Dagur - 30.10.1992, Qupperneq 7
Föstudagur 30. október 1992 - DAGUR - 7
Nemendur í 6. og 7. bekk Grunnskóla Raufarhafnar voru mjög duglegir við
gróðursetninguna...
...og það má reyndar líka segja um nemendur í 8., 9. og 10. bekk, sem þó
gáfu sér tíma, líkt og þeir yngri, til að stilla sér upp í myndatöku. Myndir: lh
í dag kl. 13-18
SnyrtifrcEðingur kynnir
ilmvatnið frá
Tri5tano DnDfri
Einnig kynning
á snyrtivörum
frá BIDDRDEA
Sími11500
í dag bjóðum við
til sölu:
I Smárahlið: Mjög falleg 2ja
herb. íbúö á 3. haeð um 60 fm.
■ Norðurgata: 5 herb. efri hæð
í tvíbýli um 132 fm. Allt sér.
Hugsanlegt að taka 3ja herb.
íbúð í fjölbýli í skiptum.
I Grenivelllr: 3ja herb. neðri
hæð í tvíbýli tæpl. 100 fm. Eign í
mjög góðu lagi. Laus eftir sam-
komulagi.
I Dalsgerði: Mjög falleg 3ja
herb. íbúð á efri hæð um 86 fm.
■ Keilusíða: 2ja herb. íbúð í
mjög góðu lagi á 1. hæð um 64
fm. Langtímalán um 2.8 millj.
Laus strax.
Þórunnarstræti: 5 herb. íbúð
á jarðhæð um 130 fm. Eignin er
laus 1. mars.
I Hrísalundur: 3ja herb. enda-
íbúð á 4. hæð um 76 fm. Lang-
tímalán um 2.4 millj.
FASTÐGNA& M
skipasalaSSI
NORÐURLANDS II
Opið virka daga kl. 13-17 og á
morgnana eftir samkomulagi.
Sölustjóri:
Pétur Jósefsson
Lögmaður:
Benedikt Ólafsson hdl.
arlega ekki neinir frídagar þar sem
ég þekki til og eiga heldur ekki að
vera það. Það er mismunandi eftir
skólum hvað gert er á þessum
dögum, en yfirleitt er þeim varið
til fræðslufunda, námskeiða,
skipulagningar ýmis konar, úttek-
tum á starfi sem hefur verið unnið
eða þess háttar. Það ætti að vera
liðin tíð að kennarar séu að sinna
hluta starfsins án þess að fá
greiðslu fyrir. Það gera væntan-
lega ekki aðrar stéttir og því þá
kennarar?“
Hlutfall réttinda-
kennara aldrei hærra
- Sérðu það í nánustu framtíð að
það verði ekki aðrir við
kennslustörf en þeir sem hafa
öðlast til þess full réttindi?
„í haust hafa grunnskólamir
fleiri réttindakennara innan skól-
anna en fyrr. E.t.v. er það vegna
samdráttar á atvinnumarkaðnum,
en ef ég lít björtum augum til
framtíðarinnar má vera að það sé
vaxandi áhugi á starfinu sjálfu
enda er það bæði fjölbreytt og
oftast skemmtilegt. Erfið verkefni
geta verið spennandi og það er
margt að fást við í skólamálunum.
Margt mætti þar betur fara, það er
fáum ljósara en kennurunum sjálf-
um. Þess vegna væri það ósköp
eðlilegt að á þá væri hlustað ef
vilji væri til að búa betur að böm-
unum okkar en raun ber vitni.
Vissulega er verið að vinna að
ýmsum framfaramálum í dag, en
þeim og öðru sem hefur unnist á
undanfömum árum er stefnt í
hættu með niðurskurði á fjár-
magni til skólamála og skerðingu
á kennslutíma bamanna á sama
tíma og krafan um einsetinn skóla,
samfelldan og lengri skóladag er
viðurkennd í orði. Áður en við
sjáum faglært fólk í öllum
kennslustörfum og að kennsla
verði raunverulega eftirsótt starf,
tel ég að betur þurfi að gera bæði
hvað aðbúnað og kjör snertir.
Grunnskólinn hefur aldrei fengið
þann tíma né fjármagn sem hann
hefur þurft til að sinna þeim
skyldum og kröfum sem til hans
eru gerðar og á því þarf að verða
gjörbreyting. Innan hans er verið
að leggja homsteininn að fram-
tíðinni öðmm stofnunum frernur."
G.G.
eyri fyrir trúnaðarmenn skólanna
og þannig mætti áfram telja. Fyrir
dyrum er kynningarátak í skólun-
um þar sem kynna á starfshætti og
aðbúnað nemenda og kennara.
BKNE hefur hvatt til þess að
kynningin fari fram í kringum 4,-
18. nóv. Það er nauðsynlegt að
auka áhuga og skilning almenn-
ings á kennslu og uppeldismálum.
Það er staðreynd að fjöldi foreldra
hefur aldrei séð eða fylgst með
störfum bams síns í skólunum og
því er vafasamt að umræður þeirra
á milli um hvað þar fer fram séu
alltaf á sömu nótunum. Það kemur
af sjálfu sér að þeir sem ekki hafa
fylgst með skólastarfi á vettvangi í
dag horfa aftur í tímann til sinnar
skólagöngu og þeirrar aðstöðu
sem þá var. Einnig taka umræður
og vangaveltur um hugmyndir að
yfirtöku sveitarfélaganna á grunn-
skólunum töluverðan tíma enda
brýnt að kennarar fylgist grannt
með þeim málum. Þar em á ferð-
inni miklar breytingar sem geta
haft áhrif á aðstöðu og aðbúnað
nemenda og kennara bæði til hins
betra eða verra. Stjóm BKNE
ráðgerir að halda ráðstefnu um
möguleikann á yfirtökunni og
hugsanlegar afleiðingar hennar
seinna á skólaárinu. I mars ætlar
Skólamálaráð Kennarasambands-
ins að halda Uppeldismálaþing á
Akureyri og að sjálfsögðu mun
stjóm BKNE aðstoða við það.
Þetta er svona það helsta sem er á
í líffræðitíma í Lundarskóla hjá Hólmfríði.
döfinni en verkefnin koma oft inn
með litlum fyrirvara".
Óvægin umræða
um kennarastarfið
- Finnst þér umræðan í þjóð-
félaginu um kennarastarfið vera
óvægin?
„Því miður heyrist oft fremur
af því neikvæða en því jákvæða
en vissulega fá kennarar oft já-
kvæða umfjöllun. Við kennarar
þurfum í auknum mæli að svara
neikvæðum, ósanngjömum rödd-
um og rangtúlkunum á störfum
okkar. Við þurfum eins og ég
sagði áðan að kynna betur okkar
störf. Það tel ég að við gemm best
Mynd: Robyn
með faglegu starfi og kynningu á
því hvað við erum að vinna
dagsdaglega, með því að fá fólk í
heimsókn þar sem því verður við
komið og meiri samvinnu milli
heimila og skóla á ytri þáttum
skólastarfsins. Kennarar hafa oft
legið þegjandi undir óréttmætum
ásökunum vegna vinnutímans. Þó
svo að einhver geti bent á Pétur
eða Pál sem hann getur sannað að
ekki sinni vinnuskyldu sinni er
það afar óréttmætt að dæma þar
með heila starfsstétt fyrir vinnu-
svik. Kennarar þurfa t.d. að kynna
betur hvaða starf fer fram þá daga
á starfstíma þeirra sem ekki falla
undir kennslu. Það em svo sann-
Skógræktarátak á Raufarhöfn:
Nemendur Grunnskólans hafa
plantað tæplega 5000 plöntum
- nú síðast 1700 birki- og elriplöntum
Nemendur í 6. til 10. bekk
Grunnskólans á Raufarhöfn
gróðursettu nýlega rúmlega
1700 birki- og elriplöntur í
ásinn ofan við þorpið.
Undanfarin tvö ár hafa
nemendur, undir stjórn skóla-
stjóra, gróðursett tæplega 5000
plöntur í landi Raufarhafnar-
hrepps en samtals er það um
helmingur þeirra plantna sem
gróðursettar hafa verið í tilefni af
skógræktarátaki á Raufarhöfn.
Það er skógræktardeild Kven-
félagsins Freyju sem hefur yfir-
umsjón með gróðursetningunni.
Plönturnar dafna vel en vetur
hafa líka verið mildir undanfarin
ár.
/ o N Hlífum
\ börnum
^ viö
^ tóbaksreyk!
linn LANDLÆKNIR