Dagur - 20.11.1992, Blaðsíða 8

Dagur - 20.11.1992, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Föstudagur 20. nóvember 1992 Tíu lög í úrslitum Landslagskeppninnar í Sjallanum á Akureyri: Landslagið ’92 valið í kvöld Dómnefndin í kvöld kl. 22 hefst beín útsending á Stöð 2 og Bylgj- unni frá lokakvöldi Landslags- keppninnar 1992 í Sjallanum á Akureyri. Áætlað er að út- sendingu Ijúki um kl. 23.30. Stundin nálgast eftir þrotlausa vinnu undanfarnar vikur. Fimm manna dómnefnd valdi 10 lög úr 247 lögum sem bárust í keppnina og var það ekki auðvelt val. Að því búnu voru lögin tíu færð í sparibúninginn og síðan voru þau tekin upp fyrir plötuútgáfu og einnig voru gerð myndbönd, sem að undanförnu hafa verið sýnd á Stöð 2. Alla þessa viku hefur ver- ið þrotlaust unnið að undirbún- ingi lokakvöldsins í Sjallanum í kvöld. Ekkert er sparað til að gera beina útsendingu eins glæsi- lega og mögulegt er. Jón Arna- son, deildarstjóri hönnunardeild- ar Stöðvar 2, hefur hannað skemmtilega sviðsmynd og öllum hugsanlegum brellum þarf að beita til að koma fyrir tæknibún- aði sem slíkri útsendingu fylgir. Flókin útsending Prátt fyrir að Sjallinn sé eitt af stærstu samkomuhúsum á Akur- eyri, þá virkar hann ekki mjög stór þegar búið er að koma öllum nauðsynlegum búnaði fyrir. En aðalatriðið er að tónlistin skili sér vel á öldum ljósvakans og blaða- maður þorir að fullyrða, eftir að hafa fylgst með æfingum í Sjall- anum, að það tekst. Að vísu er ákveðinn skjálfti í því fólki sem sér um tæknimálin, en hann er alltaf til staðar fyrir svo flóknar útsendingar. í þessu sambandi er vert að hafa í huga að í fyrsta skipti verður keppnin send út frá stað utan höfuðborgarsvæðisins og ekki síður er vert að minnast þess að nú verður í fyrsta skipti í Landslagskeppni um að ræða „live“ tónlistarflutning, með öðr- um orðum verður ekki stuðst við undirleik af segulbandi. Ein milljón til sigurvegarans Eins og áður segir hefst bein útsending kl. 22. Fyrst verða flutt fimm lög og síðan stígur hljóm- sveitin Sálin hans Jóns míns á svið og tekur lagið. Að því búnu verða hin fimm lögin flutt. Að lögunum tíu loknum verður eitt Dómnefnd Landslagsins 1992 er skipuö eftirtöldum: Ingimar Eydal, tónlistar- maður, formaður Helga Möller, söngkona Stefán Hilmarsson, söngvari Ásmundur Jónsson, fulltrúi Japis. Ágúst Héðinsson, fulltrúi Bylgjunnar Dómnefndin valdi 10 lög úr 247 lögum sem bárust í keppn- ina. Dómnefndarmenn verða í Sjallanum í kvöld og skera úr um, ásamt gestum í sal, hvaða lag verði Landslagið 1992. Kynnir kvöldsins verður Hörður Ólafsson. Guðrún Þóra Hjaltadóttir, aðstoð- arframkvæmdastjórí Landslagsins ’92. Ingimar Eydal er formaður dóm nefndar. Sigrún Sif Jóelsdóttir syngur lag Akureyringanna Jóns Arnars Sig- urðarsonar og Trausta Haraldsson- ar. Haukur Hauksson syngur tvö lög eftir Þröst Þorbjörnsson, annars vegar Eg fer og hins vegar I ævin- týraheimi. MM breidd í keppninni í ár - segir útsetjarinn Þorvaldur Þorvaldsson „Það sem að mínu mati er spennandi við keppnina í ár er að í henni er mikil breidd. Við erum með sólarsömbu, „heavy metal“ lag, tilraunapopp, rólegt lag og svo Júróvisjón- lög,“ sagði Þorvaldur Þor- valdsson, einn meðlima í aðal- hljómsveit Landslagsins ’92 og útsetjari allra tíu laganna. Þor- valdur er einn þriggja meðlima hljómsveitarinnar Todmobile. „Það er dálítið erfitt að spá fyrir um úrslit í keppninni. Eg hugsa að þessi svokölluðu jaðar- lög eigi möguleika í ár. Auðvitað eru þarna týpisk vinningslög, en ég gæti trúað að úrslitin yrðu óvænt. Mér finnst keppnin meira spennandi en áður og mér virðist þessi dómnefnd hafa þorað meira en áður,“ sagði Þorvaldur. Þorvaldur hafði skamman tíma til að útsetja lögin og því segist hann hafa látið hendur standa fram úr ermum. „En það er gam- Þorvaldur Þorvaldsson hefur haft mikið að gera við undirbúning keppninn- ar. Hann hefur útsett öll lögin tíu og er hljómsveitarstjóri. an að vinna undir pressu,“ sagði hann. Auk Þorvaldar skipa Lands- lagshljómsveitina þeir Gunnlaug- ur Briem, Jón Eivar Þorsteins- son, Kjartan Valdimarsson og Eiður Arnarson. Auk þeirra koma fleiri hljóðfæraleikarar við sögu í einstaka lögum. óþh Johann Jóhannsson er einn þeirra sem sér um að koma Landslagskeppninni til landsmanna á dreifikerfi Stöðvar 2. Hér er Jóhann í Samversbílnum góða, sem gegnir lykilhlutverki við þessa flóknu beinu útsendingu. Myndir: Robyn Guðrún Gunnarsdóttir og Pálmi Gunnarsson syngja lag Jóns Kjell, Ég man hverja stund. „leyninúmer“ og úrslit síðan tilkynnt. Auk sjálfrar keppninnar um Landslagið verður valinn besti flytjandinn og athyglisverð- asta lagið. Þá verður Skraut- fjöðurin veitt (gefin af Sigurði Stefánssyni í Gulli og silfri), en hún er viðurkenning til hljómlist- armanna. í fyrra fékk Haukur heitinn Morthens þessa viður- kenningu. Kynnir kvöldsins verður Hinrik Ólafsson. Til mikils er að vinna fyrir höf- und vinningslagsins í Landslags- keppninn. Verðlaunin eru ein milljón króna. Otrúlega margar hendur Sennilega getur enginn ímyndað sér hversu margar hendur hafa komið nálægt Landslaginu með einum eða öðrum hætti. Til að gefa smá hugmynd um útsending- una í kvöld má nefna að baksviðs koma á milli 30 og 40 manns að henni. Kostnaður við keppnina er því umtalsverður, en Guðrún Þóra Hjaltadóttir, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Landslagsins, seg- ist ekki geta sagt til um á þessu stigi hver hann verði. Til þess að fá keppnina norður lagði Akur- eyrarbær fram töluverða fjár- muni og aðrir stórir stuðningsaðil- ar eru Flugleiðir, Islenska útvarpsfélagið og Japis, sem stendur fyrir útgáfu á diski með lögunum tíu. Þá má ekki gleyma hlut Sjallans í keppninni. „Umfang þessarar keppni hef- ur verið gífurlegt vegna þess fyrst og fremst að hún er haldin hér á Akureyri. Það gerir málið mun dýrara og flóknara. Fjöldi fólks sem tengist þessu með einum eða öðrum hætti kemur hingað norð- ur og það kostar auðvitað mikla peninga. Þessi vinna hefur gengið mjög vel og samstarf allra þeirra sem að keppninni hafa komið er mjög góð,“ sagði Guðrún Þóra. Stuðningur Akureyrar- bæjar við keppnina Eins og áður segir lagði Akureyr- arbær umtalsverða fjármuni fram til að fá Landslagskeppnina norður, en hún hefur til þessa alltaf verið haldin f Reykjavik. Birna Sigurbjörnsdóttir, bæjar- fulltrúi á Akureyri og fulltrúi í atvinnumálanefnd bæjarins, seg- ist vongóð um að keppnin hafi vakið athygli á Akureyri. „Mein- ingin með þátttöku bæjarins í þessu var að kynna Akureyrarbæ sem best og ég vona að það hafi tekist," sagði Birna. í tengslum við sýningu hvers myndbands á Stöð 2 hefur Akur- eyrarbær verið stuttlega kynntur. Þá vinnur Samver á Akureyri að gerð sjö stuttra kynningarmynda um Akureyri sem síðar verða sýndar á Stöð 2. óþh Lögin tíu 1. Yndi, Indý. Höfundur: Magnús Þór Sigmundsson. Flytjandi: Magnús Þór Sigmundsson. 2. Mishapp. Höfundur: Ari Einarsson. Rytjandi: Margrét Eir Hjartardóttir. 3. Ég man hverja stund. Höfundur: Jón Kjell. Flytjendur: Pálmi Gunnarsson og Guðrún Gunnarsdóttir. 4. Ég fer. Höfundur: Þröstur Þorbjörnsson. Flytjandi: Haukur Hauksson. 5. Til botns. Höfundar: Jón Andri Sigurðarson ogTrausti Haraldsson. Flytjandi: Sigrún Sif Jóelsdóttir. 6. Aðeins þú. Höfundur: Eyjólfur Kristjánsson. Flytjandi: Eyjólfur Kristjánsson og Richard Scobie. 7. Um miðja nótt. Höfundur: Friðrik Karlsson. Flytjandi: Sigrún Eva Ármannsdóttir. 8. Leiktækjasalur. Höfundur: Magnús Þór Sigmundsson. Flytjendur: Magnús Þór Sigmundsson, Pétur Kristjánsson og Jóhann Helgason. 9. Stelpur. Höfundur: Harpa Þórðardóttir. Flytjandi: Harpa Þórðardóttir. 10. í ævintýraheimi. Höfundur: Þröstur Þorbjörnsson. Flytjandi: Haukur Hauksson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.