Dagur - 05.11.1992, Side 3
Fimmtudagur 5. nóvember 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Endurskipulagning Byggðastofnunar:
VerkeM flutt tíl skrifstofa á landsbyggðinni
og starfsmönnum fækkað í Reykjavík
Skipulag og starfsemi Byggða-
stofnunar hefur verið til endur-
skoðunar á síðustu árum í sam-
ræmi við þá stefnu stjórnar
stofnunarinnar að flytja eigi
verkefni hennar til skrifstofa á
iandsbyggðinni. í síðasta mán-
uði opnaði Byggðastofnun
skrifstofu fyrir Austurland á
Egilsstöðum. Ákveðið hefur
verið að opna skrifstofu á
Sauðárkróki á næsta ári. Fyrir
eru skrifstofur á Akureyri sem
opnuð var 1989 og á ísafirði en
hún tók til starfa árið 1990.
í stórum dráttum má skipta
verkefnum stofnunarinnar í
tvennt eftir eðli þeirra. Annars
vegar eru verkefni sem snúa að
„Það er unnið að því að koma
þarna upp fiskvinnslu, sem
gert er ráð fyrir að taki til
starfa á næsta ári. Einnig er
unnið að sölumálum og verið
að skoða með að fá fiskiskip.
Enn sem komið er liggur ekki
fyrir hvort Kamtsjatka-menn
kaupa ný skip eða hugsanlega
endurbyggð skip frá Islandi,“
sagði Jens Valdimarsson, hjá
fyrirtækinu Icecon, sem ásamt
Utflutningsráði stendur fyrir
heimsókn 10 manna sendi-
nefndar til Islands frá Kam-
tsjatkaskaga.
Sendinefndin frá Kamtsjatka-
skaga dvaldi í eina viku á Siglu-
firði og kynnti sér m.a. fiskverk-
un hjá Þormóði ramma hf. Síðan
hélt hún til Akureyrar, þar sem
skoðuð voru fyrirtækin Slipp-
stöðin, Efnaverksmiðjan Sjöfn og
Niðursuðuverksmiðja K. Jónsson-
ar. Á Dalvík var komið við í
Frystihúsi KEA og Sæplasti hf.
Síðastliðinn laugardag var haldið
í stuttan línuróður frá Siglufirði
og síðan fór sendinefndin til
Reykjavíkur þar sem dvalið
verður í um þrjár vikur.
Jens Valdimarsson segir að gíf-
urlegar ónýttar auðlindir séu við
Kamtsjatkaskagann. Hann segir
að mikill áhugi sé þar fyrir sam-
starfi við íslendinga um uppbygg-
ingu fiskveiða og -vinnslu, en til
þessa hefur fiskvinnslan í landi
nánast verið engin. „Möguleikar
okkar íslendinga felast í sölu á
hugviti og ýmsum búnaði. Það er
enginn spurning að þarna eru
miklir möguleikar, en hins vegar
þarf að rækta þennan garð jafn-
vel og aðra garða til þess að fá
uppskeru. Ég trúi að þessi heim-
sókn skili sér. Samstarf okkar við
Chile-búa hófst með heimsókn
sendinefndar þaðan og ég held að
óhætt sé að fullyrða að í dag sé
Chile einn af okkar bestu fjar-
lægu mörkuðum.“
Jens sagði að stjórnun fisk-
veiða við Kamtsjatka tæki mið af
umhverfissjónarmiðum. Þannig
aðilum á landsbyggðinni. Þar á
meðal má nefna samskipti við
lánþega, atvinnuþróunarstarf og
ýmsa ráðgjöf á vettvangi. Hins
vegar er um að ræða starfsemi
sem byggist á samskiptum við
hina ýmsu aðila í stjórnkerfinu.
Stefna stjórnar Byggðastofn-
unar er að starfsemi hennar fari
fram þar sem hagkvæmast er.
Þess vegna var ákveðið að skrif-
stofur stofnunarinnar á lands-
byggðinni tækju í auknum mæli við
öllum samskiptum við lánþega og
verkefnum hver á sínu svæði,
ásamt svæðisbundinni áætlunar-
gerð.
í samræmi við stefnu sína ákvað
stjórn stofnunarinnar á fundi sín-
um 2. þessa mánaðar að fækka
vilji Kamtsjatka-menn ekki
heyra á það minnst að veiða fisk-
inn uppi í landssteinum með stór-
um kröftugum togurum, eins og
hér þekkist, heldur horfi þeir
fyrst og fremst til línuveiða. „Þá
vantar 33-40 metra línuskip og
þeir sýndu áhuga á því að fá
Slippstöðina á Akureyri til að
smíða slfk skip eða láta endur-
smíða gömul íslensk línuskip,“
sagði Jens. Hann tók fram að
alltof snemmt væri að spá fyrir
um hvort samstarf við Kam-
tsjatka-menn skilaði sér í raun-
hæfum verkefnum fyrir hérlend
fyrirtæki, en góðir möguleikar
væru vissulega fyrir hendi.
Kamtsjatkaskagi, sem er um 270
þúsund ferkílómetrar að stærð,
gengur suður úr Austur-Síberíu
og skilur að Okhotskahaf og Ber-
ingshaf. íbúar þar eru um 480
þúsund, þar af vinna um 60 þús-
und manns við fiskveiðar og
’-vinnslu, sem er langstærsti
atvinnuvegurinn.
Kamtsjatka-menn veiða um
1,3-1,4 milljónir tonna af fiski á
ári, bróðurparturinn er ufsi. Mikil
ónýtt rækjumið eru við skagann
og sömuleiðis skelfiskmið. Þá er
geysilega mikið magn af loðnu,
sem ekki er veidd, og talið er
óhætt að stórauka sókn í þorsk-
stofninn. óþh
Fyrirhugað er að Gallerí
Bardúsa á Hvammstanga hafi
opið einn dag í viku nú í vetur
og oftar í desember, að sögn
Jóns Eiríkssonar. Salan í sum-
ar var svipuð og í fyrrasumar.
Gallerí Bardúsa er sölugallerí
fyrir listmuni og heimilisiðnað.
Það hóf starfsemi sína í fyrra-
sumar og var lokað sl. vetur. Ein-
göngu eru seldir munir úr heima-
starfsmönnum á skrifstofunni í
Reykjavík. Stöðugildum hefur
þegar fækkað um fjögur frá því
sem var fyrir ári en nú var ákveð-
ið að fækka enn um fjögur störf
Þorsteinn Stefánsson á Dalvík
hefur tekið upp svolítið sér-
staka þjónustu við íbúa og
fyrirtæki bæjarins, en hann
hefur látið smíða kerru aftan í
reiðhjólið sitt og með henni
getur hann flutt alla smærri
pakka og kassa.
Þorsteinn vinnur hjá Bílaverk-
stæði Dalvíkur frá klukkan átta á
morgnana til klukkan tvö á
héraði og er þetta m.a. liður í því
að lokka að ferðamenn og hafa
eitthvað upp á að bjóða fyrir þá.
Að sögn Jóns selst mest af gömlu
góðu lopapevsunni og ullarvöru
hverskonar, en landinn kaupir
sitt lítið af hverju. Minjagripir
seljast líka ágætlega. Jón segir
vöruúrvalið hafa aukist talsvert.
Þeir Bardúsa-menn hafa einnig
staðið fyrir námskeiðum í föndri
með því að leggja niður tvær
stöður sérfræðinga, stöðu aðstoð-
arstjóra og deildarstjóra hluta-
fjárdeildar. Eftir þessar breyt-
ingar eru stöðugildi á skrifstof-
daginn, en þá taka við störf tengd
flutningsþjónustunni. Kerran er
merkt eigandanum og þar
stendur: Þ. Stefánsson og Co. -
vöruflutningar - BVD. Þegar
blaðamaður hitti Þorstein á
dögunum var hann á mikilli hrað-
ferð að sækja pakka á vöru-
afgreiðslu og færa hann eigand-
anum, hárgreiðslustofu í bænum.
GG
ýmiskonar og hafa þau verið
ágætlega sótt. Nú eru þeir að fara
af stað aftur með námskeið og
ætla að kanna áhuga fólks og láta
efni námskeiðanna ráðast af því.
Jón telur líklegt að byrjað verði
með námskeið í tréskurði og
myndlist. Hann sagði nóg af hag-
leiksmönnum á svæðinu, en
vissulega hefði þekking á list-
munagerð vikið um skeið þegar
unni í Reykjavík samtals tuttugu.
Stöðugildi hjá Byggðastofnun á
landsbyggðinni eru nú 6,5. Stefnt
er að því að þeim fjölgi á næsta
ári í 8 til 10. ój
Kristjánsbakarí:
Ræddu kaup
áísfirsku
bakaríi við
Iðnlánasjóð
Kristjánsbakarí á Akureyri var
nýlega í viðræðum við Iðnlána-
sjóð um kaup á Óðinsbakarú á
ísafirði, en Iðnlánasjóður
eignaðist bakaríið nýlega eftir
nauðungaruppboð á eignum
þess.
Hugmynd eigenda Kristjáns-
bakarís var að starfrækja áfram
bakaríið á ísafirði, en halda uppi
einhvers konar samstarfi milli
þessara brauðgerða. Iðnlána-
sjóður hefur hins vegar verið í
viðræðum að undanförnu við
fyrirtækið Kornax hf. hveitimylla
í Kornagörðum í Reykjavík
ásamt einhverjum heimamönn-
um um kaup á bakaríinu og er
reiknað með að þeir samningar
nái fram að ganga á allra næstu
dögum. GG
Svalbarðsströnd:
Bifireið lenti
í kálfahópi
í gærdag var bifreið ekið inn í
kálfahóp á Svalbarðsströnd með
þeim afleiðingum að aflífa
þurfti einn kálfínn á staðnum
og annar slasaðist það mikið
að hann hlýtur sennilega sömu
örlög.
Þær upplýsingar fengust hjá
lögregluvarðstjóra á Akureyri að
tildrög óhappsins hefðu verið þau
að verið var að reka kálfa yfir
veginn þegar bíll kom aðvífandi
og lenti í miðjum hópnum. Sem
fyrr segir urðu tveir kálfar fyrir
óbætanlegum skakkaföllum.
Bifreiðin skemmdist mikið við
að lenda á kálfunum og var óöku-
fær eftir. Ekki urðu slys á fólki.
Þá urðu a.m.k. þrír árekstrar í
hálkunni á Akureyri í gær og var
ein manneskja flutt á slysadeild
til rannsóknar. SS
fólk einbeitti sér alfarið að fram-
leiðslu mjólkur og kjöts, „en nú
eru breyttir tímar", sagði J ón. sþ
Tíu manns frá Kamtsjatkaskaga í heim-
sókn á Siglufirði, Dalvík og Akureyri
Ég trúi að heim-
sóknin skili sér
- segir Jens Valdimarsson hjá Icecon
Hvammstangi:
Gallerí Bardúsa eykur starfsemi sína
Þorsteinn Stefánsson með hjólið og kerruna góðu Mynd: gg
Porsteinn Stefánsson á Dalvik:
Stundar orkusparandi
vöruflutninga