Dagur - 30.10.1992, Síða 12
Akureyri, föstudagur 30. október 1992
Vegagerðin setur upp vega-
eftirlitsstöðvar á fjaflvegum
- fylgst með hitastigi, raka, vindstyrk og
vindátt til að auka umferðaröryggi
Kvöldseðill Smiðjunnar
Skelfiskþrenna í kampavínssósu með vínberjum
Hunangsmelónuískrap
Villibráðartvenna (hreindýramedalía og
gæsabringa) með Waldorfsalati
Kaffi og konfekt
Reyktur lax
Ofnsteikur lambahryggvöðvi kryddaður hvítlauk
og villtum jurtum
Heimalagaður ís með ferskum jarðarberjum
Sl. haust setti Vegagerð ríkis-
ins upp eftirlitsstöð á Hellis-
heiði, en með hjálp hennar er
hægt að fylgjast með í töflum
eða með grafíkmynd á tölvu-
skjá rakastigi í lofti, hitastigi
við veg, lofthita, mettunarstigi
í lofti og á vegi til þess að sjá
fyrir um hálku eða hálkuskil-
yrði og hvort líkur eru á snjó-
komu því um leið og úrkoman
kemur yfir þá snarhækkar rak-
inn í loftinu. Sjá má hvort
skafrenningur er á heiðunum
en þá fer saman ástandið á
svæðinu og vindhraði og einnig
er hægt að sjá hvort þar er
stórhríð og blinda.
Mögulegt er að fylgjast með
vindstyrk og vindátt og einnig er
fylgst með umferðartíðni þ.e.
fram fer stöðug umferðartalning.
Á þessu hausti verða settar upp
eftirlitsstöðvar á Holtavörðu-
Hótel Varmahlíð:
orðin fokheld
Viðbyggingin við Hótel
Varmahlíð er nú orðin fokheld
og er verið að innrétta 1. hæð.
Verkið gengur samkvæmt
áætlun, að sögn Ásbjargar
Jóhannsdóttur hótelstjóra.
Byggingin er á þremur hæðum
og þar verður m.a. betri eldhús-
aðstaða og geymslur, íbúð fyrir
hótelstjóra auk nýrra herbergja
fyrir hótelgesti. Pað verða alls 12
tveggja manna herbergi á tveim-
ur hæðum. Nú er nýbyggingin
fokheld og byrjað að innrétta
eina hæð af þremur. Segist
Ásbjörg vonast til að húsnæðið
verði tilbúið næsta vor. Fátt er
um gesti á hótelinu þessa dagana,
enda segir Ásbjörg að lítill svefn-
friður sé á morgnana fyrir verk-
glöðum smiðum og öðrum verk-
tökum. sþ
heiði og Öxnadalsheiði og einnig
hefur Vegagerðin aðgang að stöð
sem Veðurstofan hefur á Breiða-
dalsheiði á Vestfjörðum, en á
henni má sjá vindátt, vindstyrk
og hitastig.
Prófun fer nú fram á þeirri stöð
sem sett verður upp á Holta-
vörðuheiði, en verið er að leggja
strengi að þeim stað þar sem hún
verður staðsett til þess m.a. að
tengja vegateljara. Eirinig hefur
staðsetning stöðvarinnar á Öxna-
dalsheiði verið ákveðin.
Björn Ólafsson verkfræðingur
hjá Vegagerðinni segir að reynsl-
an af stöðinni á Hellisheiði lofi
góðu en með stöðvunum er fyrr
hægt að grípa til aðgerða til
hjálpar umferðinni eða senda út
aðvarnir ef vegir teppast á vetr-
um vegna snjókomu.
Kostnaður við innkaup og upp-
setningu einnar stöðvar er rúm-
lega ein milljón króna.
í framtíðinni munu allar
umdæmisskrifstofur Vegagerðar-
innar hafa aðgang að upplýsing-
um frá stöðvunum, en Björn
vakti athygli á því að í dag má fá
upplýsingar í textavarpi um færð
á þjóð- og fjallvegum en um ára-
mótin verður hægt að fá þessar
upplýsingar um alla vegi landsins
í textavarpi. GG
Sæþór EA-101 og Sólrún EA-351 við bryggju á Árskógssandi. Mikil ókyrrð er í höfninni á veturna þegar bræla er
og verður iðulega að flytja bátana til Dalvíkur eða Akureyrar. Mynd: GG
Árskógssandur:
Sólrún EA farin á línuveiðar
Sólrún EA-351 á Árskógssandi
er að fara á línuveiðar og mun
til að byrja með leggja línuna
vestur í Reykjafjarðarál eða á
Húnaflóa. Báturinn hefur ver-
ið á rækjuveiðum að undan-
förnu og aflað sæmilega. Afl-
inn hefur verið unnin hjá
rækjuverksmiðjunni Árveri hf.
á Árskógsströnd sem Söltunar-
félag Dalvíkur hf. hefur á leigu
til 30. nóvember nk.
Sæþór EA-101 hefur einnig
verið á rækju og mun verða enn
um sinn, en mun síðan væntan-
lega fara á ufsaveiðar með net
eða línu. Sæþór EA er í eigu G.
Ben. sf. sem einnig gerir út Arn-
þór EA-16 sem nú er kominn á
síldveiðar fyrir austan. Heildar-
aflinn er um 800 tonn og hefur
honum öllum verið landað til
bræðslu á Seyðisfirði. í gær land-
aði Arnþór EA 250 tonnum á
Seyðisfirði sem hann fékk í Beru-
fjarðaráli aðfaranótt miðviku-
dags. Bræla hefur verið á síld-
armiðunum en blíðuveður var
komið þar síðdegis í gær. GG
Jón LaxdaJ dregur Hæstaréttar-
mál gegn íslandsbanka tíl baka
■ liður í samkomulagi ábyrgðarmanna Kaupfélags Svalbarðseyrar og íslandsbanka
Hæstaréttarmál Jóns Laxdal,
Nesi í Grýtubakkahreppi, gegn
íslandsbanka hf. hefur verið
dregið til baka. Þetta kemur
fram í samkomulagi sem
ábyrgðarmenn Kaupfélags
Svalbarðseyrar gerðu við
Islandsbanka í síðustu viku.
í 3. grein samkomulagsins seg-
Átaksverkefni í Mývatnssveit:
Rekstur skólabúða að heflast
Hulda Harðardóttir hóf störf
hjá Átaksverkefni í Mývatns-
sveit um síðustu mánaðamót.
Þann 1. nóvember er ár síðan
átaksverkefnið tók til starfa er
fyrrverandi starfsmaður hóf
störf eftir talsverða undirbún-
VEÐRIÐ
Fremur hæg suðvestan og
vestanátt verður á landinu
með smá éljum eða slyddu-
éljum um vestanvert landið
en úrkomulitlu annarsstaðar
fram eftir nóttu en þá geng-
ur í norðan kalda eða
stinningskalda með éljum
eða slydduéljum um
norðanvert landið.
ingsvinnu. í sumar var hlé á
starfseminni.
í febrúar var haldin svokölluð
leitarráðstefna. Þar urðu til sex
starfshópar og einnig var unnið
að því að koma á skólabúðum.
Hóparnir eru enn starfandi nema
einn sem lokið hefur sínu verk-
efni. Tilraun var gerð varðandi
skólabúðirnar í fyrravor og fyrir-
hugað er að hefja rekstur skóla-
búða aftur, nú á næstu dögum, en
fjármagn hefur fengist til nokk-
urra vikna reksturs fyrir áramót-
in. Hulda sagðist síðan vona að
rekstur búðanna færi inn á fjárlög
þannig að áframhald yrði á.
Hulda sagði að enn hefði ekk-
ert áþreifanlegt komið til af
starfi hinna hópanna. Starfsemin
hefði að vísu legið niðri í sumar,
bæði vegna þess að starfsmaður
átaksverkefnisins hætti í vor og
vegna mikilla anna við ferða-
mannaþjónustu í Mývatnssveit.
Starfsvið flestra hópanna er á
einn eða annan hátt tengt ferða-
mannaþjónustu.
Hulda sagði að starfssvið hóp-
anna ætti ef til vill eftir að breyt-
ast. Einn hópurinn hefði t.d.
unnið að hugmyndum um hvern-
ig lengja mætti ferðamannatím-
ann. Sá hópur er að ljúka störf-
um en í framhaldi verða líklega
stofnaðir þrír hópar til að vinna
að aðskildum verkefnum á þessu
sviði.
Fyrirhugað er að Átaksverk-
efnið taki upp aukið samstarf við
Atvinnuþróunarfélag Þingey-
inga.
Hulda er í hálfu starfi hjá
átaksverkefninu. Hún sagði í
samtali við Dag að sér þætti starf-
ið mjög áhugavert og oft væri erf-
itt að slíta sig frá því, hugurinn
viidi leita til verkefnanna utan
vinnutíma. IM
ir orðrétt: „Bankinn og Jón
Laxdal lýsa því yfir að Hæstarétt-
armál nr. 92 og 93 verði fellt nið-
ur án kostnaðar og senda Hæsta-
rétti skriflega og sameiginlega
yfirlýsingu lögmanna sinna þar
um.“ Samkvæmt upplýsingum
skrifstofu Hæstaréttar höfðaði
Jón Laxdal þessi mál gegn
íslandsbanka. Nefnd yfirlýsing
imálsaðila hafði ekki borist skrif-
stofu Hæstaréttar í gær.
Eins og fram hefur komið
sömdu ábyrgðarmenn Kaupfé-
lags Svalbarðseyrar og íslands-
banki hf. um greiðslu á 16,5
milljónum króna og hefur þegar
verið frá greiðslu þessarar upp-
hæðar gengið. Eftir því sem næst
verður komist greiða þeir
Tryggvi Stefánsson, Hallgilsstöð-
um Fnjóskadal, Bjarni Hólm-
grímsson, Svalbarði Svalbarðs-
strandarhreppi, Jón Laxdal í
Nesi í Grýtubakkahreppi og Ingi
Þór Ingimarsson, Neðri-Dálks-
stöðum Svalbarðsstrandarhreppi,
3 milljónir hver auk málskostn-
aðar, Karl Gunnlaugsson á
Akureyri, fyrrverandi kaup-
félagsstjóri Kaupfélags Sval-
barðseyrar, 1,5 milljón króna,
Guðmundur Þórisson, Hléskóg-
um Grýtubakkahreppi, 1 milljón
króna og Hreinn Ketilsson,
Sunnuhlíð Svalbarðsstrandar-
hreppi nálægt 800 þúsundum.
Þá er ógetið þeirra Halls
Jósepssonar, Arndísarstöðum í
Bárðardal og Hjalta Kristjáns-
sonar, Hjaltastöðum í Ljósa-
vatnshreppi, en þeir greiða hvor
um sig nálægt 700 þúsund
krónum. Hjalti neitaði í gær að
ræða þetta mál, en samkvæmt
þeim upplýsingum sem Dagur
hefur aflað sér má rekja þessa
upphæð til tryggingarvíxils hjá
íslandsbanka, dagsettum 15.
október 1988 sem þeir skrifuðu
upp á. Kaupfélag Svalbarðseyrar
var hins vegar lýst gjaldþrota 26.
ágúst 1986. Vegna þess að liðið
var meira en ár frá því að kröfu-
lýsingarfrestur í þrotabú kaupfé-
lagsins rann út litu ábyrgðarmenn
svo á að þessi víxill væri fyrndur.
Þá töldu þeir ekki samrýmast lög-
um að prófkúruhafi gæti sam-
þykkt víxil eftir gjaldþrota-
úrskurð Kaupfélags Svalbarðs-
eyrar. Bæjarþing Akureyrar
komst hins vegar að þeirri niður-
stöðu 14. júlí 1991 að bændunum
tveim bæri að greiða víxilinn.
Eftir því sem Dagur kemst næst
var þeim Halli og Hjalta ekki
kunnugt um þá niðurstöðu fyrr
en rúmu ári sfðar, eða nokkrum
mánuðum eftir að frestur til að
skjóta úrskurðinum til Hæstarétt-
ar rann út.
óþh