Dagur - 30.10.1992, Page 6

Dagur - 30.10.1992, Page 6
6 - DAGUR - Föstudagur 30. október 1992 HV/ÍTASUHMUKIRKJAM býður þig velkomin(n) á kristilegar samkomur: Sunnudaga Kl. 15.30. BamaKirKja á sama tíma. Biblíulestra miðviKudaga Kl. 20.30. Bæn og lofgjörð föstudaga Kl. 20.00. UnglingasamKomur laugardaga Kl. 21.00. Safnaðarskrifstofan er opin virka daga frá kl. 9 til 16 - sími 12220, fax 12231. Bæjarlögmaður Akureyrar, f.h. Bæjarsjóðs Akur- eyrar, skorar hér með á gjaldendur sem hafa ekki staðið skil á eftirtöldum gjöldum að greiða þau nú þegar og ekki síðar en innan 15. daga frá dag- setningu áskorunar þessarar. Gjöldin eru: Aðstöðugjald, kirkjugarðsgjald og heilbrigðiseftir- litsgjald ársins 1992. Fjárnáms verður krafist, án frekari fyrirvara fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna að þeim tíma liðnum, samkvæmt heimild í 9. tl., 1. mgr. 1. gr. sbr. og 8. gr. laga nr. 90/1989 um aðför. Akureyri 30. október 1992, Bæjarlögmaður Akureyrar. a^m^mammmmmmm^mm—mmmmmmmmmm^m Helgartítboð Rauðvínslegnar lambafrainliiyggsneiðar kr. 799 kg. Svínakóteletturkr. 1099 kg. Kiwi kr. 155 kg. Blómkál kr. 205 kg. Paprika græn kr. 158 kg. ★ Opið alla daga td M. 20 ★ P^refaldur Lotto Kjarakröfur kennara í undirbúningi: „Kennarar hafa verið aflt of umburðarlyndir í kjaramálum“ - segir Hólmfríður Sigurðardóttir formaður BKNE Kjarabarátta kennara hefur verið nokkuð í sviðsljósinu á allra síðustu árum, bæði vegna skeleggrar baráttu þeirra fyrir bættum kjörum og kannski ekki síður vegna þeirrar gagnrýni sem þeir hafa oft á tíðum þurft að sæta úr þjóðfélaginu vegna vinnutíma o. fl. Oftar en ekki er þessi gagnrýni byggð á misskiln- ingi. 29 tíma kennsla í grunnskóla samsvarar 45.45 klst. vinnuviku og er mis- munurinn ætlaður til að und- irbúa kennslu, fara yfir verkefni og próf, til samstarfs og margs fleira sem ekki verður tíundað hér. A hverju hausti halda kennarar á Norðurlandi eystra tveggja daga haustþing. Til haustþings er stofnað af Banda- lagi kennara á Norður- landi eystra, BKNE og Fræðslu- skrifstofunni á Norðurlandi eystra, FNEY. Á haustþingum er kennurum boðið upp á ýmis námskeið og fyrirlestra þeim til fræðslu og endurmenntunar, kynningar á nýju eða endur- bættu námsefni og þess háttar. í tengslum við haustþingin hefur aðalfundur BKNE verið haldinn þar sem kjaramálin og önnur mikilvæg málefni kennara eru rædd. Þá fer fram stjómarkjör félagsins og að þessu sinni tók Hólmfríður Sigurðardóttir við for- mannsstarfinu. Dagur ræddi ný- lega við hana um BKNE og gildi þess að kennarastarfið sé metið að verðleikum, ekki síst launalega. Hólmfríður tók kennarapróf 1979 og hefur starfað við kennslu síðan, fyrst við Laugamesskólann í Reykjavík en við Lundarskóla frá 1983. Hólmfríður segir að hún hafi fljótlega farið að fylgjast með og starfa að félags- og kjara- málum kennara af þeirri einföldu ástæðu að henni hafi fundist sér koma þau við. „Þegar ég var að byrja að kenna var krafan um lögvemdun starfsins nokkurt hitamál. Margir töldu, að það að nánast hver sem var gat gengið inn í skólana og hafið þar kennslu væri virðingar- leysi við kennara sem höfðu aflað sér tilskilinna réttinda til starfans, nemendur og menntun almennt. Ég var og er þessu alveg sammála. Það starf sem fram fer í skólunum er svo mikilvægt að til þess þarf að vanda á allan hátt. Fátt er mikilvægara en góð og vrðtæk menntun og hennar er ekki aflað á sama máta og áður fyrr þegar störf og þekking á umhverfinu héldust nær sjálfkrafa í hendur við uppeldi bamanna. Það að reyna að kenna baminu að læra og að skilja á hvem máta það gerist er ekki ein- falt mál. Það að kunna eitthvað er ekki vissa fyrir því að geta kennt það öðrum, jafnvel þó svo að sá hinn sami eigi auðvelt með nám. Kennarastéttin vænti þess að lögvemdun starfsins ásamt bættri kennaramenntun myndi ekki ein- ungis koma bömunum betur með faglegri vinnubrögðum heldur einnig að það yrði metið að verðleikum til launa. Lögvemdun- in fékkst fyrir fimm árum en held- ur hafa launin lækkað þó kröfur til kennara aukist. Margir réttinda- kennara fara því í önnur betur launuð og oft auðveldari störf. Hins vegar hefur staðan oft verið sú og þá sérstaklega í dreif- býlinu að réttindakennarar hafa ekki fengist til starfa og sá vandi verið leystur af leiðbeinendum sem margir hafa reynst mjög vel. Hólmfríður Sigurðardóttir. Mynd: GG Stundum hefur tilvist þeirra dregið úr því að reynt væri til þrautar að manna stöður rétt- indafólki. Ég er mjög hrifin af því að Menntaskólinn á Akureyri skuli rjúfa þá tilslökun sem alltaf er gerð í ráðningarmálunum og vona að aðrir skólastjómendur fylgi eftir. Sú skoðun að kennarastarfið sé ekki lengur það virðingarstarf sem það var áður á sér ýmsar skýr- ingar. Ein helsta finnst mér vera sú að viðhorf og skilningur á gjör- breyttum aðstæðum bama og gildi menntunar í dag krefst allt annarra vinnubragða og aðstæðna í skól- unum en þeim hefur verið skapað. Hvers vegna það er svo er líka annað og margslungið mál. Menn hafa gjaman tengt saman kenn- arastarf og önnur uppeldisstörf láglaunuðum kvennastörfum. Meðan kennarinn fékkst í fyrstu meira við fræðslu staðreynda voru þeir flestir karlkyns. Svo kemur þörfin og viðurkenningin á nauð- syn hinnar mjúku hliðar kennsl- unnar, uppeldisþættinum. Missti starfið þá gildi sitt til virðingar og launa? - eða var það af því að um það leyti fóru konur að fara út á vinnumarkaðinn og treystu sér til að takast á við uppfræðslu bam- anna? Hvað sem hefur valdið er staðreyndin sú sem blasir við í dag. Kennarastarfið er mun verr launað en áður Konur eru í meiri- hluta við kennslu í grunnskólun- um, þær hafa menntun til þess og þurfa jafnframt að afla tekna sér og sínum til viðurværis. Uppeldis- þáttur skólanna hefur stóraukist, hefur færst í auknum mæli frá heimilunum af ýmsum ástæðum, hvort sem okkur líkar það betur eða verr, og það er vandasamara fyrir bömin að komast af í flóknum neysluheimi nútímans." Of umburðarlynd kjarabarátta? Það olli kennumm miklum von- brigðum líkt og öðmm stéttum að ekki skyldu nást fram betri kjarabætur í vor en 1.7% kaup- hækkun. Hvað tekur nú við í þeirri kjarabaráttu? „Kennarasambandið hefur und- anfarin ár lagt áherslu á faglegt starf í kjarabaráttu sinni og talið að það myndi skila sér m.a. í kjarabótum. Það er reyndar ekki hægt að tala um frjálsa samninga hin síðari ár. Þrátt fyrir skýra kröfugerð og óskir um samninga- fundi hafa stjómvöld hundsað og horft fram hjá mótmælum og aðvörunum skólarnanna og komist upp með það í svartsýnistali og bölmóði. Oftar en ekki hafa samn- ingsaðilar ekki ræðst við fyrr en samningstími hefur verið útrunn- inn, stéttin dregin á lögboðnum samningi og nauðug dregin inn í eitthvað sem nánast ekkert er. Slíkt gengur ekki lengur. Kenn- arar sem og fleiri starfsstéttir hafa sýnt mikið umburðarlyndi og langlundargeð. Grunnskólakenn- arar hafa ekki hin síðustu ár gripið til verkfallsvopnsins og margir innan stéttarinnar vilja draga það í lengstu lög. Þeir telja að með því geri þeir bömunum mestan greiða og meta það ofar eigin kjömm. En það dregur úr sjálfsvirðingunni að fá ekki réttmætar og rökstuddar kröfur viðurkenndar á borði og rýrir þar með þann þrótt og dug sem þarf til að takast á við nýjungar og framfarir. Vissulega er á sumum sviðum sjáanlega og skiljanlega minna til skiptanna en áður en þá ættu ráðamenn líka að fara fyrir í því að nýta og skipta betur og jafnar því sem til er. Kennarar gegna lykilhlutverki í allri þróun sem á sér stað í skóla- starfi. Þeir vilja móta faglegt skólastarf m.a. með því að hjálpa nemendum til að átta sig á tilgangi náms og samhengi þess við tilvemna. Kennarar eiga að berjast fyrir bættum starfsskilyrðum og kjörum og stuðla þannig að því að nemendur fái kennslu og umönn- un við hæfi. Við kennarar hvorki eigum né megum sætta okkur við slæman aðbúnað í skóla og léleg kjör sem hindra faglegt skólastarf og þar með betri aðbúnað bamanna." - Hvaða starf fer fram innan stjómar BKNE til hagsbóta í kjarabaráttu kennara? „Hjá Kjararáði Kennarasam- bandsins er verið að vinna að framsetningu á þeim kröfum sem við leggjum fram í næstu samn- ingum. Það er eitt af hlutverkum BKNE að hrinda úr vör kjara- málaumræðu meðal félagsmanna. Samningar verða lausir 1. mars n.k. svo það er ákveðin vinna framundan. Undanfarin ár hafa stjómarmenn KI komið út til aðildarfélaganna og kjaramála- fundir verið haldnir í sem flestum skólanna þar sem samningsdrög og tilboð ef verið hafa, hafa verið kynnt og fyrirspurnum svarað. BKNE hefur skipulagt þessa fundi og einnig staðið fyrir stærri kynn- ingarfundum. Trúnaðarmenn eru mjög virkir í þessu ferli og full- trúar svæðisins í Fulltrúaráði KÍ eiga að koma viðhorfum félags- manna á framfæri til kjararáðs og stjómar.“ Kynningarátak í nóvember - Hvaða verkefni önnur eru hjá félaginu? „Það er nú sitt af hverju. Að afstöðnu Haustþingi með tilheyr- andi uppgjöri á fræðslufundum, aðalfundi BKNE og öðm sem þar fór fram, taka við ýmsir fastir punktar í skólabyrjun. Félagið hefur skrifstofu í húsnæði Fræðsluskrifstofunnar á Norður- landi eystra og er vel sett. Þar eru 32 skólar með nálega 400 starf- andi kennurum. Félagið hefur ákveðnum skyldum og þjónustu að gegna við þá og Kennara- samband Islands og er tengiliður þeirra á milli. BKNE sér um kosn- ingu kennarafulltrúa í Fræðsluráð Norðurlands eystra og Skólanefnd Akureyrar og boðaði nýlega til trúnaðarmannanámskeiða sem haldin vom á Húsavík og Akur-

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.