Dagur


Dagur - 10.09.1992, Qupperneq 5

Dagur - 10.09.1992, Qupperneq 5
Fimmtudagur 10. september 1992 - DAGUR - 5 Reikinámskeið á Akureyri: „Fullkomið kerfi heilunar“ - segir Bergur Björnsson reikimeistari Helgina 12. til 13. september er ráðgert að efna til reiki- námskeiðs á Akureyri. Að námskeiðinu stendur Bergur Björnsson reikimeistari frá Reykjavík. Orðið reiki er japanska og sett saman úr tveimur orðum þ.e. Rei og Ki. Rei þýðir yfirnáttúrulegur kraftur eða guðleg viska en Ki merkir lífsorka. Reiki (borið fram ray-key) er náttúruleg heil- unaraðferð að mestu framkvæmd með handayfirlagningu og talin mörg þúsund ára gömul tíbetsk/ búddísk. Reiki var endurupp- götvuð á nítjándu öld af japönsk- um búddamunki. Tilgangur hans var að finna hvernig Búdda og Jesús hefðu heilað hina sjúku. Sagt er að 10 ára leit munksins hafi leitt hann fram og aftur um Japan, Kína og Indland. Að síð- ustu opinberaðist honum hið full- komna reikikerfi með hugljóm- un. Hann hafði þá hugleitt og fastað í 21 dag á hinu heilaga fjalli Koro-Yama. Samkvæmt upplýsingum Bergs Björnssonar er reiki bæði öflugt og blítt og saga þess segir frá heil- un og aðstoð við lækningu nánast allra þekktra sjúkdóma og slysa. Reiki er yfirleitt gefið með handayfirlagningu. Venjuleg meðferð felst í ákveðnum hand- stöðum á höfði, öxlum, maga, baki og fótum. Þessu til viðbótar má veitandi nota aðrar stöður til Leiðréttmg Leikfélag Akureyrar setur í mars upp Leðurblökuna eftir Johann Strauss, en ekki Leðurblöðkuna eins og ranglega var sagt í blað- inu í gær. Þá láðist að geta þess í frétt blaðsins í gær að Bryndís Petra Bragadóttir, fastráðinn leikari LA, fer með hlutverk fdu, systir Adelu. Bryndís Petra leik- ur titilhlutverkið í Línu langsokk, sem verður frumsýnd hjá LA þann 10. október nk. Leiðrétting í grein um stórlaxa úr Djúpá er birtist í Degi um sl. helgi er greint frá 20 punda laxi er Örn Jóhannsson fékk í Bæjarhyl. Laxinn er sagður stærsti lax veiddur á stöng úr Djúpá og sú fullyrðing var höfð eftir mönnum sem þekkja vel til árinnar og þeirra laxa sem þar hafa veiðst. Nú hefur annað komið í ljós. Pét- ur Breiðfjörð, gullsmiður á Akureyri, fékk þann 19. sept- ember 1987 stórlax í Skurðshyl. Laxinn, hængur, reyndist veginn á bakkanun 20,5 pund. Er heim var komið var laxinn veginn á löggildri vog og reyndist þá 21 pund. Þessi lax Péturs Breiðfjörð er því stærsti lax veiddur á stöng í Djúpá. Gullsmiðurinn er beð- inn velvirðingar á rangfærslu greinarhöfundar. ój IUMFERÐAR RÁÐ þess að mæta sérstökum þörfum þiggjanda. Hverri stöðu er haldið í 3 til 5 mínútur að jafnaði og full meðferð tekur gjarna 45 til 90 mínútur. „Reikimeðferð myndar dásam- lega orkugeislun sem er mjög slakandi og felur í sér margs kon- ar jákvæð áhrif fyrir bæði veit- anda og þiggjanda. Þá er einnig hægt að gefa sjálfum sér reiki. Reiki er ekki kennt á sama hátt og aðrar heilunaraðferðir nema að litlu leyti. Hæfileikinn til þess að leiða reiki er yfirfærður frá meistara með innstillingum (dul- vígslum). Þó að reiki sé guðlegt í eðli sínu þá er það ekki trúar- brögð. Það hefur enga fordóma og fólk þarf ekki að trúa neinu sérstöku til þess að geta lært reiki. Reiki á samleið með öllum trúarbrögðum og greinum þeirra á sama hátt og t.d. yoga. Reiki er fullkomið kerfi heilunar líkam- legra og andlegra mála og persónulegs þroska," segir Berg- ur Björnsson. ój Gæsaveiðimenn! Gæsaflautur, gervigæsir. Regnheldir gallar í felulitum. Gæsaskot í miklu úrvali. Hreinsisett, olíur, burstar, byssupokar, haglabyssur. 5% staðgreiðsluafsláttur Opið laugardaga kl. 0-12. • • IU EYFJORÐ Hjalteyrargötu 4 - Sími 22275 ~777TTT \ \ \ \ X ulXLUJ L cm m fit SUNNUHUÐ VERSIUNARMIÐSTÖÐ — SHOPPING CENTER — K€fl Sunnuhlíð 12 Opið mónud.-föstud. kl. 9.00-20.00 laugard. kl. 10.00-20.00 Tillsoð Léltreyktur lambahryggur kr. 799 pr. kg Hunctngs Cheerios 400 g aðeins kr. 203 ECH Saumavélaþjónustan Tilboð á saumavélaborðum. Fallegar jólahannyrðavörur. Mikið úrval af garni. Gerum við allar tegundir saumavéla. Sendum í póstkröfu. Saumavélaþjónustan Ynja s. 25977 - Slétt og fellt s. 27224 - Ljósmyndabúðin s. 11030 - Samson s. 27044 - Tónabúðin s. 22111 Rafland s. 25010 - Pálína s. 27177- HABRÓ s. 11119 - Trygging s. 21844 - M. H. Lyngdal s. 26399 Möppudýrið s. 26368 - Brauðbúð Kristjáns s. 25904 - Vaggan s. 27586 - Saumavélaþjónustan s. 11484 Blómabúðin Laufás s. 26250 - Búnaðarbanki íslands s. 27600 - Kjörbúð KEA s. 30387 Velkomín í Sunnuhlíð

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.