Dagur - 10.11.1992, Page 9
Þriðjudagur 10. nóvember 1992 - DAGUR - 9
Halldór Arinbjarnarson
unum í 2. flokki KA en þeir unnu samt
Mynd: HA
Ágúst Guðmundsson stóð uppúr í
liði UFA.
Bikarkeppni í
körfuknattleik:
UFA tapaði
íyrir Reyni
Leikmenn UFA léku gegn B-
liði Grindavíkur í bikarkeppni
KKÍ á laugardaginn. Á endan-
um höfðu heimamenn öruggan
sigur. Lokatölur urðu 102:79.
Leikurinn var jafn fram í miðj-
an seinni hálfleik en þó voru
Grindvíkingar alltaf heldur á
undan og leiddu til að mynda
með 7 stigum í hálfleik. UFA gaf
eftir í síðari hálfleik og heima-
menn gengu þá á lagið. Bestur í
liði UFA var Ágúst Guðmunds-
son en einnig átti Guðmundur
Björnsson góðan leik. Liðið átti
þó frekar dapran dag þegar á
heildina er litið.
Pýska knattspyrnan:
Áhugamannalið í 8-liða úrslit
Árni Hermannsson, Þýskalandi.
Um helgina fóru 16-liða úrslit
þýsku bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu fram og því var ekkert
leikið í deildakeppninni. Af þess-
um sextán liðum sem eftir voru í
bikarkeppninni voru aðeins sex
úrvalsdeildarlið eftir. Fimm
þeirra komust síðan áfram í 8-
liða úrslit auk tveggja liða úr ann-
arri deild og eins áhugamanna-
liðs.
Sá leikur sem vakti mesta
athygli var leikur bikarmeistara
síðasta árs, Hannover 96, og
áhugamannaliðs Herta Berlín.
Hannover, sem leikur í annarri
deild, hafði slegið hvert fyrstu
deildar liðið af öðru úr keppninni
og menn áttu ekki von á að Ber-
línarliðið yrði mikil fyrirstaða. í
upphafi seinni hálfleiks hafði
Hannover náð tveggja marka for-
ustu en leikmenn Herta gáfust
ekki upp og náðu að skora þrjú
mörk á tíu mínútna kafla um
miðjan hálfleikinn. Fimm mínút-
um síðar náði Hannover að jafna
leikinn, en undir lok leiksins
náðu leikmenn Herta að tryggja
sér sigurinn, með marki á 85.
mín. Andstæðingur Herta í 8-liða
úrslitum sem fara fram 1.-2. des-
ember, verður lið Nurnberg, sem
Ekki er að vita hvort Bjarni Sveinbjörnsson verður jafn iðinn við að lcika á markmenn andstæðinganna og hann var
síðastiiðið sumar.
Knattspyrna næsta sumar:
Stórleikir í fyrstu umferðunum
Fyrir nokkru var dregið um
leikjaniðurröðun í knattspyrn-
unni fyrir næsta sumar. Dag-
setningar eru að vísu ekki
komnar á hreint en ljóst er
hvernig leikirnir raðast niður.
Lið Pórs náði mjög góðum
árangri á síðasta sumri eins og
flestum ætti að vera í fersku
minni. Liðið verður nú það eina
af Norðurlandi sem keppir meðal
þeirra bestu og því vonandi að
árangurinn verði góður. Ljóst er
að leikmenn verða að vera komn-
ir í góða æfingu þegar í byrjun
móts því í fyrstu umferðunum er
leikið gegn sterkum liðum. í 1.
umferð á Þór útileik á móti KR.
Næsti leikur er einnig á útivelli,
gegn Fram í þetta skipti og í 3.
umferð er fyrsti heimaleikur liðs-
ins er það fær íslandsmeistarana
sjálfa frá Akranesi í heimsókn.
Sigurður Lárusson, þjálfari
Þórs, sagði að sér litist vel á þessa
niðurröðun. „Við getum þá byrj-
að á að hirða þessi 9 stig,“ sagði
Sigurður.
Af öðrum stórleikjum í fyrstu
umferðunum má nefna viðureign
Vals og Víkings í 1. umferð og
ÍA og KR í 2. umferð. Síðasti
heimaleikur Þórs er í næstsíðustu
umferð á móti bikarmeisturum
Valsmanna en í 18. og síðustu
umferð verður leikið í Hafnar-
firði gegn FH.
En hér koma leikir Þórs í fyrri
hluta mótsins en síðan snýst
dæmið að sjálfsögðu við í seinni
hlutanum, þ.e. útileikur verður
að heimaleik og öfugt.
1. umferð
2. umferð
3. umferð
4. umferð
5. umferð
6. umferð
7. umferð
8. umferð
9. umferð
KR-Þór
Fram-Þór
Þór-ÍA
Víkingur-Þór
Þór-Fylkir
ÍBV-Þór
Þór-ÍBK
Valur-Þór
Þór-FH
Að þessu sinni eru 3 norðanlið
í 2. deild. Leiftur frá Ólafsfirði
spilar þar annað árið í röð eftir
gott gengi síðastliðið sumar. KA-
menn máttu sætta sig við fall að
þessu sinni og 3. liðið er Tinda-
stóll sem vann 3. deidina með
glæsibrag nú í haust.
Enn mun ekki að fullu útkljáð
hvort Grótta eða Þróttur Nes-
kaupstað leikur í 2. deild þó líkur
bendi til að það verði Þróttarar.
Fallistarnir frá fyrra ári, KA og
UBK, leika saman í 1. umferð. I
3., 4., og 7. umferð er síðan kom-
ið að slag norðanmana. Fyrst fær
Tindastóll Leiftur í heimsókn í 3.
umferð en svo heimsækja Stól-
arnir KA-menn í næstu umferð. í
7. umferð er síðan komið að leik
KA og Leifturs á Ólafsfirði.
Eins og greint hefur verið frá í
blaðinu, bendir flest til þess að
kvennalið KA og Þórs muni sam-
einast fyrir komandi keppnistíma-
bil. Stelpurnar munu í 1. umferð
taka á móti Þrótti Neskaupstað
og heimsækja Valsstúlkur í 2.
umferð. í síðustu umferð mótsins
munu íslandsmeistararnir úr
Kópavogi, lið UBK, koma norð-
ur yfir heiðar.
vann FC Hamburg á útivelli 2:4
eftir vítaspyrnukeppni. Andreas
Köpke átti enn einn stórleikinn í
marki Nurnberg og í þessum leik
hélt hann liði sínu algjörlega á
floti.
Atvinnumannalið Herta Berlín,
sem er neðanlega í annarri deild-
inni, átti ekki sama láni að fagna
og áhugamannalið félagsins. Lið-
ið mætti Leverkusen á útivelli og
tapaði, 0:1. Þýski landsliðsmað-
urinn Andreas Thom skoraði
eina mark leiksins. í næstu
umferð mætir Leverkusen Carl
Zeiss Jena sem vann Duisburg á
heimavelli 3:2 eftir framlengingu.
Leikur Werder Bremen og
Borussia Dortmund var eina inn-
byrðis viðureign fyrstu deildar
félaga. Bremen vann leikinn 2:0
með tveimur mörkum Wynton
Rufer.
í átta liða úrslitunum þurfa
leikmenn Bremen að fara til
Chemnitz (sem áður hét Karl
Marx Stadt), en lið Chemnitz
vann RW Essen á útivelli 0:1.
Síðasti leikur 8-liða úrslitanna
verður leikur Karlsruhe og
Frankfurt. Karlsruhe vann
heppnissigur á neðsta liði annarr-
ar deildar, Dússeldorf, á útivelli,
0:1 og Frankfurt vann Osnabrúck
á heimavelli 3:1.
Werder Bremen og Borussia Dortmund voru einu úrvalsdeildarliðin sem átt-
ust við um helgina. Hér er Flemming Povisen í leik með Dortmund.
„Við þurfiim að
fá gervigras“
- segir Sigurður Lárusson þjálfari Þórs
Knattspyrnulið Þórs hefur nú
hafðið æfingar af fullum krafti
og markið sett hátt fyrir næsta
sumar. Að áliti Sigurðar Lár-
ussonar þjálfara Þórs er lífs-
nauðsyn fyrir knattspyrnu á
svæðinu að gervigrasvöllur
verði gerður hið fyrsta.
„Þetta eru glataðar aðstæður
hérna og við drögumst alltaf
afturúr með þessu áframhaldi. Ef
það væri gervigras þá gætum við
verið með allar æfingar úti og æft
knattspyrnu eins og menn. Með
þessar aðstæður byggjum við
Sigurður Lárusson.
aldrei upp gott fótboltalið. Það er
ekki alltaf hægt að treysta á góð-
an vetur eins og í fyrra, en það
skilaði sér vel,“ sagði Sigurður.
Að hans mati er það lélegt að
höfuðstaður Norðurlands geti
ekki komið upp gervigrasvelli
þegar ýmis smáfélög fyrir
sunnan, t.d. Haukar, geti það.
Þetta sé í raun skömm. „Aðstað-
an verður að vera til staðar ef
krafa er gerð um árangur. Það
væri eitthvað sagt ef engar lyftur
væru í Fjallinu," sagði Sigurður.
Billiard:
Hinrik sigraði á
forgjafannótinu
Um helgina fór fram forgjafar-
mót á vegum BSSA.
Mótið var haldið í Gilinu og er
eitt af 4 slíkum mótum sem hald-
in verða í vetur. Úrslit urðu þau
að Hinrik Þórðarson varð í 1.
sæti, næstur kom Aðalsteinn Þor-
láksson og Jón B. Hjaltalín hafn-
aði í 3. sæti. Bæði eru veitt verð-
laun fyrir hvert mót um sig og
samanlagðan árangur.