Dagur - 10.09.1992, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Fimmtudagur 10. september 1992
Dagskrá fjölmiðla
í kvöld, kl. 21.25, er á dagskrá Stöövar 2 þriðji og síðasti hluti hinnar vönduðu framhalds-
myndar, Ættarveldið, sem gerð er eftir tveimur metsölubókum Jackie Collins. Lucky hefur
gefist upp á seinna hjónabandi sínu og haldið aftur til Bandaríkjanna til föður síns. Það kem-
ur til uppgjörs þegar syni hennar er rænt.
Sjónvarpið
Fimmtudagur 10. september
18.00 Fjörkálfar (8).
(Alvin and the Chipmunks).
18.30 Kobbi og klíkan (25).
(The Cobi Troupe).
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Auðlegð og ástríður (7).
(The Power, the Passion)
Ástralskur framhalds-
myndaflokkur.
19.25 Sókn í stöðutákn (7).
20.00 Fróttir og veður.
20.35 Blóm dagsins.
Fjöruarfi (honchenya
peploides).
20.40 Til bjargar jörðinni (10).
Lokaþáttur: Síðustu forvöð.
(Race To Save the Planet:
Now or Never).
Bandarískur heimilda-
myndaflokkur um ástandið í
umhverfismálum í heimin-
um og þau skref sem
mannkynið getur stigið til
bjargar jörðinni. í þessum
þætti verður athyglinni
beint að einstaklingum víða
um heim, sem hafa lagt sitt
af mörkum til umhverf-
isverndar.
21.35 Eldhuginn (2).
(Gabriel's Fire)
Bandarískur sakamála-
myndaflokkur. Lögreglu-
maðurinn Gabriel Bird hefur
setið inni í 20 ár fyrir að
drepa vinnufélaga sinn við
skyldustörf og er búinn að
sætta sig við það hlutskipti
að dúsa í fangelsi til æviloka.
Lögfræðingurinn Victoria
Heller fær áhuga á máli
Gabriels þegar hún er að
rannsaka morðið á besta vini
hans á steininum. Hún
gengur í það af krafti að fá
hann lausan og í framhaldi
af því tekst með þeim góð
samvinna við að koma lög-
um yfir skálka Chicagoborg-
ar.
Aðalhlutverk: James Earl
Jones, Laila Robins, Madge
Sinclair, Dylan Walsh og
Brian Grant.
22.25 Nýjasta tækni og vís-
indi.
Sýnd verður mynd um
brjóstakrabba.
23.00 Ellefufréttir og dag-
skrárlok.
Stöð 2
Fimmtudagur 10. september
16.45 Nágrannar.
17.30 Með afa.
19.19 19:19.
20.15 Eiríkur.
20.30 Fótboltaliðsstýran II.
(The Manageress n.)
Fjórði þáttur.
21.25 Ættarveldið.
(Lucky Chances.)
Þriðji og síðasti hluti.
23.00 Draugabanar II.
(Ghostbusters n.)
Fimm ár eru liðin frá því að
hetjumar okkar björguðu
New York borg frá illum
örlögum. Mikið vatn hefur
mnnið til sjávar síðan og
komast hetjurnar að því að
nú em hugsanir borgarbúa
svo svartar að þær hafa
brauðfætt óteljandi ára sem
lifa í holræsum borgarinnar.
Þá er ekkert annað eftir en
að dusta rykið af gömlu
græjunum og leggja til
atlögu við hina óvelkomnu
gesti.
Aðalhlutverk: Bill Murray,
Dan Aykroyd, Sigourney
Weaver og Rick Moranis.
Bönnuð börnum.
00.50 Dagskrárlok.
Rás 1
Fimmtudagur 10. september
MORGUNÚTVARP
KL. 06.45-09.00.
06.45 Veðurfregnir. Bæn.
07.00 Fréttir.
07.03 Morgunþáttur Rásar 1.
- Hanna G. Sigurðardóttir og
Trausti Þór Sverrisson.
7.30 Fréttayfirlit.
7.31 Fréttir á ensku.
Heimsbyggð - Sýn til
Evrópu.
Óðinn Jónsson.
Daglegt mál, Ari Páll Krist-
insson flytur þáttinn.
08.00 Fréttir.
08.10 Að utan.
08.15 Veðurfregnir.
08.30 Fréttayfirlit.
08.40 Bara í París.
Hallgrímur Helgason flytur
hugleiðingar sínar.
ÁRDEGISÚTVARP
KL. 09.00-12.00
09.00 Fréttir.
09.03 Laufskálinn.
09.45 Segðu mér sögu,
„Nomin frá Svörtutjöm" eft-
ir Elisabeth Spear.
Bryndís Víglundsdóttir les
(19).
10.00 Fréttir.
10.03 Morgunleikfimi
með Halldóm Bjömsdóttur.
10.10 Veðurfregnir.
10.20 Árdegistónar.
11.00 Fréttir.
11.03 Samfélagið í nærmynd.
11.53 Dagbókin.
HÁDEGISÚTVARP
KL. 12.00-13.05
12.00 Fréttayfirlit á hádegi.
12.01 Að utan.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir.
12.48 Auðlindin.
12.55 Dánarfregnir - Auglýs-
ingar.
MIÐDEGISÚTVARP
KL. 13.05-16.00
13.05 Hádegisleikrit Útvarps-
leikhússins, „Dickie Dick
Dickens" eftir Rolf og
Alexander Becker.
10. þáttur af 30.
13.15 Suðurlandssyrpa.
14.00 Fróttir.
14.03 Útvarpssagan, „Meist-
arinn og Margarita“ eftir
Mikhail Búlgakov.
Ingibjörg Haraldsdóttir les
(3).
14.30 Miðdegistónlist.
15.00 Fréttir.
15.03 Sumarspjall
Helgu Jónu Sveinsdóttur.
(Frá Akureyri.)
SÍÐDEGISÚTVARP
KL. 16.00-19.00
16.00 Fróttir.
16.05 Bara fyrir börn.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Lög frá ýmsum löndum.
16.30 í dagsins önn -
Útbrunnin(n) í starfi.
Umsjón: Margrét Erlends-
dóttir. (Frá Akureyri.)
17.00 Fréttir.
17.03 Sólstafir.
18.00 Fróttir.
18.03 Þjóðarþel.
Mörður Árnason les Græn-
lendingasögu (4).
18.30 Auglýsingar - Dánar-
fregnir.
18.45 Veðurfregnir • Auglýs-
ingar.
KVÖLDÚTVARP
KL. 19.00-01.00
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Kviksjá.
19.55 Daglegt mál.
20.00 Úr tónlistarlífinu.
Frá tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar æskunnar í
Háskólabíói 12. apríl síðast-
liðinn.
22.00 Fróttir.
Heimsbyggð, endurtekin úr
Morgunþætti.
22.15 Veðurfregnir • Orð
kvöldsins ■ Dagskrá
morgundagsins.
22.20 Úr heimi orðsins.
23.10 Fimmtudagsumræðan.
24.00 Fréttir.
00.10 Sólstafir.
01.00 Veðurfregnir.
01.10 Næturútvarp á báðum
rásum til morguns.
Rás 2
Fimmtudagur 10. september
07.03 Morgunútvarpið -
Vaknað til lífsins.
Leifur Hauksson og Eiríkur
Hjálmarsson hefja daginn
með hlustendum.
08.00 Morgunfréttir.
- Morgunútvarpið heldur
áfram.
- Auður Haralds segir fréttir
úr Borginni eilífu.
09.03 9-fjögur.
Umsjón: Þorgeir Ástvalds-
3on, Magnús R. Einarsson,
Margrét Blöndal og Snorri
Sturluson.
Sagan á bak við lagið.
Furðufregnir utan úr hinum
stóra heimi.
Limra dagsins.
Afmæliskveðjur. Síminn er
91-687123.
12.00 Fréttayfirlit og veður.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 9-fjögur.
- heldur áfram.
12.46 Fréttahaukur dagsins
spurður út úr.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagskrá: Dægurmála-
útvarp og fréttir.
17.00 Fróttir.
- Dagskrá heldur áfram.
18.00 Fréttir.
18.03 Þjóðarsálin - Þjóðfund-
ur í beinni útsendingu.
Sigurður G. Tómasson situr
við símann, sem er 91-
686090.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Ekki fréttir.
19.32 Síbyljan.
21.30 Kvöldtónar.
22.10 Landið og miðin.
Umsjón: Darri Ólason.
00.10 í háttinn.
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
leikur ljúfa kvöldtónlist.
01.00 Næturútvarp á báðum
rásum til morguns.
Fróttir kl. 7,7.30,8,8.30, 9,10,
11,12,12.20,14,15,16,17,18,
19, 22 og 24.
Næturútvarpið
01.00 Næturtónar.
02.00 Fréttir.
- Næturtónar.
03.00 í dagsins önn.
03.30 Glefsur.
04.00 Næturlög.
04.30 Veðurfregnir.
- Næturlögin halda áfram.
05.00 Fréttir af veðri, færð og
flugsamgöngum.
05.05 Landið og miðin.
06.00 Fróttir af veðri, færð og
flugsamgöngum.
06.01 Morguntónar.
Ríkisútvarpið á
Akureyri
Fimmtudagur 10. september
08.10-08.30 Útvarp Norður-
lands.
18.35-19.00 Útvarp Norður-
lands.
Bylgjan
Fimmtudagur 10. september
07.00 Fréttir.
07.05 Morgunútvarp
Bylgjunnar.
Eiríkur Jónsson og Guðrún
Þóra.
Fréttayfiriit klukkan 7.30.
08.00 Fréttir.
08.05 Morgunútvarp
Bylgjunnar.
Eiríkur Jónsson og Guðrún
Þóra.
Fréttayfirlit klukkan 8.30.
09.05 Tveir með öllu á
Bylgjunni.
Jón Axel Ólafsson og
Gunnlaugur Helgason eru
þekktir fyrir allt annað en
lognmollu.
12.00 Hádegisfréttir.
12.15 Rokk og rólegheit.
13.00 íþróttafréttir eitt.
Allt það helsta úr íþrótta-
heiminum frá íþróttadeild
Bylgjunnar og Stöðvar 2.
13.05 Rokk og rólegheit.
Anna Björk Birgisdóttir á
Bylgjunni í bland við létt
spjall um daginn og veginn.
14.00 Rokk og rólegheit.
Bibba lætur í sér heyra.
16.00 Reykjavík síðdegis.
Steingrímur Ólafsson og
Hallgrímur Thorsteinsson
fjalla um málefni líðandi
stundar og hjá þeim eru
engar kýr heilagar.
17.00 Fréttir.
17.15 Reykjavík síðdegis.
Þjóðlífið og dægurmálin í
bland við góða tónlist og
skemmtilegt spjall.
18.00 Fróttir.
18.05 Landssíminn.
Bjarni Dagur Jónsson tekur
púlsinn á mannlífinu og ræð-
ir við hlustendur um það
sem er þeim efst í huga.
Síminn er 671111.
19.00 Flóamarkaður
Bylgjunnar.
19.19 Fréttir frá fréttastofu
Stöðvar 2 og Bylgjunnar.
20.00 Kristófer Helgason.
Léttir og ljúfir tónar í bland
við óskalög. Síminn er
671111.
22.00 Tónlistarsumar á
Púlsinum og Bylgjunni.
í sumar verða beinar
útsendingar frá veitinga-
staðnum Púlsinum þar sem
verður flutt iifandi tónlist.
00.00 Næturvaktin.
Hljóðbylgjan
Fimmtudagur 10. september
17.00-19.00 Pálmi Guðmunds-
son velur úrvalstónlist við
allra hæfi. Síminn 27711 er
opinn fyrir afmæliskveðjur.
Fréttir frá fréttastofu
Bylgjunnar/Stöðvar 2 kl.
18.00.
# Sælt er að
vera fátækur
Sælt er að vera fátækur. Þetta
kom upp í huga ritara S&S þegar
hann fletti í gegnum nýjasta
tölublað Frjálsrar verslunar og
sá þar úttekt blaðsins á launa-
kóngum landsins. Það er degin-
um Ijósara að topparnir í þjóðfé-
laginu komast nokkuð vel af. Að
minnsta kosti gæti maður ætlað
það eftir að hafa séð svart á
hvítu hvað þeir hafa í laun.
Hvernig haldíð þið til dæmis að
Jóni Helga Guðmundssyni, for-
stjóra BYKO, gangi að ná endum
saman f heimilisbókhaldinu með
um 1,3 milljón króna í mánaðar-
tekjur. Vonandi þarf hann ekki
að leita á náðir Félagsmálastofn-
unar! Guðjóni B. Olafssyni for-
stjóra Sambandsins, ætti einnig
að ganga þokkalega að komast
af með rúma milljón í mánaðar-
laun og það sama gildir um for-
ráðamenn kolkrabbafyrirtækj-
anna.
# Hægt að þéna
vei á Karíusi
og Baktusi
Það kemur víst fáum á óvart að
tannlæknar hafa alveg þokkaleg
laun. Þannig segir Frjáls verslun
að tekjuhæsti tannlæknirinn á
Akureyri hafi um 600 þúsund
krónur í mánaðarlaun, sem gerir
rétt tæpar 7 milljónir í árslaun.
oSrÓST
Þetta eru ágætis laun sem ritari
S&S gerði sig ánægðan með. En
að vísu eru þau ekki nema helm-
ingur af tekjum tekjuhæsta tann-
læknis á landinu, samkvæmt
samantekt Frjálsrar verslunar,
sem er í Hafnarfirði og heitir Sig-
urgfsli Ingimarsson. Hann hefur
aðeins 14,8 milljónir króna í
árslaun.
# Hong Kong
Ijós í myrkrinu
Frá launum toppanna á íslandi
austur til Hong Kong. I sama
tölublaði Frjálsrar verslunar er
athyglisverð grein um undir-
heima hlutabréfaviðskipta. Fram
hefur komið að íslenski hluta-
bréfamarkaðurinn er f töluverðri
lægð um þessar mundir, enda
keppast stjórnmálamenn við að
draga kjarkinn úr fólki og segja
allt vera að fara til andskotans.
En Ijósið í myrkrinu er Hong
Kong og íslendingar hafa eins
og aðrir séð það. Frjáls verslun
segir að sífeilt fleiri íslenskir
fjármagnseigendur kaupi hluta-
bréf austur í Hong Kong, enda
hafa þau hækkað um 40% frá
áramótum. En af hverju skyldi
það gerast? Jú, skýringin mun
vera mikill uppgangur í Guang-
don í Suður-Kína, sem erfríefna-
hagssvæði og liggur upp að
Hong Kong. Viðskiptaspekúlant-
ar spá að Suður-Kína og Hong
Kong séu ný efnahagsundur líkt
og Japan var forðum.