Dagur - 20.11.1992, Page 16

Dagur - 20.11.1992, Page 16
- - •'*’ ~«65* ..x* Fjölbýlishúsið við Vestursíðu er hið glæsilegasta. Á innfelldu myndinni erui Aðalgeir Finnsson, framkvæmdastjóri A. Finnssonar hf. og Hákon Hákon- arson, formaður húsnæðisnefndar, sem tók formlega við húsinu fyrir hönd nefndarinnar. Myndir: kk Byggingafyrirtækið A. Finnsson hf. á Akureyri: Aflienti húsnæðisnefnd Akureyrar /j» / /\ / X» / IHiill /1» 1 / » rutjan íbuoir 1 íjolbyhshusi - verkefnastaða fyrirtækLsins þokkaleg en 10-15 starfsmenn eiga von á uppsagnarbréfi Þing Alþýðusambandsins hefst nk. mánudag í íþróttahöllinni á Akureyri: Um 460 fulltrúar sitja þingið Byggingafyrirtækið A. Finns- son hf. hefur afhent húsnæðis- nefnd Akureyrar 19 íbúðir í fjölbýlishúsi við Vestursíðu 10- 14. Húsið var byggt samkvæmt útboði á síðasta ári en A. Finnsson hf. átti lægsta tilboð- ið og skilaði verkinu fullfrá- gengnu jafnt utan sem innan um sl. helgi. Allar innréttingar í fjölbýlis- húsið eru smíðaðar hjá trésmiðju A. Finnssonar hf. Arkitektastof- Ráðstefna um fjármál sveitar- félaga hófst í gær og verður framhaldið í dag. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður Sambands ísl. sveitarfélaga og ráðherrarnir Jóhanna Sigurð- ardóttir og Friðrik Sophusson töluðu á ráðstefnunni ásamt fleirum. Vilhjálmur hóf umræðuna með því að lýsa slæmu ástandi sveitar- félaga vítt og breitt um landið og sagði það mikinn misskilning ráðamanna að hægt væri að sækja gull í greipar þeirra. Hann sagði © VEÐRIÐ Fremur svalt verður í veðri næsta sólarhring en búast má við hægri suðlægri eða breyti- legri átt fram eftir degi. Víða verður léttskýjað, aðallega austan til á Norðurlandi, en búast má við éljum á djúpmið- um er líða tekur á daginn. an við Ráðhústorg teiknaði húsið en verkfræðihönnun var í hönd- um Verkfræðistofu Norðurlands. Aðalgeir Finnsson, fram- kvæmdastjóri A. Finnssonar, sagði í samtali við Dag að verk- efnastaða fyrirtækisins væri þokkaleg miðað við árstíma. Á milli 50-60 manns hafa unnið hjá fyrirtækinu síðustu mánuði en Aðalgeir reiknar með að þurfa að segja upp 10-15 starfsmönnum á næstunni. A. Finnsson hf. átti lægsta til- sveitarfélögin að sjálfsögðu styðja við atvinnulífið eftir mætti og frábað sér allar einhliða ákvarðanir stjórnvalda til þess að skerða tekjur þeirra og nefndi þar sem dæmi afnám aðstöðu- gjalds. „Aukin sameining sveitarfé- laga hlýtur að vera eitt stærsta mál sveitarfélaganna sjálfra. Pau þarf að efla og færa til þeirra viðarmeiri verkefni, tekjur og völd, og leita þarf leiða til að draga úr miðstýringu ríkisins. Hvað svo sem segja má um fjármál sveitarfélaga, þá gengur þeim jafnan betur að halda utan um sín mál en ríkinu," sagði Vil- hjálmur að lokum. Boðskapur Jóhönnu Sigurðar- dóttur var skýr. „Núverandi skipulag sveitarfélaga er úrelt, bændasamfélagið liðið undir lok og breytinga er þörf. Sameining er nauðsynleg til þess að sporna við þeirri voveiflegu þróun sem á sér stað varðandi flutning fólks burt af landsbyggðinni.“ Jóhanna sagði að einhæft boðið í byggingu 7. áfanga VMA og eru framkvæmdir þegar hafn- ar. Auk þess er fyrirtækið að byggja 8 hæða fjölbýlishús við Drekagil 28 og einnar hæða rað- hús á sama svæði. Af 22 íbúðum í fjölbýlishúsinu í Drekagili eru 6 óseldar og íbúðir í raðhúsi. Fyrirtækið hefur einnig verið með verkefni í Reykjavík sem nú er að ljúka. Þar hefur A. Finns- son reist og innréttað einbýlishús úr timbri, sem smíðuð eru á Akureyri. -KK atvinnulíf sums staðar á landinu væri mikið til komið vegna smæð- ar sveitarfélaga. Pau hefðu t.d. ekki bolmagn til að standa undir æskilegri félagslegri þjónustu sem kallaði á enn frekari byggða- röskun. Félagsmálaráðherra sagði stór sveitarfélög betur í stakk búin til að taka að sér ýmiss konar stjórnsýslu sem nú er í höndum ríkisins. Hún nefndi sem dæmi að flest þeirra verkefna sem Húsnæðisstofnun ríkisins hefði á sinni könnu, væru betur komin nær fólkinu á vegum sveit- arfélaga úti á landi. Friðrik Sophusson fjármála- ráðherra hélt ræðu sem hann kallaði: „Hver á að borga brúsann." Hann sagði að ekki væri endalaust hægt að velta vandanum á undan sér og vísa honum til næstu kynslóðar. „Við eigum sjálf að borga brúsann," sagði Friðrik og nefndi þrjá möguleika í stöðunni. Sá fyrsti fólst í því að gera ekki neitt, og er væntanlega vitnað til þess sem nefnt hefur verið gjald- Þing Alþýðusambands íslands hefst nk. mánudag í íþrótta- höllinni á Akureyri. Undir- búningur þingsins er á lokastigi og í dag koma norður margir af starfsmönnum þess, sem allt í allt verða um 20. Alþýðusambandsþing er lang- stærsta þing launþegasamtaka í landinu. Að sögn Þráins Hall- grímssonar, skrifstofustjóra ASÍ, eiga 498 fulltrúar rétt til setu á þinginu, en gert er ráð fyrir að þingið sitji um 460 fulltrúar. Óhætt er að segja að íþróttahöll- in verði undirlögð þingdagana, því auk sjálfs íþróttasalarins verða flest hliðarherbergi notuð til nefndarstarfa og fyrir starfs- menn þingsins. Petta Alþýðusambandsþing markar ákveðin tímamót, enda hefur það aldrei áður verið hald- ið utan höfuðborgarsvæðisins. Práinn segir erfitt að segja til um kostnað við þinghaldið, en hins vegar lagði hann á það áherslu að þingið væri stórt mál fyrir ýmsa þjónustuaðila á Akureyri. Pannig væru öll hótel og gistihús full og reikna mætti með að mikið yrði að gera á matsölustöðum. Þá væri ónefnd margskonar önnur þjónusta sem slíku þingi fylgir. „Pað liggur í hlutarins eðli að undirbúningur þingsins fjarri höfuðstöðvum Alþýðusambands- ins er miklu flóknara og viða- meira mál en ef við héldum þing- ið hér fyrir sunnan. Við þurfum t.d. að flytja stærstan hluta okkar skrifstofu norður,“ sagði Þráinn. ASÍ-þingið hefst að morgni nk. mánudags. Pá mun Ásmundur þrotaleiðin. Annar möguleikinn var að fella gengið og sá þriðji, sem Friðrik taldi fýsilegastan, var að lækka kostnað fyrirtækjanna. SV/GG Öllu starfsfólki hjá Skildi hf. á Sauðárkróki verður sagt upp störfum í kringum jólin. Ámi Guðmundsson framkvæmda- stjóri Skjaldar hf. segist vonast til að vinnustoppið standi ekki lengur en fram í miðjan janú- ar. í DV á miðvikudag kom fram að öllu starfsfólki Skjaldar, milli 50 og 60 manns, hafi verið sagt upp störfum. Árni Guðmundsson framkvæmdastjóri Skjaldar sagð- ist í samtali við Dag geta staðfest þessa frétt, þetta væri ákveðið núna „en maður verður að geta Stefánsson, fráfarandi forseti ASÍ, flytja ræðu og gestir flytja ávörp. Mörg stór mál verða á dagskrá ASÍ-þingsins. Stærstu málin eru ef til vill Evrópumálin og kjara-, atvinnu- og efnahagsmálin, en þessi mál eru á dagskrá á þriðju- dag. Flestir bíða líklega eftir kjöri eftirmanns Ásmundar Stefáns- sonar. Gert er ráð fyrir að það verði kl. 9 að morgni miðviku- dags. Úrslit ættu að liggja fyrir laust eftir hádegi. Pá verður einnig kjörin miðstjórn ASÍ, en sambandsstjórn verður kjörin á fimmtudag. Þinginu lýkur um kl. 16 á föstudag. óþh Sauðárkrókur: Hátíðarhöld vegna 100 ára afinælis kirkjunnar í tilefni 100 ára afmælis Sauð- árkrókskirkju sem vígð var 18. desmeber 1892 verður haldin hátið nk. sunnudag þar sem flutt verður leik- og söngverk um upphaf kirkju og bæjar- samfélags á Króknum. Hátíðardagskráin hefst með hátíðarmessu kl. 13.30 þar sem biskup íslands, hr. Ólafur Skúla- son mun predika og sr. Hjálmar Jónsson sóknarprestur, sr. Gísli Gunnarsson í Glaumbæ og sr. Bolli Gústafsson vígslubiskup munu þjóna fyrir altari. Þor- steinn Pálsson kirkjumálaráð- herra mun ávarpa kirkjugesti í lok messunnar en að því loknu verður kaffisamsæti í Bifröst. Sýning leik og söngverksins „Kirkjan okkar" hefst í kirkjunni kl. 17.30 og eru flytjendur Leik- félag Sauðárkróks, nemendur Fjölbrautarskólans, fermingar- börn ársins 1993 og kirkjukór Sauðárkróks undir stjórn Rögn- valds Valbergssonar. Leikstjóri og höfundur handrits er Jón Ormar Ormsson. sþ/GG rætt við sitt fólk áður en þetta kemur í fjölmiðla", bætti hann við. „Það verður sagt upp öllu fastráðnu fólki með fjögurra vikna fyrirvara og það tekur gildi 20. desember", sagði Arni. Vinnustöðvunin stendur a.m.k. fram í miðjan janúar og kvað Árni tímalengdina fara eftir afla- brögðum. Hann sagði að ekki verði unnið við viðgerðir og við- hald að þessu sinni eins og oft áður. Er lokunin m.a. komin til vegna verkefnaskorts, en Drang- ey SK-1 verður stopp þetta tíma- bil. Að sögn Árna er það m.a. vegna viðgerða. sþ Ráðstefna um fjármál sveitarfélaga: „Núverandi skipulag sveitarfélaga er úrelt“ - sagði Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra Skjöldur hf. á Sauðárkróki lokar um jólin: Starfsfólki sagt upp

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.