Dagur


Dagur - 30.10.1992, Qupperneq 3

Dagur - 30.10.1992, Qupperneq 3
Föstudagur 30. október 1992 - DAGUR - 3 Fréttir Aðalfundur Landssambands íslenskra útvegsmanna á Akureyri Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra, um frystiskipaútgerðir á aðalfundi LÍÚ í gær: „Fjárfestingaræði eru ávallt hættuleg“ „Afkoma fyrirtækja innan sjávarútvegsins er að sönnu misjöfn. Engum blöðum er þó um það að fletta að flest fyrir- tæki innan greinarinnar verða að óbreyttu rekin með halla á næsta ári. í því sambandi skiptir þrennt mestu máli. í fyrsta lagi falla greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði niður, í annan stað dregst afli saman og í þriðja lagi eru horfur um markaðsverð ekki sérstaklega Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, um málm- og skipaiðnaðinn: Algjör firra að leggja stein í götu viðskÍDta við Pólland „Það getur leitt til einhverra kostnaðarhækkana, sem koma til af ófyrirsjáanlegum gengisbreyt- ingum annarra þjóða, sem almenningur verður að sætta sig við. Kjaraskerðing er staðreynd, sem ekki verður umflúin, þegar afli minnkar og verð á afurðum lækkar og gengisþróun er okkur óhagkvæm,“ sagði hann. Formaður L.Í.Ú. ítrekaði þá skoðun samtakanna að tillögur um sóknarstýringu eða flotastýr- ingu þjónaði ekki miklum til- gangi, sérstaklega ekki í þeim aflasamdrætti sem sjávarútvegur- inn búi nú við. „Það er ekki lausn á þeim vanda að hefja samkeppni um veiðar þessara fáu fiska, sem veiða má. Þaðan af síður ætti að eyða miklum tíma í umræður um veiðileyfagjöld, þar sem yfirlýst- ur tilgangur þeirrar umræðu er að þrengja svo að rekstri útgerðar, að stór hluti hennar verði gjald- þrota.“ óþh „Samtök fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði hafa ályktað um málefni sín að undanförnu. Engu er líkara, en þeir telji viðskiptamenn sína vera aðal andstæðingana. Kröfur um einangrun og bann við við- skiptum við erlenda aðila eru svo öfgafullar, að engri átt nær,“ sagði Kristján Ragnars- son, formaður L.I.U., í ræðu sinni á aðalfundi samtakanna í gær. Og Kristján hélt áfram að ræða um skipaiðnaðinn: „Það hefur aldrei leikið á því vafi, að útgerð- armenn hafa ávallt talið, að hér þurfi að vera öflugur iðnaður til viðgerða á skipum, enda að lang- mestum hluta til hans leitað um endurbætur á skipum. Aðeins örfá skip hafa farið utan að undanförnu til viðgerða og þá nær eingöngu til Póllands, vegna sérhæfni þeirra í stálsmíði og lágra launa. Allir helstu sam- keppnisaðilar okkar erlendis leita einnig til þeirra með viðgerðir. Það væri algjör firra að leggja stein í götu þeirra viðskipta. Skipaiðnaðinum væri nær að líta í eigin barm og skoða vinnulag og nýtingu vinnutíma. Það mun allt- af verða erfitt að selja öðrum óunninn tíma og á hærra verði, en almennt gerist vegna yfirborg- ana.“ Kristján kom víða við í ræðu sinni. Hann ræddi mikið um afkomu sjávarútvegsins á yfir- standandi ári og sagði horfur á að hún yrði með öllu „óásættanleg á næsta ári.“ „Af yfirlýsingum stjórnvalda virðist, sem þau geri sér litla grein fyrir þeim erfiðleik- um, sem við er að glíma. Er helst á þeim að skilja, að vandann megi leysa með því að fyrirtæki verði lýst gjaldþrota. Komi til stórfelldra gjaldþrota í sjávarút- vegi mun það hafa keðjuáhrif á viðskiptaaðila svo sem banka, Kristján Ragnarsson. tryggingafélög og þjónustuaðila. Þessir aðilar munu glata veruleg- um fjármunum með ófyrirséðum afleiðingum fyrir þjóðfélagið," sagði Kristján. Auk kostnaðarlækkana sagði Kristján að ekkert annað lægi fyrir en að aðlaga gengi íslensku krónunnar að breytingum á gengi helstu viðskiptalanda íslendinga. uppörvandi um þessar mundir í Ijósi lægðar í efnahagsmálum í umheiminum og óhagstæðra breytinga á innbyrðis gengi gjaldmiðla að undanförnu.“ Þetta sagði Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra, á aðal- fundi LÍÚ á Akureyri í gær. Hann vitnaði til athugunar Sigurðar Stefánssonar og Hall- gríms Þorsteinssonar, endur- skoðenda, um afkomu 22 sjávar- útvegsfyrirtækja fyrstu átta mán- uði þessa árs, en þau eru flest stór og í fjölbreyttum rekstri. í ljós kom að botnfiskvinnsla, rækjuvinnsla og mjölframleiðsla er rekin með 1,44% tapi fyrstu átta mánuðina, en að teknu tilliti til greiðslna úr Verðjöfnunar- sjóði sjávarútvegsins er hagnaður upp á 3,78%. Afkoma útgerðar þessara fyrirtækja reyndist vera '■verri. Tapið var 2,22%, en 0,56% hagnaður að teknu tilliti til greiðslna úr Verðjöfnunar- sjóði. „Sérstaka athygli vekur að verksmiðjuskipin eru aðeins með 0,64% hagnað áður en greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði koma til. Þetta bendir til þess að miklum ofsögum fari af þeim skjótfengna gróða sem menn hafa talið að fælist í því að breyta skipum yfir í verksmiðjuskip og flytja vinnsl- una í æ ríkari mæli á haf út. í þessu ljósi er full ástæða til þess að gagnrýna útgerðarmenn fyrir fjárfestingaróðagot í vinnsluskip- um. Ég er ekki að andmæla til- veru þeirra. En fjárfestingaræði eru ávallt hættuleg. Víst er að þessar tölur sýna og þær breyt- ingar, sem hafa átt sér stað í markaðsaðstæðum nú nýlega, að full ástæða er fyrir menn að fara með gát í þessum efnum. Það mun enginn koma þeim til bjargar, sem misreiknar sig hér,“ sagði sjávarútvegsráðherra. Þorsteinn sagði að í dag stæðu menn frammi fyrir tveim kostum, annað hvort að fella gengi krón- unnar eða fara kostnaðarlækkun- arleiðina, lækka skatta og útgjöld atvinnuveganna og hækka þá í staðinn á heimilunum. Hann sagði að víðtæk samstaða stjórn- valda og aðila vinnumarkaðarins væri nauðsynleg. Því fagnaði hann frumkvæði forystumanna ASÍ og VSÍ í þessum efnum til þess að forða því að grípa þyrfti til gengisfellingar. „Ég þarf ekki hér að fara mörgum orðum um þá skoðun mína að ég tel þetta vera mjög mikilsverða tilraun en óhjákvæmilegt er að vekja athygli á tvennu í þessu sam- bandi. í fyrsta lagi: Tíminn hleypur frá okkur. í því ljósi er ástæða til að hvetja aðila vinnu- markaðarins til þess að hraða athugunum sínum. í öðru lagi er óvíst um að unnt sé að ná nægj- anlegum árangri í afkomubata með þessum hætti,“ sagði Þor- steinn. óþh Bœlt póstþjónusta Nútíma póstþjónusta byggir á hraða, gæðum og áreiðanleika. Með næturflutningum á pósti milli Akureyrar og Reykjavíkur höfum við stigið enn eitt skrefið til bættrar póstþjónustu, einstakiingum og fyrirtækjum tii hagsbóta. Með þessari bættu þjónustu myndast samfellt flutningskerfi fyrir póst urn Norðurland, Vesturland og höfuðborgarsvæðið. Með samtengingu þessara svæða við bíla er flytja póst um Suðurland og Suðurnes geta 80-85% landsmanna nýtt sér þessa bættu þjónustu. Markmið okkar er að póstsendingar, sem eru póstlagðar fyrir kl. 16.30 á höfuðborgarsvæðinu og póstleiðunum, verði komnar í hendur viðtakenda næsta virkan dag. Viðkomustaðir póstbílanna eru: S AKUREYRl 15 VARMAHLÍÐ -q SAUÐÁRKRÓKUR C SKAGASTRÖND J2 BLÖNDUÓS 3 HVAMMSTANGI BRÚ O BORGARNES 2 AKRANES REYKJAVÍK = HVERAGERÐI J5 SELFOSS 1/1 T3 HELLA* C HVOLSVÖLLUR* ro = KEFLAVIK JQ GRINDAVÍK* .2, VOGAR* 1/1 GARÐUR** VÍK** 3 EYRARBAKKI*** 3 STOKKSEYRI*** ^ ÞORLÁKSHÖFN *ef póstlagt er fyrir kl. ** ef póstlagt er fyrir kl. ***ef póstlagt er fyrir kl. OJ c v. 3 *o 3 wn SANDGERÐI** KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR** NJARÐVÍK 15:30. *ef póstlagt er fyrir kl. 15:30. 13:30. ** ef póstlagt er fyrir kl. 14:30. 16:00. PÓSTUR OG SÍMI Viö spörutn þér sporin

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.