Dagur - 30.10.1992, Page 9
Föstudagur 30. október 1992 - DAGUR - 9
Þjóðamauðsyn að ríkis-
stjómin biðjist lausnar
- segir í stjórnmálaályktun Kjördæmisþings framsóknarmanna
á Norðurlandi vestra
Á Kjördæmisþingi framsókn-
armanna á Norðurlandi vestra,
sem haldið var dagana 24.-25.
október sl., var eftirfarandi
stjórnmálaályktun samþykkt:
„Ástand þjóðmála er uggvæn-
legt. Ríkisstjórn Davíðs Odds-
sonar hefur ekki reynst þeim
vanda vaxin að stjórna landinu
svo viðunandi sé. Átvinnulífið er
að dragast saman, m.a. vegna að-
gerðaleysis ríkisstjórnarinnar og
mislukkaðra ákvarðana hennar. í
stað þess að rétta atvinnulífinu
örvandi hönd trúir ríkisstjórnin á
úreltar og skaðlegar frjálshyggju-
kenningar og situr með hendur í
skauti í trausti þess að með
gjaldþrotum lakar settu fyrir-
tækjanna batni aðstaða þeirra
sem eftir verða. í kjölfar þessarar
stefnu hefur mjög alvarlegt at-
vinnuleysi hafið innreið sína og
horfur eru á að það fari stór-
versnandi. í stað þess að knýja
niður raunvexti leggur ríkis-
stjórnin nýjar álögur á atvinnulíf-
ið í formi skatta og þjónustu-
gjalda. Gengi íslenski krónunnar
hefur hækkað mjög í samanburði
við gjaldmiðla helstu viðskipta-
landa og þannig skapað óþolandi
samkeppnisaðstöðu fyrir íslensk-
an útflutning.
Samdráttur í framleiðslugrein-
um kemur mjög hart niður í
byggðarlögum í dreifbýlinu og
mun, ef ekki verður gripið strax
til raunhæfra aðgerða í atvinnu-
og byggðamálum, leiða til stór-
felldrar byggðaröskunar. Kjör-
dæmisþingið mótmælir harðlega
hugmyndum um veiðileyfagjald.
Létta verður af sjávarútveginum
álögum sem ríkisstjórnin hefur
lagt á hann og lækka fjármagns-
kostnað. Verði ekki gripið til víð-
tækra ráðstafana fellur gengið
óhjákvæmilega.
Samdráttur í hefðbundnum
landbúnaði hefur orðið of sárs-
aukafullur. Leita verður allra
leiða til að auka á ný markaðs-
hlutdeild hefðbundinna landbún-
aðarvara og taka framleiðslu-
Bergur Björnsson:
Reiki-heilun
- svar til Ómars Torfasonar
Nýlega barst mér í hendur grein
sem birtist í Degi. Hún er rituð af
Ómari Torfasyni, sjúkraþjálfara,
sem biður mig að skilgreina nán-
ar hvað ég eigi við með guðlegri
visku reikis og staðhæfingu um
að reiki sé óháð trúarbrögðum.
Með leyfi ritstjóra er mér ljúft
að skýra hvað ég á við. Mér virð-
ist aðalatriðið í þessu máli vera
að ég geri grundvallargreinarmun
á guðstrú annars vegar og ein-
hverjum ákveðnum trúarbrögð-
Kór Glerárkirkju:
Heldur tón-
leika í
Ýdölum
- á morgun kl. 16.00
Kór Glerárkirkju á Akureyri
heldur tónleika í Ýdölum í
Aðaldal á morgun, laugardag-
inn 31. október kl. 16.00. Kór
Glerárkirkju sem áður hét
Kirkjukór Lögmannshlíðar-
sóknar, var stofnaður 12.
febrúar 1944 og er nú skipaður
50 söngvurum.
Kórinn syngur við athafnir í
Glerárkirkju á Akureyri en sú
kirkja er nú í byggingu og verður
vígð 6. desember nk. Söngstjórar
kórsins hafa verið Jakob Tryggva-
son og Áskell Jónsson en einnig
aðstoðaði Jón Hlöðver Áskels-
son, föður sinn síðustu tvö ár
hans sem stjórnanda. Á efnisskrá
kórsins eru lög og útsetningar eft-
ir þessa fyrrum kórstjóra. Áskell
lét af störfum árið 1987 eftir 42
ára starf og við tók Jóhann Bald-
vinsson núverandi kórstjóri.
Efnisskrá tónleika Kórs Gler-
árkirkju er mjög fjölbreytt og
skiptist í tvo hluta, annars vegar
með kirkjulegri en hins vegar
veraldlegri tónlist. Sem fyrr segir
hefjast tónleikarnir á morgun kl.
16.00 og eru aðgöngumiðar seldir
við innganginn.
um hins vegar. Ég tel að maður
geti trúað á almáttugan guð,
skapara himins og jarðar, án þess
að þurfa endilega að tengjast eða
aðhyllast einhver trúarbrögð.
Vegna þess að reiki er í senn
öflugt og um leið þrungið kær-
leika, þá tel ég það vera guðlega
orku og visku og þó ekki tengt
neinum trúarbrögðum, frekar en
til dæmis yoga eða hugleiðsla,
svo eitthvað sé nefnt. Þó að það
hafi verið búddamunkur sem
uppgötvaði reiki, þá er það að
sjálfsögðu opið öllu fólki en ekk-
ert bundið við hans persónu frek-
ar en annarra kennara, sem á eft-
ir hafa komið.
Ég tel líka að kristin trú og
búddatrú séu í grundvallaratrið-
um samstæð trúarbrögð en ekki
andstæð, eins og Ómar Torfason
heldur fram, þar sem bæði byggja
á bróðurkærleik og manngæsku.
Að síðustu nefni ég heilaga
fjallið. Búddamunkurinn dr. Usi,
sem kynnti reiki fyrir okkur, fékk
hugljómun eftir langa hugleiðslu
á fjallinu Kori-yama. Japanir
telja þetta fjall heilagt - og það
löngu fyrir daga reikis án þess ég
viti ástæður þess.
Með kærri kveðju,
Bergur Björnsson, reikimeistari.
Uppboð
Framhaldsuppboð á eftirtöldum
eignum verður háð á þeim sjálfum
miðvikudaginn 4. nóvember 1992,
á neðangreindum tímum:
Ægisgata 8, Akureyri, þinql. eig.
Heiður Jóhannesdóttir og Aki Sig-
urðsson. Gerðarbeiðendur inn-
heimtumaður ríkissjóðs, Vátrygg-
ingafélag Islands hf. og (slands-
banki hf., kl. 10.00.
Ránargata 10b, Akureyri, þingl. eig.
Eyfirsk matvæli hf. Gerðarbeiðend-
ur Vátryggingafélag Islands hf., Líf-
eyrissjóður verslunarmanna og Bún-
aðarbanki Islands, kl. 11.00.
Sýslumaðurinn á Akureyri
29. október 1992.
stjórnunina til endurskoðunar.
Þingið mótmælir harðlega þeim
stórfellda niðurskurði til land-
búnaðarmála sem boðaður er í
fj árlagafrumvarpi r íkisstj órnar-
innar.
Kjördæmisþing framsóknar-
manna á Norðurlandi vestra telur
samninginn um Evrópskt efna-
hagssvæði óaðgengilegan fyrir
íslendinga. í samningnum felst
hættulegt fullveldisafsal og eign-
arhaldi Islendinga á landi sínu oe
auðlindum þes er stefnt í voða.
Að kröfu Evrópubandalagsins er
fiskiflota þess sleppt inn í fisk-
veiðilögsögu íslands til endur-
gjalds fyrir nokkrar tollaívilnanir
fyrir fiskafurðir sem við flytjum
til Evrópubandalagsins. Ópnað
er fyrir verulegan innflutning
landbúnaðarafurða. Atvinnuör-
yggi fjölda íslendinga er stefnt í
hættu með auknum innflutningi
þeirra vara sem við höfum hingað
til framleitt sjálf og einnig með
innflutningi vinnuafls. Þá sam-
ræmist samningurinn ekki hinni
íslensku stjómarskrá. Kjördæmis-
þingið telur samninginn stórt
skref inn í Evrópubandalagið en
því hafna framsóknarmenn al-
gjörlega. Kjördæmisþingið leggst
eindregið gegn þessari samninga-
gerð og krefst þjóðaratkvæða-
greiðslu um málið.
Kjördæmisþingið telur að Is-
lendingar eigi að leita eftir tví-
hliða viðskiptasamningi við Evr-
ópubandalagið og fyrirgera ekki
frumburðarrétti sínum til íslands
og auðlinda þess. Við eigum gott
land og gjöfult og höfum góða
möguleika til þess að eiga hér
bjarta framtíð með skynsamleg-
um stjórnarháttum, traustu at-
vinnulífi og áframhaldandi upp-
byggingu velferðarþjóðfélags
samvinnu, samhjálpar og félags-
legs öryggis.
Kjördæmisþingið telur einu
leiðina út úr þeim vanda sem á
okkur hefur dunið, að ríkis-
stjórnin biðjist lausnar og efnt
verði til kosninga sem allra fyrst.
Það er þjóðarnauðsyn.“
HOTEL KEA
Laugardagskvöldið 31. október
SVEIFLUKÓNGURINN
Geirmundur Valtýsson
og hljómsveit í rífandi stuði
Sunnudagsveisla á Súlnabergi
Súpa
Reykt grísalæri með rauðvínssósu
og/eða roast beef béarnaise
Þú velur meðlætið, salatið og sósurnar
og endar þetta á glæsilegu deserthlaðborði
Allt þetta fyrir aðeins kr. 1.050
Frítt fyrir börn 0-6 ára, Vi gjald fyrir 6-12 ára
Aðalfundur
Framsóknarfélags Akureyrar
verður haldinn mánudaginn 2. nóvember nk. í
Hafnarstræti 90, kl. 20.30 e.h.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar.
Kosning fulltrúa á Kjördæmisþing og
Flokksþing.
Önnur mál.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson alþingis-
maður mætir á fundinn.
Félagar eru hvattir til að fjöimenna.
Stjórn Framsóknarfélags Akureyrar.
AUGLYSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RlKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00
1983- 2.fl. 1984- 3.fl. 01.11.92-01.05.93 12.11.92-12.05.93. kr. 56.907,33 kr. 63.874,84
*)lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, október 1992.
SEÐLABANKI ÍSLANDS