Dagur - 15.12.1992, Blaðsíða 1
75. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 15. desember 1992
239. töiublað
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Norðurland:
Viðsjált ferðaveður
og vegir víða ófærir
í gær var hið versta veður um
allt Norðurland. í Húnavatns-
sýslum og Skagafírði var mikil
veðurhæð með snjókomu, en á
Norðausturlandi var skaplegra
veður til sveita. Um utanverð-
an Eyjafjörð var grimmasta
stórhríð.
Starfsmenn Vegagerðar ríkis-
ins á Norðurlandi áttu í önnum í
gær vegna stórhríðar. Fjölförn-
ustu leiðir voru ruddar, en er leið
á daginn urðu menn víða að
hætta mokstri vegna bálviðris og
lélegs skyggnis.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerð ríkisins á Akureyri var
hætt við mokstur á Kísilvegi um
miðjan dag í gær. Sömu sögu er
að segja um mokstur á veginum
frá Húsavík um Tjörnes. Fljóts-
heiði er ófær, en fært er stórum
bílum um Reykjadal upp í
Mývatnssveit. Víkurskarð var
mokað í gærmorgun, en er leið á
daginn fór veðrið versnandi og
vegagerðarmenn þurftu frá að
hverfa með tæki og tól. Hið sama
gerðist á veginum til Grenivíkur.
Ófært er með öllu frá Dalvík til
Ólafsfjarðar. Frá Akureyri var
rutt út á Árskógsströnd, en þar
þurftu menn að snúa frá vegna
veðurofsans. Öxnadalsheiði var
rudd í gærmorgun og var fær, en
veður fór versnandi er leið á
daginn.
„Snjór er ekki mikill á vegum í
lágsveitum. Hins vegar er veður-
hæðin mikil og skyggni víðast
lítið. Stórhríð er á Sauðárkróks-
braut og út að austan. Fært er í
Fljót, en þaðan er ófært til Siglu-
fjarðar. Vegurinn verður ekki
opnaður fyrr en veður lægir. Á
Vatnsskarði er mikil veðurhæð
og skyggni um miðjan dag var 5
til 10 metrar. Veður er slæmt í
Langadal og allt vestur að Brú. Á
Holtavörðuheiði fer veður versn-
andi og spáin fyrir Norðurland
allt er ekki góð,“ sagði talsmaður
Vegagerðar ríkisins á Sauðár-
króki. ój
Bálviðri var um allt Norðurland í gær og hross leituðu til byggða á Akureyri.
Mynd: Robyn
Verslanir á Akureyri verða opnar á sunnudaginn:
Jólaverslunm fer rólega af stað
- og verður með minna móti fyrir þessi jól, segja kaupmenn
Stjórn Kaupmannafélags Akur-
eyrar hefur ákveðið að versl-
anir verði opnar sunnudaginn
20. desember frá kl. 13.00-
17.00. Undanfarin ár hafa
verslanir verið opnar til kl.
22.00 síðasta fímmtudag fyrir
jól en þar sem síðasti fímmtu-
Alvarlegt umferðarslys á Skagaströnd:
Ökumaður fluttur með flug-
vél til Reykjavíkur
Alvarlegt umferðarslys var á
Skagaströnd um kl. 13.30 sl.
sunnudag er bifreið fór út af
Strandgötu á Skagaströnd og
lenti niður í fjöru. Tildrög
slyssins eru nokkuð óljós en
iögreglan taldi að snjór og
blinda hefði átti drýgstan þátt í
hvernig fór.
Ökumaður var einn í bifreið-
inni og slasaðist töluvert. Hann
var fluttur á sjúkrahúsið á
Blönduósi og á mánudagsmorg-
uninn var hann fluttur flugleiðis
suður á Borgarspítalann í
Reykjavík til frekari aðhlynning-
ar. Meiðsli hans voru ekki full-
könnuð, en hann er meiddur á
bakiog auk þess eitthvað brotinn.
sþ/GG
Sigluflörður:
Bíll fauk af bflastæði
og þakplötur af húsi
Versta veður var á Siglufírði sl.
sunnudag, sem víðast um Norð-
urland. Þakplötur fuku af húsi
og bO tók upp í einni storm-
hviðunni.
Norðan stórhríð var á Siglu-
firði á sunnudagsmorguninn. Er
leið á daginn var orðið fært um
bæinn, en utanbæjar er kolófært.
„Milli klukkan átta og níu
gerði mikinn hvell og þá fuku
þakplötur af húsi við Hverfis-
götu. í sömu rokunni tók upp af
bílastæði, við næsta hús, fólksbíl
er hafnaði inní húsagarði,“ sagði
talsmaður lögreglunnar. ój
dagur fyrir jól nú er 17. des-
ember, var ákveðið að hafa
venjulegan afgreiðslutíma
þann dag en þess í stað opið í
fjóra tíma nk. sunnudag.
„Kaupmönnum ber saman um
að jólaverslunin hafi farið frekar
hægt af stað,“ segir Ragnar
Sverrisson, formaður Kaup-
mannafélags Akureyrar. „Það
má segja að þetta endurspegli
ástandið í þjóðfélaginu og það er
reyndar staðreynd að þegar illa
árar fer jólaverslunin seinna af
stað.“
Stórmarkaðir á Akureyri hafa
haft opið á sunnudögum um tíma
og fólk virðist kunna vel að meta
þá auknu þjónustu og segir
Ragnar að það sé m.a. ástæðan
fyrir því að kaupmenn ætla að
hafa opið á sunnudaginn. „Auð-
vitað byggist verslunin á því að
þjóna viðskiptavininum sem
best.“
„Jólaverslunin hefur farið
seinna stað í ár en undanfarin ár
en það er þó nokkuð misjafnt á
milli deilda,“ segir Páll Þór
Ármann, vöruhússtjóri hjá
KEA. „Það eru stórir dagar eftir
en veðrið setur óneitanlega strik í
reikninginn þessa dagana og það
skiptir miklu máli fyrir framhald-
ið hvernig veðrið verður um
næstu helgi,“ segir Páll Þór.
Hann sagði þó ljóst að verslunin
fyrir þessi jól yrði minni en
undanfarin ár.
Stefán Jónasson í Bókabúð
Jónasar, sagði að jólaverslunin
væri frekar dauf það sem af er.
„Það má búast við að verslunin
Svalbarðsströnd:
Bflvelta við Garðsvík
Undir kvöld sl. föstudag lenti
fólksbifreiö af Citroén-gerð
utan vegar noröan bæjarins að
Garðsvík á Svalharðsströnd.
Mikil glæra var á veginum út
Svalbarðsströnd sl. föstudag en
hálkunnar vegna varð óhappið.
Ökumaðurinn missti vald á
bifreiðinni, sem fór eina veltu
vestur af veginum. Skemmdir
urðu nokkrar á bifreiðinni, en
engin meiðsl á ökumanni né far-
þega. ój
verði minni fyrir þessi jól en
undanfarin ár og það helgast
m.a. af því að fólk hefur minna á
milli handanna. Auk þess spilar
veðrið dálítið inn í og ekki síst
þegar fólk úr nágrannasveitum
kemst ekki sinna ferða vegna
ófærðar,“ segir Stefán. Hann
sagði að þó enn væru nokkrir
dagar til jóla, væri engu að síður
ljóst að verslunin fyrir þessi jól
yrði minni en undanfarin ár.
Gunnar Gunnarsson í Sport-
húsinu sagði að á að laugardag
hefið verið nokkuð góð verslun
hjá sér en þó væri ljóst að versl-
unin yrði minni fyrir þessi jól en
undanfarin ár. „Það eru enn stór-
ir dagar eftir fram að jólum en
það er ljóst að fólk hefur minni
fjárráð og eins koma innkaupa-
ferðirnar erlendis til með að hafa
áhrif hér. Hins vegar kemur tíð-
arfarið þessa dagana sér ágætlega
fyrir okkur, þar sem við eigum
mikið af vetrarfatnaði,“ sagði
Gunnar.
Á sunnudaginn ætla kaupmenn
á Akureyri að standa fyrir ýms-
um uppákomum í verslunarmið-
stöðvunum í Sunnuhlíð og Kaup-
angi og í miðbænum. Þar verður
kórsöngur, auk þess sem jóla-
sveinar koma í heimsókn. -KK.
Rólegt hjá lögreglunni á Akureyri:
Nokkrir plástraðir eftir
áflog á Ráðhústorgi
- tveir minniháttar árekstrar
Mjög rólegt var hjá lögregl-
unni á Akureyri um sl. helgi.
Ölvunar gætti í miðbænum
aðfaranótt laugardagsins, en
ekki aðfaranótt sunnudagsins.
Að sögn lögregluvarðstjóra
urðu tveir minniháttar árekstrar
á Akureyri á föstudaginn. Engin
meiðsl urðu á fólki. Hins vegar
voru þrír menn fluttir aðfaranótt
laugardagsins á slysavarðstofu
Fjórðungssjúkrahússins þar sem
þeir voru plástraðir eftir áflog á
Ráðhústorgi.
„Laugardagurinn og nóttin
voru róleg. Fólk var ekki mikið á
ferli vegna veðurs. Danshúsa-
gestir fóru beint heim er dans-
leikjum lauk. Á mánudagsmorg-
uninn var tilkynnt um rúðubrot
hjá Pósti og síma og rúða brotn-
aði í heimahúsi þar sem fólk
lenti illdeilum. Annað er ekki í
bókum lögreglunnar og því telst
helgin hin rólegasta," sagði tals-
maður lögreglunnar á Akureyri.
ój
Norðurland:
Skólahaldféll
víða niður
Vegna veðurs féll kennsla víða
niður í gær í grunnskólum
norðan Holtavörðuheiðar.
Vetur konungur er ágengur og
Veðurstofa íslands gerir ráð fyrir
versnandi veðri er líður á daginn.
í gær var veðurhæðin mest á
Norðvesturlandi og víða féll
skólahald niður. Veðrið á Akur-
eyri var skaplegt, en engu að síð-
ur var ekki kennt í yngri deildum
grunnskólans. ój