Dagur - 27.06.1992, Side 19
Laugardagur 27. júní 1992 - DAGUR - 19
Popp
Magnús Geir Guðmundsson
Þriðja sköpunarverk Stjórnarinnar:
Skothelt en heldur sköpunarrýrt
Jæja góðir hálsar þá hefur litið
dagsins Ijós hið nýja sköpunar-
verk Stjórnarinnar, það þriðja í
röðinni sem einfaldlega kallast
Stjórnin. Eftir að þessi ein af
vinsælustu hljómsveitum lands-
ins ákvað síðasta haust að taka
sér gott frí fram að áramótum,
tóku fljótlega að spinnast sögu-
sagnir um að allt væri nú ekki
með felldu innan hennar og að
hún kynni jafnvel aö vera að
hætta. Ekki reyndist þó vera fótur
fyrir því að hljómsveitin væri að
hætta, en þegar hún kom saman
á ný var hún gjörbreytt. Af áður
sex meðlimum stóðu nú aðeins
þau Grétar Örvarsson og Sigríð-
ur Beinteinsdóttir eftir, en í stað
hinna fjögurra sem burtu voru
farnir voru komnir þrír nýir,
Sigurður Karlsson, Jóhann As-
mundsson og Halldór Hauksson
á gítar, bassa og trommur og er
hljómsveitin þannig skipuð nú.
Skrifari Popps veit harla lítið
hvað olli þessum breytingum á
Stjórninni, en Ijóst er að hljóm-
sveitin er engu síðri nú eftir þær
en áður og ekki er velgengnin
hingað til minni samanber Evr-
óþusöngvakeppnina. Þegar nýju
geislaplötunni er svo brugðið
undir geislann leynir sér ekki að
hér er á ferð hljómsveit í há-
gæðaklassa. Öll umgjörð og innri
vinna er fyrsta flokks og er ekki
hægt annað en að hrósa þeim
Jóni Kjell, Óskari Páli Sveinssyni
Stjórnin nýskipaða heldur áfram á sömu braut og sú eldrri.
og Jóhanni Ásmundssyni sem
sáu um upptöku og hljóðblöndun
plötunnar, fyrir verkið. Hins vegar
þegar kemur að lagasmíðunum
veröur að segjast eins og er að
þar er ekki beint um framför að
ræða hjá Stjórninni. Vissulega
eru lög á plötunni sem gleðja
hlustirnar og sitja eftir eins og Allt
í einu, sem nú er mikið spilað í
Ur ýmsum áttum
Gítarsnillingurinn Steve Vai hefur mörg járn í eldinum þessa dagana.
Gítargoðið Steve Vai, sem
fyrst gerði kornungur garð-
inn frægan í hljómsveit Frank
Zappa, en síðan á eigin vegum,
með Alcatrazz, David Lee Roth
og loks Whitesnake, er nú byrj-
aður að vinna að sínu þriðja sóló-
verki. Kemur platan, sem enn er
ónafngreind, í kjölfar Passion
and warfare frá 1990, en sú plata
færði Vai mikla vegsemd og vin-
sældir. Hefur Vai sér til aðstoðar
þá Terry Bozzio trommuleikara
(áður með Zappa og Missing
Persons) og TM Stevens bassa-
leikara við gerð nýju plötunnar,
en vantar hins vegar söngvara
ennþá, sem hann telur sig þurfa
til að fullkomna verkið.
Til viðbótar nýju plötunni hefur
Vai svo í nógu öðru að snúast. Er
hann til að mynda að semja lög
undir áhrifum frá blóðsugusögu
einni sem hann hefur síðan
áhuga á að gera kvikmynd um og
þá er hann einnig að dunda við
að skrifa handrit að mynd sem
fjalla á um rokkstjörnu og hremm-
ingar hennar við umboðsmann
sinn. Er hann greinilega fjölhæfur
og starfsamur maður Steve Vai.
Eins og komið hefur fram hér
á síðunni áður er nú von á
nýrri styrktarplötu í baráttunni
gegn alnæmisfaraldrinum. Nefn-
ist hún Red Hot and Dance, í
samræmi við systurplötu sína
Red Hot and Blue sem kom út
fyrir tveimur árum og innihélt lög
eftir Cole Porter í flutningi ýmissa
tónlistarmanna. Nú er það hins
vegar flokkur poppara á danslín-
unni eins og nafnið gefur til
kynna, sem leggja hönd á plóg,
með sínum eigin lögum. Eru þar
á meðal George Michael sem
leggur til þrjú ný lög, EMF meö
endurbætta útgáfu af laginu sínu
Unbelievable, Seal með Crazy
og Madonna með Supernatural.
Útgáfudagur plötunnar er nú
þann 1. júlí.
Manchesterhljómsveitin góöa
Happy Mondays er nú í
óða önn að vinna sína nviustn
plötu sem er og verður ansi
merkileg fyrir margra hluta sakir.
Er þar það helst að hún hefur
verið mjög dýr í vinnslu og herma
fregnir að nú þegar hafi verið eytt
50 milljónum króna í hana. Þykir
sýnt að hún verði dýrasta plata
sem komið hefur út á vegum lítils
óháðs fyrirtækis. Er gert ráð fyrir
að þessi dýra plata komi út í
september og eru miklar vonir
k\i ir>1
útvarpi, Nóttin, sem minnir mann
á gott amerískt gallarokk (t.d.
með Bryan Adams og Cars sál-
ugu) og Ef ástin væri, en þau
bæta í sjálfu sér ekki, frekar en
önnur lög plötunnar, neinu við
það sem áður hefur komið frá
Stjórninni. Það er sem sagt ekki
mikil áhætta fólgin í lagasmíðun-
um, enda kannski ekki ástæða
til, því sem söluvara er platan
vissulega skotheld (það er hins
vegar annað mál hvað varðar
tónlistarlegan metnað).
wmM
jJ mm mm
Beint flug til Sviss
hjarta Evrópu
Vikulegar brottfarir í sumar á föstudögum
bæöi frá Akureyri og Keflavík.
Flug og bíll verð kr. 28.900,-
Verð á mann miðað við 4 í bíl í eina viku.
Flugvallaskattur ekki innifalinn.
Opið alla virka daga frá kl. 9-16.
Ferðaþjónusta Akureyrar hf.,
sími 96-11687.
Elsku litla dóttir okkar og systir,
MARGRÉT RÖGNVALDSDÓTTIR,
Álagranda 10, Reykjavík,
sem lést í Barnaspítala Hringsins 22. júní, verður jarðsungin
frá Akureyrarkirkju, mánudaginn 29. júní kl. 16.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, vinsamlegast láti Barnaspítala
Hringsins njóta þess.
Unnur Bjarnadóttir, Rögnvaldur Dofri Pétursson,
Nanna Kristín Magnúsdóttir.
Systir okkar og frænka,
IÐUNN SIGFÚSDÓTTIR,
kjólameistari,
Gilsbakkavegi 9,
lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 23. júní.
Útförin fer fram frá Stærri-Árskógskirkju, þriðjudaginn 30. júní
kl. 14.
Fyrir hönd ættingja,
Bára, Bragi og Sigfús.
Litli drengurinn okkar,
DAGUR ÁSGEIRSSON,
sem lést aðfaranótt
22. júní verður
jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn
29. júní kl. 13.30.
Hildur Óladóttir, Ásgeir Yngvason.