Dagur - 13.11.1992, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Föstudagur 13. nóvember 1992
Fréttir
Náttúrulækningafélag Akureyrar:
Unnið af krafti í Kjamalundi
Unnið er af fullum krafti við
frágang innanhúss í Kjarna-
Iundi, húsi Náttúrulækninga-
félags Akureyrar sunnan
Akureyrar. Yilhjálmur Ingi
Arnason, varaformaður félags-
ins, segir að til ársloka verði
unnið fyrir 10 milljónir króna,
en þeir fjármunir fengust við
sölu Náttúrulækningafélags
íslands á húsi þess að Sogni í
Ölfusi.
Cees van de Ven, íþróttakenn-
ari, rekur líkamsrækt í kjallara
Kjarnalundar og einnig hefur
Jóhann Ingimarsson þar vinnu-
aðstöðu, en að sögn Vilhjálms
Inga er næst á dagskránni að
Fiskiðjusamlag Húsavíkur:
Nóg að gera í rækjuviimslu
- og fiskvinnslan með báta- og Rússafisk
Arngrimur Gíslason, starfsmaður Netagerðar Höfða hf. á Húsavík þykir
fimur með nálina. Mynd: im
„Hráefnisöilunin byggist á báta-
fiski og Rússafiski,“ sagði
Tryggvi Finnsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Fiskiðjusam-
lagi Húsavíkur. Lokið er
að vinna fisk af togaranum
Kolbeinsey á þessu ári og
togarinn farinn á karfaveiðar
vegna fyrirhugaðrar siglingar.
Verið var að landa rækju af
þremur bátum á miðvikudag, Krist-
björgu, Björgu Jónsdóttur II og
Hafbjörgu frá Hauganesi, en
reiknað er með að Hafbjörg fari
til línuveiða og landi hjá Fisk-
iðjusamlaginu. Nóg hefur verið
að gera í rækjuvinnslunni og unn-
ið á tveimur til þremur vöktum.
Á dögunum keypti Fiskiðju-
samlagið 70-80 tonn af rússafiski,
sem landað var á Akureyri.
Tryggvi sagði að fiskurinn hefði
reynst eins og reiknað var með og
hann byggist við að kaupa meira
af honum. Ekki hefur verið tekin
endanleg ákvörðun um hvað
vinnslu verður haldið lengi áfram
á árinu en ljóst er að það verður
fram í desember. „Við Ieysum
þetta með rússafiski," sagði
Tryggvi. IM
Netagerð Höfða hf. á Húsavík:
„Fyrirtækið ómetanlegt fyrir byggðarlagið“
segir Kristján Ásgeirsson
Netagerðarmenn kepptust við
að gera klárt rækjutroll fyrir
nýja bátinn í Húsavikurflotan-
um, Aldey ÞH-110, hjá Neta-
gerð Höfða hf. sl. þriðjudag.
Netagerðin hefur verið starf-
rækt í ellefu ár. Kári Páll
Jónasson veitir netagerðinni
forstöðu en fyrstu árin var Þor-
steinn Benediktsson, forstöðu-
maður.
Það eru sex starfsmenn hjá
netagerðinni og síðan hún hóf
starfsemi hafa fjórir netagerðar-
menn útskrifast frá Framhalds-
skólanum á Húsavík. í janúar
1988 flutti netagerðin í Höfða-
húsið á Suðurgarði, en fyrsta
skóflustunga að húsinu var tekin
í maí árið áður. Skrifstofur
Höfða fluttu starfsemi í húsið í
apríl 1988 og þar leigir Hafnar-
sjóður aðstöðu fyrir hafnarvörð.
„Veltan í netagerðinni var um
60 milljónir á síðasta ári og við
reynum að selja um allt land,“
sagði Kristján Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Höfða hf., aðspurð-
ur um gengi fyrirtækisins.
„Gildi netagerðarinnar er
ákaflega mikið að okkar mati.
Breyting hefur orðið á útgerðar-
háttum á Húsavík, og mikið
meira verið farið út í togveiðar á
stærri bátunum, auk þess sem
bátar hafa stækkað. Þess utan
erum við með skip í þjónustu yfir
sumarið sem landa hjá rækju-
vinnslunni. Ekkert af þessu gæti
gengið nema netagerðin væri á
staðnum, því hún auðveldar okk-
ur mikið að taka skip í viðskipti.
Þetta fyrirtæki er því ómetanlegt
fyrir þetta byggðarlag. Við erum
mjög stoltir yfir því að vera búnir
að byggja þetta upp og mennta
góða netagerðarmenn, og að það
skili þessum árangri fyrir byggðar-
lagið,“ sagði Kristján. IM
ljúka frágangi búningsherbergja,
baðaðstöðu og í kringum sund-
laug á jarðhæð. Ekki hefur verið
ákveðið hvort settur verður dúk-
ur í laugina sjálfa eða hún flísa-
lögð. „Þá er ætlunin að gera for-
stofuna klára og stóran samkomu-
sal á efri hæð,“ sagði Vilhjálmur
og bætti við að frágangur hússins
væri kominn mun lengra en fólk
almennt gerði sér grein fyrir.
Bróðurpartur söluandvirðis
Sogns er nýttur til uppbyggingar í
Kjarnalundi og því miðar frá-
gangi hússins mjög vel þessa dag-
ana. „Við bjóðum alla vinnu út
og auk verktakanna eru þarna
alla daga tveir eða þrír menn frá
Náttúrulækningafélaginu," sagði
Vilhjálmur. óþh
Ólafsfjarðarvegur:
Ræsagerð hefst
í næsta mánuði
- framkvæmdir við
burðarlag og fyllingar
heljast 18. maí 1993
í gær var gengið frá samning-
um Vegagerðar ríkisins og
Rögnvaldar Rafnssonar, verk-
taka í Hafnarfirði, um vega-
framkvæmdir á 7,5 km löngum
kafla frá Hóli norðan Dalvíkur
norður að enda slitlags við
austari munna Ólafsfjarðar-
ganga.
í verkáætlun Rögnvaldar kem-
ur fram að hann ætlar í næsta
mánuði að hefja ræsagerð og
reiknar með að vinna við hana
eins og veður leyfir í vetur. í vor,
nánar tiltekið 18. maí, hefjast
síðan framkvæmdir við fyllingar
og burðarlag. Verkinu á að vera
lokið 15. ágúst 1993, en þá verð-
ur ólokið við að setja efra burð-
arlag og slitlag þar ofan á. óþh
Listalífið í Skagafirði:
Reglugerð fyrir Iistasafii
- samþykkt á aðalfundi Héraðsnefndar
Á aðalfundi Héraðsnefndar
Skagfirðinga 4. nóv. sl. var
samþykkt reglugerð fyrir
Listasafn Skagfirðinga. Að
Nú þegar veturinn
er í garð genginn
viljum við minna á að hjá okkur
fæst úrval af:
Ennisböndum ffrá kr. 300.
Húfur frá Sátila, margar gerðir.
Hanskar á börn frá kr. 505.
Hanskar á fuilorðna, margar gerðir.
Húfa, trefill og vettlingar á börn kr. 1450, settið.
Herra og dömu leður- og mokkahanskar
og margt, margt fleira.
5% staðgreiðsluafsláttur
• •
111EYFJORÐ
Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275
sögn Magnúsar Sigurjónssonar
framkvæmdastjóra Héraðs-
nefndarinnar hefur Listasafnið
verið hálfgerð hornreka fram
að þessu. Er þess vænst að það
breytist með reglugerðinni.
„Það hefur orðið til smátt og
smátt. Við höfum verið að eign-
ast eitt og eitt málverk með gjöf-
um og kaupum,“ sagði Magnús
þegar hann var inntur eftir tilurð
safnsins. Segir Magnús þetta vera
orðið þó nokkurt safn af góðum
listaverkum, en þau hafa að
mestu verið geymd í kjallara
Safnahússins. En til að menn fái
að njóta þeirra hefur verið gripið
til þess ráðs að leigja þau hinum
og þessum aðilum, einstaklingum
og fyrirtækjum. Er ætlunin að
fjármagna kaup á fleiri listaverk-
um með slíkri útleigu. Einnig
hafa málverk verið lánuð til sýn-
inga. í hinni nýju reglugerð segir
m.a. um hlutverk safnsins að
áhersla verði lögð á að „safnið
eignist listaverk gerð af Skagfirð-
ingum eða verk, sem tengjast
Skagafirði með einhverjum
hætti.“ Einnig er það markmið
tekið fram í reglugerðinni að
Listasafnið gangist fyrir árlegum
listsýningum „eftir því sem kost-
ur er og fjárráð leyfa", eins og
segir orðrétt. sþ
Hótel Reykjahlíð fær hressilega andlitslyftingu í vetur.
Mynd: Robyn
Hótel Reykjahlíð:
Viðamiklar endurbætur
Miklar endurbætur fara fram á
Hótel Reykjahlíð í Mývatns-
sveit í vetur. Efstu hæð hótels-
ins verður gerbreytt, nýtt þak
sett á húsið og það klætt að
utan. Ætlunin er að fram-
kvæmdum Ijúki í vor.
Að sögn Ingibjargar Þorleifs-
dóttur, hótelstjóra, verða fjögur
herbergi á efstu hæð hótelsins
þegar breytingum verður lokið
en í allt verða þá 13 herbergi á
hótelinu. Hótelið er rekið sem
fjölskyldufyrirtæki þriggja fjöl-
skyldna.
„Þetta er hressileg andlitslyft-
ing sem hótelið fær. Það var
nauðsynlegt að ráðast í endur-
bætur á húsinu og ég er mjög
bjartsýn á framhaldið enda þýðir
ekki annað,“ sagði Ingibjörg.
Framkvæmdum á að ljúka í
vor og vonast Ingibjörg tii að
opna að nýju í maí. Hótel
Reykjahlíð var byggt árið 1947
en j^etta eru fyrstu verulegu lag-
færingarnar sem gerðar eru á
húsinu síðan þá. JÓH