Dagur


Dagur - 05.11.1992, Qupperneq 1

Dagur - 05.11.1992, Qupperneq 1
75. árgangur Akureyri, fímmtudagur 5. nóvember 1992 211. tölublað Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra og Aldís Friðriksdóttir hjúkrunarforstjóri sjúkrahúss, heilsa upp á yngstu Þingeyingana og mæður þeirra. Félagsmálaráðherra kynnir tillögur um sameiningu sveitar- félaga á ferð sinni um Þingeyjarsýslur: Aðstæður erfiðar í norður- sýslunni og vegalengdir miklar Jóhanna Sigurðardóttir, félags- málaráðherra, heimsótti í gærmorgun heilsugæslustöð, sjúkrahús og dvalarheimili aldraðra á Húsavík. Þá var að sjálfsögðu litið við á fæðingar- deildinni og heilsað upp á tvo Neitar að greiða 40% skatt af gjöf Menningarsjóðs Áskell Jónsson, fyrrverandi organisti og kórstjórnandi á Akureyri, hefur vísað til yfírskattanefndar máli vegna skattlagningar á 100 þúsund króna gjöf frá Menningarsjóði Akureyrar í aprfl 1991. Menningarsjóður veitti Áskeli þessa upphæð í viður- kenningarskyni vegna margra áratuga starfs að tónlistarmál- um á Akureyri. Síðar kom í ljós að Áskeli var gert að greiða 40% upphæðarinnar f skatt og kom það honum í opna skjöldu. Áskell fór fram á það við skattstjórann á Norðurlandi eystra að fallið yrði frá skatti, en því erindi var hafnað og vísað til þess að gjöfin væri skilgreind sem styrkur og af honum bæri að greiða fullan skatt. Síðar fékk Áskell bréf frá Sýslumannin- um á Akureyri þar sem honum var bent á að til fjárnáms og uppboðs geti komið, neiti hann að borga þessi 40 þúsund krónur. Áskell segist ekki sætta sig við þessi málalok og því hafi hann í fyrradag vísað málinu með bréfi til yfirskattanefnd- ar. óþh Sjá nánar grein Áskels Jóns- sonar á bls. 5: „Hvernig má þetta vera?“ yngstu Þingeyingana í bænum. Ráðherra sýndi heilbrigðismál- um og aðstöðu á staðnum mik- inn áhuga og spurði margs um starfsemina á stofnununum. í för með ráðherranum voru: aðstoðarmaður hans, Bragi Guðbrandsson, Húnbogi Þor- steinsson, skrifstofustjóri í félagsmálaráðuneytinu og Sturlaugur Tómasson, deildar- stjóri. Hópurinn hefur verið á ferð um Norðausturland síðustu daga og komið við á Þórshöfn, Raufar- höfn, Kópaskeri og Húsavík. Haldnir hafa verið fundir með bæjar- og sveitarstjórnum á svæðinu. Ráðherra heimsótti einnig vinnustaði á hverjum stað og var með viðtalstíma. „Tilgangurinn með ferðinni er, að ráðherra er að kynna sveitar- sjórnunum það sem verið er að vinna að í ráðuneytinu og snertir þær sérstaklega. En einnig að hlusta á viðhorf sveitarstjórnar- manna, og það hefur verið mjög gagnlegt. Við erum fyrst og fremst að kynna þessar tillögur sem út eru komnar og menn eru að bíða eftir viðbrögðum við þeim og menn eru að velta mál- unum fyrir sér og ræða tillögurn- ar. Það eru örugglega vissir erfið- leikar á sameiningu sveitarfélag- anna, sérstaklega í Norðursýsl- unni. Aðstæður eru þannig og miklar vegalengdir milli staða,“ sagði Húnbogi Þorsteinsson, skrifstofustjóri, aðspurður um til- gang ferðarinnar og viðbrögð við hugmyndum um sameiningu sveit- arfélaga. IM Venjulegir og demantsskornir trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI Rólegt á loðnumiðunum: ,inægður með aukinn kvóta en mjölverðið kætir engan“ - segir Bjarni Aðalgeirsson útgerðar- maður á Húsavík Sáralítil loðnuveiði var í fyrri- nótt á miðunum norðaustur af Langanesi, en loðnan er mjög dreifð og erfítt að ná henni. Guðmundur Ólafur ÓF land- aði í gærmorgun um 500 tonn- um af loðnu og síld í Krossa- nesi og í gærkvöldi landaði Þórður Jónasson EA þar 500 tonnum af sfld. Þórður Jónas- son EA hefur veitt sinn sfldar- kvóta en Guðmundur Ólafur ÓF á eitthvað eftir af síldar- kvóta. Sömu sögu er að segja af síld- armiðunum, síldin stendur djúpt og er stygg og hefur ekki komið upp fyrir 50 faðmana undanfarn- ar nætur. Þó fékk Gullberg VE 150 tonn sem báturinn er á leið með til Vestmannaeyja og Arn- þór EA fékk 90 tonn sem landað verður til vinnslu á Seyðisfirði. Auk þess hafa þeir á Arnþóri EA sett. síldina í kör með sjó og ís og landað því einnig á Seyðisfirði, en sú síld er verkuð á Japans- markað. „Ég er mjög ánægður með það að það eigi að auka við loðnu- kvótann, en hins vegar má hún fara að vera í veiðanlegra ástandi og ennfremur er verðið á mjölinu ekkert til að kætast yfir,“ segir Bjarni Aðalgeirsson, útgerðar- maður á Húsavík, en hann gerir út loðnuskipið Björgu Jónsdóttur ÞH-321. Skipið kom í gær til Þórshafnar með 450 tonn af loðnu sem er þriggja nátta veiði. Báturinn er nú á loðnu þar sem síldarkvóti bátsins er alveg á þrotum. Til stendur að kaupa meiri síldarkvóta að sögn Bjarna, en ekki verið gengið frá neinu. Nokkuð hefur verið um það að minni bátar hafi verið að selja Ríkið kaupir Glerárgötu 36 af KEA og Byggðastofnun - raeð kaupunum stækkar húsnæði Háskólans á Akureyri um 1000 fermetra Gengið hefur verið frá kaup- um fjármálaráðuneytisins á húsinu Glerárgötu 36 á Akur- eyri fyrir starfsemi Háskólans á Akureyri. Ríkið kaupir jarðhæð, aðra og þriðju hæð af Kaupfélagi Eyfirðinga og fjórðu hæð af Byggðastofnun. Kaupverð hússins, sem er um 2000 fermetrar, fæst ekki gefið upp. Háskólinn á Akureyri hefur í nokkur ár haft afnot af hluta hússins. Á jarðhæð eru rann- sóknastofur sjávarútvegsdeildar skólans og útibúa Rannsókna- stofnunar fiskiðnaðarins og Haf- rannsóknastofnunar auk skrif- stofu útibús Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins. Á annari hæð eru kennslustof- ur og auk þess skrifstofur og kaffistofa. Á þriðju hæð hússins er Lög- fræðiskrifstofa Benedikts Ólafs- sonar og Fasteigna- og skipasala Norðurlands til húsa, en einnig hefur Háskólinn þar þrjár skrif- stofur. Gert er ráð fyrir að lög- fræðistofan og fasteignasalan rými sinn hluta síðar í vetur og þá fái Háskólinn alla hæðina til afnota. Á síðustu vikum hefur Háskól- inn verið að flytja skrifstofur starfsmanna og lesaðstöðu nemenda í sjávarútvegsdeild upp á fjórðu hæð hússins, en þar er einnig Teiknistofa Karls Þorleifs- sonar og skrifstofa Félags rækju- og hörpudiskframleiðenda til húsa. Ólafur Búi Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Háskólans á Akureyri, segir að þessi samning- ur sé mjög ánægjulegur og mikil- vægur fyrir skólann. „Enn sem komið er hefur ekki verið ákveð- ið hvaða hluti af starfseminni í húsnæðinu hér við Þingvalla- stræti verður fluttur niður í Gler- árgötu. Hér er þegar orðið mjög þröngt og því ljóst að við munum flytja eitthvað af starfseminni,“ sagði hann. Á sínum tíma lét Kaupfélag Eyfirðinga Háskólanum í té tvær neðstu hæðir Glerárgötu 36 endurgjaldslaust. Magnús Gauti Gautason, kaupfélagsstjóri KEA, vildi ekki gefa upp sölu- verð húsanna. „Við hefðum ekki samið um sölu nema við værum sáttir við verðið. Hins vegar er verð á fasteignum í dag mjög lágt og því er markaðurinn hagstæður fyrir kaupendur,“ sagði Magnús Gauti. óþh kvótann eða leigt hann, en þegar síldin veiðist ekki lengur á inn- fjörðum verður erfitt um vik fyrir þá. Stærri bátarnir hafa stærri síldarnætur og margir hverjir bógskrúfur sem gerir gæfumuninn á þessum veiðum. GG Hrísey: Ásborg EA seld til Keflavíkur Ásborg EA-259, 347 tonna bátur smíðaður í Noregi 1975 verður seldur kvóta- laus til Kefíavíkur þegar samþykki lánastofnana og hreppsnefndar Hríseyjar- hrepps liggur fyrir. Eigandi er Birgir Sigurjónsson í Hrísey. Kaupendur eru Óskar Karl Þórhallsson og Dagur Ingi- mundarson í Keflavík, en þeir eiga fyrir 197 tonna bát, Árn- ey KE-50. Söluverð bátsins segir Birgir vera ásættanlegt. Ásborg EA landaði á fimmtudag 33 tonnum af rækju á Dalvík, sem fékkst austur á Héraðsflóa. Ekið var með aflann til vinnslu á Blönduósi. GG Sambandshluturinn í Sjöfn og Kaffibrennslunni: Viðræður um kaup KEA Viðræður standa nú yfír um kaup Kaupfélags Eyfírðinga á helmingshlut Sambands íslenskra samvinnufélaga í Kaffibrennslu Akureyrar og Sjöfn. í báðum þessum fyrirtækjum á Sambandið og dótturfyrirtæki þess helmingshlut á móti KEA. Magnús Gauti Gautason, kaupfélagsstjóri KEA, segir þann möguleika skoðaðan í mikilli alvöru að kaupa þessa hluti. Hann segir að kaup yrðu þá gerð til að fyrirtækin megi starfa áfram á svæðinu og vaxa. „Hins vegar höfum við enga ákvörðun tekið um fram- haldið óg hvort við seljum ein- hvern hluta af þessu aftur. Það er alveg hugsanlegt. En við viljum ganga frá þessum þætti þannig að við höfum stjórn á hver verði örlög þessara fyrir- tækja,“ sagði Magnús Gauti en stjórn KEA fól honum að ganga til viðræðna við Sam- bandið og Landsbanka íslands um kaup á hlutabréfunum. Hann sagðist vonast til að mál gangi á þennan hátt eítir og að hægl verð að ganga sem fyrst frá kaupum. JÓH

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.