar eða til að láta eitthvað ógert," segir í hand- bók dónts- og kirkjumálaráðu- neytisins. Með aðför er m.a. gert fjár- nám en lögtak telst nú einnig til fjárnáms svo fremi að það styðj- ist við aðfararheimild sem er skil- yrði aðfarar. Annað nýmæli rétt- arfarsbreytinganna er að sýslu- mönnum verður falin frantkvæmd aðfarar en dórnari sker úr ef upp kemur réttarágreiningur eins og áður er getið. Aðrar fullnustugerðir Ef fjárnám er árangurslaust kem- ur oft til gjaldþrots skuldarans og er öllunt þeim sem telja sig eiga kröfu á hendur honum boðið til fundar. Helstu breytingar á rneð- ferð þrotabúa eru að algerlega verður skilið á milli starfa dóm- ara og bústjóra sem þó verður skipaður af dómara. Sýslumenn koma hvergi nálægt gjaldþrotum. Ef skuldarinn á hins vegar eign sem tekin er fjárnámi leggjast á liana veðbönd. Hana ntá þó sjaldnast taka frá skuldaranum heldur verður að selja hana til að fullnægja kröfunni. Helstu breyt- ingar eru að nú verður hægt að notast við frjálsan markað við nauðungarsölu í stað nauðungar- uppboða sem tíðkast hafa. Nauð- ungarsalan verður talin til stjórn- valdsathafnar í stað dóms- athafnar. Brádabirgðatrygging Að lokum er rétt að minnast á svokallaðar bráðabirgðatrygging- arráðstafanir en það er samheiti fyrir kyrrsetningu, löggeymslu og lögbann. Þessunt gerðum er ein- göngu ætlað að tryggja að ákveð- iö ástand standi óbreytt til þess að hægt sé að fá fullnustu síðar eða aftra því að unnar séu ólög- mætar athafnir sem eru líklegar til að spilla réttindum. Þar sem þær eru eðlislíkar aðfarargerðum er stjórnvaldshöfum - sýslu- mönnum - einnig falin fram- kvæmd slíkra gerða en áður voru þær taldar til dómsathafna. Dóm- ari mun þó áfram dæma um réttarágreining sem upp kemur. Þá er Réttarfari lokið.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.