Dagur - 20.11.1992, Blaðsíða 6

Dagur - 20.11.1992, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Föstudagur 20. nóvember 1992 Hvaðeraðgerast? Fyrirlestur um vistvænan byggingamáta Einar Thorsteinn kynnir hugmyndir um vistvænan byggingamáta hjá Höndinni hf. Tryggvabraut 22, 3. hæð, á morgun, laugardaginn 21. nóvember og nk. sunnudag, 22. nóvember, frá kl. 10 til 17. Meðal hnnars verða kynnt kúluhús úr timbri til margra nota, svo sem til íbúðar og sem gróðurhús o.fl. Einar mun kynna hús sem gerð hafa verið í Danmörku og jafnframt teikningar af vistþorpi í Gunnarshólma í Kópa- vogi, sem er í umfjöllun þar. Hann mun einnig kynna bók sem hann er nýlokinn við um 20 ára starf sitt að þessum málum. Allir velkomnir, aðgangur ókeypis. Frá Kirkjukór Sauðárkróks í tilefni af 50 ára afmæli Kirkjukórs Sauðárkróks býður Kirkjukórinn öllum eldri félögum og mökum til afmælisfagnaðar í Félagsheimilinu Bifröst á Sauðárkróki sunnudaginn 29. nóv. nk. kl. 14. Vinsamlegast til- kynnið þátttöku til Mínervu Bjöms- dóttur í síma 35631 fyrir 22. nóv. n.k. Herrakvöld Þórs Hið árlega herrakvöld íþróttafélags- ins Þórs verður í Hamri annað kvöld, laugardaginn 21. nóvember og hefst með borðhaldi kl. 20. Hús- ið verður opnað kl. 19. Heiðursgest- ur kvöldsins verður Ellert B. Schram, ritstjóri DV og forseti íþróttasambands íslands. Veislu- stjóri verður Oddur Halldórsson, blikksmiður með meiru. Miðasala verður í Hamri. Sfminn er 12080. Tolli opnar sýningu á Akureyri Myndlistarmaðurinn Tolli opnar sýningu á verkum sínum í íþrótta- miðstöð KA á Akureyri á morgun, laugardaginn 21. nóvember, kí. 15. Sýningin verður opin alla daga með- an íþróttamiðstöðin er opin og stendur til 29. nóvember nk. Haustfagnaður Léttis Haustfagnaður Hestamannafélags- ins Léttis á Akureyri verður í Skeif- unni í kvöld, föstudaginn 20. nóvember, kl. 21. Boðið verður upp á miðnæturkvöldverð ásamt skemmtiatriðum og óvæntum uppá- komum. Miðaverð er 800 krónur. Gréta Berg íVín Gréta Berg verður að vanda í Blómaskálanum Vín um helgina og teiknar fyrir gesti. Gréta verður í Vín á morgun og sunnudag kl. 14 til 18. Portið að Bjargi Portið er aftur farið af stað og verð- ur á laugardögum í vetur. Portið er til húsa að Bjargi við Bugðusíðu og verður opið á morgun frá kl. 11 til 16. Básapantanir eru í sfma 12080. Minningartón- leikarum Ólaf Tryggvason Næstkomandi mánudag, 23. nóvember, kl. 20.30 verða haldnir minningartónleikar um Ólaf Tryggvason, huglækni frá Akureyri, í Akureyrarkirkju. Flytjendur verða Haukur Guðlaugsson, organleikari og Gunnar Kvaran, sellóleikari. Flutt verður tónlist eftir Bach, Reger, Mozart, Vivaldi, Puitte og Pablo Casals. Einnig verður lesið úr verkum Ólafs Tryggvasonar. Aðgangur er ókeypis og er öllum heimill aðgangur. Ofursveitin í Borgarbíói Borgarbíó sýnir um helgina kl. 21 spennumyndina Ofursveitina og Á hálum ís, sem er í senn spennandi og fyndin. Klukkan 22.45 verður sýnd myndin Ferðin til Vesturheims (Far and Away). Klukkan 23 verður sýnd sakamálamyndin Hvítir sandar. Á barnasýningum kl. 15 á sunnudag verða sýndar myndimar Prinsessan og durtarnir og Ösku- buska. Evróputví- menningur í bridds í kvöld Bridgefélag Akureyrar stendur fyrir Evróputvímenningi í bridds í Hamri í kvöld, föstudag, kl. 19.30. Spiluð verða sömu spil út um alla Evrópu á sama tíma og um leið verður þetta landskeppni. Hér á landi verður spilað á um 20 stöðum. Basar Hlífar í Húsi aldraðra Kvenfélagið Hlíf heldur basar í Húsi aldraðra á Akureyri á morgun, laugardaginn 21. nóvember, kl. 15. Selt verður alls konar brauð og kök- ur og handunnin jólakort gerð af kvenfélagskonum. Allur ágóði .rennur til barnadeildar FSA. Félagsvist að Melum Félagsvist verður að Melum í Hörg- árdal annað kvöld, laugardaginn 21. nóvember, kl. 21. Þetta er síðasta spilakvöldið af þrem. Boðið verður upp á kaffi og eru allir velkomnir. Fyrirlestur um Krossanes- verksmiðjuna í dag, föstudag, kl. 15.30 verður dr. Benedikt Jóhannesson, stærð- fræðingur, með fyrirlestur í Háskólanum á Akureyri í stofu 24 sem hann nefnir „Krossanesverk- smiðjan, kostir og ákvarðanir eftir brunann um áramótin 1989-1990.“ Öllum er heimill aðgangur eins lengi og húsrúm leyfir. Fræðslu- fundur Samtaka sykursjúkra á Hótel KEA Samtök sykursjúkra á Akureyri og nágrenni halda fund („jólafund") nk. sunnudag, 22. nóvember, kl. 14.30 á Hótel KEA. Þar mun Ingvar Teitsson, læknir, greina frá ýmsum atriðum úr viðamikilli skýrslu nefndar heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytisins um sykursýki á íslandi. Þessi skýrsla var kynnt á sérstakri ráðstefnu sem ráðuneytið boðaði til í Rvík. 14. nóvember sl., en þar ræddu höfundarnir sjö hver sinn kafla hennar. Er skýrslan öll hin fróðlegasta og af henni hinn besti fengur varðandi stöðu málefna sykursjúkra í dag. Frá Akureyri mættu til ráðstefnunnar Ingvar Teitsson, læknir og Gunnlaugur P. Kristinsson, formaður Samtaka syk- ursjúkra á Akureyri og nágrenni. Árlegur jólabasar íVín Kristnesspítali stendur fyrir árlegum jólabasar í Blómaskálanum Vín í Eyjafjarðarsveit nk. sunnudag, 22. nóvember, kl. 13.30. Að venju verða margir eigulegir munir, sem vistmenn hafa unnið, á boðstólum og því full ástæða að hvetja fólk til að koma. Sunnudagskaffi harmoniku- unnenda Félag harmonikuunnenda á Akur- eyri efnir til sunnudagskaffis nk. sunnudag, 22. nóvember, kl. 15-17 í Lóni við Hrísalund. Félagsmenn og velunnarar eru hvattir til að mæta. Tvær sýningar álinu Nú fer sýningum Leikfélags Akur- eyrar á Línu langsokk að fækka. Tvær sýningar verða um helgina. Sú fyrri verður á morgun, laugardag, kl. 14 og sú síðari á sama tíma nk. sunnudag. Síðustu sýningar eru aug- lýstar helgina 28. og 29. nóvember nk. Aðalfundur Sögufélags Eyfirðinga Aðalfundur Sögufélags Eyfirðinga verður haldinn á morgun, laugar- daginn 21. nóvember, í Búgarði Óseyri 2 á Akureyri og hefst fundur- inn kl. 13.30. Á dagskrá eru venju- leg aðalfundarstörf og einnig mun Bjarni E. Guðleifsson fjalla um örnefnasöfnun. Líf og flör með dansleik Skemmtiklúbburinn Líf og fjör stendur fyrir dansleik á Fiðlaranum 4. hæð annað kvöld, laugardaginn 21. nóvember, frá kl. 22 til 03. Tríó Rabba Sveins sér um fjörið. Tónlistar- veisla í SjaUanum í kvöld verður stórglæsileg tónlistar- hátíð í Sjallanum, Landslagið 1992. Húsið verður opnað fyrir matargesti kl. 18 og verður tekið á móti gestum með ísköldum fordrykk. Klukkan 19, eða klukkustund síðar, hefst fjórréttuð máltíð sem snillingarnir Óskar á Argentínu og Jónas Þór sjá um. Keppnin um Landslagið 1992 hefst kl. 22 og verður henni sjón- varpað á Stöð 2 í beinni útsendingu. Húsið verður opnað aftur fyrir gesti kl. 23.30 og leikur hljómsveitin Stjórnin fyrir dansi fram á rauða nótt. Annað kvöld heldur Lands- lagsveislan áfram og mun Stjórnin leika aftur fyrir dansi. Styrktartón- leikar í Grytjunni Næstkomandi sunnudag kl. 16 verð- ur efnt til styrktartónleika fyrir Kammerhljómsveit Akureyrar í Gryfjunni, sal Verkmenntaskólans á Ákureyri (gengið inn að austan). Fram koma auk Kammerhljóm- sveitarinnar Pálmi Gunnarsson, dægurlagasöngvari, Kór Akureyrar- kirkju, Kór Glerárkirkju, Christop- her A. Thornton, sópransaxafónn, Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanó, Sigurður Bernhöft, tenór, Óskar Pétursson, tenór, Jacqueline F. Simm, óbó og Tom Higgerson, píanó, Jennifer Spear, gítar og Moira Lang, sópran, óbókvartett Tónlistarskóians á Akureyri, stór- sveit Lúðrasveitar Akureyrar og tvöfalt djasstríó. Kynnir verður Sigurður Hallmarsson, leikari á Húsavík. Djasstónleikar í Tjamarborg Kvartett Pauls Weeden heldur djasstónleika í Tjarnarborg í Ólafs- firði á morgun, laugardag, kl. 16. Kvartettinn skipa bandaríski gítar- leikarinn Paul Weeden, altosaxófón- leikarinn Sigurður Flosason, kontra- bassaleikarinn Tómas R. Einarsson og trommuleikarinn Guðmundur R. Einarsson. Bólumarkað- urinn opinn Bólumárkaðurinn að Eiðsvallagötu 6 verður opinn á morgun, laugar- daginn 21. nóvember, kl. 11-15 og nk. sunnudag, 22. nóvember, kl. 13- 16. Um helgina verður meðal ann- ars boðið upp á heimatilbúnar nælur og hálsfestar, sængurverasett, gammosíur, skó, sælgæti, myndbönd, reyktan silung, kartöfl- ur og sitthvað fyrir safnara og fleira. Haddýarbrauð verður á sínum stað. Karakter á Hótel KEA Hljómsveitin Karakter leikur fyrir dansi á Hótel KEA á Akureyri ann- að kvöld, laugardagskvöld. Súlnaberg minnir á vinsæla sunnu- dagaveislu. í boði er villisveppa- súpa, kryddlegið lambalæri og eða reykt svínalæri og deserthlaðborð fyrir 1050 krónur, frítt fyrir börn 0-6 ára og hálft gjald fyrir börn 7-12 ára. Tjamarkvart- ettínn með tónleika í Dalvíkurkirkju Tjarnarkvartettinn í Svarfaðardal heldur sína fyrstu opinberu tónleika í Dalvíkurkirkju nk. sunnudag kl. 16. Kvartettinn skipa Hjörleifur Hjartarson, Kristján E. Hjartarson, Rósa Kristín Baldursdóttir og Kristjana Arngrímsdóttir. Undir- leikarar í nokkrum lögum verða Daníel Hilmarsson, gítar og Einar Arngrímsson, bassi. Á efnisskránni eru íslensk og erlend þjóðlög, negrasálmar, dægurlög og „djass- standardar". Svæðamót Norður- lands eystra ítvímenningi Svæðamót Norðurlands eystra í tví- menningi í bridds verður haldið í Hamri, félagsheimili Þórs, nk. sunnudag. Spilaðar verða tvær umferðir Mitchell og hefst spila- mennskan kl. 10. Spilað er um silf- urstig og gefa efstu þrjú sætin bónus, 60-40-30. Efsta sætið gefur rétt í úrslit á íslandsmótinu. Skrán- ing stendur til morgundagsins hjá Hauki Jónssyni vs 11710 og hs 25134 og Jakobi Kristinssyni hs 24171. Ljósmynda- sýningí Safnaðar- heimilinu Á morgun kl. 14 verður opnuð fyrsta samsýning Áhugaljósmynda- klúbbs Akureyrar í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju. Sýningin verður opin til kl. 21 annað kvöld. Á sunnudag verður sýningin opin frá kl. 15 til 21. Þá verður opið laugar- daginn 28. nóvember kl. 14 til 21 og sunnudaginn 29. nóvember kl. 15 til 21. Á sýningunni verða fjölmargar athyglisverðar myndir sýndar og eru sýnendur um 30, en skráðir félagar í klúbbnum eru á bilinu 40-50. Tónleikar þriggja Wjóm- sveita að Hafiiarstræti 100 Blast sf. stendur í kvöld, föstudag, fyrir tónlistaruppákomu að Hafnar- stræti 100 á Akureyri (gamla H-100, Bleiki fíllinn o.s.frv). Fram koma þrjár „hrottalegustu“ hljómsveitir Akureyrar: Skurk, Bathomet og Tombstone. Ekkert aldurstakmark verður að tónleikunum og verður miðaverð 500 krónur. Laufabrauðs- og kökubasar Hjálpræðishersins Á morgun, laugardag, verður laufa- brauðs- og kökubasar á Hjálpræðis- hernum Hvannavöllum lÓ á Akur- eyri. Einnig verður selt eitthvað af munum. Selt verður kaffi og nýbak- aðar vöfflur og einnig verður skyndihappdrætti. Opið verður kl. 14-17. Annað kvöld verður kvöld- vaka með fjölbreyttri dagskrá, söngur, hugvekja, tónlist og upp- lestur. Einnig verða veitingar og happdrætti. Allir eru hjartanlega velkomnir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.